Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Starfsmaður ÍR látinn fara vegna fjárdráttar

Aðal­stjórn ÍR hefur á síð­ustu vikum rann­sakað fjár­drátt starfs­manns sem kom upp í lok síð­asta árs. For­mað­ur­inn segir málið „algjöran harm­leik“. Fjár­mun­irnir hafa verið end­ur­greiddir en málið hefur ekki verið til­kynnt til lög­reglu.

Starfs­maður Íþrótta­fé­lags Reykja­víkur lét af störfum hjá íþrótta­fé­lag­inu um ára­mótin, eftir að upp komst að hann hefði dregið sér fé. Þetta stað­festir Ingi­gerður Guð­munds­dóttir, for­maður aðal­stjórnar ÍR, í sam­tali við Mannlíf. Blaðið hefur heim­ildir fyrir því að fjár­drátt­ur­inn hafi kom­ist upp í nóv­em­ber og starfs­mað­ur­inn verið lát­inn fara í des­em­ber.

Síðan þá hefur málið verið í skoðun hjá íþrótta­fé­lag­inu, sem hefur haft lög­mann sér til ráð­gjafar. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hlaupa upp­hæðir á tugum millj­óna en Ingi­gerður segir þetta ekki rétt. Hún nefnir þó engar tölur í þessu sam­hengi. Hún segir málið „algjöran harm­leik“ en vill lítið tjá sig um það að öðru leyti.

„Við erum enn þá að rann­saka málið,“ segir hún. „Við viljum bara ná utan um þetta áður en við segjum meira.“

Ingi­gerður segir starfs­mann­inn hafa greitt til baka allt það fé sem vitað er að hann dró sér. Hún segir málið verða til­kynnt til lög­reglu þegar rann­sókn félags­ins sé lokið.

Félags­merki ÍR

„… höfum hagsmuni ÍR að leiðarljósi í orðum og athöfnum …“

Samkvæmt árs­skýrslu ÍR 2017-2018 voru skráðir iðk­endur, í tíu íþrótta­greinum, 2.159. Innheimt æfinga­gjöld fyrir árið 2017 voru um 90 millj­ónir en velta aðal­stjórnar og deilda árið 2016 um 380 millj­ónir króna, sam­kvæmt frétt á vef íþrótta­fé­lags­ins. ÍR er elsta íþrótta­fé­lag lands­ins en það var stofnað árið 1907. Ingi­gerður, sem hefur verið for­maður í um fjögur ár, er fyrsta konan í sögu félags­ins til að sinna emb­ætt­inu.

Í siða­reglum ÍR, sem tóku gildi 21. októ­ber 2019, segir m.a.:

„Við höfum hags­muni ÍR að leið­ar­ljósi í orðum og athöfnum og erum félag­inu til sóma í öllu starfi á vegum þess.“

„Sem ÍR-ingar mis­notum við ekki aðstöðu okkar í þágu einka­hags­muna. Einnig veitum við engum sér­staka fyr­ir­greiðslu á grund­velli per­sónu­legra tengsla.“

„Við gerum okkur grein fyrir því að ef við brjótum þessar reglur er heim­ilt að vísa okkur úr starfi ÍR, tíma­bundið eða að fullu.“

Á sér fordæmi hjá öðrum íþróttafélögum

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem starfs­maður íþrótta­fé­lags dregur sér fé. Árið 2009 var starfs­maður Íþrótta­banda­lags Suð­ur­nesja dæmdur í fimm mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir að hafa dregið sér 3 millj­ónir króna úr sjóðum félags­ins á sex mán­aða tíma­bili. Starfs­mað­ur­inn ját­aði sök og var dæmdur til að end­ur­greiða fjár­mun­ina og greiða máls­kostnað.

Þá var stjórn­ar­maður Ung­menna­fé­lags Grund­ar­fjarðar dæmdur í 12 mán­aða fang­elsi í sept­em­ber 2019 fyrir að hafa dregið sér um 12 millj­ónir króna. Dæmdi ját­aði brot sín og end­ur­greiddi pen­ing­ana til ung­menna­fé­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi