Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kynlífsleikjaherbergi til leigu í Reykjavík

Kynlífsleikjaherbergi til leigu í Reykjavík

Bjóða afnot af sér­út­búnu kyn­líf­s­leikja­her­bergi á 15 þús­und krónur klukku­tím­ann.

„Þetta má segja að þetta sé svona hálf­gert til­rauna­verk­efni. Þetta er auð­vitað þjón­usta sem eng­inn hefur boðið upp á hér­lendis og við vildum bara athuga hvernig henni yrði tekið,“ segir eig­andi vef­síð­unnar sexrooms.is, sem býður upp á afnot af kyn­lífs­her­bergi í Reykja­vík.

Um er að ræða eitt stakt her­bergi sem er sér­út­búið kyn­lífstækjum, rólu og bekk, auk rúms og bað­her­bergis. Er her­bergið stað­sett í mið­bænum og kostar fyrsti klukku­tím­inn 15.000 krónur, en inni­falið í því er þrif á her­berg­inu. Eftir það lækkar verðið í 6.000 krónur á klukku­tím­ann.

Að sögn eig­and­ans, sem óskar nafn­leyndar, kemur til greina að fjölga her­bergjum ef nægi­leg eft­ir­spurn skap­ast. Hingað til hafi við­tök­urnar verið mjög góðar. „Við opn­uðum fyrir þjón­ust­una fyrir svona mán­uði síðan og við­brögðin hafa verið góð hjá þeim sem hafa prófað her­bergið,“ segir hann. „Fólk er mjög ánægt með hvað aðstaðan er hrein og snyrti­leg og hvað þetta er allt saman pró. Fólki finnst þetta vera alveg til fyr­ir­myndar.“

Her­bergið er pantað í gegnum áður­nefnda vef­síðu þar sem not­and­inn þarf að und­ir­rita ítar­lega skil­mála áður en hann fær afnot af því. Í skil­mál­unum er meðal ann­ars tekið fram að gestir megi vera að hámarki þrír í einu og að eng­inn undir átján ára aldri geti pantað her­bergið.

Nú eru dæmi þess að Airbnb íbúðir, hót­el­her­bergi og leigu­í­búðir hafi verið nýtt undir vændi án vit­undar eig­enda og rekstr­ar­að­ila. Spurður hvort hann hafi áhyggjur af slíku segir eig­and­inn að vændi sé strang­lega bannað á Íslandi og her­bergið sé alls ekki hugsað í slíkum til­gangi, eins og tekið sé fram í fyrr­nefndum skil­málum, þar sem bent er á að vændis­kaup séu refsi­verð.

„Til­gang­ur­inn með þessu er að þarna hafi fólk frelsi til að krydda kyn­lífið sitt,“ segir hann. „Úti í heimi eru heilu hót­elin sem bjóða upp á svona þjón­ustu. Þetta ætti ekki að vera eitt­hvert feimn­is­mál.“

Sjá einnig: Eigandi kyn­líf­s­leikja­her­berg­is­ins vill auka þjón­ust­una: Fyrir hinn hóp­inn af fólki, sem er meira „brú­tal“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð