Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón hvarf á aðfangadag 1987: Kennsl borin á höfuðkúpu með DNA rannsókn

Jón hvarf á aðfangadag 1987: Kennsl borin á höfuðkúpu með DNA rannsókn
Myndir / EPA|epa07394761 Jennifer Lopez arri­ves for the 91st annual Academy Awards ceremony at the Dolby Theatre in Hollywood

Þann 3. októ­ber 1994 fannst hluti af höf­uð­kúpu manns á sand­eyrum Ölf­usár­óss, norðan svo­kall­aðs Naut­eyra­tanga. Á kúp­una vant­aði neðri kjálk­ann og ein­ungis ein tönn var í efri góm.  Farið var með kúp­una til rann­sóknar hjá Kennsla­nefnd rík­is­lög­reglu­stjóra og á hennar vegum gerðar þær skoð­anir og mæl­ingar sem unnt var miðað við tækni þess tíma.  Ekki tókst að bera kennsl á það hverjum umrædd höf­uð­kúpa til­heyrði og var hún því sett í geymslu.

Á vef­síðu Lög­regl­unnar kemur fram að í lok mars á síð­asta ári var ákveðið að reyna á ný og var tekið sýni úr kúp­unni til ald­urs­grein­ingar.   Nið­ur­staða þeirrar rann­sóknar barst í haust og í ljós kom að beinin voru að lík­indum frá árunum um og eftir 1970.   Þá var þess freistað að ná not­hæfu DNA sýni úr kúp­unni og var það sent rann­sókn­ar­stofu í Svíþjóð til grein­ingar.  Nið­ur­staða úr þeirri grein­ingu barst svo nú í jan­úar og þá kom í ljós að um var að ræða höf­uð­kúpu Jóns Ólafs­sonar sem fæddur var 8. júlí 1940 og er tal­inn hafa fallið í Sogið á aðfanga­dag 1987. Börnum Jóns hefur verið kynnt þessi nið­ur­staða og munu þau fá  jarð­neskar leyfar föður síns á allra næstu dögum.

Jón Ólafsson

Fjallað er um Jón á Facebook-síð­unni Íslensk manns­hvörf.

Jón hvarf aðfanga­dag árið 1987, en hann hafði farið með son sinn fyrr um dag­inn til Hvera­gerðis til móður hans. Jón hugð­ist síðan fara á einn stað með jóla­gjöf og koma síðan aftur til Hvera­gerðis. Þegar hann skil­aði sér ekki, hófst leit að Jóni. Á jóla­dag fannst bíll hans við brúnna yfir Sogið. Leit þar í nokkra daga skil­aði engum árangri og var Jón úrskurð­aður lát­inn hálfu ári seinna og haldin minn­ing­ar­at­höfn.

Jón átti tvö börn, Birgittu sem fædd er árið 1967 og Jón Tryggva sem fæddur er árið 1972.
Birgitta er fyrrum þing­maður Pírata í Reykja­vík og hefur tjáð sig um föð­ur­miss­inn, meðal ann­ars í fyr­ir­lestri sem hún hélt á Ted Talk árið 2015, en skrifað var um hann á Mbl. Talar hún í fyr­ir­lestr­inum um föður sinn og eig­in­mann sinn, sem báðir létu sig hverfa, en þeir kusu að taka eigið líf. Segist Birgitta hafa notað erf­ið­leik­ana til að byggja sig upp.

Vel tekið í beiðni um DNA sýni

Lög­reglan á Suð­ur­landi hefur und­an­farin ár tekið DNA sýni úr aðstand­endum þeirra sem taldir eru hafa horfið í umdæm­inu á liðnum árum og hafa ekki fund­ist.   Enn er eftir að fá sýni frá nokkrum ein­stak­lingum og verður þeirri vinnu haldið áfram á þessu ári.   Lög­reglu­mönnum við þessa vinnu hefur verið afar vel tekið af þeim sem leitað hefur verið til. Sýnin sem tekin eru eru vörsluð í gagna­banka þar sem unnt verður að bera þau saman við DNA snið þeirra sem finn­ast, hvort sem það er í okkar tíð eða kom­andi kyn­slóða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi