Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Tobba Marinós er nýr ritstjóri DV

Tobba Marinós er nýr ritstjóri DV
Tobba Marinós Mynd / Hallur Karlsson

Þorbjörg Mar­in­ós­dóttir hefur verið ráðin nýr rit­stjóri DV. Þorbjörg er fjöl­miðla­fræð­ingur að mennt og með masters­gráðu í verk­efna­stjórnun. Hún hefur einnig skrifað fjölda bóka, stýrt sjón­varps­þáttum, starfað í útvarpi og á fjöl­miðlum svo sem Séð og Heyrt, Skjá­Einum þar sem hún sat í fram­kvæmda­stjórn og Morg­un­blað­inu.

„Ég hlakka til að takast á við að rit­stýra DV og dv.is. Net­mið­ill­inn ásamt und­ir­miðl­unum er einn sá fjöl­sótt­asti hér á landi og nú tekur við að laga þar til í efn­isvali og efn­is­tökum. Við viljum að hann sé léttur og skemmti­legur mið­ill sem segi harðar féttir í bland en sé umfram allt með vönduð efn­is­tök. DV hefur und­an­farið verið gefið út í pappír á föstu­dögum og því verður haldið áfram. Þar eru mikil tæki­færi, að gefa út fjöl­breytt helg­ar­blað með fréttum í bland við vandað afþrey­ing­ar­efni,“ segir Tobba í til­kynn­ingu frá Torg, eig­anda DV og dv.is.

Hún segir að rit­stjórn­ar­stefna DV verði nú löguð að rit­stjórn­ar­stefnu Torgs, sem felur óhjá­kvæmi­lega í sér nokkrar breyt­ingar. „Þegar við höfum hrundið breyt­ing­unum í fram­kvæmd er vonin sú að fólk muni sjá breytt blað og breyttan vef með ferskum áherslum. Virðing fyrir við­mæl­endum er mik­il­væg og við munum leggja áherslu á það,“ segir hún.

Líkt og Mannlíf greindi frá í gær var fjölda starfs­manna DV sagt upp í gær. Þeir sem boðið var að halda áfram störfum hafa nú flutt sig niður á Hafn­ar­torg þar sem Frétta­blaðið, Hring­braut og nú DV eru til húsa.

Sjá einnig: Upp­sagnir hjá DV – Nýr rit­stjóri kynntur

Hlé verður nú gert á útgáfu DV í papp­írs­formi meðan unnið er að breyt­ingum útlits og efn­istaka og stefnt að útgáfu nýs og öfl­ugra DV á allra næst­unni. Ekkert hlé verður á starf­semi dv.is og und­ir­vefja þess.

„Við erum afskap­lega lukku­leg með að fá Þor­björgu til liðs okkur hjá við Torgi. Hún er með víð­tæka reynslu úr heimi fjöl­miðla og hefur verið kraft­mik­ill stjórn­andi í fyrri störfum. Þá er hún með skýra sýn varð­andi hvernig fjöl­miðil Torg hefur hug á að gefa út undir merkjum DV. Við bjóðum hana hjart­an­lega vel­komna til starfa,“ segir Jóhanna Helga Við­ars­dóttir, for­stjóri Torgs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð