Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jörð kraumar í „nafla alheimsins“

Jörð kraumar í „nafla alheimsins“
Þorbjörn Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Við Íslend­ingar erum minntir reglu­lega á það að nátt­úran og kraftar hennar láta ekki að sér hæða og hlýða í engu vilja mann­anna. Stuttu eftir að hugur allra var með íbúum Flat­eyrar og Suð­ur­eyrar eftir snjó­flóð þar, fer land að rísa með látum á Reykja­nesskag­anum, nánar til­tekið við fellið Þorbjörn, sem er bæj­ar­fjall Grinda­víkur. Menn hugsa nú til íbúa bæj­ar­ins og þess hverju dyntótt nátt­úru­öflin geta tekið upp á í tún­fæti hans.

Almanna­varn­ar­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra lýsti yfir óvissu­stigi vegna land­riss­ins föstu­dag­inn 24. jan­úar og fylgj­ast við­bragðs­að­ilar grannt með stöðu mála allan sól­ar­hring­inn.

Útgerðarbær í blóma

Grinda­vík er einn af öfl­ugri útgerð­ar­bæjum lands­ins, þar búa um 3500 manns, sem flestir hafa atvinnu af sjáv­ar­út­veg­inum eða ferða­þjón­ustu, m.a. á Kefla­vík­ur­flug­velli. Íbúum hefur fjölgað veru­lega í bæj­ar­fé­lag­inu síð­ustu ár og hafa ný hverfi byggst upp og önnur eru á skipu­lagi.

Hinum megin við Þorbjörn er síðan Bláa lónið sem er mest sótti ferða­manna­staður lands­ins, og þar vinnur fjöldi Grind­vík­inga, auk starfs­manna ann­ars staðar af Suð­ur­nesjum og höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Daglega má ætla að um 1.500 manns séu í eða við Bláa lónið. Fari allt á versta veg og eld­gos verði gæti þurft að flytja um 5.000 manns frá svæð­inu með neyð­ar­rým­ingu.

Hvað er að gerast?

Jarð­hrær­ingar á Reykja­nesskag­anum hafa mælst frá 21. jan­úar og er miðja þeirra vestan við Þorbjörn. Mælingar hafa farið fram í ára­tugi á Reykja­nesskag­anum, en land­risið síð­ustu daga er óvenju­legt fyrir svæðið og óvenju hratt að mati sér­fræð­inga, um 3-4 mm á dag og í heild­ina orðið yfir 3 sm þar sem það er mest. Land­risið er vís­bend­ing um kviku­söfnun á nokk­urra kíló­metra dýpi og voru GPS-mælar settir upp á fjall­inu svo hægt væri að fylgj­ast betur með þróun mála. Reykja­nesskag­inn liggur á fleka­skilum, sem fær­ast sundur með árunum og benti Páll Ein­ars­son jarð­eðl­is­fræð­ingur á það í sam­tali við Rás 1 fyrr í vik­unni að síð­asta eld­gos hefði verið árið 1240 og flek­arnir hafi færst tölu­vert á þeim tíma. Því væri kom­inn tími á eld­gos, því fylla þurfi í gatið sem fleka­skilin mynda „og það er það sem eld­gosin gera“.

Á sama tíma hefur jarð­skjálfta­hrina verið við ris­miðj­una, norð­austan við Grinda­vík, og hafa skjálft­arnir ekki farið fram hjá nokkrum bæj­ar­búa. Alls hafa mælst 85 skjálftar síð­ustu tvo sól­ar­hringa (fimmtu­dag kl. 9) og hafa tveir þeirra mælst stærri en 3 á Richter: 3,5 um hálf­fimm­leytið og annar upp á 3,2 um fimm­leytið, báðir á mið­viku­dags­morgun. Flestir skjálft­anna, eða 48, eru minni en 1 á Richter að stærð.

Hver er staðan?

Íbúar voru að vonum ugg­andi þegar óvissu­á­standi var lýst yfir af hálfu Almanna­varna, enda mann­legt að ótt­ast um afdrif sín og afkomu, auk ver­ald­legra eigna þegar vá vofir yfir. Íbúa­fundur var hald­inn mánu­dag­inn 27. jan­úar og var íþrótta­hús Grinda­víkur þétt­setið. Sér­fræð­ingar frá Veð­ur­stofu Íslands og Almanna­vörnum, auk við­bragðs­að­ila, fóru yfir stöð­una og allar mögu­legar sviðs­myndir. Helsta hættan, ef af gosi verður, er nálægð Grinda­víkur við Þorbjörn. Hins vegar voru íbúar full­viss­aðir um að sér­fræð­ingar fylgd­ust með svæð­inu allan sól­ar­hring­inn og allir við­brags­að­ilar væru að vinna vinn­una sína.

Íbúum var bent á að hver og einn gerði ráð­staf­anir hvað eigið öryggi og aðstæður varð­aði, þannig að allir væru við­búnir ef gos yrði. Mik­il­vægt væri að hafa kveikt á GSM-símum svo skila­boð frá Neyð­ar­lín­unni ber­ist til íbúa. Ef neyð­ar­á­stand skap­ast að nóttu til mun lög­reglan keyra um bæinn með sírenur í gangi. Komi til neyð­ar­rým­ingar verður fólk flutt til Reykja­víkur og Reykja­ness­bæjar í fjölda­hjálp­ar­stöðvar. Íbúum var jafn­framt ráð­lagt að skoða inn­bús­trygg­ingar í sam­ráði við trygg­inga­fé­lög sín. Einnig var íbúum bent á að líta sér nær, og huga að nágrönnum, hvort þeir væru upp­lýstir um stöð­una og færir um að koma sér í burtu kæmi til goss.

Fjöl­skip­aður fundur almanna­varn­ar­nefndar var síðan hald­inn á mið­viku­dag þar sem um 30 manns frá við­bragðs­að­ilum báru saman bækur sínar. Við­bragðs­á­ætlun og rým­ing­ar­á­ætlun eru langt komnar og áætlað að báðar áætl­anir verði til­búnar nú um helg­ina.

Fannar Jónasson bæj­ar­stjóri Grinda­víkur

Búið er að ræða við stjórn­endur hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins Víði­hlíðar, auk stjórn­enda leiks­skóla og grunn­skóla. „Við munum hugsa fyrst og fremst um þá íbúa ef til rým­ingar kemur, og svo alla hina,“ segir Fannar Jónasson, bæj­ar­stjóri Grinda­víkur. „Allir leggj­ast á eitt og á þremur vinnu­dögum er búið að semja við­bragðs­á­ætlun. Maður áttar sig ekki á þessu fyrr en maður fer að vinna með þetta, það þýðir ekki að útbúa slíkt skjal sem á svo að lifa lengi,“ segir bæj­ar­stjór­inn og bendir á að gott sé að taka slíka áætlun upp reglu­lega og jafn­vel þó að vá vofi ekki yfir. Áætlað er að opna aðstöðu fyrir sál­ræna aðstoð í sam­starfi við Rauða kross­inn, til að taka á móti fólki og veita því sál­gæslu, stuðn­ing og aðstoð.

„Ég er samt furðu róleg yfir ástand­inu, en held að við græðum ekk­ert á því að vera að panika og hræða okkur að óþörfu.“

Hvað segja íbúar?

Þrátt fyrir að jörðin hrist­ist nú reglu­lega undir fótum Grind­vík­inga hefur atvinnu­lífið og dag­legt líf ekki stöðvast í „nafla alheims­ins“, eins og Grind­vík­ingar kalla oft bæinn sinn í dag­legu tali. Nóg er að gera við höfn­ina, lífæð bæj­ar­ins, enda mikil veiði. Nýtt íþrótta­hús verður vígt á sunnu­dag og hvetur bæj­ar­stjór­inn bæj­ar­búa til að mæta. „Þetta er tæki­færi fyrir bæj­ar­búa til að hitt­ast og hugsa um það jákvæða í íþrótta­líf­inu og fyrir fram­tíð­inni.“

Hjónin Berglind Kol­beins­dóttir og Eiríkur Bjarki Jóhann­es­son eru á meðal fjöl­margra íbúa, sem eru búin að gera ráð­staf­anir. „Bílarnir okkar tveir eru klárir og búr til­búin fyrir hundana okkar og ketti, ásamt mat og katta­sandi,“ segir Berglind. „Við erum klár fyrir þetta stóra EF, erum með gát­lista við rúmið og ferða­taskan er til­búin. Ég er samt furðu róleg yfir ástand­inu, en held að við græðum ekk­ert á því að vera að panika og hræða okkur að óþörfu.“

Hjónin Berglind og Eiríkur eru við öllu búin

Grind­vík­ingar eru þekktir fyrir að slá á létta strengi og hafa margir þeirra deilt á sam­fé­lags­miðlum aug­lýs­ingu um drykk­inn Eldgos, sem nú er fáan­legur á afslætti í tak­mörk­uðu magni, eftir að hafa verið ófá­an­legur á mark­aði síðan 1240. Starfs­fólk Brautar, sölu­turns í bænum, segir beiðni við­skipta­vina um gos og hraun þó fljótt hafa orðið þreyttan brand­ara, en nægar birgðir séu samt enn til.

Þrátt fyrir að óvissu­stig sé enn við lýði og hið stóra EF vofi yfir dag­legu lífi og athöfnum Grind­vík­inga er ljóst að þeir búa sig undir það versta, en vona það besta með húmor­inn að leið­ar­ljósi. Hrist­ing­ur­inn undir jörð­inni hefur einnig hrist sam­fé­lagið saman og þegar eitt­hvað bjátar á stendur sam­fé­lagið í Grinda­vík þétt saman og sam­kenndin er ríkj­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina