Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Bjóst ekki við að móðureðlið væri svona sterkt“

„Bjóst ekki við að móðureðlið væri svona sterkt“
Annie Mist ásamt dóttur sinni.

CrossFit-stjarnan Annie Mist Þór­is­dóttir eign­að­ist dóttur á dög­unum og greindi frá gleði­fregn­unum á sam­fé­lags­miðlum. Fæðingin sjálf gekk þó ekki áfalla­laust fyrir sig. Hún var löng og erfið og Annie missti meira en tvo lítra af blóði. Sjálf segir Annie að fæð­ingin sé með því erf­ið­ara sem hún hafi upp­lifað á ævinni og fram undan sé löng end­ur­hæf­ing. For­eldra­hlut­verkið sé hins vegar ynd­is­legt. Hana hafi ekki órað fyrir að hún gæti elskað nokkra mann­eskju jafn­mikið og dóttur sína sem hún myndi gera allt fyrir.

Nýbökuð móðir og afreks­kona í CrossFit – Annie Mist hefur unnið crossfit-heims­leik­ana tvisvar sinnum og tvisvar lent í öðru sæti. Nýverið eign­að­ist hún sitt fyrsta barn og er nú byjuð að æfa fyrir heims­leik­ana 2021. Mynd / Aðsend

„Þetta var ekki beint fæð­ingin sem mig hafði dreymt,“ játar Annie fús­lega, þegar hún er spurð hvernig líðan hennar sé nú þegar meira en hálfur mán­uður er lið­inn síðan hún eign­að­ist dóttur sína. „Hún var mjög erfið, ég missti mikið blóð og það var ótrú­lega erfitt að geta ekki séð um dóttur okkar þarna fyrst á eftir. En núna líður mér bara vel og okkur fjöl­skyld­unni. Já, ég hef það bara ágætt,“ segir hún.

„Fólk segir að maður geri sér ekki grein fyrir því hvernig er að eign­ast barn fyrr en það kemur að því og veistu, það er alveg rétt!“

Dóttir Annie kom í heim­inn þann 10. ágúst. Þetta er fyrsta barn Annie og unnusta hennar, Frederiks Aeigi­dius. Frederik einn af fremstu íþrótta­mönnum í CrossFit í heim­inum og hefur fimm sinnum keppt á heims­leik­unum í CrossFit. Þau Annie hafa verið par í 10 ár og til­kynntu í febr­úar að þau ættu von á barni í ágúst. Þau hafa stutt dyggi­lega við bakið á hvort öðru og Frederik staðið fast við hlið konu sinnar. „Hann hefur verið með mér í þessu alla leið,“ lýsir Annie glað­lega, þegar unnust­inn berst í tal. „Við erum gott teymi.“

Sársaukafull fæðing

Fæðing Annie var sett 5. ágúst en dóttirin var hins vegar ekk­ert að flýta sér í heim­inn. Þremur dögum eftir settan dag, laug­ar­dag­inn 8. ágúst, seg­ist Annie hafa vaknað upp við mjög sárs­auka­fulla sam­rætti snemma um morg­un­inn og að kvöldi sama dags hafi hún ekki þorað annað en að fara á spít­al­ann. Þá var vatnið farið og fylgj­ast þurfti vel með heilsu barns og móður. Á spít­al­anum fékk Annie verkja­lyf til að geta sofið en vegna hertra reglna í tenglsum við kór­ónu­veiruna mátti Frederik ekki vera hjá henni á fæð­ing­ar­deild­inni til að byrja með. Næsta dag fékk hann leyfi til þess og þá kom í ljós að ekki var allt með felldu. Barnið snéri ekki rétt, þar að segja höf­uðið snéri út á hlið en slíkt getur gert það að verkum að leiðin niður fæð­ing­ar­veg­inn er ekki jafn­greið og börnin geta fests í grind­inni. Annie segir þau hafa vonað að barnið snéri sér. Starfs­fólkið hafi reynt að snúa því. Án árang­urs. Því var ekki annað í stöð­unni en að bruna á skurð­stof­una.

Hrædd um líf dóttur sinnar

Fjórir heil­brigð­is­starfs­menn héldu Annie á meðan hún rembd­ist og það tók hana hvorki meira né minna en fimm til­raunir með aðstoð sog­klukku til að koma barn­inu í heim­inn. Frederik greindi frá því á sam­fé­lags­miðlum að hann hefði ósjaldan séð Annie sýna styrk, eins og á CrossFit-heims­leik­unum þar sem hún hefur náð langt í gegnum tíð­ina, en hann ætti ekki orð yfir styrk­inn Annie sem sýndi þegar hún fæddi barn þeirra. Ekkert topp­aði það.

Sjálf segir Annie að fyrstu mín­út­urnar eftir að dóttirin fædd­ist hafi barnið ekki gefið frá sér eitt ein­asta hljóð. Það hafi verið erf­ið­ustu mín­útur sem hún hafi upp­lifað. Svo allt í einu hafi heyrst rosa­legur grátur og þá hafi hún varpað önd­inni léttar.

Dóttirin var 3.904 grömm þegar hún fædd­ist og 54 sentí­metrar og er alheil­brigð að sögn Annie. „Hún var stór og sterk þegar hún fædd­ist og komin yfir fæð­ing­ar­þynd á innan við viku. Þannig að hún dafnar mjög vel og er heil­brigð og full­komin og bara alveg ynd­is­leg í alla staði.“

Ekki lengur við stjórnvöllinn

Aðspurð við­ur­kennir Annie að það séu heil­mikil við­brigði að verða for­eldri. „Auðvitað breyt­ist allt þegar barn kemur í heim­inn. Fólk segir að maður geri sér ekki grein fyrir því hvernig er að eign­ast barn fyrr en það kemur að því og veistu, það er alveg rétt!

Ég er til dæmis atvinnu­mann­eskja í þróttum þar sem allt gengur út á að stýra sínum degi, sem má svo sem alveg segja að séu ákveðin for­rétt­indi, en nú er ég ekki lengur við stjórn­völl­inn því allt í einu er þessi nýja mann­eskja komin inn í mitt líf og hún stjórnar bara. Það er til dæmis hlutur sem ég sá ekki alveg fyrir þegar við fórum af stað í þessu ferli og ansi stór breyt­ing fyrir mann­eskju eins og mig sem er vön því að hafa frekar mikla stjórn á aðstæðum,“ segir hún og hlær.

Týndi sjálfri sér á tímabili

Annie segir að for­eldra­hlut­verk­inu fylgi líka ýmsar áskor­anir. „Í mínu til­felli er svefn­inn sú stærsta,“ segir hún og brosir. „Ég hef alltaf þurft átta tíma svefn að lág­marki og alveg getað stýrt honum sjálf. Ef ég missti til dæmis svefn eina nótt þá bætti ég mér það bara upp næstu nótt, það var ekki flókn­ara.

Það breytt­ist hins vegar snar­lega eftir að dóttir okkar kom í heim­inn og sér­stak­lega fyrst eftir þessa erf­iðu fæð­ingu. Þá var ég sífellt að athuga hvort það væri í lagi með barnið og var orðin algjör­lega svefn­laus á tíma­bili og týndi sjálfri mér svo­lítið.

Þetta er fyrsta barn Annie og unnusta hennar, Frederiks Aeigi­dius. Þau hafa stutt dyggi­lega við bakið á hvort öðru og Frederik staðið fast við hlið konu sinnar. „Hann hefur verið með mér í þessu alla leið,“ lýsir Annie glað­lega. „Við erum gott teymi.“

En nú er ég farin að ná því að sofa í fimm tíma á nótt­unni og er í fyrsta sinn farin að skilja fólk sem segir að maður geti kom­ist af með lít­inn svefn því ég er komin upp á lagið með að þurfa ekki mikið meira en fimm tíma svefn og þrátt fyrir það er ég bara alveg ágæt.“ Hún hlær.

Skilyrðislaus ást

Spurð hvort eitt­hvað hafi komið á óvart í þessu öllu er hún ekki lengi að hugsa sig um. „Það sem kemur mér svo­lítið á óvart er þessi svaka­lega vernd­ar­til­finn­ing sem maður finnur fyrir,“ segir hún. „Allt í einu ber maður ábyrgð á öðrum ein­stak­lingi, þessu ynd­is­lega litla barni og maður hrein­lega stekkur til ef maður heldur að því sé illt í mag­anum eða eitt­hvað annað ami að til að ganga úr skugga um að það sé í lagi með það.

„Það sem kemur svo­lítið á óvart er þessi svaka­lega vernd­ar­til­finn­ing sem maður finnur fyrir.“

Ég við­ur­kenni að ég bjóst ekki við að móð­ur­eðlið væri svona sterkt,“ segir hún hrein­skilin. „Að maður gæti elskað aðra mann­eskju svona ofboðs­lega mikið og svona skil­yrð­is­laust,“ heldur hún áfram og leggur áherslu á hvert orð. „Ég myndi gera allt fyrir þessa litlu mann­eskju, ég elska hana svo heitt.“

Ætlaði ekki að bæta á sig verkefnum

For­eldra­hlut­verkið er þó ekki eina hlut­verkið sem Annie er að fóta sig í um þessar mundir því á dög­unum var hún valin í fyrsta íþrótta­manna­ráð CrossFit-sam­tak­anna, Athlete Advisory Council. Spurð hvernig til­finn­ing sé að hafa verið boðið það starf, hvort það sé ekki viss heiður, svarar hún „já og nei“. „Auðvitað er gaman að þeir skyldu hafa sam­band, en ef ég á að vera hrein­skilin þá ætl­aði ég mér ekki að taka meira að mér í bili. Ég er nýbúin að eign­ast barn og það er mikið í gangi hjá mér í CrossiFit-heim­inum núna; ég rek mína eigin stöð, CrossFit Reykja­vík, er að koma mér aftur í keppn­is­form og hef staðið fyrir CrossFit-mótum þannig að ég er að sinna svo­lítið mörgum hlut­verkum,“ útskýrir hún.

„En það sem ég er hins vegar ánægð með og í raun ánægð­ust með er að þeir skuli hafa stofnað þetta ráð með það fyrir augum að bæta aðstæður okkar CrossFit-fólks. Mér finnst það sýna að þeir séu að hlusta á okkur,“ segir Annie, sem hefur einmitt verið óhrædd að gagn­rýna sam­tökin fyrir eitt og annað í gegnum tíð­ina og benda á hvað betur megi fara.

Tækifæri sem hún gat ekki hafnað

Annie segir að helst hefði hún viljað að í þessu nýja ráði sæti full­trúi úr sam­band­inu Pro­fessional Fitness Athlete Association, PFAA, sem hún og fleira afreks­fólk í CrossFit-heim­inum stofn­uðu, en mark­mið þess er að berj­ast fyrir rétt­indum CrossFit-fólks og bæta keppn­isum­hverfið og allt utan­um­hald, efla lyfja­próf­anir, tryggja öryggi kepp­enda og fleira.

Annie segir að for­eldra­hlut­verk­inu fylgi líka ýmsar áskor­anir. Hún sé heppin að eiga góða að. Mynd / Aðsend

„Ég geri mér hins vegar grein fyrir að auð­vitað er of stuttur tími til að taka öll þessi atriði til skoð­unar fyrir heims­leik­ana, þeir eru jú bara eftir þrjár vikur. En þetta er skref í átt­ina. Það finnst mér skipta máli. Og að sjálf­sögðu sagði ég já þegar þeir buðu mér sæti í ráð­inu því þetta sport hefur gríð­ar­lega mikla þýð­ingu fyrir mig og ég vil leggja mitt af mörkum svo að hlut­irnir haldi áfram að þró­ast í rétta átt. Fyrir utan að það hitt­ist þannig á að ég er ekki að fara að keppa, þar sem ég er nýbúin að eign­ast barn og get því tekið þetta hlut­verk að mér þótt það sé, eins og ég segi, búið að vera svo­lítið mikið að gera hjá mér að und­an­förnu.“

Spennt fyrir framhaldinu

En út á hvað gengur hlut­verkið nákvæm­lega? „Ráðið sam­anstendur af þremur reyndum íþrótta­mönnum fyrir utan mig og okkar hlut­verk verður að tala máli íþrótta­fólks­ins sjálfs og nýta sér okkar reynslu­banka. Til­gangur ráðs­ins er sem sagt að hjálpa til við ákvörð­un­ar­töku CrossFit-sam­tak­anna. Þannig að ég verð þarna í ráð­gjaf­ar­hlut­verki, en hef ekk­ert úrslita­vald. Vonandi bara taka þeir sem mest mark á okkur.

Við erum þegar búin að funda nokkrum sinnum þar sem við höfum farið yfir ákveðna hluti og hvort við séum sátt við þá. Þeir fundir hafa bara gengið nokkuð vel og útlit fyrir að þeir hjá sam­tök­unum ætli að hlusta á okkur. Ef það verður raunin og þetta er sú leið sem þeir ætla að fara þá er ég mjög spennt fyrir fram­hald­inu,“ segir Annie en tekur þó skýrt fram að þetta sé ekki hlut­verk sem hún ætli sér að gegna til lengri tíma.

„Nei, ég hugsa að ég verði ekki lengur en út des­em­ber. Það er ólík­legt að ég verði áfram eftir það því ég ætla mér að keppa aftur 2021 og má þá ekki sitja í ráð­inu það ár, en hver veit hvað ger­ist eftir það.“

Byrjuð að æfa

Annie æfði alla níu mán­uði með­göng­unnar. Aðlagaði æfing­arnar aðstæðum og tók sér svo hlé eftir fæð­ingu. Nú er hún byrjuð að „æfa“ á nýjan leik og seg­ist vera að vinna í því að koma sér aftur í form fyrir heims­meist­ara­keppn­ina árið 2021.

„Já, ég er farin að taka smá­æf­ingar til að koma lík­am­anum aftur í gang en það er mjög tak­markað sem ég get gert eins og er. Ég lít á þetta sem meiðsli og þarf að passa mig á því að jafna mig almenni­lega. Gefa mér tíma í það. Ég er nefni­lega ekki alveg búin að jafna mig eftir fæð­ing­una,“ við­ur­kennir hún, „og ég veit að hluti ástæð­unnar er blóð­miss­ir­inn og allt álagið á lík­amann.

„Ég er nefni­lega ekki alveg búin að jafna mig eftir fæð­ing­una og ég veit að hluti ástæð­unnar er blóð­miss­ir­inn og allt álagið á lík­amann.“

En, ég finn mun á hverjum degi,“ segir hún brött. „Þetta er allt að koma, smátt og smátt. Ég veit bara að tekur mig tíma að ná mér aftur á strik og geta lyft almenni­lega. Ég veit að ég verð aftur eins og ég á að mér að vera. Ég þarf bara að vera svo­lítið þol­in­móð, sem er ekki alveg mín sterka hlið.“ Hún hlær.

Óendanlega þakklát fyrir allt

En hvernig heldur hún að það gangi að sinna þessu öllu, stöð­inni, ferl­inum, nýja ráð­gjaf­ar­starf­inu og auð­vitað móð­ur­hlut­verk­inu – er hún ekk­ert hrædd um að fær­ast of mikið í fang?

„Nei, mér finnst gott að hafa mikið að gera, ég hef gaman af því. Ég hef alltaf verið mjög skipu­lögð. Skipu­legg dag­inn vel og hef góða rútínu. Nú snýst lífið um þá litlu, sem er stór­kost­legt. Maðurinn minn er með mér í þessu og við hjálp­umst að. Þannig að nei, ég hef ekki miklar áhyggjur af því að fær­ast of mikið í fang, alls ekki.

Fyrir utan það erum við svo lánsöm að vera með ofboðs­lega gott fólk í kringum okkur, fjöl­skyldu og vini sem hafa hjálpað til og létt undir með okkur. Sér­stak­lega fyrst eftir fæð­ing­una þegar ég hafði ekki fullan kraft til að sinna sjálfri mér og hugsa um dóttur okkar en þá kom mamma og aðstoð­aði mig and­lega og lík­am­lega á hverjum ein­asta degi.

Ég er því rosa­lega þakk­lát og bara þakk­lát fyrir allt saman. Þessa ynd­is­legu dóttur sem ég elska meira en allt og fólkið mitt. Það er ekki hægt að biðja um meira.“

„Ég við­ur­kenni að ég bjóst ekki við að móð­ur­eðlið væri svona sterkt,“ segir Annie hrein­skilin. Mynd / Aðsend
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu