Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hefði getað verið „viljugri fótgönguliði“

Hefði getað verið „viljugri fótgönguliði“
Mynd / Hákon Davíð Björns­son|Mynd / Önundur Pálsson

Fljót­lega eftir að Guð­mundur Gunn­ars­son tók til starfa sem ópóli­tískur bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar varð hann þess áskynja að það voru ekki allir sáttir við ráðn­ing­una. Sam­starfið við meiri­hlut­ann ein­kennd­ist af tor­tryggni og óein­ingu og lauk skyndi­lega eftir að honum voru settir þröngir afar­kostir.

Spurður að því hvort hann aðhyllist þá sjálfur sam­sær­is­kenn­ingar um að honum hafi verið bolað burt því aðrir vildu stól­inn seg­ist hann ekki getað svarað því. Hann viti bara að hann var umvaf­inn frá­bærum starfs­mönnum bæj­ar­ins og fannst hann og þau standa sig vel.

En telur hann að þetta hafi raun­veru­lega snú­ist um óánægju með frammi­stöðu hans? „Ég alla vegna gerði ekki nóg til að þau treystu mér. Ég upp­lifði mjög fljót­lega að öllu var tekið með tor­tryggni. Það var þá vænt­an­lega eitt­hvað í mínu fari eða mínum störfum, hvernig ég nálg­að­ist sam­skipti eða verk­efni. Þetta er svo skrýtið starf. Þau eru mínir yfir­menn í raun, þegar öllu er á botn­inn hvolft, og mér mistókst að ná þeim á mitt band. En ég fann það mjög sterkt að ég náði til íbú­anna.“

Guð­mundur segir að mögu­lega hefði sam­starfið gengið upp ef hann hefði verið „viljugri fót­göngu­liði“. „En ég vildi meina að við værum teymi, að ég mætti hafa skoðun. Að ég mætti selja þeim hug­myndir að verk­efnum, hvernig við gætum fært sveit­ar­fé­lagið áfram.“ Hann segir að eftir á að hyggja hefði verið gott ef vænt­ingar beggja hefðu legið fyrir strax í ráðn­ing­ar­ferl­inu.

Sátta­fund­ur­inn fór fram á föstu­degi. Á laug­ar­degi hafði Guð­mundur gert upp við sig að hætta og sunnu­dag­ur­inn fór í að ganga frá starfs­lok­unum og til­kynn­ingu um þau. Frétt­irnar komu íbúum veru­lega á óvart, að sögn Guð­mundar. „Þetta er nátt­úr­lega alveg fárán­leg tíma­setn­ing; nokkrum dögum eftir nátt­úru­ham­farir og til­finn­inga­bog­inn spenntur. Þeir segja að maður eigi ekki að taka stórar ákvarð­anir við þannig aðstæður en við gerðum það. Við brutum þessa meg­in­reglu og það var sárt. En ég fann alveg ofboðs­lega mik­inn og jákvæðan stuðn­ing og það styrkti mig í því að jú, ég hefði nú kannski bara verið að gera eitt­hvað rétt. Staðið mig. Það er alla vegna tals­vert mörgum þarna úti sem finnst það.“

Var hann sjálfur far­inn að efast? „Eftir fund­inn á föstu­deg­inum var ég gap­andi hissa á því hvað þau voru óánægð,“ svarar Guð­mundur. Hann seg­ist hins vegar ekki hafa verið sá eini sem sætti harka­legum ásök­unum um óhæfni; því hafi fleiri bæj­ar­starfs­menn setið undir af hálfu meiri­hlut­ans, meira að segja á opin­berum vett­vangi. Það hafi áhrif, þar sem bær­inn og heil­brigð­is­stofn­unin séu stærstu vinnu­veit­end­urnir á svæð­inu. „Ef þarna er dálítið hokið ástand og bogið bak og dálítið brotið, þá bara hefur það áhrif á and­ann í bænum,“ segir hann. „Ef við hlúum ekki að þessu og réttum þetta bak og vald­eflum fólk þá hefur það dómínóá­hrif út í sam­fé­lagið. En ef við erum pínu stolt­ari og keik­ari … Ef við nálg­umst fjöreggið af virð­ingu og tölum um að fara í verk­efnin á upp­byggi­legan hátt í stað þess að tala um að eitt­hvað sé ógeðs­legt eða ein­hver sé óhæfur eða sinni sínu … Ég kynnt­ist engum hjá Ísa­fjarð­arbæ sem ekki sinnir starf­inu sínu. Þetta eru bara rætnar ásakair og róg­burður á strang­heið­ar­legt fólk. Og mér sárn­aði ofboðs­lega mikið og svo fann ég þetta á eigin skinni.“

Nú eru það aðrir sem ráða för

Og það leiðir okkur inn í lokakafl­ann, og nýtt upp­haf.

Að sögn Guð­mundar urðu róg­burður og dylgjur um störf hans og per­sónu til þess að fjöl­skyldan ákvað að flytja burt. Í stöðu­færslu á Facebook tal­aði hann um „furðu­skýr­ingar“ sem hefðu grass­erað í kjöl­far starfs­loka hans. „Ég ætla ekki að fara að end­ur­segja það sem var sagt í mín eyru og gefa þeim sögum byr undir báða vængi en þetta snýst um mín störf, minn dugnað og mína per­sónu,“ segir hann um sögu­sagn­irnar. Þessu geti hann ekki setið undir. Sagna­menn­ina segir hann til­heyra litlum hópi en senni­lega hefði farið betur á því að „bera karp okkar á torg,“ eins og Guð­mundur orðar það, frekar en að skilja eftir tóma­rúm fyrir kjafta­sögur að fylla. Hann ítrekar að fjöl­skyldan sé ekki að flýja; þau eiga enn heima á Ísafirði og hafa ekk­ert ákveðið um hvert leiðin liggur næst. Hjarta þeirra slái enn þá á Vest­fjörðum.

„Ísa­fjörður er frá­bær bær og okkur hefur liðið ofboðs­lega vel þar. Dætur okkar hafa aðlag­ast í skóla og það er frá­bært að ala upp börn á Ísafirði. Þessi klisja að þú eig­in­ist tvo auka­klukku­tíma á dag úti á landi er bara sönn. Klukkan fjögur eru allir búnir að öllu og þá áttu eftir hell­ing af klukku­tímum með fjöl­skyld­unni. Ég elska að búa nálægt for­eldrum mínum og þau hafa aldrei búið nálægt ömmu- og afa­börn­unum. Þú ert fimm mín­útur að koma þér upp í fjall,“ segir Guð­mundur. „En okkur líður ekki vel hérna lengur. Það breytir því ekki að þetta er ynd­is­legt sam­fé­lag.“

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

„Ég við­ur­kenni alveg að ég var mjög sár og reiður fyrstu vik­urnar en í dag er ég meira far­inn að sjá tæki­færi. Þetta er bara búið, þetta fór svona. Það er leið­in­legt, það hefði verið gaman að taka þátt í spenn­andi verk­efnum og að koma Vest­fjörðum betur á kortið. En það tekur annað við. Ég mun alltaf tala fyrir Vest­fjörðum og mun áfram fara heim,“ segir Guð­mundur um fram­haldið.

En hvert leitar hug­ur­inn núna? „Þegar við fluttum vestur var það vegna þess að ég fékk þetta starf og konan þurfti að finna nýtt starf og barnið að flytja sig um skóla. Nú er það þeirra að ákveða það og ég á að fylgja. Þetta var á mínum for­sendum en nú er komið að þeim. Ef dóttir mín vill fara í gamla skól­ann er það mjög veiga­mikið atkvæði í ákvörð­un­inni. Ef konan mín vill fara aftur í það starf sem hún var í þá laga ég mig að því. Ég hef engar áhyggjur, okkur er engin vor­kunn. Núna er ég að skoða sjálf­boða­störf fram að páskum. Minn eini vandi er lít­il­fjör­legur lúx­usvandi; ég er verk­efna­laus. Og er það ekki það sem maður er stundum að óska sér? Ég höndla það hins vegar ekk­ert voða­lega vel. Ég þarf ein­hverja áskorun.“

***

„Þetta eru töfrar“

Eftir snjó­flóðin í Súðavík og á Flateyri árið 1995 var erfitt fyrir utan­að­kom­andi að skilja hvernig fólk gat hugsað sér að búa áfram í bæj­unum. Spurður að því hvaða til­finn­ingar hann hafi upp­lifað meðal heima­manna þegar stór flóð féllu að nýju á Flateyri og í Súg­anda­firði verður Guð­mundur íhug­ull en svarar svo ákveðið:

Mynd / Önundur Pálsson

„Svona 200 manna sam­fé­lag … þetta er fjöl­skyldan þín. Þetta er miklu meira en fólkið í blokk­inni. Þú þekkir fólk svo ofboðs­lega vel því það gegnir mörgum hlut­verkum og er með alls konar hatta. Það er ekk­ert sem þú veist ekki um við­kom­andi; þú þekkir styrk­leika hans, veik­leika hans, drauma hans og þrár, for­tíð og jafn­vel fram­tíð. Þið eruð ekki bundin blóð­böndum en þið eruð bundin Flat­eyr­ar­böndum eða Bol­vík­inga­böndum. Og þessi mýta sem birt­ist í Aldrei fór ég suður eftir Bubba Morthens; að fólk sem búi í fámennu þorpi sé þar af því að það þorði ekki burt … nýleg rann­sókn hefur sýnt fram á að meiri­hluti þeirra sem búa í svona sam­fé­lagi hafa einmitt farið og komið aftur. Þeir vita alveg upp á hár hvað það er að búa ann­ars staðar en hafa komið aftur í þetta sam­fé­lag.

Og núna er ég bara að lýsa venju­legum mið­viku­degi í febr­úar eða ágúst; ef það er engin kjör­búð og þig vantar sykur þá redd­ast það. Það er alltaf ein­hver sem getur eitt­hvað og kann eitt­hvað og það hlaupa allir undir bagga. Þú þarft aldrei að aug­lýsa það á sam­fé­lags­miðlum að þú sért að fara að flytja og vantar hjálp. Þú bara byrjar að bera og það koma 20 aðrir og bera með þér. En svo þegar nátt­úr­ham­farir verða þá … Þú þarft að upp­lifa þetta og vera partur af þessu þétt­ofna teppi til að átta þig á því hvað þetta er mik­ill frum­kraftur. Hversu margir litlir þræðir ofnir saman geta verið sterkur kað­all. Og þú flytur ekk­ert í burtu og slítur þetta. Það koma allir heim þegar svona ger­ist.“

Það læð­ist bros fram á varir Guð­mundar. „Ég fékk að vera örlít­ill þráður og ég gleymi þessu aldrei,“ segir hann. „Þetta er eins og að vera í ævin­týra­mynd. Það bara birt­ist heil her­deild fram á fjall­stoppnum. Þetta eru töfrar. Það koma allir heim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi