Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Ég er svo mikill bullukollur og hef stundum áhyggjur af því að fólk taki mig of alvarlega“

„Ég er svo mikill bullukollur og hef stundum áhyggjur af því að fólk taki mig of alvarlega“

Ólafur Darri Ólafsson leik­ari við­ur­kennir að hann sé for­dekraður, feitur og frægur mið­aldra karl sem geti grátið yfir BYKO-aug­lýs­ingum. Hann seg­ist þola illa frekju og hroka og vill halda í sak­leysið í sjálfum sér.

Í við­tali við Mannlíf ræðir hann sveifl­urnar á leik­ara­ferl­inum, meðal ann­ars prufu fyrir stór­mynd­ina Hobbit­ann þar sem hann seg­ist hafa gert upp á bak. Fyrir helgi kom út Netflix-kvik­myndin Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga þar sem Ólafur Darri leikur á móti kvik­mynda­stjörn­unum Will Ferrell og Rachel McAdams. Leik­ar­inn segir það auð­vitað kitla að tugir ef ekki hund­ruð millj­óna áhorf­enda víða um heim horfi á hann leika. Og ef honum finnst hann þurfa klapp á bakið fari hann á Heathrow-flug­völl í Lundúnum.

Frægur á Heathrow

Aðspurður segir Ólafur Darri það algengt að hann sé stopp­aður til að koma í spjall eða mynda­tökur af áhuga­sömum. Hann hoppar á milli erlendra og inn­lendra verk­efna og við­ur­kennir að þau inn­lendu togi ekki minna í sig. „Ég held ég verði að við­ur­kenna það að ég er heims­frægur á Íslandi. Það er svo sem ekk­ert mál en það getur stundum verið svo­lítið skrítið þegar maður finnur að fólk er að fylgj­ast með manni í búðum eða bið­röðum. Þá er ágætt að muna að bora ekki í nefið. Það hefur komið fyrir að ég er stopp­aður úti á götu í útlöndum en ein­hverra hluta vegna hvergi meira en á Heathrow-flug­velli. Ef mér finnst ég þurfa klapp á bakið þá hangi ég smá­vegis á Heathrow. Ég myndi segja að ég sé svona næstum því núll­frægur í útlöndum en sæmi­lega frægur á Íslandi og á Heathrow,“ segir Ólafur Darri skæl­bros­andi og getur þess að hann sé þó ekki að fara að vinna úti fyrr en á næsta ári. Á Íslandi sé nóg að gera. „Það hefur sjaldan verið betra að átta sig á því hve nota­legt það er að búa og vinna á Íslandi. Heims­far­ald­ur­inn hefur bara stað­fest það.“

„Sumum finnst ekki hægt að keppa í listum en ég er bara ósam­mála því.“

Líkaminn tók yfir

Mannlíf hitti Ólaf Darra fyrir á kaffi­húsi snemma morg­uns þar sem hann var að und­ir­búa sig undir för á Vest­firði til að taka upp sjón­varps­þátta­ser­í­una Vegferð ásamt Víkingi Krist­jáns­syni leik­ara. Aðal­per­sónur þátt­anna heita einmitt í höf­uðið á vin­unum. Ólafur Darri við­ur­kennir að morgn­arnir séu almennt ekki  sterk­ustu stundir sól­ar­hrings­ins. „Ég er ann­ál­aður B-maður. Ég hef alltaf átt erfitt með svefn og sef mjög laust. Á end­anum ákvað ég með lækn­inum mínum að taka svefn­lyf og fyrir vikið er ég stundum dálítið lengi að vakna á morgn­anna. Var ég þó aldrei góður í að vakna áður en ég byrj­aði á svefn­lyfj­unum. Margir kollegar mínir úr kvik­mynda­brans­anum gætu stað­fest það,“ segir hann.

Það eru ekki einu lyfin sem leik­ar­inn geð­þekki hefur hefur þurft að taka á síð­ustu árum og hann fer reglu­lega til sál­fræð­ings. „Ég fékk vægt tauga­á­fall þegar ég eign­að­ist fyrsta barnið mitt og hef þurft að taka geð­lyf til að halda mér réttu megin við núllið. Ég var kom­inn á þann stað þar sem lík­am­inn tók af mér völdin því ég var ekki fær um að sjá um þetta. Líkaminn er ansi stór­kost­legt verk­færi og ræður við flest. En stundum þarf maður hjálp, alla­vega þurfti ég hana.“

Ólafur Darri Ólafsson Mynd / Hallur Karlsson

Mörg lítil högg

Að vera leik­ari er ekki alltaf dans á rósum og það hefur Ólafur Darri upp­lifað. Hann var til að mynda rek­inn úr starfi sínu hjá Borg­ar­leik­hús­inu fyrir um 15 árum. En Ólafur Darri segir það stóran hluta starfs­ins að verða hafnað. „Að missa vinn­una er alltaf hræði­leg til­finn­ing en það, að vera leik­ari gengur mikið út á höfnun. Ég fer í prufur reglu­lega og þess vegna þarf maður að geta tekið höfnun því maður fær ekki alltaf allt sem maður fer í prufu fyrir. Stundum er um að ræða það stór hlut­verk að þau gætu breytt lífi manns og maður leggur allt undir. Þá getur verið erfitt að sætta sig við að missa af hlut­verk­inu. Það þarf mikla sjálf­skoðun og vinnu að læra að taka við gagn­rýni og sætta sig við nið­ur­stöð­una. En þegar maður situr hinum megin við borðið, t.d. sem fram­leið­andi eða leik­stjóri þá sér maður hvað lítið getur vantað upp á til að ein­hver missi af hlut­verki. Stundum er ástæðan sem ræður því hver fær hlut­verkið svo lítil og ómerki­leg að maður trúir því varla. Þó að það sé alltaf erfitt að taka höfnun ekki per­sónu­lega þá er hægt að létta sér það áfall með því að „læra“ að taka henni,“ segir hann. „Ég hef reynt að temja mér sjálfs­gagn­rýni, við­ur­kenn­ingu á því hvenær ég geri vel og hvenær illa. Stundum ber kappið feg­urð­ina ofur­liði og stundum er maður bara ekki í stuði. Svo veit maður það yfir­leitt innst inni hvenær maður leggur sig allan fram og hvenær maður gefur sér afslátt.“

Gerði upp á bak

„Ég man sér­stak­lega eftir tveimur prufum þar sem ég gerði upp á bak. Annað skiptið var fyrir Hobbit­ann þar sem mér fannst ég passa full­kom­lega í hlut­verkið, bæði í rödd og útliti. Í pruf­unni var ég hins vegar alveg ömur­legur þó að „casting directorinn“ reyndi að hjálpa eins og hann gat. Þarna gleymdi ég að passa upp á einn hlut. Ég var að vanda mig svo mikið að ég gleymdi kæru­leys­inu. Maður kemst ekk­ert áfram nema að taka áhættu. Tæki­færin leyn­ast nefni­lega í því að finna töfrana í augna­blik­inu. Og reynslan hefur sýnt mér að þá finnur maður ekki nema með kæru­leysið í fartesk­inu,“ segir Ólafur Darri.

Aðspurður seg­ist hann þó ekki hafa stefnt á erlendan frama. „Fyrir mér er það ekki sér­stakt keppi­kefli að leika í útlöndum. Gæði þess efnis sem skotið er á Íslandi stenst fylli­lega alþjóð­legan sam­an­burð. Á Íslandi er frá­bært tökulið, frá­bærir leik­stjórar og frá­bærir mót­leik­arar. En auð­vitað kitlar það egóið að gera verk­efni þar sem maður veit að millj­ónir manna, í sumum til­fellum tugir ef ekki hund­ruð millj­óna, eiga eftir að horfa á og njóta. Og erlendu verk­efnin er oft eðli­lega betur borguð.“

Stefnir á leikstjórn

„Mér finnst að maður eigi helst að leggja allt í söl­urnar og vera hræði­legur frekar en að halda sig bara í örygg­inu,“ segir hann. „Ég vil frekar taka séns­inn. Þess vegna er ég yfir­leitt ekki feim­inn við að lesa leik­dóma eða horfa á sjálfan mig leika, þó að það geti verið óþægi­legt, sér­stak­lega þegar mér finnst ég ekki vera að leika vel. Maður verður samt að stíga út fyrir sig til að geta verið dóm­bær, standa í lapp­irnar og nýta reynsl­una til að koma sterk­ari til baka.“

Ólafur hefur í seinni tíð komið meir að fram­leiðslu efnis, til að mynda sjón­varps­s­er­í­unni Vegferð og kvik­mynd­inni Sum­ar­ljós sem hann mun einnig leika í. „Mér hefur fund­ist það vera skemmti­leg áskorun að koma að fram­leiðslu en nú er ég far­inn að finna það sterkt að leik­sjór­inn bankar á öxl­ina á mér. Und­an­farin ár hefur líf mitt verið eins og rús­sí­ban­areið, með miklu flakki, og ég hef ekki haft mik­inn tíma til að vinna í eigin verk­efnum. En ég á kvik­mynda­rétt­inn á Sand­ár­bók­inni eftir Gyrði Elíasson og er ákveð­inn í því að gera góða bíó­mynd úr henni þegar þar að kemur.“

„Ég á mjög erfitt með freka mið­aldra karla enda er ég einn af þeim.“

Réði ekki við tilfinningarnar

Þegar talið berst að ánægju­leg­ustu stund­unum á lífs­leið­inni þá finnst Ólafi Darra hann ekki geta annað en verið týpískur í til­svari. Að horfa á börnin sín fæð­ast hafi ein­fald­lega verið hápunkt­ur­inn. „Að fá að vera við­staddur fæð­ingu barns. Á þeim stundum er maður var svo brot­hættur að maður gæti splundr­ast en á sama tíma þarf maður að vera sterkur og til staðar fyrir kon­una sem er að gera alla erf­iðu vinn­una. Ég man eftir því að rétt eftir fæð­ingu eldri dótt­ur­innar var hún sprautuð og fór að hágráta við það. Um leið kreppt­ist hnef­inn á mér ósjálfrátt. Varn­ar­við­bragð­inu var allt í einu hleypt af stað en ég vissi bara ekk­ert hvað ég ætti að gera við þessar til­finn­ingar, allt í einu var þarna komin mann­eskja sem ég bar ábyrgð á,“ segir hann hrein­skil­inn.

Frekir karlar

Beðinn um að lýsa sjálfum sér segir Ólafur Darri það ekki flókið mál. „Ég myndi lýsa mér sem stórum, feitum mið­aldra karl­manni. Sem nær stundum að fá fólkið sitt til að hlæja. Og ekki bara alltaf að sér, líka stundum með sér. Mér finnst aðeins of gaman í vinn­unni og ég vil hafa álag. Geðslag mitt er yfir­leitt ágætt en þessa dag­ana á ég í mestu vand­ræðum með mitt eigið kyn. Ég á mjög erfitt með freka mið­aldra karla enda er ég einn af þeim,“ segir Ólafur Darri. „Okkur finnst svo­lítið mikið eins og allir eigi bara að stoppa og hlusta þegar við byrjum að tala. Það er best að byrja á sjálfum sér svo ég er að reyna að vera minni frekja og meiri mann­eskja. Mér finnst að við mið­aldra karlar eigum að taka okkur allir saman og hætta að vera svona frekir.“

Ólafur Darri Ólafsson Mynd / Hallur Karlsson

Getur alveg farið í megrun

„Hér áður fyrr þurfti fólk að hrista allt af sér, það mátti ekki sýna við­kvæmni heldur bara styrk. Vonandi er þessi tími lið­inn. Ég vil reyna að vera eins lít­ill og brot­hættur og ég get því ég vil inn­byrða allt til­finn­inga­mynstrið sem lífið býður upp á. Ég get lítið breytt útliti mínu, jú ég gæti svo sem farið í megrun eða eitt­hvað en ég verð alltaf það stór að ég rek mig utan í hluti,“ bætir Ólafur Darri við.

„Ég er sáttur við mig. Ég er stór og feitur og mér finnst það bara allt í lagi. Við eigum líka að vera alls konar. Mér hefur sjaldan verið strítt vegna vaxt­ar­lags­ins. Ég er alveg með munn­inn fyrir neðan nefið og þannig náði ég líka að snúa upp á fólk áður fyrr til að koma í veg fyrir stríðn­ina.

Ég gleymi því aldrei sem Guðrún Ásmunds­dóttir leik­kona sagði: „Það er svo gaman að sjá stóra menn létta á sviði.“

Grætur yfir auglýsingum

Um leið og Ólafur Darri lýsir sér sem stórum og miklum manni seg­ist hann samt svo brot­hættur á sama tíma. Að geta grátið, beðist afsök­unar og verið auð­mjúkur finnst honum merki um styrk. „Eig­in­lega hreyki ég mig af því að gráta yfir bíó­myndum og undir ákveðnum kring­um­stæðum þá get ég grátið yfir BYKO-aug­lýs­ing­unum. Að sýna mjúku hlið­ina í sjálfum þér þýðir ekki að þú sért minni mann­eskja. Ég held til dæmis að ýmsir aðilar mættu treysta okkur, sam­borg­urum sínum, fyrir mis­tökum sínum. Við erum, jú öll, alltaf að gera mis­tök og ég er ekki und­an­skil­inn því,“ segir hann.

„Það að eitt­hvað heppn­ist ekki eins og til stóð verður oft til þess að hlut­irnir verði miklu meira spenn­andi og safa­rík­ari. Mistök eru hluti af líf­inu, hvort sem okkur líkar betur eða verr og það er eins gott að gera það besta úr þeim.“

Fordekraður

Ólafur Darri leggur áherslu á að vel­gengn­innar hefði hann aldrei notið nema vegna þess að hann hefur haft gott fólk í kringum sig í gegnum tíð­ina. „Það þarf þorp til að ala upp barnið. Ég er kannski far­inn að átta mig betur á því hvað ég er for­dekraður að flestu leyti. Að alast upp á Íslandi, að vera karl­maður, að fá öll þau tæki­færi sem ég hef fengið. Þegar mér finn­ast hlut­irnir vera orðnir of sjálf­sagðir þá reyni ég sparka ég í mig og minni mig á þakk­lætið.“

Gaman að fá verðlaun

Ólafur Darri seg­ist hafa ótrú­lega gaman af fólki af öllum stærðum og gerðum. „Ég er svo mik­ill bullu­kollur og hef stundum áhyggjur af því að fólk taki mig of alvar­lega. Mér finnst svo gaman að bulla og á það til að vera ískrandi kald­hæð­inn. Ég er líka kjaft­forari en ég hef inni­stæðu fyrir. Ef ein­hver hefur tekið mig alvar­lega nokkurn tíma þá biðst ég afsök­unar á því,“ segir hann.

Aðspurður seg­ist Ólafi Darra ekki finn­ast það feimn­is­mál að hljóta við­ur­kenn­ingu fyrir list­ina. „Mér finnst gaman að fá verð­laun. Var aldrei í íþróttum og á þess vegna engar medal­íur. Sumum finnst ekki hægt að keppa í listum en ég er bara ósam­mála því. Með verð­launa­há­tíðum erum við líka fyrst og fremst að klappa hvert öðru á bakið og hampa þeim sem okkur fannst bestur á því ári. Það finnst mér gaman. Það er gaman að vera til­nefndur og fá verð­laun. Það er líka gaman að til­nefna og verð­launa aðra.“

Brennivínið

Stundum hefur mikil áfeng­is­neysla verið tengd við listir og þegar Ólafur Darri er spurður um það þá við­ur­kennir hann að það sé eitt­hvað sem þurfi að hafa í huga. „Leik­listin getur verið mikið álags­starf og erfitt að ná sér niður eftir leik­sýn­ingar. Sumir leik­arar hafa dottið í þá gryfju að ná sér niður með aðstoð brenni­víns. En maður verður að læra að kom­ast úr leik­heimi yfir í raun­heim­inn án þess að nota vín eða önnur vímu­efni. Ég held nú að syk­ur­inn hafi verið erf­ið­astur fyrir mig,“ segir hann.

Stjörnulífið er sætt

Aðspurður hvort hann lifi stjörnu­lífi erlendis þá segir hann svo ekki vera. „Ég kvarta ekki því það er yfir­leitt mjög vel séð um mann. En mér dettur t.d. í hug þegar ég var að leika í mynd á Nýja-Sjálandi með Jason Statham. Við vorum að spjalla og konan mín var að koma í heim­sókn til mín. Ég vissi að hann var nýbú­inn að vera með kon­una sína hjá sér svo ég spurði hvað þau hefðu gert í frí­inu. Hann sagði mér það og stakk upp á að við myndum leigja okkur þyrlu og fljúga yfir suð­ur­eyj­arnar. Þetta var nátt­úr­lega mjög krútt­legt vegna þess að þetta var ekki alveg raun­hæft fyrir íslenskan lista­mann. Ég sagði bara við hann: „Jason, þú veist við erum ekki að fá sömu launin fyrir þessa mynd sem við erum að leika í.“ Það fannst honum fyndið.“

Ólafur Darri hefur lítið annað en góða reynslu af því að leika á móti þekktum kvik­mynda­stjörnum þó til séu á því und­an­tekn­ingar. Spurður um hverjar und­an­tekn­ing­arnar séu vill hann ekki gefa þær upp. „Í lang­flestum til­fellum er þetta harð­dug­legt, almenni­legt og hæfi­leik­a­ríkt fólk. Ég er svo hepp­inn að vera alinn upp í íslensku leik­list­ar­lífi þar sem er mjög lít­ill stétt­ar­munur. Úti tækla ég þetta eins og ég geri á Íslandi og tala bara við alla. „Think global, be local.“ Ég vil vera eins hrein­skil­inn og heið­ar­legur og ég get því þannig líður manni best.“

Netflix er frábært

Eins og áður sagði frum­sýnir Netflix Eurovision-kvik­mynd­ina í dag þar sem Ólafur Darri leikur hlut­verk. Honum þykir mjög vænt um stór­fyr­ir­tækið og líst mjög vel á mynd­ina. „Eurovision er stór­kost­legt fyr­ir­bæri sem ég þoldi aldrei en hef kom­ist meira og meira inn í gegnum konu mína og börnin. Eins og Íslend­ingar vita manna best er um að ræða frá­bæra fjöl­skyldu­skemmtun og nú á að gera smá­grín að hátíð­inni og okkur Íslend­ingum. Að fá að vera með í þess­ari mynd var mjög gaman og ég tala nú ekki um að vera í fríðum flokki íslenskra leik­ara fyrir utan snill­inga eins Will Ferrell og Rachel McAdams. Fire Saga verður algjör hitt­ari.“

Aðspurður segir Ólafur Darri það algengt að vera stopp­aður til að koma í spjall eða mynda­tökur af áhuga­sömum. Hann hoppar á milli erlendra og inn­lendra verk­efna og við­ur­kennir að þau inn­lendu togi ekki minna í sig. Mynd / Hallur Karlsson

Hann segir að Netflix hafi reynst sér vel, þetta sé í fimmta sinn sem hann taki beinan þátt í verk­efni sem fram­leitt sé beint fyrir þau. „Innkoma þeirra á íslenskan markað hefur verið mjög mik­il­væg og það að risa­fyr­ir­tæki eins og Netflix komi beint að fram­leiðslu á íslensku efni er ótrú­lega dýr­mætt. Að Netflix láti sig þennan litla markað varða og hjálpi okkur að segja sögur er ómet­an­legt,“ segir hann.

Ferrell og McAdams auðmjúk og almennileg

En hvernig fannst Ólafi Darra að hitta og vinna með aðal­leik­urum Eurovision?  „Ég hitti þau nú bara í eitt skipti en þau voru kannski eins og ég átti von á, auð­mjúk og almenni­leg. Will Ferrell finnst mér frá­bær leik­ari, t.d. kom Ron Burgundy podcastið hans mér í gegnum COVID-19 far­ald­ur­inn og Rachel hefur maður dáðst að lengi. Það kitl­aði egóið að þegar ég tók í spað­ann á henni og ætl­aði að segja hvað mér finnst hún frá­bær þá sagði strax að hún vissi hver ég væri og að hún væri mik­ill aðdá­andi. Þetta kom flatt upp á mig en auð­vitað hafði hún rek­ist á Ófærð þegar hún var við tökur í Kanada og greini­lega fílað vel. Það er góð til­finn­ing að vera þekkt­astur fyrir eitt­hvað sem maður gerði heima.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una