Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigurbjörg syrgir dóttur sína – Reynheiður lést 35 ára – Lætur eftir sig tvö lítil börn

Sigurbjörg syrgir dóttur sína – Reynheiður lést 35 ára – Lætur eftir sig tvö lítil börn
Reyn­heiður lést úr krabba­meini og lætur eftir sig eig­in­mann og tvö börn. Nú er safnað fyrir fjöl­skyld­unni. Mynd / aðsend

„Það er stórt skarð sem hefur verið höggvið í líf okkar fjöl­skyld­unnar,“ segir Sig­ur­björg Gunn­ars­dóttir sem síð­ast­lið­inn mánu­dag bar dóttur sína, Reyn­heiði, til grafar. Hún lést úr krabba­meini aðeins 15 mán­uðum eftir að faðir hennar, Guð­mundur Arn­ars­son, lést úr sama sjúk­dómi. Sig­ur­björg hefur því misst bæði eig­in­mann og dóttur á rúmu ári.

Sig­ur­björg segir Reyn­heiði dóttur sína hafa lýst upp umhverfið með fal­legu brosi sínu. Hún var ein­ungis 35 ára að aldri er hún lést. Mynd / Aðsend

„Bæði mað­ur­inn minn og dóttir hafa þurft að lúta í lægra haldi fyrir krabba­meini,“ segir Sig­ur­björg. Guð­mundur lést 16. maí 2019 þá rétt nýorð­inn sex­tugur að aldri. Aðeins rúmum tveimur mán­uðum síðar greind­ist Reyn­heiður Þóra með ólækn­andi leg­hálskrabba­mein. „Við tóku strangir og erf­iðir tímar í geisla- og lyfja­með­ferðum,“ segir Sig­ur­björg sem minn­ist þeirra beggja með miklum hlý­hug.

„Guð­mundur fór ungur til sjós og mót­aði þar hug­mynd karl­manns­ins. Hann til­eink­aði sér hrjúft yfir­bragð en undir skel­inni var hann skiln­ings­ríkur, ósér­hlíf­inn og trúr vinum sínum,“ segir Sig­ur­björg er hún minn­ist eig­in­manns­ins sál­uga.

Það var Sig­ur­björgu eðli­lega gíf­ur­legt áfall þegar Reyn­heiður greind­ist með krabba­mein svo skömmu eftir and­lát Guð­mundar. Hún lést 22. ágúst og lætur eftir sig eig­in­mann og tvö lítil börn, 4 og 7 ára gömul. „Reyn­heiður var ein­ungis 35 ára er hún lést. Það fór aldrei mikið fyrir Reyn­heiði, hún hafði hæverskt og ljúft yfir­bragð en undir því reynd­ist nagli sem stóð fast á sínu og vissi hvað hún vildi. Mikill er missir eig­in­manns og tveggja ungra barna. Minn­ingin um fal­lega brosið hennar sem lýsti upp umhverfið hvar sem hún var gleym­ist seint,“ segir Sig­ur­björg.

Reyn­heiður greind­ist með krabba­mein rúmum tveimur mán­uðum eftir að faðir hennar lést úr sjúk­dómnum. Hún var jarð­sungin á mánu­dag­inn. Mynd / Aðsend

Sig­ur­björg hefur stofnað styrkt­ar­reikn­ing til aðstoðar fjöl­skyldu Reyn­heiðar dóttur sinnar. Þar gildir að margt smátt gerir eitt stórt og hér getur þú hjálpað fjöl­skyld­unni:

Reikn­ingur: 0545-14-3644

Kennitala: 030963-4909

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi