Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Margir minnast Ragga Bjarna: „Goðsögn hefur kvatt“

Ragnar Bjarna­son, Raggi Bjarna, einn ást­sæl­asti söngv­ari þjóð­ar­innar fyrr og síðar, lést á líkn­ar­deild Kópavogs í gær­kvöldi eftir skamm­vinn veik­indi, 85 ára að aldri.

Raggi lætur eftir sig eig­in­konu, Helle Birthe Bjarna­son, þrjú börn, Bjarna Ómar, Henry Lárus og Krist­jönu, og ell­efu barna­börn.

Margir minn­ast Ragga á sam­fé­lags­miðlum, vinir, sam­starfs­menn og aðdá­endur enda snerti Raggi hug og hjarta allra sem honum kynnt­ust.

„Goðsögn hefur kvatt. Hvíl í friði elsku Raggi Bjarna, frum­kvöð­ull og fyr­ir­mynd. Takk fyrir sam­ver­una, leið­sögn­ina, húmor­inn, sönglögin og faðm­lögin. Þinn, Palli,“ skrifar söngv­ar­inn Páll Óskar Hjálmtýs­son og birtir mynd af þeim saman.

View this post on Instagram

Goðsögn hefur kvatt. Hvíl í friði elsku Raggi Bjarna, frum­kvöð­ull og fyr­ir­mynd ❤ Takk fyrir sam­ver­una, leið­sögn­ina, húmor­inn, sönglögin og faðm­lögin. Þinn, Palli

A post shared by Páll Óskar (@palloskar) on Feb 26, 2020 at 3:54am PST

Katrín Halldóra Sig­urð­ar­dóttir lék Elly Vil­hjálms í sýn­ingu Borg­ar­leik­húss­ins og Raggi Bjarna kom á flestar sýn­ingar og tók loka­lagið með henni.

„Höfðingi fall­inn. Hans verður sárt saknað,“ segir Grímur Atlason fram­kvæmda­stjóri Geð­hjálpar.

Valdimar Víðisson skóla­stjóri Öldutúns­skóla hefur verið aðdá­andi Ragga frá unga aldri og minn­ist hans með miklum hlý­hug í langri færslu á Facebook: „Fáir sem hafa haft jafn­mikil áhrif á mig og Raggi Bjarna. Ég var bara barn þegar ég varð aðdá­andi og þóttu vinum mínum það afar skrýtið,“ segir Valdimar og bætir við að Raggi hafi komið og sungið í báðum brúð­kaupum hans og hvíslað að Valdi­mari að hann ætl­aði ekki að mæta í það þriðja. „Raggi gaf mér svo mikið. Hann gaf þjóð­inni svo mikið. Lögin hans munu lifa. Þjóð­ar­ger­semi.“

Jakob Bjarnar Grét­ars­son blaða­maður á Vísi segir frá að móðir hans hafi sungið bak­raddir með Ragga: „Blessuð sé minn­ing þessa ein­staka gleði­gjafa. Ég veit ekki um nokkurn sem ekki kunni að meta Ragga, sjálfum þótti mér mikið til hans koma frá blautu barns­beini en móðir mín heitin sagði mér að hún hafi ein­hvern tíma sungið bak­raddir með þess­ari stór­stjörnu. Og var það hápunktur hennar fer­ils á því svið­inu.“

„Hvíldu í friði kæri Ragnar Bjarna­son stór­meist­ari íslenskrar dæg­ur­laga­sögu. Takk fyrir vin­áttu og vel­vild og allt sem þú gafst frá þér fyrir okkur öll. Sam­úð­ar­kveðja til fjöl­skyldu,“ skrifar Pálmi Sig­ur­hjart­ar­son píanó­leik­ari.

„Þessi ein­staki öðlingur og snill­ingur hefur kvatt okkur, eftir standa frá­bærar minn­ingar eftir að hafa bæði unnið með honum og tekið ótal við­töl við hann og heyrt hann segja margar skemmti­legar sögur. Hvíl í friði. Votta fjöl­skyldu hans mína dýpstu samúð,“ segir útvarps­mað­ur­inn Ívar Guð­munds­son.

Kristinn Snær Agn­ars­son trommari, eða Kiddi sner­ill, segir á Twitter að honum sé efst í huga þakk­lætið fyrir að hafa fengið að spila ótal sinnum með Ragga.

Söng­konan Helga Möller minn­ist Ragga og segir hann hafa verið eins við alla: „Elsku Raggi minn er lát­inn. Þessi öðlingur, þessi gull­moli. Hann var eins við alla, konur og kalla. Unga fólkið í tón­list­inni elskaði hann því hann gaf þeim öllum tíma til að spjalla, lagði sig fram við að vinna með þeim og vildi svo sann­ar­lega kynn­ast þeim. Þannig var hann reyndar líka við okkur hin. Hann kom nokkrum sinnum fram á jólatón­leik­unum mínum í Laug­ar­nes­kirkju og var alltaf hrókur alls fagn­aðar og ég gleymi aldrei þegar hann gekk eitt sinn inn kirkju­gólfið í fyrsta lag­inu sínu og kall­aði: „Hvað erum við aftur að fara að gera, Helga.“ Hann gerði alltaf góð­lát­legt grín af sjálfum sér og því að hann gleymdi stundum text­unum og fyrir það elskaði fólkið hann. Hann var maður allra ungra sem aldna.“

Kristín Eysteins­dóttir frá­far­andi Borg­ar­leik­hús­stjóri: „Það var mér sannur heiður að kynn­ast honum þegar hann kom um borð með okkur í Elly ævin­týrið. Hér syngur hann My way á loka­sýn­ing­unni á Elly, gleymi aldrei þessu augna­bliki enda var ekki þurrt auga í salnum. Takk Ragnar Bjarna­son fyrir allar gjaf­irnar sem þú gafst þjóð­inni. Ég votta aðstand­endum Ragnars mína dýpstu samúð.“

„Blessuð sé minn­ing þessa ynd­is­lega manns. Goðsögn í íslenskri tón­list fall­inn frá. Lögin munu lifa að eilífu. Fékk þann heiður að syngja nokkrum sinnum með honum. Takk fyrir mig,“ segir söng­konan Regína Ósk.

Byrjaði tónlistarferilinn ungur

Raggi var fæddur 22. sept­em­ber árið 1934 í Reykja­vík, sonur hjón­anna Bjarna Böðv­ars­sonar og Láru Magn­ús­dóttur sem voru mikið tón­list­ar­fólk. Móðir hans var ein fyrsta dæg­ur­laga­söng­kona lands­ins og söng með Dóm­kirkjukórnum í marga ára­tugi. Faðir hans var hljóm­sveit­ar­stjóri og hljóm­sveit hans sem bar nafn hans var lands­fræg á sínum tíma.
Raggi hóf feril sinn í tón­list sem trommu­leik­ari, en þegar hann var 16 ára söng hann ásamt Sigurði Ólafs­syni inn á lakk­plötu tvö lög sem komu út ára­tugum seinna á safndiski í til­efni 75 ára afmælis hans.

Raggi söng með Hljóm­sveit Svavars Gests árin 1955-1956, og byrj­aði síðan sem söngv­ari hjá KK sextett­inum. Árið 1959 gekk hann til liðs við Hljóm­sveit Björns R. Ein­ars­sonar, en stopp­aði stutt þar og fór aftur að syngja með Hljóm­sveit Svavars Gests árið 1960. Eftir að hafa búið erlendis um tíma hóf hann aftur að syngja með Hljóm­sveit Svavars Gests, þar til hann stofn­aði síðan eigin hljóm­sveit árið 1965. Sú hljóm­sveit spil­aði í 19 ár sam­fleytt á Hótel Sögu, en var lögð niður við skipu­lags­breyt­ingar hót­els­ins. Árið 1972 stofn­aði Raggi Sum­ar­gleð­ina ásamt fleirum, sem varð feikna vin­sæl.

Raggi var sæmdur fálka­orð­unni árið 2005 og hlaut heið­urs­laun lista­manna árið 2019.

Stoltastur af fólkinu sínu

Árið 2019 hélt Raggi kveðju­tón­leika og þar var ferli hans lýst svo: „Raggi hefur staðið í fram­varð­ar­sveit íslenskrar tón­listar síð­ustu 70 ár en hann var aðeins 15 ára þegar hann sett­ist við trommu­settið í hljóm­sveit föður síns, Bjarna Böðv­ars­sonar. Ekki leið á löngu þar til hann hóf að syngja með hljóm­sveit­inni og síðan hefur Ragnar ekki slegið slöku við. Hann hefur flutt vin­sæl­ustu lög þjóð­ar­innar á hverjum ára­tug fer­ils síns svo það má með sanni segja að stór partur af íslensku tón­list­ar­lífi hafi verið á hans herðum í gegnum tíð­ina.“

Í við­tali við DV árið 2014 sagði Raggi meðal ann­ars: „Það sem skiptir mig máli er fólkið mitt; fjöl­skyldan, vin­irnir, sam­starfs­fólkið og Ísland. Ég myndi ekki skipta á þeim fyrir heims­frægð og auð,“ sagði Raggi. „Ég er stolt­astur af börn­unum mínum og barna­börnum, vinum mínum og fjöl­skyldu. Og Íslend­ingum. Ég er stoltur af því að vera hluti af þess­ari þjóð. Íslend­ingar eru fram­taks­samir og þeir eru dug­legir, alveg óhræddir við að opna sig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum