Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Vísar fullyrðingum Ragnars Þórs á bug

Vísar fullyrðingum Ragnars Þórs á bug

Jó­hann­es Stef­áns­son, fram­kvæmda­stjóri Lind­ar­vatns ehf., segir full­yrð­ingar Ragnars Þórs Ing­ólfs­sonar, for­manns VR, um blekk­ingar og vand­ræði á Lands­símareitnum úr lausu lofti gripnar.

„Mér er þó bæði ljúft og skylt að segja frá því að full­yrð­ingar Ragnars stand­ast ekki skoðun. Stað­reyndin er sú að fram­kvæmdir á Lands­símareit eru í fullum gangi. Það starfa um 200 manns við verk­efnið og hafa gert und­an­farin miss­eri, sem er mjög jákvætt í þeim þreng­ingum sem standa nú yfir,“ segir Jó­hann­es Stef­áns­son, fram­kvæmda­stjóri Lind­ar­vatns, á Facebook og vísar þar í færslu sem Ragnar Þór birti á sam­fé­lags­miðl­inum í gær.

Í sinni færslu fjall­aði Ragnar Þór um meint „brask og brall“ stjórn­enda Icelandair og Samtaka atvinnu­lífs­ins, eins og hann orðar það. „Vin­sam­lega deildu ef þú telur að atvinnu­rek­endur eigi að víkja úr stjórnum líf­eyr­is­sjóð­anna og vilt vita hvernig 700 millj­ónum er skotið undan í braski og bralli stjórn­enda Icelandair og SA,“ skrif­aði Ragnar Þór á Facebook.

„Það væri ágætis byrjun að skoða braskið og brallið í kringum Lind­ar­vatn ehf. (Hót­el­bygg­ingu á Land­símareit) sem útskýrir af hverju SA bregð­ist svo harka­lega við gegn því að verka­lýðs­hreyf­ingin sé að vakna af værum blundi innan stjórnar líf­eyr­is­sjóðs­ins? Þetta er eitt dæmi af fjöl­mörgum um tengsl SA við líf­eyr­is­sjóð­ina og fjár­fest­ingar þeirra.“

„Til allrar ham­ingju eru full­yrð­ingar Ragnars Þórs um blekk­ingar og vand­ræði á Lands­símareitnum úr lausu lofti gripnar.“

Í fram­hald­inu fer Ragnar Þór yfir tengsl Samtaka atvinnu­lífs­ins, SA, við líf­eyr­is­sjóð­ina, sem eiga Icelandair að stórum hluta, og fjár­fest­ingar þeirra með því að benda á hvaða starfs­menn hjá SA störf­uðu áður hjá Icelandair. Bendir hann þannig á að fyrrum for­stjóri Icelandair Björgólfur Jóhanns­son hafi einnig verið einnig for­maður SA. „Hjá Icelandair störf­uðu einnig Halldór Benjamín Þor­bergs­son og Davíð Þor­láks­son sem einnig stýrðu Lind­ar­vatni ehf. (félagi sem reisir lúx­us­hótel á Land­símareitnum). Fyrrum stjórn­ar­for­maður Lind­ar­vatns var fjár­mála­stjóri Icelandair group, Bogi Nils Bogason núver­andi for­stjóri Icelandair group,“ skrifar Ragnar Þór.

Fjallar Ragnar Þór enn­fremur um for­sög­una að kaup­unum á Land­símareitnum og segir að lík­lega hafi Icelandair tapað háum upp­hæðum vegna fjár­fest­inga í verk­efn­inu. „Allar líkur eru á að Icelandair hafi nú þegar tapað 1,87 millj­arði króna á fjár­fest­ing­unni þar sem fram­kvæmda­kostn­aður virð­ist langt umfram virði og leigu­samn­ingur stendur undir. Líf­eyr­is­sjóð­irnir voru fengnir til að setja 4 millj­arða í verk­efnið í formi skulda­bréfa­kaupa en sjóð­irnir hafa reyndar lýst því yfir að ekki verði settir meiri pen­ingar í verk­efnið,“ segir hann.

Jóhannes segir að hingað til hafi hann ekki séð til­efni til að svara mál­flutn­ingi Ragnars vegna þess hve fjar­stæðu­kenndur hann er, en eftir þessi ummæli hans geti hann ekki stillt sig um það.

„Ragnar Þór Ing­ólfs­son hefur und­an­farna mán­uði farið með him­in­skautum um verk­fram­kvæmdir á Lands­símareitnum. Hann heldur því fram að stjórn­endur Lind­ar­vatns, ráð­gjafar og starfs­menn hafi tekið sig saman um að blekkja fé út úr líf­eyr­is­sjóðum sem hafa lánað fé til verks­ins. Fyrir ekki svo löngu síðan hélt Ragnar því fram að allar fram­kvæmdir væru stopp og aldrei stæði til að byggja á reitnum,“ segir Jóhannes og bendir á að það sé hins vegar öllum ljóst sem hafi átt leið hjá reitnum und­an­farið að þar séu fram­kvæmdir langt komnar og reit­ur­inn allur að taka á sig mynd.

„Við þetta má bæta að fram­kvæmd­irnar eru að fullu fjár­magn­aðar, auk þess sem fram­kvæmda­kostn­aður stefnir á að verða innan áætl­ana. Það er vissu­lega rétt hjá Ragnari að verkið hefur dreg­ist tals­vert frá því sem von­ast var til í upp­hafi, en það á sér skýr­ingar sem allir þekkja nú þegar,“ segir Jóhannes.

Hann segir einnig mik­il­vægt í þessu sam­hengi að lán Lind­ar­vatns frá líf­eyr­is­sjóð­unum er og hafi alltaf verið í skilum. Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna hafi fengið yfir hund­rað millj­ónir í vexti og verð­bætur frá Lind­ar­vatni til þessa.

„Við þetta má bæta að fram­kvæmd­irnar eru að fullu fjár­magn­aðar, auk þess sem fram­kvæmda­kostn­aður stefnir á að verða innan áætl­ana.“

„Til allrar ham­ingju eru full­yrð­ingar Ragnars Þórs um blekk­ingar og vand­ræði á Lands­símareitnum úr lausu lofti gripnar. Hlut­hafar og stjórn­endur Lind­ar­vatns eru sann­færðir um að þegar fram­kvæmdum lýkur verði reit­ur­inn lyfti­stöng fyrir borg­ar­búa og gesti okkar, sem ekki er van­þörf á, á þessu mik­il­væga svæði í hjarta Reykja­víkur.

Sjón er sögu rík­ari,“ skrifar Jóhannes og birtir með færslu sinni fyrir og eftir mynd af Land­símareitnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina