Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ekkert hættulegt að segja börnum að elska þann sem þau elska“

„Ekkert hættulegt að segja börnum að elska þann sem þau elska“

Ingileif Frið­riks­dóttir og María Rut Krist­ins­dóttir segja að það sé ekk­ert hættu­legt að segja börnum að þau megi vera eins og þau eru, hafa áhuga á því sem þau hafa áhuga á, elska þann sem þau elska og klæða sig eins og þau vilja klæða sig.

Ingileif og María Rut sem hafa meðal ann­ars vakið athygli fyrir fræðslu­vett­vang­inn Hinseg­in­leik­ann og hlað­varps­þátt­inn Raun­veru­leik­ann, gefa í næstu viku út barna­bók­ina Vertu þú sem beinir sjónum að fjöl­breyti­leik­anum. Þær segja ætl­un­ina ekki vera að inn­ræta börnum eitt eða neitt, heldur að skapa sam­ræðu­grund­völl enda sé það ekki smit­andi að vera svona eða hinsegin.

„Það er oft mik­ill ótti við það hjá sumu fólki að börn fái fræðslu um fjöl­breyti­leik­ann, en það er svo ótrú­lega til­hæfu­laus ótti. Það er ekki smit­andi að vera svona eða hinsegin og ætl­unin er ekki að inn­ræta börnum eitt eða neitt,“ segir Ingileif.

„Við erum bara að segja þeim að það er allt í lagi að vera alls konar,“ bætir María Rut við og brosir.

Í næstu viku kemur út bók þeirra Vertu þú. Und­ir­tit­ill­inn Litríkar sögur af fjöl­breyti­leik­anum lýsir vel við­fangs­efn­inu. „Þetta er bók til­einkuð fjöl­breyti­leik­anum,“ útskýrir María Rut. „Hún fjallar ekki bara um fjöl­skyldur eða hinsegin veru­leika. Hún fjallar um það að við eigum að vera eins og við viljum vera. Við erum öll ólík og það er gott. Í bók­inni spyrjum við les­and­ann hver hann er, hver áhuga­málin hans eru og fáum hann til að pæla í fjöl­breyti­leik­anum.“

„En bókin er samt sem áður líka óður til Hinseg­in­leik­ans,“ skýtur Ingileif inn, „þar sem við byggjum líka á raun­veru­legum sögum af góð­kunn­ingum Hinseg­in­leik­ans meðal ann­ars í bland við skáld­aðar.“

„Það er ekki smit­andi að vera svona eða hinsegin og ætl­unin er ekki að inn­ræta börnum eitt eða neitt.“

Hvernig gekk eig­in­lega að viða að sér reynslu­sögum í bók­ina, var ekk­ert mál að fá fólk til að taka þátt?
„Nei, það var ekk­ert mál,“ svarar María Rut. „Eins og við segjum eru raun­veru­legar sögur í bók­inni í bland við skáld­aðar og ein af þeim raun­veru­legu er saga Ronju Sifjar Magn­ús­dóttur sem sló í gegn á Hinseg­in­leik­anum á sínum tíma ásamt for­eldrum sínum, en hún var þá fimm ára gömul trans stelpa.“

„Okkur þykir mjög vænt um að fá að segja hennar sögu í bók­inni,“ segir Ingileif með áherslu, „enda ekki til margar fyr­ir­myndir fyrir trans börn til að spegla sig í.“

„Okkar reynsla er sú að börn eru fordómalaus“

Þetta er fyrsta bók Ingi­leifar og Maríu Rutar en þær segj­ast báðar hafa átt sér þann draumi í laumi að skrifa bækur. En hvað varð til þess að þær ákváðu loks­ins að láta verða af því og af hverju varð þetta við­fangs­efni fyrir val­inu?
„Við höfum alltaf lagt mikið upp úr því að lesa fyrir börnin okkar og eiga gæða­stundir með þeim hætti,“ svarar María Rut. „En höfum því miður rekið okkur á að ekki margar bækur fanga fjöl­breyti­leika okkar eigin fjöl­skyldu, né almennt þann fjöl­breyti­leika sem okkur langar að sýna okkar börnum.“

Ingileif kinkar kolli. „Okkur fannst mik­ill skortur á bókum fyrir börn sem sýna fram á það hvað við erum öll alls konar; hvort sem það varðar fjöl­breytt fjöl­skyldu­form, bak­grunn, útlit, áhuga­mál eða annan fjöl­breyti­leika,“ segir hún.

„Og þó svo að það sé til eitt­hvað efni um fjöl­breyti­leika, sem er frá­bært, þá er ekki nóg að vera bara með einn eða tvo val­mögu­leika fyrir fólk sem kýs að fræða um fjöl­breyti­leik­ann fyrir börnin sín, á meðan að það er til ara­grúi af efni og bókum um „normal“ fjöl­skyldur. Við ákváðum því að leggja okkar af mörkum til að fjölga val­mögu­leikum á mark­aðnum með því að skrifa þessa bók, enda eru barna­bækur svo ótrú­lega dýr­mæt og mik­il­væg leið til að eiga sam­töl við börnin okkar um allt milli him­ins og jarðar,“ bendir María Rut á.

„Við lögðum einmitt upp með að þessi bók yrði skemmti­leg og byði upp á alls konar umræður á milli barns­ins og þess sem les bók­ina fyrir barnið. Það er nefni­lega ekk­ert hættu­legt að segja börnum að þau megi vera eins og þau eru, hafa áhuga á því sem þau hafa áhuga á, elska þann sem þau elska og klæða sig eins og þau vilja klæða sig. Okkar reynsla er sú að börn eru for­dóma­laus,“ segir Ingileif. „Þau læra svo af okkur full­orðna fólk­inu hvað þykir „skrýtið“ og „óeðli­legt“.

„Fordómar byggj­ast á fáfræði,“ bætir María Rut við, „og við trúum því af ein­lægni að með því að byrja snemma og tala um það við börnin okkar að við séum ólík þá getum við búið til pláss fyrir alla til að vera nákvæm­lega eins og þeir eru.“

Skemmtilegast að skapa hluti saman

Að sögn Ingi­leifar og Maríu Rutar kom hug­myndin að bók­inni fyrst upp árið 2016, þegar þær voru nýlega búnar að stofna Hinseg­in­leik­ann, en fyrir þá sem ekki vita er Hinseg­in­leik­inn fræðslu­vett­vangur á sam­fé­lags­miðlum um fjöl­breyti­leik­ann, þar sem ólíkir ein­stak­lingar fá vett­vang til að miðla sinni reynslu og um leið brjóta niður ákveðnar stað­al­myndir sem hafa við­geng­ist um hinsegin fólk allt of lengi. Þær segj­ast fljót­lega hafa áttað sig á því að þær vildu að fræðslan og hug­mynda­fræðin væru líka aðgengi­leg fyrir yngri börn.

„Það var svo ekki fyrr en fyrir rúm­lega ári síðan sem við sett­umst almenni­lega yfir þetta og ákváðum að við vildum gera þetta að veru­leika. Í kjöl­farið fund­uðum við með snill­ing­unum hjá Sölku for­lagi, sem voru til­búnar að taka séns­inn og stökkva á þetta með okkur,“ segir María Rut glað­lega.

„Þannig að þetta hefur verið langt ferli, en við erum ótrú­lega ánægðar með bók­ina,“ segir Ingileif stolt.
Nú hafið þið spreytt ykkur á gerð hlað­varps­þátta, tón­listar, sjón­varps­efnis og hvað­eina, hvernig gekk að gera bók saman? „Þetta var bara skemmti­legt. Við elskum að ögra sjálfum okkur og prófa nýja hluti,“ segir María Rut og kímir.

„Já, við erum svo­lítið týp­urnar sem látum bara vaða,“ tekur Ingileif undir með henni og hlær. „Við erum oft með allt of mörg járn í eld­inum en við hrein­lega bara sett­umst niður, pældum í því hvernig við gætum látið þetta ganga og fundum svo leiðir til að tryggja að svo yrði og þetta var bara mjög skemmti­legt ferli.“

Hvernig unnuð þið bók­ina, var ein­hver verka­skipt­ing? „Svolítið eins og við vinnum flestallt,“ svarar María Rut. „Ég kem sterk inn í hug­mynda­vinn­unni og ramm­anum, en Ingileif tekur svo bolt­ann og lætur hlut­ina ger­ast.“

„Ég var ekki bundin við ákveðin verk­efni á þessum tíma þannig að ég skrif­aði fyrsta upp­kastið. Svo unnum við saman að því að betrumbæta það með útgef­and­anum og pældum í því hvernig þetta myndi allt smella,“ útskýrir Ingileif. „Við vinnum sem betur fer mjög vel saman og erum gott teymi.“

María lítur á hana. „Já, það er það allra skemmti­leg­asta sem ég geri – að skapa hluti með Ingileif.“

Bók sem á alltaf erindi

Er þetta bók sem þið hefðuð viljað geta nálg­ast þegar þið voruð sjálfar krakkar? „Já, vá, algjör­lega,“ segja þær í kór.

„Það hefði opnað augun mín fyrr fyrir því sem er raun­veru­legt. Að við erum alls konar. Það þarf ekki að fela það fyrir börnum. Það er líka svo skemmti­legt að vera alls konar,“ segir María Rut.

„Ég held ég geti full­yrt fyrir okkur báðar að það hefði sann­ar­lega sparað okkur mörg ár af efa­semdum um sjálfar okkur,“ segir Ingileif og dæsir. „Bara það eitt og sér að búa til plássið fyrir börn til að vera nákvæm­lega eins og þau eru eyðir út svo mik­illi pressu af því að falla ekki inn í þetta svo­kall­aða „norm“. Þannig að þessi bók hefði því átt fullt erindi þegar við vorum krakkar, hún hefði líka átt erindi fyrir 50 árum og hún á sann­ar­lega erindi í dag.“

„Já, nú sem aldrei fyrr,“ segir María Rut. „Það skiptir máli að það sé til góð flóra af góðum og fræð­andi barna­bókum. Og ekki er það nú verra ef þær eru lit­ríkar og skemmti­legar.“

„Okkar reynsla er sú að börn eru for­dóma­laus. Þau læra svo af okkur full­orðna fólk­inu hvað þykir „skrýtið“ og „óeðli­legt“.

„Það má líka segja að hug­mynda­fræði Vertu þú rammi bara svo­lítið inn hverjar við erum og hvernig við vinnum. Fyrir hvað við stöndum,“ heldur Ingileif áfram. „Það eina sem við viljum er að gera gagn. Brjóta múra og búa til far­veg fyrir það að það sé í lagi að vera alls konar. Svona og hinsegin.“

Fjöl­breyti­leik­inn er til umfjöll­unar í nýju barna­bók­inni Vertu þú.

„Þetta er bók sem er hugsuð fyrir alla þá sem vilja stuðla að upp­eldi barna sem byggt er á víð­sýni og fjöl­breyti­leika. Að við séum öll eins og við erum og að það sé fal­legt,“ segir María Rut.

„En bókin er ekki bara skrifuð með hinsegin fjöl­skyldur í huga,“ tekur hún fram. „Við vonum auð­vitað að hún muni höfða til allra.“

„Þannig að við vonum að full­orðna fólkið taki líka bók­inni okkar með opnum hug,“ segir Ingileif og brosir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una