Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Þreifingar“ fasteignafélagsins Reita á gráu svæði – Kauphöllin skoðar málið – Fjármálaeftirlitið neitar að tjá sig

„Þreifingar“ fasteignafélagsins Reita á gráu svæði – Kauphöllin skoðar málið – Fjármálaeftirlitið neitar að tjá sig
Guðjón Auð­uns­son, for­stjori Reita.

Kauphöll Íslands mun skoða hvort til­efni sé til rann­sóknar á með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga fast­eigna­fé­lags­ins Reita. Félagið til­kynnti í vik­unni um boðun hlut­hafa­fundar þann 22. sept­em­ber næst­kom­andi þar sem það hyggst auka hlutafé félags­ins um allt að 200.000.000 hluta eða um 9 millj­arða króna sé horft til núver­andi mark­aðsvirði Reita. Í gær sagði Guðjón Auð­uns­son, for­stjóri Reita, að stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins hafi þreifað fyrir áhuga hlut­hafa á mögu­legri þátt­töku í útboð­inu. Stjórn­end­urnir könn­uðu því hvort áhugi væri á þátt­töku í fyr­ir­hug­uðu hluta­fjár­út­boði í hlut­hafa­hópi félags­ins áður en til­kynnt var um það opin­ber­lega. 

Magnús Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, seg­ist eiga erfitt með að tjá sig um málið að svo stöddu því nægj­an­legar upp­lýs­ingar liggi ekki fyrir á hans borði. Aðspurður segir hann að málið verði skoðað. „Ég hef ekki for­sendur hjá mér núna til að meta hvort þarna hafi verið um inn­herj­a­upp­lýs­ingar að ræða. Það þarf að liggja betur fyrir hvað var þarna nákvæm­lega verið að segja við hlut­haf­ana. Ef það er eitt­hvað sem er ekki eins og það á að vera þá munum við skoða það,“ segir Magnús. 

Magnús Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands

Aðspurður sagði Guðjón að stjórn­endur Reita hafi þreifað fyrir áhuga hlut­hafa á mögu­legri þátt­töku í útboð­inu. „Menn renna kannski ekki alveg blint í sjó­inn með það hvort það sé áhugi fyrir þessu. Einhver sím­töl og ein­hver sam­töl hafa átt sér stað en þau voru með óform­legum hætti og án skuld­bind­inga,“ sagði Guðjón.

Reynist það rétt að hlut­höfum hafi verið gefnar upp­lýs­ingar áður en mark­aðnum var til­kynnt um fyr­ir­hug­aða hluta­fjár­aukn­ingu þá segir Magnús aðspurður það ekki vera sam­kvæmt bók­inni. Almennt segir hann það laga­skyldu félaga að birta allar inn­herj­a­upp­lýs­ingar opin­ber­lega áður en þeim er dreift eftir öðrum leiðum. „Ef upp­lýs­ingar eru nógu skil­greindar til að þær telj­ist inn­herj­a­upp­lýs­ingar þá á auð­vitað að til­kynna þær opin­ber­lega fyrst. Ég reikna með að eft­ir­litið hjá mér fylgist með upp­lýs­inga­gjöf­inni og mun taka þetta upp ef ástæða þykir til. Eftirlit okkar er örugg­lega með­vitað um þetta,“ segir Magnús.

Hlutabréf Reita hríðlækka í verði

Hluta­bréf Reita lækk­uðu um tæp­lega 6,5% á þriðju­dag eftir að til­kynnt var um fyr­ir­hugað hluta­fjár­út­boð. Sé horft til síð­astu 30 daga hafa bréf félags­ins lækkað um tæp 18% í verði. Stærstu hlut­hafar Reita eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir og má þar nefna Gildi, Líf­eyr­is­sjóð versl­un­ar­manna og Líf­eyr­is­sjóð starfs­manna rík­is­ins, sem sam­an­lagt eiga um 41% hlut í fast­eigna­fé­lag­inu.

Brutu Reitir lög um verðbréfaviðskipti?

Heim­ild­ar­menn Mannlífs telja að „þreif­ingar“ for­stjóra Reita kunni að vera brot á lögum um verð­bréfa­við­skipti og að fast­eigna­fé­lag­inu hafi borið að birta umræddar upp­lýs­ingar um hluta­fjár­aukn­ingu um leið og sú ákvörðun var tekin að bera til­lög­una undir hlut­hafa. „Þreif­ingar“ for­svars­manna Reita kunna að hafa valdið því að ójafn­ræði hafi verið meðal fjár­festa á þeim tíma sem við­ræður um mögu­lega þátt­töku í útboð­inu áttu sér stað.

„Við erum með eignir í sigt­inu og ef til­lagan verður sam­þykkt munum við fara í þetta ferli hratt og örugg­lega,“ sagði Guðjón í sam­tali við Mark­að­inn og bætti því við að ekki hafi verið rætt um hvort veita eigi tölu­verðan afslátt miðað við núver­andi mark­aðs­gengi í útboð­inu.

Arion banki nýlega sektaður vegna fréttar Mannlífs um uppsagnir

Fjár­mála­eft­ir­litið sektaði Arion banka nýlega um 87,7 millj­ónir króna á grund­velli þess að bank­inn hafi ekki birt inn­herj­a­upp­lýs­ingar nægj­an­lega tím­an­lega. Mannlíf hafði þá nokkrum dögum áður birt frétt um fyr­ir­hug­aðar upp­sagnir bank­ans og hafði fyrir því áreið­an­lega heim­ild­ar­menn. Arion banki taldi að sér væri heim­ilt að nýta heim­ild í lögum til að fresta birt­ingu umræddra upp­lýs­inga er varð­aði skipu­lags­breyt­ingar og hóp­upp­sagnir. FME féllst ekki á sjón­ar­mið bank­ans og bauð 87,7 millj­óna sekt sem sátt í mál­inu. Á það féllst Arion banki ekki og mun freista þess að áfrýja sekt­inni.

Heim­ild­ar­menn Mannlífs telja að for­svars­menn Reita kunni að hafa gerst brot­legir við lög um verð­bréfa­við­skipti þegar valdir hlut­hafar félags­ins hafi fengið upp­lýs­ingar um fyr­ir­hug­aða hluta­fjár­hækkun, sem eru líkt og í til­felli Arion banka, verð­mót­andi upp­lýs­ingar á hluta­fjár­mark­aði. Um birt­ingu slíkra upp­lýs­inga gilda strangar reglur til að tryggja jafn­ræði meðal fjár­festa.

Mannlíf leit­aði við­bragða hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu og spurði þar að því hvort það teldi ástæðu til að skoða málið, hvort lækkun hluta­bréfa félags­ins gæfi til­efni til athug­unar um mögu­leg inn­herj­a­við­skipti og hvort slíkar þreif­ingar meðal hlut­hafa áður en til­kynnt væri opin­ber­lega um hluta­fjár­aukn­ingu sam­ræm­ist lögum um verð­bréfa­við­skipti. „Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands tjáir sig almennt ekki um mál­efni ein­stakra eft­ir­lits­skyldra aðila eða sam­skipti við þá nema í sam­ræmi við gagn­sæ­is­stefnu sína. Við getum því ekki brugð­ist við spurn­ingum af þessu tagi,“ segir Sigurður Val­geirs­son, upp­lýs­inga­full­trúi Seðla­banka Íslands þar sem Fjár­mála­eft­ir­litið hefur verið starf­rækt frá síð­ustu ára­mótum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina