Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Faðir Einars Jónssonar sem lést í húsbílabrunanum: „Ég var að missa son og dýrmætan vin“

Faðir Einars Jónssonar sem lést í húsbílabrunanum: „Ég var að missa son og dýrmætan vin“

Jón Ein­ars­son, grasa­læknir og vél­stjóri, minn­ist elsta sonar síns, Einars, sem lést í hús­bíla­bruna síð­ast­liðið föstu­dags­kvöld. Jón segir fjöl­marga vini Einars og fjöl­skyldu í sárum.

Einar heit­inn lést í svip­legu slysi um nýliðna helgi.

„Einar átti góða fjöl­skyldu og marga nána vini sem hafa orðið fyrir miklu áfalli vegna þessa hræði­lega slyss. Ég minn­ist hans með miklum sökn­uði. Einar var góður maður og það er svo hörmu­legt að þetta hafi gerst,“ segir Jón í sam­tali við Mannlíf og lýsir þar hinni hræði­legu upp­lifun sem það er að missa son. Einar var í góðu sam­bandi við vini sína og fjöl­skyldu og segir Jón þá feðga hafa verið mjög nána.

„Einar var ekki ein­ungis sonur minn heldur einnig dýr­mætur vinur minn, líkt og öll mín börn.“ segir Jón sem minn­ist sonar síns með færslu á Facebook í fyrra­dag:

„Elsku Einar sonur minn lést af slys­förum aðfar­arnótt síð­ast­lið­ins laug­ar­dags, 38 ára að aldri. Blessuð sé minn­ing hans.“

Einar átti þrjá hunda sem allir fór­ust í brun­anum með eig­anda sínum.

Einar fædd­ist 21. ágúst 1982. Hann var ókvæntur og barn­laus. Einar hafði und­an­farið búið í vönd­uðum hús­bíl sínum nærri Torfa­stöðum í Grafn­ingi. Síðla föstu­dags­kvölds­ins varð hræði­legt slys þar sem Einar brann inn í hús­bílnum ásamt hund­unum sínum þremur.

Í til­kynn­ingu frá lög­reglu segir að krufn­ing hafi farið fram í gær. Af bráða­birgða­nið­ur­stöðum hennar megi ráða að Einar hafi lát­ist af völdum súr­efn­is­skorts vegna brun­ans í bílnum. Beðið er end­an­legrar nið­ur­stöðu þeirra rann­sókna sem fylgja krufn­ing­unni, sem og nið­ur­stöðu tækni­deildar um elds­upp­taka­rann­sókn.

Jón segir son sinn hafa valið sveita­lífið því hann hafi verið svo mikið nátt­úru­barn. Það hafi þeir báðir fengið að gjöf frá ömmu Einars, Ástu Erlings­dóttur, sem var grasa­læknir líkt og Jón. Báðir voru þeir aldir upp í því að virða nátt­úr­una og þaðan kom þrá Einars heit­ins að búa í sveit­inni.

Einar bjó í hús­bílnum sínum í Grafn­ingi með hundana sína þrjá. Hvergi leið honum betur en í sveit­inni. Mynd / Skjáskot Facebook.
„Einar var kraft­mik­ill og góður húmoristi en líka svo blíður og góður.“

Jón og Þórunn Elva Guðjohn­sen, eig­in­kona hans og stjúp­móðir Einars, segja son þeirra hafa verið flottan ein­stak­ling sem bjó vel í sveit­inni sem hann unni. „Einar var hæfi­leik­a­ríkur bíla­smiður og stund­aði vinnu í Reykja­vík. Hann var mik­ill dýra­vinur og búinn að eiga tvo af hund­unum sínum lengi. Þetta voru mjög flottir hundar. Síðan átti hann einn árs gamlan hund líka. Allir nutu þeir frels­is­ins í sveit­inni þar sem þeim leið best. Einar var mjög hlýr og góður maður og ein­stak­lega bón­góður. Það var alveg sama hvað hann var beð­inn um var hann alltaf fyrstur til að mæta. Einar var líka kraft­mik­ill og góður húmoristi“ segir Þórunn Elva.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag