Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nærmynd Alda D. Möller: „Bara engill af himnum ofan“

Alma Dagbjört Möller land­læknir er ein þeirra sem staðið hefur í eld­lín­unni und­an­farnar vikur vegna útbreiðslu COVID-19 kór­ónu­veirunnar hér á landi. Þríeykið, Alma, Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hafa nær dag­lega setið upp­lýs­inga­fundi, þar sem þau hafa svarað spurn­ingum blaða­manna af yfir­vegun og öryggi.

Nærmynd Alda D. Möller: „Bara engill af himnum ofan“
Alma D. Möller

„Ég get full­yrt að það eru ekki margir sem hafa lesið meira um þessa blessuðu kór­ónu­veiru und­an­farið en Alma,“ segir Dagrún Hálf­dán­ar­dóttir, lög­fræð­ingur hjá Embætti land­læknis og sam­starfs­kona Ölmu. „Alma er skugga­lega klár, vel að sér og eldsnögg að hugsa. Alma er vinnu­söm og ein­beitt, fárán­lega skipu­lögð og reiðu­búin til að leggja mikið á sig. Hennar helstu kostir sem sam­starfs­manns eru hvað hún er gríð­ar­lega morg­un­hress.“

Langyngst í stórum systkinahópi

Alma er fædd 24. júní 1961 á Siglu­firði, lang­yngst í sex systk­ina hópi, fimm systur og einn bróðir. Móðir hennar er Helena Sig­tryggs­dóttir hús­móðir, fædd 1923, og faðir hennar er Jóhann Georg Möller, verk­stjóri hjá Síld­ar­verk­smiðjum rík­is­ins og bæj­ar­full­trúi Alþýðu­flokks­ins á Siglu­firði, fæddur 1918, lát­inn 1997.

„Alma er lang­yngst af okkur systkin­unum, þannig að við hin höfum stundum sagt í gam­an­sömum tóni að hún sé einka­barn,“ segir Kristján L. Möller, bróðir Ölmu, og við­ur­kennir aðspurður að hann, þá yngstur af fimm systk­inum hafi langað í bróður, þegar von var á einu systk­ini enn. „Ég hef stundum haldið því fram að for­eldrar okkar hafi ætlað að gera annan súper­strák, en það hafi ekki tek­ist og bara komið súper­stelpa í stað­inn.“

Kristján L. Möller, eldri bróðir Ölmu

Metnaðargjörn á menntavegi

„Það kom manni ekk­ert á óvart hvernig hún fet­aði mennta­veg­inn, hún hafði ein­stak­lega gaman af að læra og fara lengra. Hún er metn­að­ar­gjörn og lagði mik­inn metnað í námið alla tíð,“ segir Kristján.

Alma lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum á Akureyri 1981, og lækna­prófi frá Háskóla Íslands 1988. Hún hélt síðan til Sví­þjóðar í sér­fræði­nám í svæf­ingum og gjör­gæslu við Háskóla­sjúkra­húsið í Lundi og útskrif­að­ist þaðan 1995 og 1996 lauk hún prófi Evrópsku svæf­inga­lækna­sam­tak­anna. Fjórða des­em­ber 1999 varði hún  dokt­ors­rit­gerð sína í svæf­inga- og gjör­gæslu­lækn­ingum við Háskól­ann á Lundi, á sama tíma og hún starf­aði sem sér­fræð­ingur við Háskóla­sjúkra­húsið í Lundi, en þar starf­aði hún árin 1992-2005.

Alma hefur einnig lokið meist­ara­prófi í stjórnun heil­brigð­is­þjón­ustu og lýð­heilsu og hlotið sér­fræði­við­ur­kenn­ingu í heil­brigð­is­stjórnun. Árið 2002 tók Alma við starfi yfir­læknis á gjör­gæslu­deildum Land­spít­ala í Fossvogi og við Hring­braut. Árin 2014-2018 var hún fram­kvæmda­stjóri aðgerða­sviðs Land­spít­ala.

Forsíða DV Skjáskot tima­rit.is

Fyrst kvenna sem þyrlulæknir

Alma er fyrsta konan sem starf­aði sem þyrlu­læknir Land­helg­is­gæsl­unnar, en hún störf í maí 1990 og fór til Skotlands í sér­stakar æfinga­búðir. Í for­síðu­við­tali við DV í sept­em­ber 1991 sagð­ist hún hafa verið heppin því hún hefði lært mikið í skól­anum.

Í við­tal­inu rifj­aði Alma upp orð eins skip­verja þegar hún kom síg­andi niður úr þyrl­unni: „Nú, það er bara eng­ill af himnum ofan.“

„Hún er áræðin, sam­an­ber þegar hún gerð­ist þyrlu­læknir, ég og mamma vorum ekk­ert hrifin af því á þeim tíma, en Alma leysti það eins og annað með prýði,“ segir Kristján.

Viðtal við Ölmu og Helgu á DV árið 1991 Skjáskot tima­rit.is

Húmoristi og hundavinur

Alma er gift Torfa Fjalari Jónassyni hjarta­lækni og eiga þau tvö börn, Helgu Kristínu, dokt­or­snema í jarð­fræði, og Jónas Má lög­fræð­ing.

„Alma er mjög vel gift. Hjónin eru snilld­ar­kokkar, þau veiða saman í ám, Alma veiðir á flugu og hefur gaman af. Torfi er líka skot­veiði­maður og veiðir rjúpu, hrein­dýr og gæsir og þau elda þetta saman og bjóða í mat, og þetta eru alltaf stór­veislur, þau hafa gaman af að dedúa við þetta og bjóða gestum heim,“ segir Kristján og bætir við að yngsta systir hans sé mik­ill húmoristi.

„Alma er mik­ill hunda­vinur, og þau eiga hund sem heitir Móberg, kall­aður Mói, og mig grunar nú að jarð­fræð­ing­ur­inn dóttir þeirra hafi gefið honum það nafn,“ segir Kristján. „Alma er mikil úti­vist­ar­mann­eskja og dug­leg við fjall­göngur og allt slíkt, hjónin hafa ferð­ast mikið saman og þá farið á staði sem ekki margir fara á, sem dæmi til Galapa­gos­eyja í göngu og ég hafði gaman af því að heyra sögur af þeim standa þar í bið­röð til að sækja um og skoða ein­hver nátt­úru­undur.

„Ég, eig­in­konan, og systur mínar vorum að grín­ast með það eftir að Smartland birti frétt um klæða­burð Ölmu, þá varð mér að orði „hún ætti að sjá skó­safnið,“ því skó­safn Ölmu er eins og með­al­góð skó­búð. Og það á við þær allar systur mínar og eig­in­konu,“ segir Kristján og rifjar upp Spán­ar­ferð, þar sem öll fjöl­skyldan var saman, ásamt for­eldrum þeirra systk­ina. „Við vorum öll á göngu, og faðir okkar var svona þannig að hann vildi drífa í hlut­unum og halda áfram. Nema þær hurfu allar og ég benti á skó­búð sem þær fóru í. Þá sagði pabbi: „Fundu þær nú eina hel­vítis skó­búð­ina í við­bót!“

Mynd / Hallur Karlsson

Fyrst kvenna til að verða landlæknir

Alma var skipuð land­læknir frá 1. apríl 2018, fyrst kvenna til að gegna emb­ætt­inu í 258 ára sögu þess, en sex sóttu um stöð­una.

„Þó að það sé sjaldan logn­molla í kringum Ölmu í vinn­unni og dag­arnir hennar oft langir og mjög strembnir þá er stutt í glens og grín þegar það á við. Hún er skemmti­legur vinnu­fé­lagi sem tekur sjálfa sig ekki of hátíð­lega. Svo er eitt sem hún má eiga og er mjög mik­ill kostur, en hún hefur hug­rekki til að skipta um skoðun. Alma er algjör­lega laus við til­gerð og þú veist alltaf hvar þú hefur hana,“ segir Dagrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi