Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég tel þjóðina þrá breytingar“

„Ég tel þjóðina þrá breytingar“
Guð­mundur Franklín. Mynd /Hákon Davíð Björns­son

„Mín mesta sorg var þegar faðir minn lést. Ég var svo ungur og það bar svo brátt að,“ segir Guð­mundur Franklín Jónsson for­seta­fram­bjóð­andi um mestu sorg­ar­stund ævinnar. Í barna­skóla stóð hann fyrir flösku­tombólum og bauð vinum sínum reglu­lega upp á pylsu og kók fyrir ágóð­ann. Átta ára gam­all byrj­aði Guð­mundur að vinna sér inn fyrir kaupi og hug­ur­inn stefndi fljótt á verð­bréfa­sölu á Wall Street. Lengi átti hann erfitt með að búa á Íslandi en með aldr­inum hefur hann lært að meta það smáa. Guð­mundur segir Guðna Th. ágætan en vill sjálfur verða betri for­seti lands­ins með mál­skots­rétt­inn að vopni.

„Ég tel þjóð­ina þrá breyt­ingar.“

Guð­mundur Franklín athafna­maður segir spill­ingu ríkja á Íslandi og boðar breyt­ingar verði hann for­seti. Í við­tali við Mannlíf segir hann frá pöddu­söfnun í æsku, skemmti­legum sam­skiptum við Björgólf Thor og erf­iðu gjald­þroti. Hann við­ur­kennir að honum hætti til að taka „örlítið sterkt til orða“.

Guð­mundur Franklín er einn sex systk­ina og ólst up í Lang­holts­hverf­inu í Reykja­vík. Heim­il­is­haldið var með hefð­bundnu sniði. Faðir Guð­mundar, Jón Bjarna­son, vann hjá Kaup­manna­sam­tök­unum og móðir hans, Guðbjörg Lilja Mar­íus­dóttir, var lengi vel hús­móðir. Þau voru bæði harð­dug­leg og segir Guð­mundur að þau eigi hrós skilið fyrir að koma öllum systkin­unum til manns. „Ég átti marga vini og var atorku­samur sem barn og ung­menni. Hafði alltaf eitt­hvað fyrir stafni og ef ég hafði það ekki þá fann ég mér eitt­hvað að gera. Ég safn­aði öllum pöddum sem ég fann og geymdi í krukkum í úti­geymsl­unni. Pabbi henti þeim iðu­lega þegar lyktin var orðin yfir­þyrm­andi. Ég veiddi mar­hnúta, safn­aði mar­flóm og marglyttum. Það var svo mikið ævin­týra­land fyrir krakka að búa í Vogunum,“ segir Guð­mundur.

Vinirnir fengu pylsu og kók

Guð­mundur var átta ára gam­all er hann fór að vinna fyrir sér í versl­un­inni Víði þar sem hann braut saman pappa­kassa og hjálp­aði eldri við­skipta­vinum að bera inn­kaupa­poka heim. Þegar á leið urðu störfin ábyrgð­ar­meiri og vann hann hverja lausa stund með­fram skóla í versl­un­inni. Þar að auki hélt hann reglu­lega flösku­tombólur í Voga­hverf­inu. „Ég á margar skemmti­legar minn­ingar úr hverf­inu því ég var alltaf að finna mér eitt­hvað til dund­urs. Einn sér­stak­lega gróða­væn­legan dag á tombólunni hafði ég fyllt kjall­ar­ann af flöskum Svo kom mamma heim og fór niður í kjall­ara og þá var kallað: „Gúndi! Hvað ertu búinn að gera, strákur?“

Þessi fjár­sjóður dugði fyrir pylsu og kók svo dögum skipti fyrir mig og vini mína. Þarna kynnt­ist ég við­skipta­líf­inu að nokkru leyti og varð stað­ráð­inn í því að starfa við verð­bréfa­miðlun í Banda­ríkj­unum,“ segir Guð­mundur bros­andi.

Ævintýrið í New York

Spurður hvað hafi orðið til þess að hann fór til New York í verð­bréfa­sölu segir Guð­mundur þann heim hafa verið fram­andi og spenn­andi fyrir ungan mann. Verandi fylg­inn sér sett­ist hann niður og skrif­aði öllum helstu verð­bréfa­fyr­ir­tækj­unum og sótti um starf. Hann fékk vinnu og fjöl­skyldan bjó lengst af nærri Dakota-bygg­ing­unni þar sem bít­il­inn John Lennon var skot­inn. „Lífið í New York var ynd­is­legt og ég sakna borg­ar­innar í hvert skipti sem ég sé henni bregða fyrir í bíó­myndum eða þáttum. Ég bjó alltaf á Upper West Side við Central Park-garð­inn og átti marga fræga nágranna. Það var svo­lítið sér­stakt að búa nærri Dakota-bygg­ing­unni því þetta er hálf­gerður minn­ing­ar­reitur,“ segir Guð­mundur.

Fyrir utan að missa föður sinn ungur að árum missti Guð­mundur góða vini í árásinni hrika­legu á tví­bura­t­urn­ana í New York í sept­em­ber 2001.

Hrikaleg minning

Fyrir utan að missa föður sinn ungur að árum missti Guð­mundur góða vini í árásinni hrika­legu á tví­bura­t­urn­ana í New York í sept­em­ber 2001. Hann á erfitt með að lýsa því með orðum hvernig það var að hafa verið staddur nærri turn­unum þegar ósköpin dundu yfir. „Það síð­asta sem þú heyrir áður en drun­urnar í hrynj­andi bygg­ing­unni berg­mála á milli þröngra gatn­anna eru öskrin í fólk­inu sem reynir í örvænt­inu að kom­ast í burtu. Að horfa á háhýsi hrynja fyrir framan augun á þér þar sem fjöldi fólks lætur lífið og góðir félagar þínir þarna inni er í einu orði sagt skelfi­legt. Ég myndi ekki óska versta óvini mínum þess að upp­lifa slíkar hörm­ungar,“ segir Guð­mundur sem greini­lega á erfitt með að rifja atburð­ina upp.

„Þetta eru nú orðnar örlítið of per­sónu­legar spurn­ingar. “

Þrjár gleðistundir

Lífið er bæði gleði og sorg, að mati for­seta­fram­bjóð­and­ans. Spurður hver sé sú stund sem hafi veitt honum mesta gleði er hann ekki lengi að hugsa sig um. „Ég get í raun ekki nefnt eina því ég verð að fá að nefna þrjár. Það er þegar börnin mín fædd­ust. Fyrst var það hann Árni minn. Svo Verónika og að lokum Vigdís,“ segir Guð­mundur sem lengi var giftur Ásdísi Helgu Árna­dóttur. Þau skildu árið 2013 og tók skiln­að­ur­inn tals­vert á Guðmund sem seg­ist eiga erfitt með að ræða hann. „Þetta eru nú orðnar örlítið of per­sónu­legar spurn­ingar. Fyrr­ver­andi konan mín er ynd­is­leg mann­eskja sem mér þykir mjög vænt um. Við erum góðir vinir og eigum þrjú frá­bær börn saman.“

Nýlega rataði Guð­mundur inn á lista fjöl­miðla yfir heita pip­ar­sveina. Mannlíf spurði hann að því hvort hann stefni á að finna sér for­seta­frú kom­ist hann í emb­ætti for­seta Íslands. „Ég er ekk­ert að flýta mér í nýtt hjóna­band enda stýrir maður því ekki þegar maður hittir ein­hvern sem maður fellur fyrir.“

Vandaðir menn

Þegar Guð­mundur var ungur tók hann að sér að mála bíla­stæði og hjá honum starf­aði þá Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, sem í dag er lík­lega rík­asti maður lands­ins. Aðspurður segir for­seta­fram­bjóð­and­inn að Björgólfur Thor hafi verið góður und­ir­maður. „Sá Björgólfur Thor sem ég þekkti var frá­bær vinnu­kraftur og mál­aði stór­kost­legar beinar línur. Sem ung­lingur átti hann fram­tíð­ina fyrir sér í bíla­stæða­málun en beygði eitt­hvað af beinu braut­inni þegar fram liðu stundir,“ segir Guð­mundur og brosir út í annað.

Síðar meir lágu leiðir Guð­mundar og Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra saman er sá síð­ar­nefndi starf­aði fyrir hann sem lög­maður. „Sá Bjarni sem ég kynnt­ist var mjög vand­að­ur­piltur og það var gott að vinna með honum. Okkar sam­skipti voru ánægju­leg en hann er ekki full­kom­inn frekar en aðrir og hef ég orðið fyrir tölu­verðum von­brigðum með sum störf hans.“

Meðmæli að taka áhættu

Eins og áður hefur komið fram var Guð­mundur ungur er hann hall­að­ist að við­skiptum og hefur hann víða komið við, bæði hér­lendis og erlendis. Sum verk­efnin hafa endað með gjald­þrotum sem hann kennir engum öðrum um en sjálfum sér. Aðspurður hvort gjald­þrot sé gott vega­nesti í emb­ætti for­seta Íslands telur Guð­mundur svo geta verið. „Per­sónu­lega finnst mér það vera með­mæli ef fólk hefur tekið ein­hverja áhættu í líf­inu, jafn­vel þó að sumt hafi mis­tek­ist. Sá sem gerir aldrei mis­tök hefur aldrei gert neitt sem máli skiptir. Ég hef tengst fjölda fyr­ir­tækja á Íslandi og um allan heim sem blómstra og fjöldi manns vinnur hjá í dag,“ segir Guð­mundur ákveð­inn.

„Gjald­þrot koma því miður fyrir og stundum veðja menn á rangan hest og verða þá að taka því. Það er eng­inn sem lýsir yfir gjald­þroti sér til gam­ans. Við eigum ekki að úthrópa þá sem hafa orðið fyrir þessu heldur frekar styðja við bakið á þeim því þetta er alls ekki auð­velt. Gjald­þrot hefur skollið harka­lega á mér og verið erfið líf­reynsla fyrir mína fjöl­skyldu.“

Guðmundi finnst sorg­legt að fylgj­ast með hvernig íslensk stjórn­völd hafa á und­an­förnum árum gengið hart fram við að hafa reisn­ina af þjóð­inni.

Stór orð stundum

Þegar Guð­mundur er spurður út í kosti sína og galla seg­ist hann ávallt hafa átt erfitt með að lýsa sjálfum sér. Í grunn­inn telur hann sig ósköp venju­legan mann, breyskan eins og flestir eru en að hann reyni alltaf að gera sitt besta. „Það sem hefur verið sagt um mig er að ég sé skemmti­legur, upp­finn­inga­samur, dug­legur og fylg­inn mér. Ég virð­ist hafa þann hæfi­leika að hugsa út fyrir rammann og hef oft á tíðum lag á að koma með hug­myndir sem öðrum hafa ef til vill ekki komið til hugar. Ég vil jafn­framt meina að ég sé afkasta­mik­ill og jákvæður að eðl­is­fari og flestir tala um að það sé gott að umgang­ast mig,“ segir Guð­mundur. „Minn helsti galli er að eiga það til að nota stærri orð en ég ætla mér þegar mér er heitt í hamsi. Ég er hins vegar að reyna að venja mig af þessu og hefur það gengið nokkuð vel.“

Góðhjartaður grallari

„Vinir mínir myndu lýsa mér sem grall­ara. Ég verð víst að sam­þykkja það enda á ég það til að vera svo­lítið stríð­inn. Þeir myndu líka eflaust segja að ég sé góð­hjart­aður og gjaf­mildur. Ég verð seint þekktur fyrir að safna að mér fé eða láta vini mína greiða götu mína,“bætir Guð­mundur við.

Eins og áður sagði telur Guð­mundur sig ósköp venju­lega mann­eskju sem reglu­lega lendi þó í hinum ýmsu óheppi­legu upp­á­komum. Flestar þeirra tengj­ast sósum sem hann telur meðal sinna helstu óvina. „Það er orðið hálf­gert grín í fjöl­skyld­unni minni að ég geti ekki sett upp bindi því þá sulli ég á mig. Ég er hrein­lega far­inn að hall­ast að því að sinnep og tómatsósa hafi sagt mér stríð á hendur. Það var nú bara núna síð­ast við opnun kosn­inga­bar­átt­unnar sem ég sull­aði ofan á mig heilum mjólk­ur­lítra og til að kór­óna vand­ræðin tókst mér að reka nýja bindið í nagla og draga til í því.“

Enginn braskari

Um Guðmund hefur það verið sagt að hann sé brask­ari í eðli sínu sem ávallt hafi haft þann draum að verða ríkur. Hann segir spill­ing­una á Íslandi hafa hamlað því hversu gott Íslend­ingar gætu haft það. „Ég er ósam­mála því að ég sé brask­ari því það er mik­ill mis­skiln­ingur að verð­bréfa­miðlun snú­ist um brask. Það byrjar allt og endar með verð­bréfa­við­skiptum því án fjár­mögn­unar er ekk­ert hægt að gera. Þau snú­ast fyrst og fremst um að byggja upp lönd, borgir, fyr­ir­tæki og inn­viði og þess vegna höfum við það svona gott á Vest­ur­löndum. Við Íslend­ingar höfum því miður oft farið var­hluta af þessu þar sem spill­ingin hefur séð til þess,“ segir Guð­mundur alvar­legur.

„Mig hefur í sann­leika sagt aldrei dreymt um að verða ríkur en mér finnst gott að hafa mikið að gera. Ég vinn hratt og vil vinna krefj­andi störf. Það sem heill­aði mest við að vinna á Wall Street var dýnamíkin.“

Ríkur í dag

Þrátt fyrir að segj­ast aldrei hafa átt þann draum að verða ríkur telur Guð­mundur sig ákaf­lega ríkan í dag. Honum líður hvergir betur en í faðmi vina og fjöl­skyld­unnar. „Ég á þrjú ham­ingju­söm og góð börn sem ætla að ferð­ast með mér um landið í kosn­inga­bar­átt­unni. Ég hef lifað ævin­týra­legu lífi eins og sumir kjósa að kalla líf manns sem hefur látið hendur standa fram úr ermum og verið hvergi hræddur við að takast á við nýjar áskor­anir. Ég hef ferð­ast víða, kynnst mörgum menn­ing­ar­heimum og ég er heilsu­hraustur. Ég myndi því segja að ég sé ríkur af ham­ingju og góðum minn­ingum,“ segir Guð­mundur.

Elítan sleppur

Þegar Guð­mundur er spurður út í ýmis orð sín sem hann hefur látið flakka í gegnum tíð­ina vísar hann í galla sinn um að taka stundum of sterkt til orða. Þannig hefur hann til dæmis sagst ekki hika við að kenna fólki að svíkja undan skatti og segir Guð­mundur það úti­lokað að hann muni beita sér fyrir slíku í emb­ætti for­seta. „Eins og ég sagði þá á ég það til að taka örlítið of sterkt til orða í hita leiks­ins. Ég hef aldrei brotið reglur um við­skipti. Það þarf að búa svo um hnút­ana í skatt­kerf­inu í öllum löndum að ekki sé hægt að svíkja undan skatti því ann­ars mun fólk nýta sér þær mús­ar­holur sem finn­ast. Ég vil að allir dragi vagn­inn en elítan kom­ist ekki upp með að svindla á skatt­kerf­inu á meðan hinn almenni borg­ari greiði upp í topp,“ segir Guð­mundur.

Lærði að meta hið smáa

Guð­mundur hefur líka látið hafa það eftir sér að hann þrí­fist illa á Íslandi og honum líði betur í stærri sam­fé­lögum. Aðspurður segir hann að upp­lifun hans á Íslandi hafi breyst með aldr­inum og nú líði honum hvergi betur. „Já, það hefur breyst. Ég fór frá því að eiga heima í millj­óna­borgum yfir í að búa á Borg­und­ar­hólmi þar sem búa ekki nema rétt um 40 þús­und manns. Með aldr­inum lærir maður að kunna að meta hið smáa aftur og í raun má segja að ég hafi verið kom­inn aftur í upp­runann þar sem ég safn­aði pöddum í úti­geymsl­unni hjá pabba. Það var kom­inn tími til að flytja heim,“ segir Guð­mundur.

Fjarlægist hægrið

Guð­mundur sagði eitt sinn að heim­ur­inn yrði betri án vinstri­manna en í dag seg­ist hann orðið eiga minna sam­eig­in­legt með hægri­mönnum en áður var. Aðspurður seg­ist hann því ætla að verða for­seti bæði vinstri- og hægri­fólks. „Lands­lagið í póli­tík­inni er alltaf að breyt­ast og það sem er til vinstri í dag er orðið til hægri á morgun. Ég er far­inn að eiga minna sam­eig­in­legt með þeim hluta hægri­manna sem vilja einka­væða orku­auð­lindir þjóð­ar­innar en ég á með vinstri mönnum. Það er til ærlegt fólk í öllum flokkum og ég hefði trú­lega ekki getað ímyndað mér fyrir nokkrum árum að ég yrði hlaup­andi sam­síða Hjör­leifi Gutt­orms­syni og Ögmundi Jónassyni líkt og með orku­pakk­ann. Baráttan snýst um hag þjóð­ar­innar og þá gildir einu hvar flokkslínur liggja,“ segir Guð­mundur.

Þjóðin svipt reisn

For­seta­fram­bjóð­and­anum finnst undra­verður töggur í Íslend­ingum og að þeir séu stolt þjóð. Guðmundi finnst sorg­legt að fylgj­ast með hvernig íslensk stjórn­völd hafa á und­an­förnum árum gengið hart fram við að hafa reisn­ina af þjóð­inni. „Við sjáum það best á háum lífaldri og óþreyt­andi bar­áttu­vilja. Við stöndum okkur með ólík­indum vel í íþróttum og erum á heims­mæli­kvarða í fót­bolta, hand­bolta, cross fit, bar­daga­í­þróttum og svo mætti lengi telja. Þegar gengið er nærri okkur þá gerum við líkt og þegar Gísli Súrsson var kviðristur forðum daga, við mokum iðr­unum inn aftur, reyrum fyrir og höldum áfram að berj­ast,“ segir Guð­mundur af eld­móði.

„Það er reisn yfir mínu fólki en það er sorg­legt að segja að eftir því sem árin líða þá finnst mér stjórn­völd ganga enn harðar fram við að reyna að hafa reisn­ina af okkur. Ég er farin að ótt­ast að á end­anum muni þeim takast það og þess vegna tel ég breyt­inga sár­lega þörf í sam­fé­lag­inu.“

Þegar Guð­mundur er spurður út í ýmis orð sín sem hann hefur látið flakka í gegnum tíð­ina vísar hann í galla sinn um að taka stundum of sterkt til orða. Þannig hefur hann til dæmis sagst ekki hika við að kenna fólki að svíkja undan skatti og segir Guð­mundur það úti­lokað að hann muni beita sér fyrir slíku í emb­ætti for­seta.

Bjartsýnn frambjóðandi

„Mér finn­ast íslensk stjórn­mál vera of við­loð­andi spill­ingu. Það hryggir mig að sjá hvern flokk­inn á fætur öðrum svíkja sín kosn­inga­lof­orð um leið og þjóðin er búin að kjósa þetta fólk inn á þing. Í dag er engin virð­ing borin fyrir gras­rót­inni og þing­flokk­ur­inn fer sínu fram sama hvað tautar og raular. Svikin eru þvert á lín­una og þessu þarf að linna,“ bætir Guð­mundur við um pólítík­ina á Íslandi. Hann seg­ist ekk­ert nema bjart­sýnn fyrir kom­andi vikum í kosn­inga­bar­átt­unni.

„Auðvitað er ég bjart­sýnn. Maður færi lík­lega ekki af stað ef maður væri ekki bjart­sýnn. Bjart­sýnin er reyndar frekar að aukast þessa dag­ana því mér er svo vel tekið alls staðar þar sem ég kem. Ég tel þjóð­ina þrá breyt­ingar.“

Guðni er ágætur

Eftir að hafa séð að Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, nýti sér ekki máls­skots­rétt emb­ætt­is­ins seg­ist Guð­mundur hafa ákveðið að bjóða sig fram. Hann segir það vera hápóli­tísk hjá sitj­andi for­seta að gera ekk­ert í stórum málum. „Guðni er ágætis maður sem þekkir greini­lega sögu lands­ins ágæt­lega. Okkur greinir hins vegar á og þar fer beit­ing mál­skots­rétt­ar­ins fremst í flokki. Ég tel hann algjört lyk­il­at­riði og lít svo á að þetta snú­ist í raun um hvort fólk vilji for­seta sem kemur til með að nota mál­skots­rétt­inn eða for­seta sem gerir það ekki. Það er oft sagt að ég sé póli­tískur því ég hef skoð­anir en við skulum ekki gleyma því að það er ekki síður póli­tískt að gera ekk­ert en að gera eitt­hvað,“ segir Guð­mundur.

„Sitjandi for­seti hefur sann­fært mig um að hann muni hvorki nota mál­skots­rétt­inn né beita krafti emb­ætt­is­ins til að þrýsta á þingið að skoða málin betur þegar gjá hefur mynd­ast á milli þings og þjóðar. Ég vil virkja mál­skots­rétt­inn og sýna þjóð­inni virð­ingu með því að nýta emb­ættið í þágu þjóð­ar­innar. Ég vil verða for­seti fólks­ins.“

Lestu við­tal við verð­bréfa­sal­ann sem vill verða for­seti í Mannlífi.

Lesa Mannlíf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi