Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segja neyðarástand ríkja á Bráðamóttöku Landspítala

Vakt­stjór­ar hjúkr­un­ar bráða­deild­ar G2 Land­spít­ala hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu og lýsa yfir áhyggjum sínum á ástand­inu á deild­inni. Í yfir­lýs­ing­unni segir að starfs­fólk deild­ar­innar taki undir orð Más Krist­jáns­sonar, yfir­læknis smit­sjúk­dóma­lækn­inga á Land­spít­al­anum, sem varar við að stór­slys kunni að vera í aðsigi á deild­inni í Lækna­blað­inu í jan­úar 2020.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að mikið álag gerir það að verkum að starfs­fólk á erfitt með að stýra Bráða­mót­tök­unni sem skyldi. „Deildin, sem hönnuð er til að
sinna mest 35 sjúk­lingum með bráðan vanda, hýsir nú alla daga 20-40 sjúk­linga til
við­bótar sem lokið hafa með­ferð á Bráða­mót­töku en hafa ekki fengið pláss á við­eig­andi
legu­deildum sjúkra­húss­ins,“ segir meðal ann­ars.

Þá segir enn fremur að ákveðið neyð­ar­á­stand ríki á Bráða­mót­tök­unni. „Það er neyð­ar­á­stand á Bráða­mót­töku Land­spít­ala og mun það enda með ósköpum ef ekki er brugð­ist við með rót­tækum aðgerðum nú þegar.“

29 hjúkr­un­ar­fræð­ingar skrifa undir yfir­lýs­ing­una og skora á heil­brigð­is­ráð­herra, vel­ferð­ar­nefnd Alþingis og stjórn Land­spít­ala að finna lausn á vand­anum.

Yfir­lýs­ing­una má lesa í heild sinni hérna:

Yfir­lýs­ing um vanda Bráða­mót­töku Land­spít­ala

Í ljósi erf­iðrar stöðu Bráða­mót­töku sjá und­ir­rituð, vakt­stjórar hjúkr­unar Bráða­deildar G2
Land­spít­ala, sig knúin til að lýsa yfir alvar­legum áhyggjum sínum á ástandi deild­ar­innar.
Við tökum að öllu leyti undir orð Más Krist­jáns­sonar sem varar við að stór­slys kunni að
vera í aðsigi á deild­inni í Lækna­blað­inu í jan­úar 2020. Við stað­festum orð Más sem í
grein sinni lýsir aðstöðu­leysi, þrengslum og óvið­un­andi ástandi sem heldur bara áfram
að versna.

Mikill inn­lagn­ar­þungi og eft­ir­spurn eftir þjón­ustu ásamt auknum frá­flæð­is­vanda gerir
okkur ekki kleift að stýra Bráða­mót­tök­unni sem skyldi. Deildin, sem hönnuð er til að
sinna mest 35 sjúk­lingum með bráðan vanda, hýsir nú alla daga 20-40 sjúk­linga til
við­bótar sem lokið hafa með­ferð á Bráða­mót­töku en hafa ekki fengið pláss á við­eig­andi
legu­deildum sjúkra­húss­ins. Sjúk­lingar liggja því ber­skjald­aðir á göngum deild­ar­innar.
Við reynum eftir fremsta megni að þjón­usta þennan sjúk­linga­hóp en öllum má vera það
ljóst að þeir fá ekki jafn góða þjón­ustu á bráða­mót­tök­unni eins og þeir myndu fá á
við­eig­andi legu­deild. Ekki er mögu­legt að tryggja fag­mennsku, frið­helgi, öryggi og
sýk­ing­ar­varnir við þessar aðstæður.

Sem vakt­stjórar hjúkr­unar berum við ábyrgð á flæði sjúk­linga um deild­ina, mót­töku
þeirra og hjúkrun og er staðan nú orðin sú að erfitt eða ómögu­legt er að taka á móti
nýjum sjúk­lingum og bíða þeir ýmist á sjúkra­börum sjúkra­flutn­inga­manna eða á bið­stofu
eftir þjón­ustu. Við vísum full­yrð­ingum um að ekki ríki neyð­ar­á­stand á deild­inni alfarið á
bug. Það er neyð­ar­á­stand á Bráða­mót­töku Land­spít­ala og mun það enda með ósköpum
ef ekki er brugð­ist við með rót­tækum aðgerðum nú þegar.

Heil­brigð­is­ráð­herra sagði í við­tali við RÚV 6. jan­úar s.l. að þetta sé lang­tíma­mál: „Það er
ekk­ert til sem heitir ein­föld lausn eða skyndi­lausn í svona flóknu máli“. Starfs­fólk
Bráða­deildar G2 hefur á und­an­förnum árum margoft ítrekað áhyggjur sínar af vanda
deild­ar­innar en talað fyrir daufum eyrum. Stjórn­endur Bráða­mót­tök­unnar hafa gert allt
sem í þeirra valdi stendur til að létta undir álagi á deild­inni en yfir­stjórn sjúkra­húss­ins
virð­ist úrræða­laus. Vandi Land­spít­ala er ekki ein­ungis okkar heldur þjóð­fé­lags­ins í heild.
Hvenær verður vandi sjúkra­húss­ins leystur?

Við hörmum að vera sett í þá stöðu að bera ábyrgð á starf­semi deild­ar­innar undir
þessum kring­um­stæðum. Við skorum því á Heil­brigð­is­ráð­herra, Vel­ferð­ar­nefnd Alþingis
og Stjórn Land­spít­ala að finna lausn á þessum vanda taf­ar­laust.

Virð­ing­ar­fyllst
Elín Tryggva­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Tryggvi Hjörtur Oddsson, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Bára Dís Lúð­víks­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Björg Sig­ur­jóns­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Júlíana Við­ars­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Hafdís Björk Alberts­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Árný Sigríður Dan­í­els­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Ardís Hen­riks­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Hildur Dís Krist­jáns­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Hjördís Jóhann­es­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Sandra Lind Jóns­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Soffía Stein­gríms­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Nanna Kristín Johansen, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Kristín Rósa Ármanns­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Lilja Sig­urð­ar­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Ása M. Blöndahl, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Ragna Björg Ársæls­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Krist­jana Þórkatla Ólafs­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Anna G. Gunn­ars­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Sólveig Birna Jós­efs­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Ást­hildur Guð­laugs­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Anders Wahlgren, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Bryn­hildur Ingi­mund­ar­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Kristín Halla Mar­in­ós­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Dóra Björns­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Ágústa Hjördís Krist­ins­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Ingi­björg Sig­ur­þórs­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Karen Anna Sæv­ars­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
Ellen Stefanía Björns­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti