Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Viljum ekki ala upp sjúklinga“

„Viljum ekki ala upp sjúklinga“
Birna Björg Guð­munds­dóttir

Uppnám ríkir á meðal fjöl­skyldna trans barna og ung­menna vegna nið­ur­skurðar á Barna- og ung­linga­geð­deild Land­spít­al­ans, BUGL. Frá ára­mótum hefur ekki verið hægt að halda úti trans-teymi, sem gegnir því lyk­il­hlut­verki að gera trans ung­mennum kleift að kom­ast á lyf vegna horm­óna­starf­semi, þegar kyn­þroski knýr dyra. Þetta gengur þvert á ný lög um kyn­rænt sjálf­ræði.

„Það er bara verið að ala upp fleiri sjúk­linga með þessu,“ segir móðir trans stúlku um þá stöðu sem upp er komin. Dæmi eru um að for­eldrar hafi þurft að sitja yfir börnum sínum vegna þung­lyndis, átrösk­unar eða sjálfs­vígs­hættu. Tilvera margra þeirra og fjöl­skyldna er í upp­námi.

„Tölvu­póst­ur­inn kom eins og sprengja inn á heim­ili þessa fólks“

Aðstand­endum trans barna og ung­menna var þann 3. jan­úar til­kynnt í tölvu­pósti að staða sér­staks trans-teymis, sem starf­rækt hefur verið á barna- og ung­linga­geð­deild Land­spít­al­ans (BUGL) sé „ekki góð“. Þar var til­kynnt að teym­is­stjór­inn, Ragna Krist­munds­dóttir, væri að hætta og ekki útséð með hver tæki við stöð­unni. Við­bót­arfé í tengslum við ný lög um kyn­rænt sjálf­ræði, sem kveður á um að slíkt teymi skuli starf­rækt, hefði ekki skilað sér til BUGL.

Þrjár mæður trans stúlkna, þær Birna Björg Guð­munds­dóttir, María Bjarna­dóttir og María Gunn­ars­dóttir, segja að frétt­irnar hafi verið mikið áfall fyrir ung­mennin og fjöl­skyldur þeirra, en 48 trans börn og ung­menni eru skráð hjá BUGL. Það er tíundi hluti skjól­stæð­inga deild­ar­innar. „Tölvu­póst­ur­inn kom eins og sprengja inn á heim­ili þessa fólks,“ segir María Gunn­ars­dóttir, móðir tví­tugrar trans konu. Trans börn séu með þessu bakslagi sett í mikla hættu. Hún segir mikla eft­ir­sjá að Rögnu, sem náð hafi vel til þessa hóps.

Foreldrar á sjálfsvígsvakt

Í svip­aðan streng taka María Bjarna­dóttir, móðir fimmtán ára trans stúlku, og Birna Björg Guð­munds­dóttir, móðir átta ára trans stúlku. Þær þrjár eru í sjö manna stjórn Trans vina, sam­taka sem stofnuð voru í jan­úar í fyrra og eru hags­muna­sam­tök for­eldra og aðstand­enda trans barna og ung­menna á Íslandi. Þær benda á að mörg trans börn komi út þegar kyn­þroski knýr dyra og þá sé mik­il­vægt að geta gripið fljótt inn í. „Það eru rosa­lega mörg börn að keppa við tím­ann vegna kyn­þroskans. Sumir for­eldrar hafa þurft að vakta börnin sín vegna þung­lyndis, átrask­ana eða sjálfs­vígs­hættu,“ segir María Gunnars. Þær segj­ast þekkja til dæma um svona aðstæður í kjöl­far þess­ara breyt­inga sem urðu hjá BUGL um ára­mótin.

„Sjálfs­myndin bara hrynur. Ég veit til þess að for­eldrar hafa þurft að vaka yfir börn­unum sínum vegna kynama“

Birna bendir á að það að byrja á blæð­ingum, eða verða fyrir öðrum breyt­ingum sem fylgja kyn­þroska, geti reynst trans börnum erfitt. Börnin séu þá að upp­lifa breyt­ingar á eigin lík­ama sem þau tengi ekki við. „Sjálfs­myndin bara hrynur. Ég veit til þess að for­eldrar hafa þurft að vaka yfir börn­unum sínum vegna kynama.“

Þegar ung­menni sem tengja ekki við það kyn sem þau fengu úthlutað við fæð­ingu vilja breyta kynein­kennum sínum hefst það ferli gjarnan, með aðstoð for­eldra, á við­tölum við sál­fræð­inga og geð­lækna þar til þau fá lyf sem hægja á áhrifum kyn­þroska. Við sextán ára aldur hafa þau sem vilja, getað fengið svo­kall­aða kross­horm­óna, sem eru þá gagn­stæðir þeim horm­ónum sem þau fram­leiða sjálf.

Dýr forgreining á einkastofum

Til að kom­ast á lyf sem stöðva kyn­þroska þarf barn eða ung­menni að hafa verið í við­tölum hjá BUGL í hálft ár, en lyfin geta þau ekki fengið án aðkomu geð­lækna BUGL. Nið­ur­skurð­ur­inn hefur að sögn mæðr­anna í för með sér að mun erf­ið­ara verður að kom­ast að á BUGL auk þess sem deildin hafi ekki bol­magn til að taka að sér for­grein­ingu á börn­unum. Tilvísun frá sál­fræð­ingi er skil­yrði þess að kom­ast að hjá geð­lækni. Slík grein­ing kostar að þeirra sögn á bil­inu 130 til 200 þús­und krónur á einka­stofum. „Okkur er stundum bent á skóla­sál­fræð­inga, að þeir eigi að sjá um þetta. Þeir hafa yfir­leitt enga þekk­ingu á þessum málum,“ útskýrir Birna. Hún hafi sjálf leitað til skóla­sál­fræð­ings vegna dóttur sinnar. Sá hafi ein­fald­lega vísað mál­inu frá sér, vegna van­þekk­ingar á mála­flokknum.

„Við áttum okkur á að þetta er ekki eins og best verður á kosið, en þetta er það sem við getum boðið eins og staðan er í dag“

Í tölvu­pósti frá stjórn­enda­teymi BUGL til aðstand­enda kemur fram að í bili verði mál barna „með kynama“ færð inn í almenna göngu­deild­ar­þjón­ustu. „Við áttum okkur á að þetta er ekki eins og best verður á kosið, en þetta er það sem við getum boðið eins og staðan er í dag. Við munum leit­ast við að tryggja þeim börnum sem eru nú þegar komin til okkar mála­stjóra sem for­eldrar geta leitað til […] áfram­hald­andi með­ferð,“ segir í bréf­inu.

Lögin hálfs árs gömul

Í 13. grein laga um kyn­rænt sjálf­ræði, sem tóku gildi 6. júlí í fyrra, segir að á BUGL skuli starfa teymi sér­fræð­inga um kyn­vit­und og ódæmi­gerð kynein­kenni, skipað af for­stjóra sjúkra­húss­ins. „Teymið skal vera þver­fag­legt og skipað fag­fólki með við­eig­andi þekk­ingu og reynslu. Tryggja skuli trans börnum „með­ferð í sam­ræmi við þarfir hvers og eins“ og for­sjárað­ilum þeirra stuðn­ing og ráð­gjöf.

Mæðurnar þrjár sem Mannlíf ræðir við segja að mikil þekk­ing hafi horfið úr teym­inu síð­ustu miss­eri, þar sem lyk­il­starfs­menn hafi hætt. Það geti reynst trans börnum afar þung­bært að þurfa sífellt að ræða við nýjan starfs­mann, þegar þau mæti í við­töl, en börn sem til dæmis koma inn við 12 ára aldur eru í sex ár í með­ferð hjá BUGL. Tíma taki að byggja upp traust og börnin geti verið mjög við­kvæm fyrir klaufa­legri orð­ræðu, svo dæmi sé tekið.

Lestu umfjöll­un­ina í heild í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð