Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segir margt fólk vera „komið á brúnina andlega“ vegna verkfalla

Segir margt fólk vera „komið á brúnina andlega“ vegna verkfalla
Ásdís og fjöl­skylda.

Verkföll félags­manna Eflingar sem starfa hjá Reykja­vík­ur­borg hafa mikil áhrif á barna­fjöl­skyldur í Reykja­vík. Ásdís Gunn­ars­dóttir, tveggja barna móðir, seg­ist vera reið vegna ástands­ins. Ásdís skrif­aði færslu um málið á Facebook í fyrra­dag og lýsti ástand­inu á heim­il­inu. Hún segir það vera „óbæri­legt“ fyrir dóttur sína sem er með ein­hverfu og skertan þroska.

Í sam­tali við Mannlíf kveðst Ásdís Gunn­ars­dóttir hafa fengið mikil við­brögð frá for­eldrum í sömu stöðu við Facebook-færslu þar sem hún talar um ástandið sem hefur skap­ast á heim­ili hennar vegna verk­falla félags­manna Eflingar sem starfa á leik­skólum Reykja­vík­ur­borgar. „Fólk er að tengja við það sem ég skrif­aði og mjög margir eru í sömu sporum. Fólk er mjög reitt og margir eru algjör­lega komnir á brún­ina and­lega.“

Í umrædda færslu skrif­aði Ásdís meðal ann­ars: „Nú verð ég bara að segja eitt­hvað. Ég er svo reið yfir ástand­inu þessa dag­ana, ég er reið út í Reykja­vík­ur­borg og ég er reið út í Eflingu. Ég á tvö börn, Fjólu sem er 5 ára og er með fötlun og Frosta sem er 1,5 árs. Þau eru búin að vera ca 80% úr leik­skóla und­an­farnar vikur. Frosti á erfitt með þetta rót eins og flest börn en fyrir Fjólu Röfn er þetta óbæri­legt ástand. Hún er með ein­hverfu og skertan þroska og rútínan, þjálfunin og leik­skólaum­hverfið er henni nauð­syn­legt.“

Hún bætir við að amma barna sinna hafi hjálpað mikið en að það sé ómögu­legt fyrir hana að ná að sinna börn­unum „eins og þau eiga skilið alla daga“.

Í færslu sinni spyr Ásdís af hverju sé ekki verið að gera neitt. Að hennar mati fer of mikil orka hjá samn­ings­að­ilum í ómál­efna­legar ásak­anir á sam­fé­lags­miðlum. „Og svo virð­ist vera fundað eftir henti­semi af og til þegar eðli­legt væri að gera það allan sól­ar­hring­inn þangað til kom­ist er að nið­ur­stöðu,“ skrifar Ásdís. Hún bætir við að allir á hennar heim­ili séu að missa geð­heils­una vegna álags.

Að fylgjast með samskiptum Dags og Sólveigar veldur vanlíðan

Ásdís merkir Eflingu, Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, for­mann Eflingar, Reykja­vík­ur­borg og Dag B. Egg­erts­son borg­ar­stjóra í færsl­unni sinni og hvetur þau til að leysa málið. Aðspurð hvort að hún hafi fengið ein­hver við­brögð frá þeim segir Ásdís: „Nei, ég hef ekk­ert svar fengið frá þeim.“

„Mér finnst þetta snú­ast um stolt, hót­anir og yfir­gang.“

Dagur og Sólveig hafa verið gagn­rýnd fyrir seina­gang í samn­inga­við­ræðum. Ásdísi líður illa þegar hún fylgist með sam­skiptum Dags og Sól­veigar Önnu á sam­fé­lags­miðlum. Eins og málið blasir við henni leggja þau of mikla orku í deilur á Netinu og í fjöl­miðlum. „Mér finnst eins og eng­inn vilji sé til að setj­ast niður og ræða málin og gera mála­miðl­anir. Mér finnst þetta snú­ast um stolt, hót­anir og yfir­gang. Ég hef bara verið mjög pirruð og leið að fylgj­ast með þessu,“ segir Ásdís.

Sendingar fram og til baka

Verk­falls­að­gerðir Eflingar hafa skert þjón­ustu í leik­skólum borg­ar­innar mikið síðan þær hófust um miðjan febr­úar. Síðan þá hafa Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri og Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, tek­ist á í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum.

Margt fólk hefur gagn­rýnt sam­skipti Dags og Sól­veigar Önnu sem hafa gjarnan farið fram í gegnum Facebook.

Það hefur þótt áhuga­vert að fylgj­ast með sam­skit­pum S’olveigar og Dags á sam­fé­lags­miðlum.

Líf Magneu­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Vinstri grænna, er ein þeirra sem hefur bent á að það sé ekki rétta leiðin til að leysa málið. „Samn­ingar nást hins vegar ekki með Facebookstatusum og fyrir milli­göngu fjöl­miðla­manna. Samn­ingar nást við samn­ings­borðið. Þeir nást með sam­tal­inu,“ skrif­aði Líf meðal ann­ars í færslu á Facebook í vik­unni.

Hver Facebook-færslan á fætur annarri

Sjálfur hefur Dagur sagt í færslu á Facebook að honum þyki of mikil orka tals­manna Eflingar fara í að efna til átaka. „Ég vildi óska að sami kraftur væri settur í samn­inga­gerð­ina og ítrekað virð­ist fara í skeyta­send­ingar í minn garð og samn­inga­nefndar borg­ar­innar,“ skrif­aði hann á Facebook.

Á meðan Sólveig hefur sagt Dag lofa öllu fögru í við­tölum við fjöl­miðla en ekki gefa sömu lof­orð í samn­inga­her­berg­inu seg­ist Dagur standa við allt það sem hann segir í fjöl­miðlum. Þegar hann boð­aði Eflingu á fund í vik­unni birti Sólveig færslu á Facebook-vegg hans. Hún sagð­ist vera til­búin að hitta hann en með tveimur skil­yrðum.

„Í fyrsta lagi að þú birtir opin­ber­lega það til­boð (glær­urnar) sem samn­inga­nefnd minni var kynnt á samn­inga­fundi 19. febr­úar, dag­inn sem þú mættir í Kast­ljós­svið­talið, þannig að allir geti borið til­boðið saman við ummæli þín í Kast­ljós­inu. Í öðru lagi að þú fall­ist á að mæta mér eða öðrum full­trúa Eflingar í setti í útvarps- eða sjón­varps­við­tali áður en vikan er úti,“ skrif­aði hún.

Þegar fréttin var skrifuð hafði rík­is­sátta­semj­ari boðað við­semj­endur í kjara­deilu borg­ar­innar og Eflingar á samn­inga­fund klukkan 16:00 í gær, fimmtu­dag­inn 5. mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjavíkurborg

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum