Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Erum í þessu til að koma að samfélagslegu gagni“

„Erum í þessu til að koma að samfélagslegu gagni“
Mynd / Lands­björg|Björg­un­ar­sveitir í óveð­ursút­kalli 10. desembewr 2019. Mynd / Lands­björg|Jón Svanberg. Mynd/Lands­björg

Alls hafa 1.917 sjálf­boða­liðar björg­un­ar­sveit­anna farið í 321 útkall frá 9. des­em­ber, þegar mikil sprengilægð gekk yfir landið. Þetta fólk, sem klæðir sig út þegar við hin höldum okkur inn­an­dyra, hefur á þessum rúma mán­uði verið 35.000 klukku­stundir í útköllum. Það gera 18 klukku­stundir á hvern þeirra. Björg­un­ar­sveit­irnar hafa leyst meira en 2.100 verk­efni á þessum tíma. Á sama tíma hefur Rauði kross­inn hjálpað ríf­lega 1.500 manns í neyð; ýmist í formi opn­unar fjölda­hjálp­ar­stöðva eða áfalla­hjálpar. „Þessar sveitir eru til­búnar í allt og sam­fé­lagið stólar á það,“ segir deild­ar­stjóri hjá Almanna­vörnum.

Í þessum tölum er um að ræða stór og smá útköll; allt frá minni­háttar vega­að­stoð yfir í stór og flókin verk­efni. Guð­brandur Örn Arnarson, verk­efna­stjóri aðgerða­mála hjá Lands­björgu, segir að langstærsti hluti þess­ara verk­efna snúi að sam­borg­urum og innviðum íslensks sam­fé­lags. „Þetta er óvenju­lega mikið,“ segir hann um ann­ríkið að und­an­förnu. „Þessar gríð­ar­legu nátt­úru­ham­farir sem urðu á norð­an­verðu land­inu og svo fyrir vestan vega þungt í þessum tölum,“ útskýrir hann.

Guð­brandur bendir á að aðeins séu þarna taldar klukku­stundir í útköllum. Ótaldar eru stundir þar sem björg­un­ar­fólk dvelji fjarri fjöl­skyldu, til dæmis yfir nótt, vinnu­stundir við fjár­afl­anir, æfingar, við­hald tækja og rekstur sveit­anna. „Margir hafa þurft að fara sól­ar­hringum saman. Við erum bara að tala um beint vinnu­fram­lag.“  Hann segir aðspurður að þessi mikla törn, sem hafi að mestu snú­ist um nátt­úru­ham­farir, hafi sannað að öll umræða um mis­notkun ein­hverra aðila á tíma björg­un­ar­sveit­anna sé úr lausu lofti gripin. Útköllin í des­em­ber og jan­úar hafi fyrst og fremst snúið að íslensku sam­fé­lag­inu og innviðum þess. „Við erum í þessu til þess að koma að sam­fé­lags­legu gagni.“

Jón Svanberg. Mynd/Lands­björg

Segja má að törnin hafi haf­ist 10. des­em­ber með einu versta óveðri sem skollið hefur á land­inu árum saman. Norð­ur­land varð verst úti en þar varð sums staðar langvar­andi raf­magns­leysi og gíf­ur­legt tjón á raf­línum og staurum. „Þetta er það lang­versta sem ég hef séð hér,“ sagði Stefán Vagn Stef­áns­son, yfir­lög­reglu­þjónn á svæð­inu, í hádeg­is­fréttum Bylgj­unnar 10. des­em­ber. Þótt veð­ur­ham­urinn fyrir jól hafi verið verstur á Norð­ur­landi voru fjölda­mörg útköll í öðrum lands­hlutum vegna óveð­urs­ins, til dæmis í Vest­manna­eyjum.

Veðr­áttan und­an­farnar vikur hefur tekið mik­inn toll. Ungur maður lést þegar hann reyndi að losa krapa úr stíflu heima­virkj­unar í Eyja­firði í óveðr­inu 10. til 12. des­em­ber. Maðurinn fannst lát­inn eftir mikla leit björg­un­ar­sveita og Land­helg­is­gæslu við afar erf­iðar aðstæður. Litlu mátti muna að ung stúlka léti lífið þegar snjó­flóð féllu á Flateyri á nýju ári. Þar varð mikið eigna­tjón og sam­fé­lags­legur skaði.

Mörg alvarleg slys í janúar

Fjölmörg alvar­leg slys hafa orðið í jan­úar, sem mörg hver má rekja til veð­ur­fars eða vetr­ar­færðar. Þar á meðal eru tvö rútu­slys, banaslys þar sem snjó­ruðn­ings­tæki kom við sögu og árekstur fólks­bíla í mik­illi hálku, með afdrifa­ríkum afleið­ingum. Þá má rifja upp mikið björg­un­ara­frek við Lang­jökul í upp­hafi árs­ins, þar sem litlu mátti muna að illa færi fyrir stórum hópi erlendra ferða­manna.

„Það hefur nán­ast allt landið verið undir síð­asta einn og hálfa mán­uð­inn.“

Hörmu­legt slys varð að auki í Hafn­ar­firði á dög­unum, þar sem bíll með þremur ungum piltum hafn­aði í sjónum. Tveir þeirra voru þungt haldnir, síð­ast þegar vitað var af. Í mörgum þess­ara slysa og hörm­unga hafa björg­un­ar­sveitir eða Rauði kross­inn komið að málum.

Um fjögur þús­und manns eru á útkalls­skrá hjá björg­un­ar­sveitum lands­ins. Jón Svanberg bendir á að þó að útköllin séu „aðeins“ 165 á umræddu tíma­bili þá sé fjöldi verk­efna í hverju útkalli oft mik­ill. „Þetta hefur verið gríð­ar­legt álag og mörg verk­efni.“ Hann segir að þótt Norð­ur­land hafi orðið verst úti fyrir jól hafi verið mikið ann­ríki í flestum lands­hlutum; nú síð­ast á Vest­fjörðum. „Það hefur nán­ast allt landið verið undir síð­asta einn og hálfa mán­uð­inn.“

Ólíkur styrkur sveitanna

Hver björg­un­ar­sveit er sjálf­stæð félags­lega og fjár­hags­lega, að sögn Jóns. Sveit­irnar eru hins vegar mjög mis­stórar og aðbún­aður þeirra ólíkur. „Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur verið mikil ásókn í að kom­ast í sveit­irnar. En úti á landi, sums staðar, er þetta á herðum sama fólks­ins árum og jafn­vel ára­tugum saman. Þar er þetta sums staðar gert meira af sam­fé­lags­legri ábyrgð en áhuga á úti­vist. Víða á lands­byggð­inni sár­vantar hendur,“ segir hann og nefnir sveitir eins og í Árnes­hreppi á Ströndum eða Öræfum. Þar séu dæmi um mjög fámennar en afar mik­il­vægar sveitir sem þurfi oft um langan veg að fara í útköll.

„Þessar litlu sveitir skipta lyk­il­máli. Á Flateyri er til dæmis mjög lítil björg­un­ar­sveit en gildi hennar sann­að­ist heldur betur núna um dag­inn,“ útskýrir Jón en hann er sjálfur frá Flateyri. Hann vísar þar til snjó­flóð­anna sem féllu á þorpið með þeim afleið­ingum að ung stúlka grófst undir snjó og mikið eigna­tjón varð í höfn­inni. Stúlkunni var bjargað af björg­un­ar­sveit­ar­mönnum í tæka tíð. „Þorpið getur lok­ast af svo dögum eða jafn­vel vikum skiptir. Það sann­að­ist um helg­ina og líka árið 1995 hvað fáar hendur geta komið miklu í verk.“

Björg­un­ar­sveitir í óveð­ursút­kalli 10. desembewr 2019. Mynd / Lands­björg

Selja sjálfum sér flugelda

Jón nefnir að litlar sveitir hafi úr minni fjár­munum að spila en þær stærri. Fjár­mögnun getur verið mjög snúin í litlum sam­fé­lögum. „Allra minnstu sveit­irnar nán­ast fjár­magna sig með því að selja sjálfum sér flug­elda,“ útskýrir hann. Til að mæta brýnni þörf minni sveit­anna til að koma sér upp góðri aðstöðu og end­ur­nýja tæki, hefur Lands­björg und­an­farin ár safnað „bak­vörðum“. Þar sé um að ræða sam­eig­in­lega fjár­öflun Lands­bjargar en pen­ing­arnir renna eftir sér­stöku tekju­út­hlut­un­ar­kerfi til þeirra slysa­varn­ar­sveita sem helst þurfa á stuðn­ingi að halda.

„Bak­verðir eru örugg­asti tekju­póst­ur­inn. Þar er um að ræða jafnar tekjur allt árið.“

Bak­verðir á Íslandi eru núna um 19 þús­und en fyrir til­stilli þeirra renna um 230 millj­ónir til þeirra sveita sem helst þurfa á fjár­stuðn­ingi að halda. „Hver ein­asta króna sem kemur inn í hreinar tekjur af þessu rennur beint til slysa­varn­ar­deild­anna,“ segir Jón. Þetta séu trygg­ustu tekjur björg­un­ar­sveit­anna. Flug­elda­salan, stærsta fjár­öfl­unin á hverju ári, geti verið brot­hætt. Það þurfi ekki annað en slæmt veður á gaml­árs­dag, milli klukkan 10 og 16, til að salan verði veru­lega skert. „Bak­verðir eru örugg­asti tekju­póst­ur­inn. Þar er um að ræða jafnar tekjur allt árið.“

30 ára vinna

Eins og áður segir fóru björg­un­ar­sveitir lands­ins í 165 útköll og sinntu hátt í 1.500 verk­efnum frá 9. des­em­ber til 8. jan­úar. Þar liggja um 22.200 vinnu­stundir, að sögn Jóns. Hann bendir á að fyrir nokkrum árum hafi verið reiknað út að á baki hverrar stundar í útkalli liggi 12 tímar í fjár­afl­anir, við­hald tækja, menntun og þjálfun fólks­ins. Miðað við þá reikni­for­múlu liggja 264 þús­und vinnu­stundir að baki útköll­unum frá 9. des­em­ber til 8. jan­úar. Það jafn­gildir sam­felldri vinnu ein­stak­lings í 30 ár.

Lestu umfjöll­un­ina í heild í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina