Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Grein Sigmundar Davíðs vekur reiði: „Vá hvað þetta eru kengrugluð skrif“

Grein Sigmundar Davíðs vekur reiði: „Vá hvað þetta eru kengrugluð skrif“
Illugi Jök­uls­son og Björn Leví Gunn­ars­son eru á meðal þeirra sem hrista höf­uðið yfir skrifum Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.

Greina­skrif Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins í morg­un­blað­inu í dag, hafa vakið þónokkra reiði á sam­fé­lags­miðlum. Í grein sinni fjallar for­mað­ur­innn um skað­leg áhrif póli­tísks rétt­trún­aðar og segir meðal ann­ars hreyf­ing­una Black Lives Matter ala á kyn­þátta­hyggju.

„Sko. Sig­mundur Davíð telur bar­áttu Black Lives Matter EKKI end­ur­vekja kyn­þátta­for­dóma. Hann er þrátt fyrir allt ekki svo vit­laus og fáfróður að hann átti sig ekki á Black Lives Matter snýst um nauð­syn­lega og löngu tíma­bæra bar­áttu gegn alda­löngum og vand­legum inn­grónum kyn­þátta­for­dómum í banda­rísku sam­fé­lagi – og miklu víðar. Sig­mundur hefur hins vegar tekið ískalda og kalkúler­aða póli­tíska ákvörðun um að róa á ras­ista­miðin í næstu kosn­ingum, þau mið þar sem ótti við til­búna óvini á að skila honum fylgi. Hann um það – svo flýgur hver sem hann er fiðr­aður, eins og þar stendur. En látum hann ekki ná árangri í þess­ari lág­kúru sinni.“ Þetta skrifar Illugi Jök­uls­son í nýj­ustu færslu sinni á Facebook.

Tilefni skrifa Illuga er fyrr­nefndur pist­ill Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag undir yfir­skrift­inni Sumarið 2020 og nýja menn­ing­ar­bylt­ingin. Í pistl­inum segir Sig­mundur Davíð áhrif póli­tísks rétt­trún­aðar vera skað­leg sam­fé­lag­inu og nefnir í því sam­hengi end­ur­skoðun sög­unnar, fórn­ar­lambs­menn­ingu og sam­fé­lags­legar aftökur, með áherslu á hreyf­ing­una Black Lives Matter. Eins og kunn­ugt er berst sú hreyf­ing gegn ofbeldi stjórn­valda og lög­reglu á svörtu fólki í Banda­ríkj­unum, en Sig­mundur setur spurn­inga­merki við rétt­inda­bar­átt­una og telur hreyf­ing­una end­ur­vekja kyn­þátta­hyggju.

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, tekur í svip­aðan streng og Illugi. „Þetta er klass­ískur strá­maður,“ skrifar Björn á Facebook. „Það er rétt að að eru ákveðnar öfgar í póli­tískum rétt­trún­aði þar sem rétt­mæt gagn­rýni er kölluð for­dómar og öll rétt­inda­bar­átta kölluð rétt­trún­aður eða „góða fólkið“. Það á við um suma gagn­rýni og suma rétt­inda­bar­áttu og mögu­lega um suma ein­stak­linga í ákveð­inni gagn­rýni eða rétt­inda­bar­áttu. Í þessu til­felli byggir Sig­mundur nið­ur­stöðu sína hins vegar á því að segja ósatt, mark­miðið er _ekki_ að það eigi að gera grein­ar­mun á lit­ar­hætti húðar heldur er verið að vekja athygli á því að það er _enn_ verið að gera slíkan grein­ar­mun þrátt fyrir allt.“

Egill Helgason fjöl­miðla­maður furður sig á skrifum Sig­mundar Davíð og skilur ekki hvers vegna for­maður Mið­flokks­ins líkir Black Lives Matter hreyf­ing­unni við kín­versku menn­ing­ar­bylt­inng­una. „Þetta er skrít­inn sam­tín­ingur. Rétt­inda­bar­áttu svartra í Banda­ríkj­unum líkt við kín­versku menn­ing­ar­bylt­ing­una. Hafandi ferð­ast vítt og breitt um Banda­ríkin og fylgst með fréttum þaðan allt frá tíma MLK sýn­ist mér að þarna sé illa skotið fram hjá mark­inu – eða hvað er markið,“ spyr fjöl­miðla­mað­ur­inn á Facebook.

„Er hann ekki bara að þjappa dur­ga­fylg­inu um sig svo hann hafi sín 10-15% trygg og traust,“ spyr tón­list­ar­mað­ur­inn Svavar Knútur á móti.

„White man’s burden á heil­síðu í mbl í dag. Allir minni­hluta­hópar sem berj­ast skipu­lega fyrir bætti stöðu eru, sam­kvæmt grein­inni, sam­eig­in­legur óvinur vest­rænnar (og þar af leið­andi hvítrar) sið­menn­ingar. Menn­ing­ar­bylt­ing­arpóli­tík mætt af fullum krafti til Íslands,“ tístir Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans.

„Það má segja ýmis­legt um Sigmund og Mið­flokk­inn og það fátt gott, en það er dap­ur­legt að deila sam­fé­lagi með þessu fólki og þeim sem styðja skoð­anir hans, sem í þessu til­felli eru eig­endur og Morg­un­blaðs­ins,“ segir Þór Saari, fyrr­ver­andi þing­maður.

„Þessi grein er ekki bein­línis rasísk á hátt sem er hægt að benda á, en hún er aug­ljós­lega að grafa undan mark­miðum um jafn­rétti og efast um til­gang og trú­verð­ug­leika þeirra sem finnst enn margt vera að, og það talar til ras­ist­anna. En fyrst og fremst snýst þetta um að pirra okkur, og geta svo bent sínum aft­ur­halds­fylg­is­mönnum á að við séum á móti honum. Hann veit alveg hvað hann er að gera,“ segir Alex­andra Briem, borg­ar­full­trúi Pírata.

Svavar Gestson fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra segir að í raun sé um tíma­móta­grein að ræða. „Þetta er mik­il­væg grein. Formaður stjórn­mála­flokks notar sum­ar­dag­ana í að setja þetta saman. Hann ræðst í raun gegn BLM. Tímamót. Enginn annar stjórn­mála­leið­togi skrifar með þessum hætti. Hann vill kalla til þeirra 10 % þjóð­ar­innar sem gætu verið sam­mála þessu ákalli. Það er mik­il­vægt að hann sé einn úti í þessu horni. Aleinn. Hafa ein­hverjir stjórn­mála­leið­togar aðrir á Norð­ur­löndum þessa skoðun?“

„Vá hvað þetta eru kengrugluð skrif og laus við nokkurn ein­asta skiln­ing á banda­rískri sögu,“ skrifar Gauti B. Egg­erts­son, pró­fessor í hag­fræði við Brown háskóla í Banda­ríkj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi