Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðmundur segir 14 ára son sinn hafa verið svikinn: Vann kauplaust fyrir verðlaunaleikstjóra og sætti furðulegri framkomu

Guðmundur segir 14 ára son sinn hafa verið svikinn: Vann kauplaust fyrir verðlaunaleikstjóra og sætti furðulegri framkomu

Guð­mundur Þór Kárason kvik­mynda­gerð­ar­maður, er harð­orður í garð aðstand­enda verð­launa­kvik­mynd­ar­innar Hjarta­steinn, og segir þá hafa svikið 14 ára son sinn, eftir hálfs ár vinnu fyrir aðal­hlut­verk í nýrri kvik­mynd þeirra. Segir hann son­inn ekki hafa fengið krónu greidda fyrir alla vinn­una sem hann lagði á sig.

„Maður er sjálfur orð­inn það sjó­aður og veit þegar er verið að plata mann og segir bara; „Nei og takk fyrir,“ og hættir. Þannig að ef ég sjálfur væri að lenda í þessu þá væri það bara leið­in­legt og maður heldur áfram. Ég væri ekki að tala um þetta í fjöl­miðlum eða á sam­fé­lags­miðlum ef það væri ekki fyrir barnið mitt. Ég er for­eldri og á að vernda hann og þegar menn sem ég þekki ekki eru að koma svona illa fram við son minn, þá er það algjör­lega ólíð­andi,“ segir Guð­mundur í sam­tali við Mannlíf.

„Aðstand­endur kvik­mynd­ar­innar Hjarta­steinn eru með nýja mynd í smíðum og í lok árs 2019 héldu þeir áheyrn­arprufur fyrir aðal­hlut­verkin í mynd­inni. Aðal­hlut­verkin eru öll í höndum barna og eftir langar og strangar prufur hreppti sonur minn aðal­hlut­verkið,“ segir Guð­mundur í færslu á Facebook. Aðstand­endur beggja mynda eru Guð­mundur Arnar Guð­munds­son, sem leik­stýrði og skrif­aði hand­rit Hjarta­steins, og Anton Máni Svansson, sem var aðal­fram­leið­andi mynd­ar­innar.

„Leik­stjór­anum finnst hann [sonur Guð­mundar] ekki alveg vera að tengja við hlut­verkið þannig að hann getur ekki verið með í mynd­inni,“ segir Anton Máni við mig þegar hann hringir á þriðju­dag­inn,“ segir Guð­mundur. „Hvernig full­orðnir menn geta komið svona fram við óharðn­aðan ung­ling er eitt­hvað sem er ekki hægt að skilja. Veröld drengs­ins og vænt­ingar hrundu við þessar fréttir, eftir að hann hafði ekki hugsað um annað en þetta verk­efni í sex mán­uði. Að horfa upp á barnið sitt mæta svona fram­komu frá full­orðnum mönnum út í bæ sem hafa áunnið sér traust hans er ógeð­fellt.“

Guð­mundur seg­ist aðeins hafa hitt Guðmund Arnar leik­stjóra þrisvar sinnum. „Mér finnst mjög óeðli­legt að hann er síðan að mynda trún­að­ar­sam­band við barnið mitt dag­lega, á meðan að ég fæ bara upp­lýs­ingar úr fram­leiðsl­unni, frá stelpum á skrif­stof­unni eða Antoni Mána fram­leið­anda. Við fengum þetta sím­tal á þriðju­dag­inn, og okkur var strax hent út úr Facebook-hópi þar sem allir for­eldr­arnir voru. Allir sem unnu að kvik­mynd­inni eyða okkur sem vinum á Facebook. Það á bara að láta eins og sonur minn sé ekki til!,“ segir Guð­mundur.

„Við fréttum svo að ferlið hefði verið eins þegar unnið var að Hjarta­steini, ferlið hefði verið langt og strangt, og þegar Anton Máni hringdi í okkur í gær var það stað­fest. Að leik­stjór­inn hefði einnig þá á síð­ustu stundu skipt um skoðun, þannig að þetta er ekki í fyrsta sinn sem vinnu­brögðin eru svona,“ segir Guð­mundur.

Guð­mundur Þór Kárason Mynd / Tinna Stef­áns­dóttir

Margverðlaunuð heima og erlendis

Hjarta­steinn var frum­sýnd 10 jan­úar 2017 á Íslandi og var sýnd á RÚV á jóla­dag það ár. Myndin vakti verð­skuld­aða athygli og sóp­aði til sín verð­launum, hér heima og erlendis. Hjarta­steinn hlaut 45 alþjóð­leg verð­laun, auk níu Eddu­verð­launa árið 2017. „Miðað við hvað Hjarta­steinn gekk vel þá hlýtur myndin að vera með styrki eða lof­orð um alls­konar styrki til dæmis er myndin með 110 milljón króna vil­yrði frá Kvik­mynda­mið­stöð Íslands“ svarar Guð­mundur aðspurður um hvort að myndin sem nú er í vinnslu hafi hlotið ein­hverja styrki.

„Ég hef aldrei kynnst svona vinnu­brögðum og þykir und­ar­legt að menn sem sér­hæfa sig í gerð mynda um börn skuli koma svona fram við barn. Sem faðir hryggir það mig að hafa leyft þessum mönnum að ávinna sér traust sonar míns og glepja hann með tali um frægð og frama þar sem öllu fögru var lofað,“ segir Guð­mundur og lof­orðin voru stór.

„Það átti að ferð­ast um heim­inn með mynd­ina á kvik­mynda­há­tíðir, gista á lúx­us­hót­elum og leik­arar úr Hjarta­steini voru fengnir til að koma og segja syni mínum hvað það hefði verið frá­bært tæki­færi fyrir þá að vinna í svona verk­efni.“

Stikla verð­launa­mynd­ar­innar Hjarta­steinn

Mbl.is sagði í byrjun októ­ber í fyrra frá leit Guð­mundar Arnars og Antons Mána að ung­lings­drengjum til að fara með hlut­verk mynd­ar­innar sem nú er í vinnslu. Ber hún vinnu­heitið Ber­dreymi.

Alltaf átt draum um að verða kvikmyndagerðarmaður

„Sonur minn hefur frá því hann fædd­ist ætlað að verða kvik­mynda­gerð­ar­maður, hann ætlar í Borg­ar­holts­skóla eftir gaggó að læra kvik­mynda­gerð, hann hefur frá því hann var 5-6 ára verið að búa til stutt­myndir og það er draumur hans að verða kvik­mynda­gerð­ar­maður,“ segir Guð­mundur í sam­tali við Mannlíf.

„Þegar menn sem hafa gert mynd sem heppn­ast svona vel koma til sonar míns og segja; „Við viljum að þú leikir aðal­hlut­verkið í þess­ari mynd,“ þá er hann til­bú­inn að gera allt.“

Segir Guð­mundur að hann og kona hans hafi verið farin að hafa áhyggjur af gangi mála. „Það áttu að vera 45 töku­dagar og sonur okkar átti fá 26 þús­und krónur á dag fyrir 11 klst vinnu. Þetta eru lægstu laun á setti, send­ill­inn er með hærri laun,“ segir Guð­mundur.

„Við skrif­uðum ekki undir samn­ing­inn. Ég var aðal­lega að reyna að passa upp á að það væru mörk á vinnu­tíma og upp á hvíld­ar­tíma barns­ins. Það væri bara unnið fimm daga í einu. Fyrsti samn­ing­ur­inn var bók­staf­lega þannig að ég átti bara að afhenda þeim barnið til afnota. Hann átti að geta unnið hvenær sem er og hvar sem er, bara ef þeir ósk­uðu eftir. Ég hef aldrei kynnst svona vinnu­brögðum og veit ekki hvernig þeim dettur í hug að haga sér svona,“ segir Guð­mundur. „Þarna er verið að brjóta barna­sátt­mála Sam­ein­uðu Þjóðanna og lög um vinnu barna, þannig að maður er bara ansi gátt­aður á þess­ari fram­komu.”

Samkvæmt samn­ingi átti son­ur­inn að fá greidda ákveðna upp­hæð fyrir töku­tíma­bilið, hins vegar átti ekk­ert að greiða fyrir und­ir­bún­ings­tíma­bilið að sögn Guð­mundar.  „Það var auð­vitað aldrei útli­stað hvernig und­ir­bún­ings­tíma­bilið ætti að vera. Svo er maður sog­aður inn í þetta svart­hol og það þorir eng­inn að segja neitt.

Það átti upp­haf­lega að gera mynd­ina út í Danmörku og þar var búið að fara í gegnum allt þetta ferli, að finna leik­ara og ráða í hlut­verkin. Þar eru vænt­an­lega börn sem hafa verið skilin eftir í sárum. Það er bara svona slóðin eftir þá.

Það eru fjórir aðal­leik­arar í mynd­inni og ég veit ekki hvernig fram­koman er við hina. Manni er haldið alveg frá öllum sam­skiptum við aðra,“ segir Guð­mundur, og svarar aðspurður að leik­urum og for­eldrum þeirra hafi aldrei verið hóað saman og kynnt fyrir hvert öðru. „Mér finnst það líka vera stjórn­tæki svo við, for­eldr­arnir, tökum okkur ekki saman og gerum kröfur. Það er reynt að halda öllum og öllu ferl­inu í myrkri.“

Hann segir ótrú­legt hversu langan tíma hafi tekið aðstand­endur mynd­ar­innar að ákveða að sonur hans hent­aði ekki í hlut­verkið.

„Þú átt að geta ákveðið þig á 2-3 vikum í mesta lagi, það er verið að setja heilu leik­sýn­ing­arnar upp í leik­húsum, og það tekur bara nokkrar vikur.

Sonur minn hefur brenn­andi áhuga á þessu og maður vill styðja hann í því og það er mjög erfitt að segja við hann að maður treysti ekki þessu fólki og vilji taka hann úr verk­efn­inu. Þannig að maður lætur til leið­ast eins lengi og maður getur.“

Langt og strangt tímabil

Eftir að sonur Guð­mundur fékk lof­orð um aðal­hlut­verk mynd­ar­innar tók við langt æfinga­tíma­bil, oft mörgum sinnum í viku, margar klukku­stundir í senn að sögn Guð­mundar. „Þetta voru ekki bara æfingar fyrir mynd­ina heldur einnig leik­list­a­ræf­ingar, lík­ams­rækt, slags­mála­æf­ingar, breytt matar­æði og fleira.

Upp­haf­lega, í jan­úar, var sagt við okkur að ætti að bjóða syni mínum á leik­list­ar­nám­skeið tvisvar í viku, tvo tíma í senn, og ekk­ert sagt með fram­hald ævinga. Síðan fer að bæt­ast við, æfingar urðu lengri og fleiri. Hann á að þyngja sig, hann á að fá vöðva, hann á að fara á slags­mála­æf­ingar, hann á að fara í karate, hann á und­ir­búa senur,“ segir Guð­mundur og segir að sonur hans hafi staðið sig alger­lega í einu og öllu, aðeins einu sinni á öllu tíma­bil­inu hafi sonur hans mætt of seint.

„Hann er búinn að lesa hand­ritið út og inn og stans­laust spenntur og svo er bara rifið úr honum hjartað. Hann er hvers manns hug­ljúfi og búinn að vera að leika í alls konar efni. Leik­list­ar­kenn­ar­inn hans var að hæla honum og sagð­ist hlakka til að sjá hann í hlut­verk­inu.  Þeir [aðstand­endur mynd­ar­innar] voru alltaf að segja að hann væri að standa sig vel og væri svo ein­beittur og flottur strákur,“ segir Guð­mundur.

„Maður vill vernda barnið sitt, maður vill ekki að aðrir byggi upp traust og hæli barn­inu fái síðan að taka til­finn­inga­líf þess og kremja það.“

Þurfti að hætta í annarri vinnu, skólagangan undir

Sonur Guð­mundar var með vinnu sem hann varð að hætta í á und­ir­bún­ings­tíma­bil­inu. Einnig var ljóst að jafn­vel skóla­ganga hans í vetur væri undir.

„Upp­haf­lega  átti að taka mynd­ina í sumar og aðeins inn í vet­ur­inn, svo fara dag­setn­ing­arnar að fær­ast aftar og aftar. Ég var far­inn að hafa áhyggjur af því hversu mikið hann yrði að sleppa af skóla. 45 töku­dagar með hléum er næstum orðin heil önn fyrir dreng á loka­ári í gagn­fræði­skóla.“

Sonur Guð­mundar gerði fleira síð­asta árið en að mæta á leik­list­a­ræf­ingar og segir Guð­mundur margt furðu­legt við ferlið allt. „Hann var sendur til kíróprakt­ors til að hjálpa honum með bakið, í rækt­ina og svo til fjöl­skyldu­ráð­gjafa, sem okkur var sagt að ætti að vera sjálf­styrk­ing. Og okkur er sagt að það sem hann segi ráð­gjaf­anum sé í fullum trún­aði, svo komumst við að því að hún er ekki með nein raun­veru­leg rétt­indi, hún er leik­skóla­kenn­ari, sem er með dáleiðslu- og fjöl­skyldu­ráð­gjöf, í bak­húsi í Árbænum,“ segir Guð­mundur.  „Við for­eldr­arnir vorum síðan boðuð, af fram­leiðsl­unni, til að mæta í fjöl­skyldu­ráð­gjöf til hennar með syni okkar og þá komumst við að því að hún er móðir leik­stjór­ans. Og við eigum að trúa henni fyrir ein­hverjum trún­að­ar­upp­lýs­ingum. Eins og kom síðan í ljós að sonur minn hafði sagt hluti við hana, sem hún bar svo beint í leik­stjór­ann. Þetta minnir mig helst á hegðun í ein­hvers­konar sér­trú­ar­söfn­uði.

Það er engin til­viljun að þessir menn gera myndir með börnum í aðal­hlut­verkum aftur og aftur. Börnin geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér, varist gagn­rýni frá leik­stjór­anum eða gera kröfur um vinnu­tíma og hvíld­ar­tíma. Þeir ein­angra þessi börn frá for­eldrum sínum og halda þeim fyrir utan ferlið. Guð­mundur myndar svo trún­að­ar­sam­band við börnin, hælir þeim en brýtur þau jafn­framt niður. Hann lét son okkar klæða sig úr að ofan, sagði honum að hann væri ekki nógu vöðva­mik­ill, hann þyrfti að þyngja sig, og fá stærri hand­leggi. Einnig lét hann suma dreng­ina fara í sér­staka húð­með­ferð þar sem honum fannst þeir ekki vera með nógu góða húð fyrir mynda­vél­ina. Þessi stans­lausa gagn­rýni á útlit ung­ling­anna vorum við ekki sátt við og teljum að sé hættu­leg.“

Hefur aldrei kynnst svona framkomu

Guð­mundur er sjálfur þaul­reyndur kvik­mynda­gerð­ar­maður. „Ég vann í 15 ár með Magga Scheving hjá Latabæ, ég hef komið að alls­konar fram­leiðslu­verk­efnum bæði stórum og dýrum en einnig unnið við ódýrar kvik­myndir þar sem eng­inn fékk borgað og ekki einu sinni að borða. Ég hef sjálfur verið með kvik­mynda­fyr­ir­tæki og fram­leitt aug­lýs­ingar, sjón­varps­þætti og fleira. En ég hef aldrei á minni ævi, sama hversu miklir skít­hælar fólk hefur verið eða komið illa fram, ég hef aldrei kynnst svona,“ segir Guð­mundur.

„Í gamla daga var mjög mikið um alls­konar brask í kvik­mynda­gerð á Íslandi. Þetta var svo­lítið þannig að það var sagt að kvik­mynda­gerð væri svo skemmti­leg og svo góð reynsla, það var verið að vinna frítt allan sól­ar­hring­inn við ömur­legar vinnu­að­stæður. Í dag er talað um að hlut­irnir séu breyttir og orðnir fag­legri og þeir eru það að mestu leyti. Ef um væri að ræða full­orð­inn ein­stak­ling, væri þetta alla vega aðeins öðru­vísi. Þá væri þetta hans eigin ákvörðun, og hans að hafa látið plata sig. En að vera að plata börn.

Mér finnst bara þurfa að vara annað fólk við. Ég sá að leik­stjór­inn sagði í erlendu sjón­varps­við­tali að hann hefði verið með níu krakka í 10 mán­uði í prufum fyrir Hjarta­stein án þess að segja þeim hvort þau fengu hlut­verkið, til að sjá hverjir ent­ust út ferlið. Hann sagði einnig stoltur við okkur að „crewið“ sem vann við Hjarta­stein hefði haft áhyggjur af fram­kom­unni við börnin í mynd­inni og hvað þau voru pískuð áfram og hann sagði; „þau þola þetta alveg.“ Sem mér finnst ótrú­legt að gorta sig af.“

Viðtalið sem Guð­mundur vísar til má sjá hér.

„Það getur verið að þessir aðilar nái frá­bærum árangri í gerð kvik­mynda um til­finn­inga­líf barna, sem vinna verð­laun og fólk tár­ast yfir að sjá. En aðferða­fræði þeirra minnir mig mest á fim­leika­þjálf­ara frá ein­ræð­is­ríkjum seinni part síð­ustu aldar.  Þeir náðu einnig frá­bærum árangri með börnin sem þeir þjálf­uðu.”

Segir Guð­mundur að fleiri hafi sömu sögu að segja af aðstand­endum mynd­ar­innar. „Þeir kom­ast alltaf upp með það af því að eng­inn segir neitt. Þeir halda bara áfram.  Ég hef aldrei kynnst svona hroka eða yfir­gangi. Þessir menn eru íslenskri kvik­mynda­gerð til hábor­innar skammar og ég vil vara aðra for­eldra við gylli­boðum þeirra og lof­orðum.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi