Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Auður lýsir hryllingnum á Litla-Hrauni í skugga COVID: „Langar bara að fá knús frá mömmu“

Auður lýsir hryllingnum á Litla-Hrauni í skugga COVID: „Langar bara að fá knús frá mömmu“

„Maður nátt­úru­lega bara þráir að fá að gefa mann­inum sínum eitt knús. Þetta eru komin sjö vikur og engin snert­ing,“ segir Auður Har­alds­dóttir, eig­in­kona fanga á Litla Hrauni. Þegar seinni bylgja kór­óna­veirunnar fór af stað í júlí voru sótt­varn­ar­að­gerðir hertar í fang­elsum eins og ann­ars staðar en skortur á sam­neyti við ást­vini kemur þungt niður á föngum.

„Þetta er farið að hafa svo slæm áhrif á fang­ana og ekki bara þá sem eiga eig­in­konur. Ég veit um einn ungan strák þarna inni sem er alveg brot­inn og langar bara að fá knús frá mömmu sinni. Auðvitað eru þeir að taka út sína refs­ingu, en það er nógu erfitt til að byrja með að vera þarna inni. Þeir verða að hafa eitt­hvað að hlakka til og eitt­hvað stuðn­ings­net, ann­ars leggj­ast þeir bara í þung­lyndi,“ segir Auður í sam­tali við Mannlíf. DV ræddi einnig við Auði fyrr í dag.

Eftir fjög­urra vikna algjört heim­sókn­ar­bann síð­sum­ars er henni nú heim­ilt að heim­sækja mann­inn sinn einu sinni í viku, í klukku­stund í senn, en þeim sé meinað að snert­ast og verði að halda tveggja metra fjar­lægð. Brjóti hjónin þá reglu geti hörð refs­ing legið við. „Þetta er þá bara ein­angrun í tvær vikur og svo skráð sem aga­brot, sem er það versta því það gæti þýtt að hann megi ekki fá neina heim­sókn í kjöl­farið. En að það telj­ist aga­brot að knúsa sinn nán­asta er nátt­úru­lega út í hött,“ segir Auður.

Á sama tíma hafi verið gefnar til­slak­anir í sam­fé­lag­inu, en þær hafi ekki skilað sér innan fang­els­is­múr­anna. Þá sé hróp­andi ósam­ræmi í því að fanga­verðir sem stundi dag­legt líf utan vinnu umgang­ist síðan fanga án tveggja metra regl­unnar, en um leið megi ást­vinir ekki koma nálægt þeim. Tímabært sé að rýmka regl­urnar að nýju innan múr­anna, til dæmis með því að heim­ila einum nánum ætt­ingja að koma, líkt og verið hefur á hjúkr­un­ar­heim­ilum.

„Ég finn sér­stak­lega til með þeim sem fóru í gegnum fyrri bylgj­una líka,“ segir Auður, því í vor var algjört heim­sókn­ar­bann í þrjá mán­uði á Litla Hrauni, en mað­ur­inn hennar sat ekki inni á þeim tíma. „Þetta er búið að vera ömur­lega ástand fyrir þá fanga og hlýtur að vera erfitt fyrir kon­urnar þeirra.“ Sömu­leiðis reyn­ist henni æ erf­ið­ara að hug­hreysta mann­inn sinn.

„Skapið fer út hlátri í grátur mörgum sinnum á dag og það verður erf­ið­ara með hverjum deg­inum fyrir hann að halda sér frá öllu rugl­inu þarna inni, orð­inn þung­lyndur og reiður út í heim­inn eins og ég hugsa að flestir séu þarna inni,“ skrifar hún á Facebook síðu sína í dag.

Hún bendir á að opin­bera stefnan sé sú að þetta eigi að vera betr­un­ar­vist, auk refsi­vistar og því megi ekki fara svo að menn komi út úr fang­elsum með enn minni trú en áður á stofn­unum, kerf­inu og fólki. Rann­sóknir sýni að stór hluti þeirra sem leið­ist út í neyslu og afbrot sé fólk sem skorti tengsl og upp­lifi sig afskipt. „Það er nákvæm­lega þannig sem þessum föngum líður akkúrat núna“ segir Auður. „Mitt mottó er að þú átt að koma fram við aðra eins og þú vilt láta koma fram við þig, en það er ekki verið að sýna föngum neina virð­ingu í þess­ari stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina