Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Þetta er í rauninni bara mín leið til að takast á við sorgina“

„Þetta er í rauninni bara mín leið til að takast á við sorgina“

Jón Þór Helgason hefur sent frá sér nýtt lag, Stay, sem hann samdi til minn­ingar um ást­vin sem batt enda á líf sitt. Segist Jón Þór von­ast til að lagið muni hjálpa aðstand­endum þeirra sem falla fyrir eigin hendi og þeim sem eru á erf­iðum stað í líf­inu. Það sé orðið tíma­bært að auka enn frekar upp­lýsta umræðu um sjálfs­víg á Íslandi.

„Þetta er í raun­inni bara mín leið til að takast á við sorg­ina. Fyrir utan það finnst mér að það þurfi ræða þetta mál­efni miklu meira. Þetta á ekki að vera feimn­is­mál. Fjöl­skyldur eiga ekki að líta á þetta sem skömm og segja frá. Svona sögur gætu mögu­lega hjálpað öðrum,“ segir tón­list­ar­mað­ur­inn Jón Þór Helgason um lagið Stay, sem hann sendi nýverið frá sér en lagið samdi hann til minn­ingar um ást­vin sem svipti sig lífi.

Hann var bara barn

„Ég fékk þær skelfi­legu fréttir í apríl að ætt­ingi minn hefði bundið enda á líf sitt. Það eitt og sér að ein­hver nákom­inn manni skuli fara með þeim hætti er hræði­legt, en það sem gerði málið enn sorg­legra er hversu ungur við­kom­andi var. Hann var enn í grunn­skóla, bara barn,“ segir Jón Þór.

Kveðst Jón Þór hafa samið lagið sama dag og hann fékk frétt­irnar. „Lagið kom bara af sjálfu sér, ég ætl­aði mér ekk­ert að semja það. Það má segja að það hafi þvingað sér út hjá mér. Þetta var bara mín leið til að takast á við sorg­ina, eins og ég segi,“ segir hann en við gerð text­ans studd­ist Jón Þór meðal ann­ars við Facebook-færslu sem faðir drengs­ins birti nokkrum dögum síðar, þar sem hann ræddi það sem gerð­ist og tjáði sig meðal ann­ars um þung­lyndi sem sonur hans glímdi við. Jón Þór vildi þó ekk­ert gera við lagið fyrr en hann hefði leyft for­eldr­unum að heyra það og þess vegna tók hann ákvörðun um að senda þeim lagið.

„Fjöl­skyldur eiga ekki að líta á þetta sem ein­hverja skömm, heldur þora að segja frá. Svona sögur gætu mögu­lega hjálpað öðrum.“

„Ég spurði fyrst sam­eig­in­lega ætt­ingja hvað þeim fynd­ist og þeir hvöttu mig ein­dregið til þess að gera þetta. Ég við­ur­kenni að það tók virki­lega á. Ég þurfti alveg að mana mig upp í það en sem betur fer tóku þau þessu ótrú­lega vel. Þeim þótti vænt um þetta og þeim þykir vænt um lagið og ég fékk þeirra leyfi til að segja sögu drengs­ins. Faðir hans sagði við mig að það væri ástæða fyrir því að hann hefði haft pistill­inn sinn á Facebook opin­beran. Það væri nefni­lega allt of algengt að svona mál væru þöguð í hel af því að fólk skamm­að­ist sín fyrir þau.“ Jón Þór seg­ist vera for­eldr­unum þakk­látur fyrir að hafa brugð­ist svona vel við.

Bindur vonir við að lagið hjálpi öðrum

Hann segir að þótt Stay fjalli um ungan dreng í erf­iðum aðstæðum þá eigi allir sem hafa upp­lifað ást­vina­missi að geta tengt við lagið. „Ég reyndi að semja text­ann þannig að sem flestir gætu tengt við hann. Sjálfur hef ég upp­lifað það að missa of marga nákomna mér með þessum hætti, þótt þetta sé í fyrsta sinn sem svona ger­ist í fjöl­skyld­unni, og í flestum til­vikum var þetta fólk sem ég hélt að væri í góðum málum og myndi aldrei fara þessa leið. Þess vegna vona ég að lagið hjálpi ein­hverjum, hvort sem er aðstand­endum eða ein­hverjum sem er á brún­inni. Mín heitasta ósk er að þetta lag komi ein­hverjum að gagni.“

Tók sönginn upp á æskuheimili Rúnars Júlíussonar

Jón Þór hefur verið við­loð­andi tón­lista­brans­ann um langt skeið og mest­megnis spilað í ábreiðu­hljóm­sveitum, eins og hann orðar það. Samhliða því seg­ist hann hafa verið að semja eigin tón­list en það hafi þó ekki verið fyrr en á síð­asta ári, eftir að vin­kona hans fór að hvetja hann til þess að fara að gera eitt­hvað við lögin, sem hann ákvað að gefa út sína fyrstu plötu með frum­sömdu efni. Platan var að hluta til tekin upp heima hjá Jóni en svo skemmti­lega vill til að húsið er æsku­heim­ili Rúnars heit­ins Júl­í­us­sonar tón­list­ar­manns.

„Her­bergið hans var í kjall­ar­anum, þar sem Hljómar voru stofn­aðir og Gunnar Þórð­ar­son kenndi honum á bassa. Her­bergið ber þess meira að segja enn merki því hér eru slag­orð, setn­ingar og fleira sem þeir mál­uðu á vegg­ina og í loftið. Mér fannst því til­valið að koma mér upp litlu stúd­íói í her­berg­inu og taka upp söng­inn og gít­ar­inn fyrir plöt­una þar. Þar með lét ég verða af því að gera loks­ins þessa lang­þráðu plötu,“ segir Jón Þór og getur þess að nú sé meira að segja von á annarri plötu og sú verði á per­sónu­legri nótum.

Frábærar viðtökur

Spurður hvort tón­listin á plöt­unum sé eitt­hvað í lík­ingu við lagið Stay hristir Jón Þór höf­uðið. „Þetta lag er svo ólíkt allri minni tón­list að vinur minn, sem er tón­list­ar­maður, sagði að hann hefði aldrei geta giskað á að það væri eftir mig. Og ég hugsa að mér tak­ist aldrei aftur að semja svona lag, þótt maður eigi reyndar aldrei að segja aldrei því auð­vitað veit maður stundum ekk­ert hvert sköp­un­ar­gáfan leiðir mann. Hjá mér spretta lögin nefni­lega yfir­leitt fram af sjálfu sér þegar mér liggur eitt­hvað á hjarta og þá er best að leyfa lag­inu „að stjórna ferð­inni“.

Þegar ég samdi Stay vissi ég til dæmis und­ir­eins að þetta væri lag sem ég ætti ekki að flytja sjálfur, heldur væri Íris Eysteins­dóttir vin­kona mín full­komin í þetta. Íris er stór­kost­leg söng­kona og bara stór­kost­leg mann­eskja. Við höfum átt í mjög góðu og gef­andi sam­starfi í gegnum árin og ég er full­viss um að það er henni að miklu leyti að þakka hvað lagið hljómar vel.“

„Sjálfur hef ég upp­lifað það að missa of marga nákomna mér með þessum hætti … í flestum til­vikum var þetta fólk sem ég hélt að væri í góðum málum og myndi aldrei fara þessa leið.“

Talandi um það, nú kom lagið út í byrjun mán­að­ar­inns, hvernig hafa við­tök­urnar verið? „Þær hafa farið langt fram úr vænt­ingum. Það eru ótrú­lega margir búnir að deila lag­inu og mynd­band­inu á Facebook og ég hef fengið mörg fal­leg skila­boð. Ég átti engan veg­inn von á því og er mjög hrærður. Fyrir utan það er ég stoltur af því að hafa samið þetta lag. Ég vona bara að það eigi þátt í að auka upp­lýsta umræðu um sjálfs­víg á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti