Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sýslumaður viðurkennir mistök

Sýslumaður viðurkennir mistök
Skúli Gunnar Sig­fús­son. Mynd / Eggert Jóhann­es­son|Sveinn Andri Sveins­son *** Local Caption *** Sveinn Andri Sveins­son

Fulltrúi Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu boð­aði að kyrr­setn­ingu eigna Skúla í Subway yrði aflétt í kjöl­far nýfall­ins dóms Lands­réttar. Daginn eftir dró hann það til baka. Skúli hefur nú kært þrota­búið vegna ákvörð­unar sýslu­manns.

„Þetta er mjög íþyngj­andi og veldur mér gíf­ur­legu tjóni,“ segir Skúli Gunnar Sig­fús­son, sem jafnan er kenndur við Subway. Fulltrúi Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til­kynnti Skúla og hlut­að­eig­andi lög­mönnum þann 12. mars síð­ast­lið­inn að kyrr­setn­ingu eigna hans yrði nú aflétt. Það yrðii gert á grund­velli nýfall­ins dóms Lands­réttar. Daginn eftir til­kynnti full­trú­inn svo að fyrri til­kynn­ing hefði verið send í fljót­færni. Eign­irnar, sam­tals um 600 millj­ónir króna, eru því enn í vörslu sýslu­manns og Skúli seg­ist engin svör fá.

Mála­ferli þrota­bús EK1923, sem áður var heild­salan Eggert Krist­jáns­son ehf., gegn Sjö­stjörn­unni, félagi í eigu Skúla, voru að stórum hluta til lykta leidd í Lands­rétti 6. mars. Dóm­stóll­inn sneri þá við dómi hér­aðs­dóms að stærstum hluta. Hér­aðs­dómur hafði áður dæmt Sjö­stjörn­una til að greiða þrota­bú­inu 223 millj­ónir og 21 milljón króna auk vaxta. Samtals yfir 400 millj­ónir króna.

Lands­réttur komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að aðeins bæri að greiða lægri upp­hæð­ina. Í dómnum var kyrr­setn­ing á bróð­ur­parti af eignum félags Skúla fyrir vikið felld úr gildi, en eignir hans hafa verið kyrr­settar frá 2017. Dóm­stóll­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að aðeins þær eignir sem vörð­uðu lægri upp­hæð­ina, 21 milljón, skyldu áfram vera í kyrr­setn­ingu.

Sveinn Andri Sveins­son, skipta­stjóri EK1923, sagði við mbl.is eftir dóms­upp­kvaðn­ing­una í byrjun mars að allar líkur væru á að hann myndi sækja um áfrýj­un­ar­leyfi til Hæsta­réttar.

Sveinn Andri Sveins­son, lög­maður og skipta­stjóri. Mynd / Rakel Ósk

Fulltrúi sýslumanns ber fyrir sig fljótfærni

Mannlíf hefur fengið afrit af tölvu­póst­sam­skiptum á milli full­trúa sýslu­manns og máls­að­ila, þar sem þung orð eru látin falla. Eins og áður segir til­kynnti full­trúi sýslu­manns um aflétt­ingu kyrr­setn­ingar 12. mars en dró það til baka dag­inn eftir. „Ég við­ur­kenni að það var fljót­færni af minni hálfu að senda út póst­inn í gær. Ég biðst vel­virð­ingar á því,“ segir hann í tölvu­pósti.

Full­trú­inn bætir við að sýslu­maður hafi ekki breytt ákvörðun sinni vegna hót­ana Sveins Andra, en Skúli hafði látið að því liggja í fyrri pósti. Markmið sýslu­manns sé ein­fald­lega að kom­ast að lög­fræði­lega réttri nið­ur­stöðu. „Menn geta svo deilt um lög­fræð­ina,“ skrifar full­trú­inn.

Síðar segir hann að tölvu­póstur sé ekki það sama og form­legur úrskurður. „Í þessu máli hefur form­leg end­ur­upp­taka ekki farið fram hjá sýslu­manni og mun ekki fara fram fyrr en eftir að Hæsti­réttur hefur tekið afstöðu til umsóknar um áfrýj­un­ar­leyfi. Þá munum við, eins og áður sagði, skoða málið að nýju, vega það og meta með hlið­sjón af ákvörðun Hæsta­réttar.“ Sýslu­maður virð­ist því ætla að bíða eftir því hvort Sveinn Andri fái áfrýj­un­ar­leyfi.

Skúli kærir sýslumann

Skúli bendir í pósti sínum að hann hefði til­kynnt nokkrum kröfu­höfum sínum að hann gæti senn gert upp skuldir við þá, þar sem hann ætti von á um 600 millj­ónum króna í formi fast­eigna og pen­inga. Hann krefst þess að sýslu­maður standi við það sem hann hafði áður til­kynnt.

Nú eru tvær vikur liðnar og Skúli seg­ist engin svör hafa fengið en bæði Skúli og lög­maður hans hafa ítrekað kraf­ist þess að sýslu­maður standi við fyrri ákvörðun sína eða hitti þá á fundi. Bent er á að afstöðu Hæsta­réttar Íslands vegna beiðni um áfrýjun geti verið mjög langt að bíða. Rétt­ur­inn starfi ekki á fullum afköstum vegna COVID-19 auk þess sem sum­ar­leyfi sé fram undan.

Skúli er afar ósáttur við stöðu mála. „Þótt Sveinn Andri sæki um áfrýj­un­ar­leyfi breytir það ekki dómi Lands­réttar. Allir lög­menn sem ég hef talað við segja að þetta stand­ist enga skoðun.“ Hann segir að kyrr­setn­ingin árið 2017 hafi farið fram með miklu ofbeldi. Sýslu­maður hafi látið hjá líða að krefj­ast trygg­ingar af hálfu gerð­ar­beið­anda, Sveins Andra, vegna kyrr­setn­ing­ar­innar. „Ég lít á þetta sem ofbeldi af hálfu sýslu­manns. Og nú svara þeir engu.“ Hann segir að afstaða sýslu­manns sé honum mjög íþyngj­andi. Um sé að ræða fast­eignir auk 120 millj­óna í reiðufé. Samtals um 600 millj­ónir.

Lögmaður Sjö­stjörn­unnar, félags Skúla, hefur lagt fram kæru á hendur þrota­bú­inu þar sem þess er kraf­ist að ákvörðun sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, um að bíða svars Hæsta­réttar við beiðni um áfrýj­un­ar­leyfi, verði felld úr gildi og sýslu­mann­inum gert skylt með úrskurði að aflétta kyrr­setn­ingu eign­anna.

Um hvað snýst málið?

Deilur skipta­stjór­ans Sveins Andra Sveins­sonar og athafna­manns­ins Skúla Gunnars Sig­fús­sonar hafa staðið yfir í nokkur ár.

Til að gera langa sögu stutta tengj­ast þær í grunn­inn 223 millj­óna króna sölu á heild­söl­unni EK1923 til Sjö­stjörn­unnar og  þeim samn­ingum sem gerðir voru í tengslum við fast­eign félags­ins, Skútuvog 3.

Skúli keypti heild­söl­una í nóv­em­ber 2013, ásamt öðrum fjár­festum, en rift­un­ar­málin snú­ast um að Skútu­vogur 3 var seldur út úr heild­söl­unni yfir í Sjö­stjörn­una fyrir ára­mótin 2013. Skipta­stjóri EK1923 ehf., Sveinn Andri Sveins­son, er þeirrar skoð­unar að fast­eignin hafi verið seld á allt of lágu verði auk þess sem sam­svar­andi skuldir hafi ekki verið yfir­teknar.

Sveinn Andri hefur höfðað fjölda rift­un­ar­mála gegn félögum Skúla en hefur auk þess vísað málum til hér­aðs­sak­sókn­ara. Í nóv­em­ber var Skúli, ásamt tveimur stjórn­endum fyr­ir­tækja hans, ákærður af emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir að milli­færa pen­inga af banka­reikn­ingum EK1923 ehf. og rýra þannig efna­hag þess í aðdrag­anda þess að félagið var úrskurðað gjald­þrota.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ