Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Inga birtir sláandi myndir af Gísla Má berjast fyrir lífi sínu: „Ég ákvað greinilega að besta leiðin væri að deyja“

Inga birtir sláandi myndir af Gísla Má berjast fyrir lífi sínu: „Ég ákvað greinilega að besta leiðin væri að deyja“
|

Inga Sæland, þing­maður og for­maður Flokks fólks­ins, birti í gær­kvöld myndir af bróð­ur­syni hennar, Gísla Má Helga­syni, sem teknar voru af honum þar sem hann lá þungt hald­inn á sjúkra­húsi eftir að hafa reynt að taka eigið líf. Árum saman hafði Gísli Már reynt að byrgja inni kyn­ferð­is­brot Þórhalls Guð­munds­sonar mið­ils gagn­vart honum, þar til Gísli Már gafst upp.

„Það tók á, ég hélt alltaf að ég gæti allt sjálfur, dauðs­föll og svo þetta með Þórhall,“ segir Gísli Már í sam­tali við Mannlíf. „Ég læsti allar til­finn­ingar upp á lofti (í heil­anum), en svo eftir svo mörg ár þá fór allt til fjand­ans, og vissi ekki hvernig ég átti að leysa úr allri þess­ari til­finn­inguflækju. Þá ákvað ég greini­lega að besta leiðin væri að deyja.“

„Gísli hetja og gangandi kraftaverk í dag“

„Vikum saman var honum haldið sof­andi í önd­un­ar­vél á milli heims og helju og fjöl­skyldan und­ir­búin undir það versta. Sam­fallin lungu og öll lík­ams­starfs­semi hætt og hann í raun dáinn það lengi að okkur var gefin engin von um að hann kæmi til baka. Þrátt fyrir að hafa gengið í gegnum allar þessar raunir,orð­inn að beina­grind sem þurfti að gang­ast undir langa end­ur­hæf­ingu er Gísli hetja og gang­andi krafta­verk í dag. Loksins er Þór­hallur Guð­munds­son á leið bak við lás og slá þar sem okkur öllum í fjöl­skyld­unni finnst hann eiga heima og hvergi ann­ars staðar,“ skrifar Inga, sem vill með mynd­birt­ing­unni, sem er með sam­þykki Gísla Más, sýna hvaða afleið­ingar kyn­ferð­is­brot geta haft á þolendur.

18 mánaða fangelsisdómur

Á föstu­dag 5. júní stað­festi Lands­réttur átján mán­aða fang­els­is­dóm yfir Þórhalli vegna kyn­ferð­is­brots gegn rúm­lega tví­tugum karl­manni. Þór­hallur var sak­felldur fyrir að hafa fróað mann­inum án sam­þykkis hans, en brotið var framið árið 2010. Maðurinn lagði fram kæru sex árum síðar,

Mál Gísla Más var fyrnt þegar hann hann hafði, að eigin sögn, loks­ins kjark til að kæra. Inga segir í sam­tali við DV að þó að Þór­hallur hafi ekki verið sak­felldur fyrir brot hans gagn­vart Gísla Má þá veiti dóm­ur­inn fjöl­skyld­unni vissa við­ur­kenn­ingu á brot­inu.

„Það var bara látið kyrrt liggja og þaggað niður og hann fær bara að halda áfram sinni iðju með útvarps­þætti og í sjón­varpi og fórn­ar­lömbin hans þurftu ýmist að heyra í honum eða sjá hann,” segir Inga, sem segir að eftir að Gísli Már hafi sagt fjöl­skyldu sinni frá kyn­ferð­is­broti Þórhalls hafi þau reynt að stöðva hann, en málið verið þagað niður.

Misnotaður eftir andlát föður hans

Árið 1988 lést Helgi bróðir Ingu af slys­förum, og var sonur hans, Gísli Már, þá 12 ára gam­all. 17 ára gam­all var hann bug­aður af sorg og leit­aði í kjöl­farið til Þórhalls, til að fá skila­boð að handan frá föður sínum.

Í fyrri færslu segir Inga að Þór­hallur hafi not­fært sér sorg barna sem misst hafi for­eldri sitt.

„Dreng­ur­inn var 17 ára gam­all og þráði ekk­ert heitar en að fá kveðju frá pabba sínum. „Pabbi þinn segir að þú sér of spenntur, þurfir að slaka á,“ sagði Þór­hallur. Dreng­ur­inn var gjör­sam­lega fros­inn, vissi ekki hvað var í gangi, hafði aldrei kynnst öðru eins. Þór­hallur sem sagt tók út getn­að­ar­lim drengs­ins og fró­aði honum og bar dáinn föður hans fyrir sig til að rétt­læta athæfið. Er til meiri lág­kúra? Þessi ungi maður glímdi við áfallastreituröskun, kvíða og óend­an­lega van­líðan í ára­bil og reyndi að taka eigið líf. Loksins, loks­ins hefur það verið við­ur­kennt opin­ber­lega hvaða mann þessi svo kall­aði „mið­ill“ hefur að geyma,“ skrif­aði Inga og bætti því við að fjöl­skyldan vissi um fleiri fórn­ar­lömb Þórhalls, sem einnig höfðu misst for­eldri sitt.

„Við vitum um fleiri fórn­ar­lömb sem áttu það sam­eig­in­legt að hafa misst for­eldri sitt og þessi níð­ingur nýtti sér sorg þeirra til að svala afbrigði­legum fýsnum sínum.“

Fyrir ára­tug reyndi Gísli Már að taka eigið líf, og var honum haldið vikum saman í önd­un­ar­vél og vart hugað líf. Segir Inga hann hetju og gang­andi krafta­verk í dag.

„Ég gat ekki lifað með skömm­ina eftir að Þór­hallur beitti mig kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Ég reyndi að flýja frá allt og öllum, ég reyndi að hengja mig. Þetta er 17 árum eftir að ég heim­sótti Þórhall,” segir Gísli Már og bætir við að hann sé ekki sá eini sem Þór­hallur hafi mis­notað.

„Ég er ekki sá eini. Það var bara ég sem var fyrstur að kæra hann, það eiga ábyggi­lega eftir að koma fleiri,” segir Gísli Már, sem líður vel í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi