Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Heimir einstæður fimm barna faðir glímir við 4. stigs lungnakrabbamein: Söfnunarreikningur stofnaður fyrir börnin

Heimir Hilm­ars­son er 53 ára, ein­stæður faðir fimm barna á aldr­inum 5 – 26 ára. Hann hefur verið heilsu­hraustur alla tíð, og í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu í fyrra hljóp hann fyrir Krabba­meins­fé­lagið. Á þeim tíma var hann hins vegar far­inn að finna til verkja í mjöð­minni, en hristi það af sér án þess að gera sér grein fyrir að krabba­mein var farið að hrjá hann.

Heimir einstæður fimm barna faðir glímir við 4. stigs lungnakrabbamein: Söfnunarreikningur stofnaður fyrir börnin
Stór systk­ina­hópur: Helena Rós með stúd­ents­húf­una og systk­ini hennar sex.

Þann 20. des­em­ber greind­ist Heimir með fjórða stigs lungna­krabba­mein sem hafði dreift sér í lær­bein og gert honum ófært um að ganga. Hann var búinn að fara nokkrum sinnum til læknis út af fæt­inum og öðrum verkjum en engar myndir voru teknar og hann var aðeins greindur með tognun á mjöðm og stoð­kerf­is­verki, að sögn elstu dóttur hans.

Heimir fimm barna faðir glímir við krabba­mein Mynd / Aðsend

„Við fórum upp á Neyð­ar­mót­töku í Fossvogi 20. des­em­ber þar sem pabbi var búinn að vera á hækjum í um þrjár vikur og okkur leist ekk­ert á blik­una og báðum vin­sam­leg­ast um að það yrði tekin mynd af fæt­inum og var það þá gert um leið,“ segir Helena Rós, elsta dóttir Heimis í færslu sem systk­inin hafa skrifað á Facebook.

„Margir sér­fræð­ingar skoð­uðu mynd­ina áður en næstu skref voru ákveðin. Myndin sýndi mein­varp efst í lær­bein­inu og mjaðm­ar­lið og fjögur brot í liðnum. Efsti partur lær­leggs var því eins og egg með brot­inni skurn sem ekki mátti við neinu. Næsta mynda­taka var lungna­mynd sem sýndi æxli í vinstra lung­anu sem eru upp­tökin af krabba­mein­inu og það hefur einnig breiðst út í önnur bein svo sem rif­bein, herða­blað og við­bein.“

Krabbameinið ekki skurðtækt

Krabba­meinið er ekki skurð­tækt en á aðfanga­dag var ákveðið að fjar­lægja mein­varpið í mjöð­minni og setja gervi­lið í stað­inn. „Pabbi gat því labbað. Hann var á spít­ala í 11 daga, en fékk að fara heim í leyfi á aðfanga­dags­kvöld til að vera með fjöl­skyld­unni og fór svo í aðgerð á jóla­dag þar sem mein­varp­inu var smúlað út og nýjum mjaðm­ar­lið var komið fyrir. Á gaml­árs­dag kom pabbi heim á nýrri mjöðm til­bú­inn að hefja slag­inn við „krabba­menn­ina“ eins og litla fimm ára systir okkar kallar meinið.“

Það sem tekur við hjá Heimi er lyfja­með­ferð á Land­spít­al­anum. „Jákvæðni, von og hug­rekki og við biðjum Guð um styrk til að hjálpa okkur í gegnum þetta verk­efni.“

Með arm­bönd Krafts með slag­orði félags­ins: „Lífið er núna“

Systkinin stofna söfnunarreikning

Elstu systk­inin þrjú eru alsystk­ini, systur 23 og 26 ára og bróðir 18 ára, og yngstu tvö eru fimm og sjö ára, börn Heimis og seinni barns­móður hans. Fyrri barns­móðir hans, á einnig tvö börn með seinni manni sínum. Systk­ina­hóp­ur­inn er því stór og sam­rýndur.

Heimir, ásamt börnum sínum fimm og Þorbjörg Kristín Þor­gríms­dóttir, móðir elstu þriggja barn­anna, ásamt tveimur yngri börnum hennar. Mynd / Aðsend

„Við syst­urnar búum í Aarhus í Danmörku, sem er mjög erfitt en við reynum að fara fram og til­baka eins oft og við getum,“ segir Helena Rós í sam­tali við Mannlíf. „Átján ára bróðir okkar býr hjá pabba, og yngstu tvö eru viku hjá honum og viku hjá mömmu sinni.“

Systk­inin hafa nú opnað söfn­un­ar­reiknng fyrir föður sinn til að hjálpa honum í gegnum erf­iða tíma. „Okkur þætti svo vænt um að þeir sem geta leggi pabba hjálp­ar­hönd,“ segir Helena Rós í sam­tali við Mannlíf.  „Pabbi er fimm barna ein­stæður faðir og yngstu tvö af okkur systkin­unum eru 7 ára og 5 ára sem vilja ekk­ert meira en að lækna pabba, bara eins og við öll.“

„Þetta er rosa­lega mikið sjokk fyrir okkur öll þar sem pabbi er rosa­lega hraustur og frískur maður sem hljóp í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu í sumar með merki frá Krabba­meins­fé­lag­inu á hand­leggnum án þess að vita að hann væri með 4. stigs krabba­mein. Hann var slæmur í mjöð­minni þá en ákvað að hrista það af sér og hlaupa samt. Hann reykir ekki og hefur ekki drukkið áfengi í 31 ár.“

Þeir sem vilja leggja Heimi og börnum hans lið geta lagt inn á reikn­ing hans: 
Kennitala 170766-5559
Reikn­ingur 545-14-002499

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina