Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Endurfjármögnun getur lækkað vaxtakostnað um hundruð þúsunda

Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa margir snar­lækkað vexti á hús­næð­is­lánum und­an­farin miss­eri, sam­hliða lækk­andi stýri­vöxtum. Á allra síð­ustu árum hefur hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað hratt umfram verð­lag. Þetta hefur skapað góð skil­yrði til end­ur­fjár­mögn­unar, sem ýmist getur haft í för með sér lægri vaxta­greiðslur eða styttri láns­tíma.

Endurfjármögnun getur lækkað vaxtakostnað um hundruð þúsunda
Vísitala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað mjög hratt síð­ustu ár. Að með­al­tali kostar íbúð sem kost­aði 30 millj­ónir í des­em­ber 2015 41

Eigandi 50 millj­óna króna blokkar­í­búðar með hefð­bundna lána­sam­setn­ingu hjá einum af við­skipta­bönk­unum þremur, getur sparað sér 650 þús­und krónur á ári í vaxta­greiðslur ef hann end­ur­fjár­magnar hús­næð­is­lánið sitt og velur lán hjá einum af þeim líf­eyr­is­sjóðum sem býður verð­tryggð lán á lægri vöxtum. Þetta er nið­ur­staða athug­unar Mannlífs en umrætt dæmi má sjá hér fyrir neðan. Vextir hús­næð­is­lána hafa aldrei verið lægri. Þetta er vit­an­lega háð ýmsum for­sendum en meg­in­for­sendur eru þær að við­kom­andi eigi 30 til 35 pró­senta eign­ar­hlut í íbúð sinni, eigi lán­töku­rétt í einum af þeim líf­eyr­is­sjóðum sem býður hag­stæð kjör, sé ekki með upp­greiðslu­gjald á lánum sínum og stand­ist greiðslu­mat. Þeir sem eiga dýr­ari eignir geta horft fram á enn meiri ávinn­ing af end­ur­fjár­mögnun en nefnt er hér að framan, en það veltur meðal ann­ars á þeim vaxta­kjörum sem þeir hafa fyrir og hvenær þeir tóku þau íbúða­lán sem þeir borga af í dag. Formaður Neyt­enda­sam­tak­anna, Breki Karlsson, hvetur fólk til að bera saman lána­kjör og freista þess að lækka vaxta­byrð­ina. Hann hvetur fólk þó til að horfa líka á annan kostnað við lán­töku en vexti.

Breki Karlsson Mynd / Haraldur Guð­jóns­son

„Það eru tæki­færi, bæði hjá líf­eyr­is­sjóðum og bönk­unum, að lækka vaxta­byrð­ina veru­lega,“ segir Breki við Mannlíf. Hann bendir á að eitt pró­sentu­stig í vöxtum muni 10 þús­und krónum á hverju ári fyrir hverja milljón sem fólk skuldar. Því sé eftir miklu að slægj­ast. Breki hvetur fólk til að bera saman þau lána­kjör sem það hefur í dag og þau lán sem standa til boða í kjöl­far vaxta­lækk­ana. Hann varar fólk hins vegar við að horfa aðeins í vaxta – pró­sent­una og nefnir að upp­greiðslu­gjald, lán­töku­kostn­aður og gjöld vegna greiðslu­seðla, geti skekkt mynd­ina. „Eina leiðin til að bera saman kostnað við lán er að horfa á árlega hlut­falls­tölu kostn­aðar. Það er kostn­aður láns­ins með öllum gjöldum,“ útskýrir hann. Allir lán­veit­endur eru skyldugir til að gefa þessa tölu upp við lána­út­reikn­inga. Hvað upp­greiðslu­gjald varðar bendir Breki fólki á að lögum sam­kvæmt geti við­skipta­vinir greitt allt að einni milljón inn á lán án þess að vera rukk­aðir um upp­greiðslu­gjald.

Dæmi um lækkun greiðslu­byrði.

Vextir hríðlækkað frá síðasta sumri

Vextir á Íslandi hafa lækkað mikið und­an­farin miss­eri. Seðla­bank­inn hefur áhrif á vexti á pen­inga­mark­aði í gegnum ákvörðun vaxta í við­skiptum sínum við lána­stofn­anir, sem síðan hafa áhrif á aðra mark­aðsvexti. Á árunum 2012 til vors­ins 2019 voru stýri­vextir Seðla­bank­ans yfir­leitt á bil­inu 4,5 til 5 pró­sent. Fimm pró­sent vextir af einni milljón jafn­gildir því að greiða 50.000 krónur í vexti af því láni. Frá sumr­inu 2019 hafa stýri­vext­irnir lækkað mikið. Núna standa þeir í 2,75 pró­sentum. Sá sem skuldar eina milljón og greiðir vexti í sam­ræmi við stýri­vexti, greiðir í dag 27.500 krónur á ári í vexti. Vaxta­byrðin hefur því nán­ast lækkað um helm­ing frá því sem var á árunum 2012 til 2019.

Mikill vaxtamunur á milli stofnana

Á vef­síð­unni Aurbjörg.is má bera saman vexti á hús­næð­is­lánum. Þar má sjá, þegar horft er á verð­tryggð lán með breyti­legum vöxtum, að kjörin eru mjög mis­jöfn á milli lána­stofn­ana. Þrír líf­eyr­is­sjóðir, Birta, Festa og Stapi bjóða undir 2 pró­sent vexti á hús­næð­is­lánum. Birta, sem er sá líf­eyr­is­sjóður sem iðn­að­ar­menn greiða í, býður þeirra best, eða 1,69 pró­sent. Vextir við­skipta­bank­anna þriggja; Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka, eru á bil­inu 3,2 til 3,5 pró­sent, þegar um verð­tryggða breyti­lega vexti fyrir hús­næð­is­lán er að ræða. Taka skal fram að þeir bjóða við­skipta­vinum sínum almennt hærra láns­hlut­fall af verð­gildi hús­næð­is­ins. Á því eru þó und­an­tekn­ingar. Því skal til haga haldið að Lands­bank­inn og Arion banki bjóða best þegar skoðuð eru verð­tryggð lán með föstum vöxtum. Munurinn á verð­tryggðum og breyti­legum vöxtum Arion banka og Birtu er mik­ill þegar greitt er af tugum millj­óna. Sá sem skuldar 30 millj­ónir króna verð­tryggt lán með breyti­legum vöxtum greiðir 507 þús­und krónur árlega í vexti hjá Birtu en eina milljón og 47 þús­und krónur hjá Arion banka, sam­kvæmt lána­reikni­vélum. Þarna munar 540 þús­und krónum á ári, eða 45 þús­und krónum á mán­uði.

Lestu nánar um málið í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina