Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Tinna lokar verslun sinni á Laugavegi: „Ég er ekkert að grínast þegar ég hef kallað Hrím barnið mitt“

Tinna lokar verslun sinni á Laugavegi: „Ég er ekkert að grínast þegar ég hef kallað Hrím barnið mitt“
Mynd / Facebook

„Með blóði, svita og tárum hef ég rekið Hrím Hönn­un­ar­hús á Lauga­vegi í 8 ár. Í dag er staðan sú að við erum að loka þeirri verslun end­an­lega. Ég er ekk­ert að grín­ast þegar ég hef kallað Hrím barnið mitt, búðin á Lauga­vegi varð svo miðju­barnið þegar Hrím opn­aði í Kringl­unni 2015,“ segir Tinna Brá Bald­vins­dóttir eig­andi versl­an­anna Hrím, en hún til­kynnir það í færslu á Facebook að versl­un­inni á Lauga­vegi verður lokað.

Segir hún það erf­iða ákvörðun að loka versl­un­inni.

„Eftir að hafa syrgt núna í nokkra daga að hafa þurft að taka þessa erf­iðu ákvörðun hef ég fundið fyrir miklum létti. Ég veit að þetta mun allt bless­ast, það gengur mjög vel hjá okkur í Kringl­unni og nýja vef­versl­unin okkar gengur ofsa­lega vel. Við erum með ynd­is­legt starfs­fólk sem hefur tekið þessum erf­iðu breyt­ingu með æðru­leysi og lagt sig mjög fram um að aðlaga sig að breyttum aðstæðum. Þeim er ég virki­lega þakk­lát.“

Tinna seg­ist þó elska Lauga­veg­inn, en ljóst sé að staðan sé ekki góð þar og segir hún stjórn­völd þurfa að grípa inn í og það hratt til að fá að nýju líf í göt­una.

„Ég hef alltaf elskað Lauga­veg­inn, þetta er upp­á­halds gatan mín í Reykja­vík. Mið­bær­inn hefur verið mér mjög kær, svo kær að ég sat í stjórn Mið­borg­ar­innar okkar í nokkur ár og einnig í dóm­nefnd við sam­keppni á hönnun nýs Lauga­vegar. Mér er mjög annt um göt­una og á þar líka fast­eign. Staðan er því miður ekki góð núna og verður það næsta árið er ég hrædd um. Ég tel þó að þetta verði von­andi þess vald­andi að leigu­verð lækki og ein­stöku versl­an­irnar og veit­inga­stað­irnir okkar þar lifi áfram. Stjórn­völd þurfa líka að grípa hratt þarna inn í til að fá sem mest líf á ný í líf­leg­ustu götu borg­ar­innar okkar.“

Tinna er þó þrátt fyrir allt bjart­sýn á að allt lifni við í sumar og hvetur hún ein­stak­linga til að versla við versl­anir sem þeir vilja að lifi og borða sömu­leiðis á sínum upp­á­halds veit­inga­stöðum.

„Saman komumst við í gegnum þetta og þetta bless­ast allt hjá okkur. Ég vona inni­lega að sem flestar versl­anir og veit­inga­staðir muni standa þetta af sér og að allt lifni svo við í sumar. Þar þurfum við íslend­ingar að standa okkur vel og versla við versl­anir sem okkur eru kærar og borða reglu­lega á veit­inga­stöðum sem eru okkur kærir. Lífið heldur áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ