Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fáðu þér rafmagnshjól og sparaðu stórfé

Fáðu þér rafmagnshjól og sparaðu stórfé

„Þetta er frá­bær sam­göngu­máti og það eru fjöl­margir sem hafa losað sig við annan bíl­inn og í ein­hverjum til­fellum hefur fólk lagt bílnum alveg og fær þá bara lán­aðan bíl, til dæmis í gegnum deili­hag­kerfi,“ segir Ragnar Kristinn, eig­andi versl­un­ar­innar Raf­magns­hjóla úti á Granda. Hann finnur fyrir auknum áhuga fólks á raf­magns­hjólum. „Stað­reyndin er sú að á raf­magns­hjólum þá hjólar maður oftar og lengra. Það er ekk­ert sem stoppar mann, það er t.d. ekki hægt að afsaka sig og segja að brekk­urnar séu of erf­iðar.“

Neyt­enda­síðan hafði sam­band við þrjár reið­hjóla­versl­anir og fékk góð ráð varð­andi fyrstu kaup á raf­magns­hjóli hugsuð sem götu­hjól.

Ragnar í Raf­magns­hjólum segir æ fleira nýta sér reið­hjól sem sam­göngu­máta yfir vetr­ar­mán­uð­ina og þá sé gott að nota nagla­dekk. „Það er nán­ast hægt að nota hjól í öllum veðrum. Það eru að minnskta kosti fáir dagar hér á suð­vest­ur­horn­inu sem það er alveg ómögu­legt.“

En hvað er ódýrasta og besta merkið?

„Ódýrt og gott merki? – það fer hrein­lega ekki saman!“ segir Ragnar kím­inn.

Premium MN7 er hjólið sem Ragnar seg­ist mæla með fyrir fólk sem er að kaupa sitt fyrsta raf­magns­hjól og ætlar sér að nota það sem sam­göngu­máta. Þessi týpa er jafn­framt sú sölu­hæsta hjá þeim. Þetta er hol­lenskt verð­launa­hjól sem Ragnar segir að hafi reynst frá­bær­lega við íslenskar aðstæður. Hjólið kostar 379 þús­und. Aðspurður segir hann eitt af því sem mik­il­vægt er að hafa í huga þegar kaupa á hjól er hvernig þjón­ustan er.

„Flestir sem kaupa raf­magns­hjól eiga ekki hjól fyrir, þetta er nýr kúnna­hópur,“ segir Jón Óli Ólafsson, eig­andi versl­un­ar­innar Berlín í Ármúla. Hann segir sölu á raf­magns­hjólum hafa auk­ist og fljót­lega eftir páska hafi allt orðið vit­laust enda vor í lofti og lík­ams­rækt­ar­stöðvar lok­aðar vegna sam­komu­banns. Hann segir söl­una í sept­em­ber hafa verið yfir með­al­lagi og að októ­ber fari vel af stað.

Blacktop 1.0 frá Reid er raf­magns­hjólið sem Jón Óli mælir með sem fyrstu kaup þessa dag­ana. Hjólin koma frá Ástralíu. „Hjólið hentar vel sem sam­göngu­máti við íslenskar aðstæður, hvers­dags­legt hjól sem kemur þér langt.” Blacktop 1.0 frá Reid kostar 269.900 krónur í Berlín í Ármúla. Von er spenn­andi send­ingu í vor hjá Berlín.

Jón Óli segir mik­il­vægt að hafa þetta í huga þegar velja á hjól:

  1. Mik­il­vægt að velta því fyrir sér hvernig á að sitja.
  2. Stærð á stelli skiptir miklu máli,
  3. Skoða þarf gírana, ljósið og lás­inn og ef nota á hjólið sem sam­göngu­tæki þá þarf að hafa í huga hvort stellið geri ráð fyrir bretti og bögla­bera
  4. Brems­urnar
  5. Þjón­ustan
  6. Hjálmar og töskur
  7. Það skiptir máli að velja fatnað eftir veðri svo að ferðin verði ánægju­leg. Jón Óli segir enga þörf á spand­exi, bara klæða sig eftir veðri.
  8. Margir vinnu­staðir sem og stétt­ar­fé­lög bjóða upp á sam­göngu­styrki.

Báðir nefna þeir að mik­il­vægt sé að athuga hvort hægt sé að setja nagla­dekk á hjólin. Jón Óli segir fólk verði svo­lítið að meta hvort þörf sé á því. Sumir noti hjólið bara til og frá vinnu og það sé kannski mik­il­væg­ara fyrir þá sem búa í efri byggðum en fyrir þá sem búa og vinna í mið­bænum. Stígar séu oft­ast mjög vel ruddir og þá er kannski ekki þörf á nöglum. En fyrir marga er þetta mik­il­vægt örygg­is­at­riði.

Stefán Haukur Ein­ars­son, versl­un­ar­stjóri í Erninum, segir algjöra sprengju hafa verið í sölu á raf­hjólum í ár. ,,Það spilar ýmis­legt inn í. Breytt hug­ar­far, Covid-19, og raf­hjólat­íska í Evrópu sem byrj­aði fyrir 2-3 árum og skil­aði sé fyrst hingað í ár að ein­hverju ráði. Þá spilar líka inn í að stjórn­völd felldu niður virð­is­auka­skatt­inn um ára­mótin.“

Stefán Haukur segir að götu­hjólin sem þeir mæla með séu frá 300.000.- kr. Trek og Alliant, bæði með brettum og böggla­bera.

„Við gerðum alveg ráð fyrir að það yrði mikið að gera í ár en gerðum alls ekki ráð fyrir svona sprengju. Það eina sem okkur vantar eru fleiri hjól til að selja,” segir Stefán Haukur brattur.

Margir bíða spenntir eftir send­ingum hjá Erninum sem koma í lok des­em­ber og svo í vor og óvenju­mikið er um forp­ant­anir. Eitt hjól lofar góðu, það er hjól sem bæði hægt er að leika sér á og nota sem götu­hjól; Trek / Powerfly 4 eða Allant+8 – verð frá 405.000.-

Vafa­lítið mikla margir fyrir sér verð­mið­anum á hjól­unum. En setjum þetta í sam­hengi.

Rekstr­ar­kostn­aður á nýju raf­magn­hjóli er, ef allt er eðli­legt, 25.000.- til 40.000.- kr. á ári.

Samkvæmt tölum frá Félagi íslenskra bif­reiða­eig­enda frá jan­úar 2020 þá kostar 1.176.500 að reka ódýrasta bíl­inn á ári. Rekstur dýrasta bíls­ins kostar 2.352.299.- á ári.

En hvað með þá sem eiga ekki þessar upp­hæðir í budd­unni sinni fyrir nýju hjóli?

Ragnar bendir á að hægt sé að taka hjóla­lán, bæði með greiðslu­dreif­ingu og svo er víða  boðið upp á græna fjár­mögnun.

Nú þegar lík­ams­rækt­ar­stöðvar og sund­laugar eru lok­aðar er til­valið að næla sér í hjól og nýta þessi róleg­heit í sam­fé­lag­inu til að til­einka sér nýjan sam­göngu­máta.

Þú sparar, kemst í betra form og síð­ast en ekki síst leggur þitt á voga­skál­arnar á tímum ham­fara­hlýn­unar.

Alveg rakið!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi