Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Man lítið eftir slysinu og er fegin að vera á lífi

Man lítið eftir slysinu og er fegin að vera á lífi

Linda Guð­laugs­dóttir er þess full­viss að hjálmur hafi bjargað lífi hennar þegar hún lenti í hjól­reiða­slysi mið­viku­dag­inn 24. júní. Linda, sem er enn að jafna sig eftir slysið, vill varla hugsa þá hugsun til enda hvað hefði gerst hefði hún ekki verið með hjálm á höfð­inu og hvetur allt reið­hjóla­fólk til að huga vel að örygg­inu.

„Hjálm­ur­inn bjarg­aði lífi mínu, það er bara þannig. Hefði ég ekki verið með hann á höfð­inu, þá væri þetta eflaust líf í breyttri mynd, eða þaðan af verra,“ segir Linda Guð­laugs­dóttir, graf­ískur hönn­uður á Birtíngi, sem lenti í hjól­reiða­slysi mið­viku­dag­inn 24. júní og end­aði á spít­ala, en fjöl­miðlar greindu frá atvik­inu.

Linda var að hjóla ásamt félaga sínum í Skerja­firði síðla dags, þegar hurð á kyrr­stæðum bíl var opnuð fyrir akst­urs­stefnu hennar. „Ég er að hjóla eftir hjóla­braut­inni og skyndi­lega opn­ast bíls­hurð. Það voru engir bílar á ferð þarna í göt­unni þannig að ég átti ekki von á þessu. Er á ein­hverjum 20 kíló­metra hraða og svo nálægt bílnum að ég get ekki stoppað,“ lýsir hún.

„Ég man ekk­ert hvernig ég lenti en ég verð hins vegar vör við að það eru menn í kring að stumra yfir mér og mig minnir að ein­hver spyrji: Viltu sjúkra­bíl?“

Árekst­ur­inn var svo harka­legur að Linda missti með­vit­und. „Þegar ég ranka aftur við mér ligg ég á grúfu á jörð­inni og mér líður mér eins og ég sé með blý á höfð­inu, höggið var svo mikið. Ég man ekk­ert hvernig ég lenti en ég verð hins vegar vör við að það eru menn í kring að stumra yfir mér og mig minnir að ein­hver spyrji: „Viltu sjúkra­bíl?“ Og mér finnst ég þurfa að færa mig af göt­unni, en ég man ekk­ert hvort það tókst. Einhver býður mér vatn á ensku: „Clean water?“ Og ég man að ég þigg vatns­sopa. Svo næ ég að senda skila­boð í sím­anum á vin minn, sem var eitt­hvað á undan mér: „Datt.“ Þá er ég sest upp og áður en ég veit af er sjúkra­bíll kom­inn á vett­vang.“

Linda seg­ist hafa átt erfitt að ræða við sjúkra­flutn­inga­menn­inna sökum þess hversu illa áttuð hún var. Þar sem talið var að hún hefði fengið heila­hrist­ing var hún flutt með hraði á bráða­deild. „Þar var farið með mig inn í lítið her­bergi þar sem ég fékk meðal ann­ars æða­legg og blóð­þrýst­ing­ur­inn mældur og svo var ég send í heila­mynda­töku. Á meðan ég beið fékk ég nokkur slæm svima­köst og þurfti á aðstoð halda, því ég varð svo­lítið hrædd, og það var haldið ótrú­lega vel utan um mig.“ Hún segir mynd­irnar hafa sýnt smá mar á heila. „Út frá þeim dró lækn­ir­inn þá ályktun að ég væri með vægan heila­hrist­ing og taldi því óhætt að útskrifa mig. Þá var klukkan rúm­lega átta um kvöld. Mig svim­aði tölu­vert en komst heim með aðstoð og þegar þangað var komið ældi ég bara öllu.“

Er enn illa verkjuð

Spurð hvernig henni líði núna, rúmri viku eftir slysið, seg­ist Linda enn vera að jafna sig eftir. „Heilsan er svona upp og ofan,“ við­ur­kennir hún. „Ég finn miklu meira til núna en fyrst í stað eftir slysið. Er með haus­verk og verki í bak­inu og mér er illt í hnjánum. Verkirnir eru að koma meira fram nú þegar bólg­urnar eru að hjaðna og ég þarf að taka lyf til að halda þeim verstu niðri. Reyndar er ég betri suma daga en aðra. Einn dag­inn finnst mér ég vera skárri til heils­unnar, þann næsta kemur smá bakslag, svo líður mér aftur betur og þá verður annað bakslag. Þetta kemur í bylgjum. Svo þreyt­ist ég hratt fyrir framan tölvu­skjá sem setur svo­lítið strik í reikn­ing­inn þar sem ég starfa sem graf­ískur hönn­uður og vinn mikið í tölvu. Ég hef það samt þokka­legt og reyni bara að taka þetta í skrefum,“ segir hún hörð af sér.

Hvað er reiknað með að þú verðir lengi að ná aftur fullum bata? „Það er eig­in­lega erfitt að svara því,“ segir hún hreint út, „þetta er búið að vera svo óút­reikn­an­legt.“

Spurð hvort hún sé vön hjól­reiða­kona eða hvort eitt­hvað við­líka hafi hent hana áður hristir Linda höf­uðið og seg­ist aldrei hafa lent í öðru eins. Nei, ég hef aldrei lent í neinu af þessu tagi. Ég er bara frekar nýbyrjuð að hjóla eftir langt hlé og hef þess vegna verið að fara var­lega. Er á raf­magns­hjóli, en var reyndar ekki að nota raf­magnið þegar ég lenti í þessu. En svona eru slysin. Þau ger­ast sama hvað maður passar sig. Gera ekki boð á undan sér.“

Telur hjálminn hafa bjargað lífi sínu

Linda við­ur­kennir fús­lega að eftir slysið sé hún svo­lítið smeyk í umferð­inni. „Ég er pínu­lítið hrædd að labba í umferð­inni,“ segir hún hrein­skilin. „Ég er ekki byrjuð að hjóla og hef ekki einu sinni séð hjólið eftir slysið. Lög­reglan flutti það heim með vini mínum. Það er bara heima í geymslu.“

Hún seg­ist þess full­viss að hjálm­ur­inn, sem hún var með á höfð­inu þennan örlaga­ríka dag, hafi bjargað lífi hennar og það sé það sem mestu máli skiptir. „Þetta er svona hjálmur sem er búinn sér­stakri heila­hrist­ings­vörn. Hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnar hrósuðu mér fyrir að hafa vera með hann.

Í dag er ég mjög ánægð með að hafa keypt hann þótt hann hafi verið aðeins dýr­ari. Ég veit ekki hvar ég væri eig­in­lega í dag ef ég hefði ekki gert það og ég ætla að fá mér annan um leið og ég byrja að hjóla aftur,“ segir hún og hvetur allt hjól­reiða­fólk til að vera með hjálm á höfð­inu. Hjálm­ur­inn komi ekki í veg fyrir slys en hann geti varið fólk fyrir alvar­legum höf­uð­á­verkum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una