Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þjóðþekkt miðbæjarfólk sakað um elítustæla: „Mér dettur ekki í hug að afgreiða sjálfan mig“

Þjóðþekkt miðbæjarfólk sakað um elítustæla: „Mér dettur ekki í hug að afgreiða sjálfan mig“

Það sauð upp úr í Facebook-hópi íbúa í Miðbænum í morgun og féllu ýmiss þung orð. Ástæðan er sjálfs­af­greiðsla í verslun Krón­unnar og ljóst er að sitt sýn­ist hverjum. Sumir segja það hneyksli að það sé ekki boðið upp á hefð­bundna afgreiðslu meðan aðrir telja það ein­fald­lega elítu­stæla.

Það var rit­höf­und­ur­inn Benóný Ægisson sem hóf umræð­una og skrif­aði: „Ég er dálítið hugsi yfir við­brögðum við nýju Krónu­versl­un­inni við Hall­veig­ar­stíg en margir segj­ast ætla að snið­ganga hana vegna þess að þar er bara sjálfs­af­greiðsla. Ég held að til að knýja fram breyt­ingar sé snið­ganga um það bil það versta sem fólk gerir. Sjáið bara ferða­manna­búð­irnar, ástandið þar sýnir að versl­anir þríf­ast ekki án heima­mark­að­ar­ins. Ég hef ýmis­legt að athuga við Krónu­búð­ina en ég vil frekar hafa hana en að hafa hana ekki.“

Sumir voru sam­mála honum og Guðrún Erla Geirs­dóttir vill ganga svo langt að senda bréf til Krónunar í nafni íbúa­sam­taka. Sú skrifar: „Hvað með að við í stjórn íbúa­sam­tak­anna sendum bréf/áskorun til þeirra sem reka Krónuna og förun fram á að tekið sé til­lit til þeirra íbúa hverf­is­ins sem kjósa að eiga fremur sam­skipti við mann­eskju en tölvu – þe það sem kallað er ,,sjálfa­f­greiðsla”“.

Skemmti­kraft­ur­inn Margrét Erla Maack tók illa í það. „Ekki í mínu nafni, takk. Það eina sem þarf að gera er að bæta við belti á eina mann­aða kass­ann“. Hún sagði svo að sjálfs­af­greiðsla skerpt neyt­enda­vit­und hennar. „Ég er svo þakk­lát fyrir þetta sjálfsa­f­reiðslu­sy­stem. Verð­vit­und mín hefur auk­ist til muna, ég get gert þetta á mínum hraða og raðað í pok­ana eins og mér þókn­ast best, er ekki fyrir þeim sem á eftir mér kemur. Finnst einmitt erfitt að halda 2 metra reglu þegar það eru mann­aðir kassar þar sem sá sem á eftir mér kemur er alltaf að flýta sér. Ég kaupi oft­ast 2-3 poka þegar ég fer. Starfs­fólk er alltaf til staðar til að hjálpa,“ segir Margrét Erla.

Önnur sem tók illa í þessa gagn­rýni var fjöl­miðla­konan María Lilja Þrast­ar­dóttir Kemp. „Vá. Þvílík for­rétt­inda­blinda og elítu­stælar. Á grín­laust að reyna að þvinga lággjalda­verslun úr mið­borg­inni afþví þið getið ekki ýtt vör­unum ykkar sjálf í gegnum “blíbbið”? Afhverju þurf­iði mann­eskju á lág­marks­launum til að gera þetta fyrir ykkur seg­iði?“

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Egill Helgason kom svo með hitt sjón­ar­miðið. „Mér dettur ekki í hug að afgreiða sjálfan mig. Og allra síst í miðri far­sótt. Og varð­andi for­rétt­indi, þá held ég að heim­ur­inn verði síst betri ef við leggjum niður verka­manna­störf. Eða gætir þess í vöru­verði þarna hve þjón­ustan er lítil.“

Heiða B. Heiðars aug­lýs­inga­kona svar­aði til baka: „Ég byrj­aði einmitt að nota sjálfs­af­greiðslu af því að það er far­sótt. Ég sé enga ástæðu til að láta fólk á skíta­launum vera enda­laust útsett fyrir smiti.“ Því svarar Egill: „Semsé fólkið sem er að spritta og sótt­hreinsa er ekki útsett fyrir smiti? Ég hef hins vegar furðað mig á að ekki séu betri sótt­varnir fyrir fólk sem er að vinna alls kyns þjón­ustu­störf. Auðvelt að búa til ein­hvers konar búr um þá sem afgreiða í svona búðum – og af hverju eru stræt­is­vagna­bíl­stjórar ekki á algjör­lega aflok­uðum rýmum.“

Egill segir enn fremur að verka­fólki sé eng­inn greiði gerður með þessu kerfi. „En svo er nátt­úr­lega veru­leik­inn á bak við þetta sá að arður af sjálf­virkni­væð­ing­unni mun ekki renna í vasa not­enda og því síður vinn­andi fólks. Þetta þró­ast allt í þá átt að færri og stærri aðilar eiga allt í sam­fé­lag­inu og ójöfn­uður eykst. Eitt sinn var smá­at­vinnu­rekstur helsta hug­sjón hægri manna – nú er það frekar að fólk geti bætt kjör sín með því að eiga hluta­bréf í stóru fyr­ir­tæki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina