Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Ég skelf ekki á beinunum“

„Ég skelf ekki á beinunum“
Þó að málið í Banda­ríkj­unum hafi reynst erfitt er Jóhann afar þakk­látur stuðn­ingnum sem hann hefur fundið fyrir á Íslandi.

„Ég við­ur­kenni að það er erfitt að takast á við svona stór öfl. Ég er þó hvergi bang­inn og mun ekki stressa mig út af þessu. Hver sem útkoman verður þá verð ég bara að sætta mig við hana,“ segir Jóhann Helgason, tón­list­ar­maður og laga­höf­undur, sem staðið hefur í löngum mála­ferlum við banda­ríska útgáfurisa.

Fyrsta plata Jóhanns kom út áður en sá sem þetta skrifar kom í heim­inn þannig að vel lukk­aður tón­list­ar­fer­ill­inn spannar langt tíma­bil. Hann var hins vegar grýttur niður af svið­inu á fyrstu tón­leik­unum ungur að árum. Feimni tón­list­ar­manns­ins olli honum mik­illi van­líðan framan af og Jóhann faldi sig bak við loð­feld og sól­gler­augu. Sögur um dóp­neyslu hans og sam­kyn­hneigð fylgdu honum lengi og særðu hann mjög.

Jóhann þakkar tíðum kúreka­leikjum í æsku í drullu­polla­sveit­inni Keflavík fyrir bar­áttu­and­ann sem hefur gagn­ast honum í erf­iðum mála­ferlum við ris­ana í Los Angeles.

Pizzur í stað ýsunnar

Jóhann seg­ist ekk­ert eiga nema góðar minn­ingar úr æsku og segir það hafa verið algjört ævin­týri að alast upp í Keflavík. Hann var lang­yngstur fimm systk­ina og nálægðin við banda­ríska her­inn var sveipuð ævin­týra­ljóma. „Þarna var Keflavík bara dullu­polla­sveit og mikið brallað. Við krakk­arnir veiddum á bryggj­unni, sóttum timbur í slipp­inn til að búa til boga og tálg­uðum mikið út. Ég man eftir öllu umstang­inu í kringum her­inn og það fannst mér alltaf mjög ævin­týra­legt og flott. Þar komst maður líka á veit­inga­stað­ina þar sem feng­ust ham­borg­arar og pizzur, það var breyt­ing frá soðnu ýsunni heima,“ segir Jóhann bros­andi.

Þegar Jóhann komst á kyn­þroska­skeiðið tóku erf­ið­leik­arnir við. Ung­lings­árin voru erf­ið­asti tími sem laga­höf­und­ur­inn upp­lifði. „Mínar erf­ið­ustu minn­ingar eru frá því tíma­bili. Ég var mjög feim­inn og við­kvæmur, ákaf­lega til­finn­inga­ríkur, og það háði mér lengi vel.“

Sögur um samkynhneigð

„Ég byrj­aði eig­in­lega að drekka af því ég var svo feim­inn og þegar voru komnar fullt af stelpum í kringum mig sá ég þetta sem leið til að vinna úr því. Hins vegar varð þessi feimni til þess að ég þorði lítið að tala við stelp­urnar og þorði ekki að gera neitt þegar þær reyndu við mig,“ segir Jóhann sem segir að feimni hans við stelp­urnar hafi lík­lega orðið til þess að sögur um sam­kyn­hneigð hafi farið á kreik. Þær hafi verið erf­iðar sökum þess hvernig sam­fé­lagið var á þessum tíma og sam­kyn­hneigð varla við­ur­kennd.

„Þess vegna fóru af stað þessar sögur um að ég væri sam­kyn­hneigður. Þær voru and­styggi­legri á þessum tíma þegar henni fylgdi enn svo mikil skömm. Ég reyndi hvað ég gat til að taka þetta ekki nærri mér en mér fannst þetta mjög erfitt og leið­in­legt. Það er svo auð­velt að koma svona sögum af stað og þetta loddi lengi við mig. Eftir á held ég þó að margir hafi skamm­ast sín fyrir að bera út þessar sögur,“ segir Jóhann alvar­legur í bragði.

„Að verða frægur með þann galla að vera svona feim­inn var hins vegar mikil áskorun og hér áður fyrr afþakk­aði ég oft verk­efni því mér fannst þetta svo óþæg­in­legt.“

Gleraugun til varnar

Jóhann bendir á að það sé auð­velt að ýta undir sögu­sagnir og að þegar hann hafi verið að koma sér áfram í tón­list­inni hafi margir haldið hann vera algjöran dóphaus. „Ég var á þessum tíma frekar skraut­legur til fara, í þykk­botna skóm og loð­jökkum og var með sól­gler­augu, sem var bara sama­sem­merki um að ég væri bara alltaf útúr­dóp­aður. Gler­augun not­aði ég sem vörn út af við­kvæmn­inni og feimn­inni,“ segir Jóhann.

Til að friða for­eldra sína hóf Jóhann nám í Iðn­skól­anum en það ent­ist aðeins í eitt ár því tón­listin átti ein­fald­lega hug hans allan. Þrátt fyrir feimn­ina hefur hann náð langt og telur það sér til happs að hafa kynnst eig­in­kon­unni ungur að árum. „Ég átti mér fljót­lega þennan draum að fara í tón­list­ina þó að for­eldrar mínir hafi viljað að ég færi í meira nám. Mig lang­aði alveg í nám en það varð aldrei neitt úr því þar sem tón­listin tog­aði svo mikið í. Þegar ég byrj­aði í tón­list­inni var hrein­lega ekki aftur snúið.“

Heltekinn af Bítlunum

Jóhann var 13 ára gam­all þegar Bítla­æðið braust út sem varð til þess að hann sá ekk­ert annað en tón­list­ina. Fram að þeim tíma hafði hann aðeins notað gít­ar­inn til að stríða heim­ilsk­ett­inum.

„Ég kunni ekk­ert á gít­ar­inn en strauk oft streng­ina til að að fram­kvæma hljóð sem kött­ur­inn þoldi ekki. Ég varð síðan alveg hel­tek­inn af Bítlunum og í raun allri bresku bylgj­unni á þessum tíma. Þarna fór ég að læra á gít­ar­inn og í fram­hald­inu bæði að semja og syngja því mig lang­aði til að gera eitt­hvað í lík­ingu við þessa tón­list,“ segir Jóhann.

Fyrstu tvo ára­tug­ina á ferli Jóhanns átti hann stundum erfitt með að koma fram opin­ber­lega vegna feimn­innar. Um alda­mótin síð­ustu tókst honum að yfir­stíga hana. „Hér áður var ekk­ert auð­velt að koma fram. Ég hef hins vegar lært að höndla þetta betur og stýra því. Lífið væri mikið leið­in­legt ef maður þyrfti ekk­ert að tálga til hjá sér. Að verða frægur með þann galla að vera svona feim­inn var hins vegar mikil áskorun og hér áður fyrr afþakk­aði ég oft verk­efni því mér fannst þetta svo óþæg­in­legt. Ég náði hins vegar að taka á þessu og í dag finnst mér þetta bara gaman.“

Grýttir niður á vellinum

Fyrsta skiptið sem Jóhann kom fram með hljóm­sveit var með hljóm­sveit­inni Rofar árið 1964 í Pól­ar­klúbbnum á Kefla­vík­ur­flug­velli sem var stór klúbbur fyrir óbreytta her­menn. Þeir tón­leikar gengu reyndar ekk­ert sér­stak­lega vel, rifjar hann upp. „Að spila á flug­vell­inum var dálítið gaman því Kanarnir voru yfir­leitt þakk­látir fyrir tón­list­ina. Und­an­tekn­ingin voru fyrstu tón­leik­arnir mínir enda her­menn­irnir vanir góður hljóm­sveitum en flutn­ing­ur­inn hjá okkur var dáldið brota­kenndur og text­arnir ekki alveg á hreinu kannski. Við þurftum að forða okkur eftir nokkur lög þegar þeir fóru að grýta bjór­dósum í okkur. Við létum þetta okkur að kenn­ingu verða og æfðum mjög vel í kjöl­farið,“ segir Jóhann.

Jóhann hefur átt langt og far­sælt sam­starf við tón­list­ar­mann­inn Magnús Þór Sig­munds­son. Á unga aldri voru þeir búsettir í Keflavík og Njarðvík en á þeim tíma var erf­ið­ara að kom­ast á milli en er í dag. „Við byrj­uðum á því að semja sitt í hvor­u­lagi og hringdum svo í hvorn annan til að hlusta á lögin. Þannig byrj­aði þetta og okkar sam­starf hefur verið kjöl­festan í ferl­inum. Hjá mér var aldrei aðal­málið að koma sjálfur fram heldur meira að semja og fá lögin í hend­urnar á öðrum.“

Símtalið kom á óvart

Þegar Jóhann var 22 ára gam­all, árið 1972, fékk hann óvænt sím­tal frá stór­tækum tón­list­ar­út­gef­anda sem bauð honum og Magnúsi útgáfu­samn­ing. Hann hafði ekki haft hug­mynd um að þá hafði tón­list þeirra félaga verið í dreif­ingu meðal ungs fólks á íslandi. „Einhvern veg­inn komst blaða­maður yfir kasettu með okkar efni og dreifði henni víða í skólum. Út frá þessu frétti síðan öfl­ugur útgef­andi af þessu og bauð okkur í kjöl­farið útgáfu­samn­ing. Ég vissi í raun aldrei af þess­ari kasettu og því kom sím­talið á óvart. Það var vissu­lega bæði mjög gaman og óvænt því þarna sjáum við að tón­listin okkar ætti erindi til ann­arra,“ segir Jóhann kátur.

Aðspurður um hvað honum þyki vænst um á tón­list­ar­ferl­inum segir hann það vera að hafa auðn­ast að semja lög sem hafa fallið í kramið og lifað lengi. „Ég er fullur þakk­lætis fyrir þetta tæki­færi að starfa við tón­list svona lengi. Það er alveg ómet­an­leg til­finn­ing því þetta er alls ekki sjálf­sagt og ég sé það betur með árunum. Að hafa náð að semja lög sem flytj­ast milli kyn­slóða er mjög gaman og að vita til þess að lögin komi til með að lifa mig er líka mjög gaman.“

„Ég byrj­aði eig­in­lega að drekka af því ég var svo feim­inn og þegar voru komnar fullt af stelpum í kringum mig sá ég þetta sem leið til að vinna úr því,“ segir Jóhann.

Prófaði flest

Jóhann við­ur­kennir að á þessum árum hafi hann prófað flest þau vímu­efni sem á mark­aðnum finn­ast og að það hversu illa hann kunni við áhrifin hafi bjargað honum frá því að ánetj­ast þeim. Áfengið reynd­ist honum erf­ið­ast. „Ég pru­faði jú flest þessi efni sem voru þarna en ég slapp sem betur fer við að láta það leiða mig lengra. Það voru allir í kringum mig með eitt­hvað í álp­appír en ég var oft­ast bara inni í eld­húsi á meðan. Ég bara fíl­aði ekki þessi efni, hefði ég gert það hefði ég samt örugg­lega verið með,“ segir Jóhann og rifjar upp allar sög­urnar sem um hann gengu á sínum tíma varð­andi dóp­neyslu.

„Einhvern tím­ann var Maggi stopp­aður af fíkni­efna­lögg­unni sem dró hann til hliðar og fór að ræða við hann um hvað staðan á mér væri slæm. Ég væri hrein­lega alltaf skakkur með sól­gler­augun. Þá held ég hins vegar að Maggi hafi sjálfur verið nýbú­inn að fá sér eina feita. Ég hef oft­ast náð að höndla áfengi en ég hef líka oft ekk­ert hagað mér sér­stak­lega vel með víni. Ég hef verið leið­in­legur og sýnt á mér agressí­vari hliðar en ég hefði viljað. Ég sé auð­vitað eftir því enda eng­inn sómi af.“

Lítið í ísskápnum

Heimsókn Jóhanns til systra hans í Banda­ríkj­unum árið 1964 var mikið ævin­týri og síðar reyndi hann að ger­ast umboðs­sali fyrir amer­ískt tyggigúmmi á Íslandi. Aðspurður um hvort hægt sé að lifa af tón­list hér á landi segir hann það ekki alltaf hafa verið auð­velt og það hafi ekki hjálpað til að eig­in­konan hafi líka verið í listum. Þó að börn hans og barna­börn hafi sum erft tón­list­ar­genin er Jóhann feg­inn því að þau hafi ekki farið út í brans­ann. „Það er hægt að lifa á tón­list ef þú ert með alla anga úti. Það komið mörg tíma­bil þar sem lítið var til í ískápnum og full­trú­inn í bank­anum hefur skammað okkur hjónin að vera bæði í listum. Sú stað­reynd að við erum bæði lista­fólk hefur hins vegar leyft okkur að kenna hvort öðru um að hafa ekki valið tekju­hærri starfs­vett­vang,“ segir Jóhann og brosir út í annað.

„Já, genin eru þarna. Fjöl­skyldan mín er auð­vitað mesta gæfan. Fyrir utan tón­list­ina er ég ríkur maður í dag. Ég hef hvorki hvatt börnin né latt þau áfram í tón­list­inni en ég vildi ekki ýta þeim út í brans­ann því hann er ekki auð­veldur fyrir neinn. Að lifa á tón­list­inni er þannig að stundum fiskast vel og stundum ekki. Hefði ég sjálfur átt að velja mér eitt­hvað annað hefði ég valið arki­tektúr. Þar er maður líka að búa til ein­hver fal­leg form. Maður verður hins vegar að velja það sem hjartað kallar á og ég sé alls ekk­ert eftir því.“

Ekki mikill rappari

Jóhann hjólar mikið og þá kýs hann að hafa eldri tón­list í eyr­unum frekar en nýrri verk. Engu að síður segir hann það magnað hvað mikið er til af góðri tón­list á Íslandi í dag. „Það er meira gam­alt efni í tæk­inu hjá mér því sú tón­list fer algjör­lega með mig á stað­inn þar sem ég var staddur hverju sinni. Ég fylgist aðeins minna með því sem nýrra er en sonur minn hefur aðeins laumað rapp­inu að mér.

Það eru aug­ljós­lega miklir hæfi­leikar í land­inu en ég get nú ekki sagt að ég sé mik­ill rapp­ari samt. Hins vegar efast ég ekk­ert um að það er örugg­lega gaman að vera rapp­ari,“ segir Jóhann.

Árið 2004 hóf Jóhann höf­unda­rétt­ar­stríð við norska laga­höf­und­inn Rolf Løvland. Hann kallar vinnu­brögð Norð­manns­ins apa­smíðar. „Þetta hefur verið mik­ill skóli fyrir mig og ég sá mig nauð­beygðan til að fara í þetta mál þar sem lagið var metið svo líkt mínu. Textinn er líka end­ur­speglun af text­anum í Söknuði. Líkindin eru ótrú­leg, bæði lag og texti, enda hefur hitt lagið ratað alveg sama veg inn á jarð­ar­farir og stórar minn­ing­ar­há­tíðir.“

„Svona risar svífast einskis og lög­fræð­ingar þeirra af svip­uðum meiði.“

Réðst á risana

Frá árinu 2018 hefur orr­ustan verið við útgáfuris­ana Uni­ver­sal Music og Warner í Banda­ríkj­unum. Málinu var vísað frá nú í apríl og segir Jóhann von­brigðin gíf­ur­leg. „Ég er dálítið brenndur. Nið­ur­staðan er vissu­lega von­brigði og kom mér auð­vitað á óvart. Ég er hins vegar alls ekk­ert hræddur því maður var alltaf með­vit­aður um að hinn aðil­inn gæti haft betur. Ég skelf ekki á bein­unum þótt þessi fyr­ir­tæki heiti Uni­ver­sal og Warner,“ segir Jóhann ákveð­inn. Hann á von á því að málið taki alla­vega 1-2 ár til við­bótar meðan áfrýj­unin verður tekin fyrir.

„Allan tím­ann gerði ég mér grein fyrir því að mót­t­að­il­inn væri sterkur og myndi beita öllum til­tækum brögðum. Svona risar svífast einskis og lög­fræð­ingar þeirra af svip­uðum meiði, þeir fá borgað fyrir að verj­ast með hvað ráðum sem er og mál­stað­ur­inn skiptir engu. Þessum risum er alveg nákvæm­lega sama svo fremi sem að lagið hafi gert það gott fyrir þá.“

Gaman að berjast

Hvernig sem höf­unda­rétt­ar­málið endar seg­ist Jóhann alls ekki sjá eftir því að hafa farið í mál. Til að verja sig per­sónu­lega var málið höfðað af banda­rísku fyr­ir­tæki sem hann stofn­aði en hann telur það samt ekki úti­lokað að útgáfurisarnir sæk­ist eftir pen­ingum hans hér heima fari svo að hann tapi. „Það er auð­vitað ekk­ert gaman að standa í þessum mála­ferlum, þetta er eitt­hvað sem ég bað aldrei um og hefði alveg viljað vera laus við. Mér finnst málið bara þess virði og hefði örugg­lega nagað mig í handa­bökin fyrir að hafa ekki farið af stað og látið aurana stoppa mig,“ segir Jóhann.

„Sem betur fer finnst mér ekk­ert leið­in­legt að berj­ast, í æsku var ég alltaf í ein­hverjum kúreka­leikjum og skylm­ingum. Núna þarf dóm­ar­inn að ákveða hvort ég eigi að borga útgáfu­fyr­ir­tækj­unum þennan pen­ing.“

Sama um frægðina

Þó að málið í Banda­ríkj­unum hafi reynst erfitt er Jóhann afar þakk­látur stuðn­ingnum sem hann hefur fundið fyrir á Íslandi. Sjálfur gerir hann hins vegar lítið úr því að vera popp­stjarna. „Fólk hefur mikið verið að lýsa yfir stuðn­ingi sínum við mig úti á götu eða úti í búð vegna máls­ins. Fólk sem ég þekki ekk­ert og mér hefur þótt mjög jákvætt að finna þann stuðn­ing. Það hefur virki­lega yljað mér um hjarta­rætur,“ segir Jóhann.

„Ég er ekki mikið fyrir athygl­ina og sæk­ist ekki eftir henni. Hún virð­ist samt alltaf elta mann án þess að maður fái við það ráðið. Ætli það sé ekki þannig að ef maður gerir eitt­hvað rétt þá kallar það á athygli. Ég tek það ekk­ert sér­stak­lega alvar­lega að vera frægur, mér finnst það ekk­ert merki­legra en hvað annað.“

Deilan við ris­ana í hnot­skurn:

Árið 1977 kom út lagið Söknuður eftir Jóhann í flutn­ingi Vil­hjálms Vil­hjálms­sonar. Árið 2004 kom út lagið You Raise Me Up eftir Norð­mann­inn Rolf Løvland í flutn­ingi Josh Groban. Bæði lögin hafa náð miklum vin­sældum. Jóhann fór í mál við alþjóð­legu útgáfuris­ana Uni­ver­sal Music og Warner þar sem hann taldi síð­ara lagið vera stolið og líkt­ist lagi hans, Söknuði. Mála­ferlin hafa lengi staðið yfir en varn­ar­að­ilar lögðu áherslu á að í raun væru bæði lögin byggð á eldra lagi, lag­inu Oh Danny Boy sem samið var af Frederic Weatherly árið 1913. Málinu var nýverið vísað frá dómi í Banda­ríkj­unum og lög­menn risanna hafa farið fram á tæpar 50 millj­ónir frá Jóhanni vegna til­hæfu­lausra ásak­ana um laga­stuld. Íslenski laga­höf­und­ur­inn hefur áfrýjað og laga­stuld­ar­deil­unni er því ekki alveg lokið enn.

Lestu nánar um málið í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ