Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tinna lætur ekkert stöðva sig: „Allar áskoranir kenna manni eitthvað nýtt“

Tinna lætur ekkert stöðva sig: „Allar áskoranir kenna manni eitthvað nýtt“
Tinna Hrafns­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson

Tinna Hrafns­dóttir, leik­kona og leik­stjóri, er með mörg járn í eld­inum um þessar mundir. Hún birt­ist á skjám lands­manna í þátta­röð­inni Ráð­herr­anum þar sem hún fer með hlut­verk Svan­hvítar, dyggrar sjálf­stæð­is­konu, og svo leikur hún líka á móti nokkrum af helstu stór­stjörnum Norð­ur­land­anna í danskri sögu­legri kvik­mynd um Margréti fyrstu Dana­drott­ingu sem verður frum­sýnd á næsta ári. Tinna lætur sér þó ekki nægja að leika, Skjálfti, fyrsta kvik­mynd hennar í fullri lengd, er nú í eft­ir­vinnslu og nýverið hlaut Tinna þró­un­ar­styrk fyrir sex þátta sjón­varps­s­eríu.

„Þetta er per­sónu­drifið fjöl­skyldu­drama sem segir sögu þriggja kyn­slóða. Okkur lang­aði að leggja áherslu á sterka per­sónu­sköpun, flókin fjöl­skyldu­tengsl og átök sem um leið end­ur­spegla á ákveð­inn hátt þjóð­ar­sál okkar Íslend­inga,“ segir Tinna um sjón­varps­s­er­í­una Heima er best sem hún er með í þróun. Um er að ræða sex þátta seríu sem Tinna og Ottó Geir Borg hand­rits­höf­undur hafa verið að skrifa og vinna að í nokkur ár.

Tinna segir hug­mynd­ina að ser­í­unni hafa kviknað út frá öllum frá­sögn­unum sem hún hefur heyrt í gegnum tíð­ina af fjöl­skyldum sem standa í stríði eða tal­ast jafn­vel ekki lengur við vegna ósættis út af erfða­málum, fjöl­skyldu­fyr­ir­tækjum, hús­eignum eða öðrum ver­ald­legum hlutum.

„Þannig átök geta oft verið bæði grimm og afhjúp­andi,“ segir hún, „því til­finn­inga­tengsl sem fólk myndar við hluti sem því er gert að eiga saman eða deila sín á milli geta end­ur­speglað flókna þætti í sál­ar­lífi þess, vonir og von­brigði, og þá sér­stak­lega hjá fólki sem teng­ist blóð­böndum og ætti frekar að standa saman en að vera í átökum hvert við annað. Okkur lang­aði að segja sögu af þannig fólki, án þess þó að dæma nokkurn,“ segir hún með áherslu, „heldur miklu frekar sýna mennsk­una og grát­bros­legu hlið­ina á því.“

„Til­finn­inga­tengsl sem fólk myndar við hluti sem því er gert að eiga saman eða deila sín á milli geta end­ur­speglað flókna þætti í sál­ar­lífi þess.“

Tinna og Ottó hafa unnið að ser­í­unni í nokkur ár, eins og áður sagði. „Við Ottó erum bæði á kafi í öðrum verk­efnum þannig að þetta verk­efni hefur fengið að malla svo­lítið og þroskast með okkur sam­hliða því,“ útskýrir hún. „Núna er ég hins vegar komin með tvo reynslu­mikla fram­leið­endur sem stukku strax um borð og munu stíga með okkur næstu skref,“ segir hún og eft­ir­vænt­ingin leynir sér ekki.

Skjálfti í eftirvinnslu

Heima er best er ekki eina verk­efnið þar sem Tinna spreytir sig á í hand­rita­skrifum og leik­stjórn um þessar mundir því fyrsta kvik­mynd hennar í fullri lengd, Skjálfti, er komin í eft­ir­vinnslu. „Við erum að nálg­ast læst klipp,“ upp­lýsir hún. „Eftir það tekur við hljóð­vinnsla, tón­list og lit­grein­ing.“

Kvik­myndin byggir á bók­inni Stóra skjálfta eftir Auði Jóns­dóttur rit­höf­und og segir af ungri konu, Sögu, sem vaknar upp minn­is­laus á spít­ala eftir slæmt floga­kast. Þar sem hún vinnur í að ná áttum og tökum á lífi sínu fara gamlar minn­ingar sem hún bældi niður sem barn að gera vart við sig og afhjúpa sárs­auka­fullar stað­reyndir um for­tíð hennar og hana sjálfa. Bókinni var vel tekið af gagn­rýnendum og almenn­ingi á sínum tíma, hlaut Íslensku bók­sala­verð­launin og var til­nefnd til Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna og Menn­ing­ar­verð­launa DV. Því er óhætt að segja að mynd­ar­innar sé beðið með eft­ir­vænt­ingu.

Aðspurð segir Tinna að í ljósi aðstæðna hafi gengið vonum framar að koma sög­unni á hvíta tjaldið. „Þetta hefur gengið alveg ótrú­lega vel, enda er ég umvafin reynslu­miklu og góðu fólki, sem er algjört lyk­il­at­riði. Tökurnar á mynd­inni stóðu yfir í febr­úar og mars á þessu ári þannig að undir það síð­asta var ég reyndar orðin ansi kvíðin um að ná ekki að klára tökur út af COVID-19 far­aldr­inum sem brast þarna á,“ játar hún, „en við vorum svo ljón­heppin að ná að klára rétt áður en allt skall í lás.“

Stefnan er að frum­sýna Skjálfta í byrjun næsta árs. „Eins og staðan er í dag fer það þó eftir ansi mörgu hvenær nákvæm­lega,“ segir hún, „líka hvaða við­tökur hún kemur til með að fá á erlendum kvik­mynda­há­tíðum.“

Öðruvísi áskorun

Talandi um það, er ekki búið að vera svo­lítið krefj­andi að laga sig að þeim breyttu aðstæðum sem hafa skap­ast vegna COVID-19?

Þótt Tinna hafi verið önnum kafin við hand­rita­skrif og leik­stjórn er langt í frá að hún hafi sagt skilið við leik­fer­il­inn. Mynd / Hallur Karlsson

„Jú, þetta ástand er auð­vitað mikil áskorun,“ svarar Tinna. „Kvik­mynda­gerð fylgja vissu­lega alltaf áskor­anir, en þetta ástand er öðru­vísi áskorun þar sem það þarf ekki mikið til að öllu verði skellt í lás aftur. En á meðan vél­arnar halda áfram að rúlla og fólk hefur vinnu gerir maður það sem þarf til að aðlag­ast breyttum aðstæðum og reynir að hugsa í lausnum. Og það er mik­ill sam­hugur í fólki. Við viljum geta haldið áfram og vitum hvað þarf til þess og höfum staðið okkur rosa­lega vel hér á landi, til dæmis í að fylgja til­mælum yfir­valda. Bransinn er líka upp­skera eftir því sem betur fer enda er nóg að gera í inn­lendum og erlendum verk­efnum.“

Í því sam­hengi nefnir Tinna hversu mik­il­vægt sé að halda í bjart­sýn­ina. „Auðvitað, maður á alltaf að vera bjart­sýnn. Allar áskor­anir kenna manni eitt­hvað nýtt og það er margt sem við getum lært af þessu öllu saman. Því ef haldið er rétt á spöð­unum, líka af hálfu stjórn­valda, hefur brans­inn tæki­færi til að styrkja stoðir sínar enn frekar og blómstra sem aldrei fyrr.“

Hún seg­ist vera sam­mála þeirri skoðun sem sumir halda á lofti að kvik­mynda­gerð geti leikið stórt hlut­verk í efna­hags­legri upp­risu Íslands eftir að við náum tökum á COVID-19. „Já, ég er það, enda hefur margoft verið bent á að ef stjórn­völd hækka end­ur­greiðslu­hlut­fall fram­leiðslu­kostn­aðar upp í 35 pró­sent þá muni það auka enn frekar fjár­fest­ingu erlendra aðila,“ bendir hún á. „Fleiri verk­efni yrðu tekin upp hér á landi sem væri mik­il­væg búbót fyrir íslenskt efna­hags­líf.“

Leikur á móti helstu stjörnum Norðurlanda

Þótt Tinna hafi verið önnum kafin við hand­rita­skrif og leik­stjórn er langt í frá að hún hafi sagt skilið við leik­fer­il­inn. Nýlega var tekin til sýn­inga á RÚV sjón­varps­þátta­ser­ían Ráð­herr­ann, sem fjallar um for­sæt­is­ráð­herra Íslands sem tekst á við and­leg veik­indi, og þar fer Tinna með hlut­verk hinnar dyggu sjálf­stæð­is­konu Svan­hvítar. Í sumar lék hún síðan í stór­mynd­inni Margrete den forste sem verður einnig gerð að sjón­varps­s­eríu, en þar er rakin saga Mar­grétar fyrstu Dana­drott­ingar.

„Það var gef­andi reynsla og virki­lega gaman, enda fékk ég tæki­færi til að leika á móti nokkrum af mínum upp­á­halds­leik­urum,“ segir hún og brosir, en með önnur hlut­verk fara danski leik­ar­inn Søren Malling úr sjón­varps­þátt­unum vin­sælu Borgen og For­brydel­sen og danska leik­konan Trine Dyrholm sem leikur aðal­hlut­verkið, sjálfa Margréti drottn­ingu, en hún er mörgum Íslend­ingum að góðu kunn úr kvik­mynd­inni The Royal Affair.

„Lífið er núna svo það er engin ástæða til að bíða með neitt.“

„Það er því margt spenn­andi búið að vera í gangi og enn fleira á döf­inni,“ segir Tinna glað­lega. „Annars á eft­ir­vinnslan á Skjálfta hug minn allan um þessar mundir, þótt ég sé sam­hliða því að þróa og leggja grunn að fleiri verk­efnum. Lífið er núna svo það er engin ástæða til að bíða með neitt.“

Mynd / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu