Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bróðir Egils Helga er ríkasti Íslendingurinn sem þú hefur aldrei heyrt um – Ríkari en Arion banki

Bróðir Egils Helga er ríkasti Íslendingurinn sem þú hefur aldrei heyrt um – Ríkari en Arion banki

Davíð Helgason er ríki Íslend­ing­ur­inn sem fæstir hafa heyrt um áður. Hann hefur ekki verið sér­stak­lega áber­andi á Íslandi þrátt fyrir að hann sé lík­lega næst­rík­astur allra núlif­andi Íslend­inga eins og sjá má af því að hann er kom­inn inn á lista Forbes um rík­asta fólk heims. Davíð er einn stofn­enda fyr­ir­tæk­is­ins Unity sem fram­leiðir hug­búnað fyrir tölvu­leiki en hluta­bréf í því félagi hafa hækkað gíf­ur­lega eftir að það var skráð í Kauphöll New York.

Við­skipta­blaðið greindi frá því í gær að hvert bréf í félag­inu væri nú virði 99 Banda­ríkja­dala. Davíð á um fjög­urra pró­senta hlut í félag­inu. Miðað við núver­andi gengi bréfa er hlutur hans virði um 144 millj­arða króna. Við­skipta­blaðið setur það í sam­hengi við virði félaga sem eru skráð í kaup­höll Íslands og sam­kvæmt því er hlutur Davíðs verð­mæt­ari en öll félög nema Marel. Þannig er mark­aðsvirði Arion banka virði 128 millj­arða miðað við 144 millj­arða Davíðs. Líklega er Björgólfur Thor Björg­ólfs­son fjár­festir sá eini sem er rík­ari en Davíð en í fyrra var auður hans met­inn á 254 millj­arða íslenskra króna

Þrátt fyrir að Davíð sé lítt þekktur á Íslandi þá þekkja flestir nán­ustu fjöl­skyldu hans. Samkvæmt nær­mynd af honum í Frétta­tím­anum þá er hann sonur Sigrúnar Dav­íðs­dóttur, frétta­manns RÚV í London, og Helga Guð­munds­sonar, pró­fess­ors í íslenskum fræðum, sem er jafn­framt faðir Egils Helga­sonar fjöl­miðla­manns og Höllu Helga­dóttir. Annar Bróðir Davíðs er svo Ingvar Helgason fata­hönn­uður.

Félag Davíðs, Unity, var stofnað í Kaup­manna­höfn en þangað flutti hann með móður sinni þegar hann var 10 ára. Í við­tal­inu við Frétta­tím­ann lýsti Davíð aðdrag­anda þess svo: „Ég var flinkur for­rit­ari þegar ég var lít­ill, var far­inn að for­rita tíu ára gam­all. Ég var ekki einn af þessum alldra bestu snill­ingum verð ég að við­ur­kenna, en ég var samt frekar klár enda var þetta mitt stærsta áhuga­mál. Planið mitt var alltaf að verða vís­inda­maður, eðl­is­fræð­ingur, og ég fór í eðl­is­fræði í háskóla en lauk henni ekki og flakk­aði á milli greina, fór líka í sál­fræði og lærði arab­ísku því ég hafði mik­inn áhuga á Mið-Aust­ur­löndum og fiktaði í tölv­un­ar­fræði í stuttan tíma. Ég dróst hins vegar alltaf inn í tölvu­heim­inn aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina