Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eineltismál Ólivers skekur Garðabæ – Móðir hans gagnrýnd fyrir að gefa ekki svigrúm

Eineltismál Ólivers skekur Garðabæ – Móðir hans gagnrýnd fyrir að gefa ekki svigrúm

Sam­fé­lagið í Garðabæ leikur á reiði­skjálfi eftir að greint var frá ein­elti í garð Ólívers, ell­efu ára drengs í Sjá­lands­skóla. Heim­ildir Mannlífs herma að óánægju gæti vegna máls­ins innan skól­ans, meðal for­eldra í Garðabæ og meðal for­svars­manna íþrótta­fé­lags­ins í bænum.

Fáir, ef nokkrir, draga í efa frá­sögn Sigríðar Elínar Ásmunds­dóttur af skelfi­legu ein­elti sem Ólíver sonur hennar hefur orðið fyrir. Áður­nefnd óánægja snýr hins vegar að því að móð­irin hafi hvorki gefið skól­anum né íþrótta­fé­lag­inu þar sem dreng­ur­inn iðk­aði íþróttir nægj­an­legt svig­rúm til að virkja verk­ferla og taka á mál­inu áður en farið var með frá­sögn­ina í fjöl­miðla. Þannig hafi hvor­ugum aðil­anum gef­ist kostur á því að grípa til aðgerða, þreifa fyrir sér í sátta­um­leitun og veita unga drengnum aðstoð. Ekki gafst tíma til að kalla til for­eldra­fundar áður en fjallað var um frá­sögn Sigríðar mátti finna á Facebook og síðum blað­anna.

Eftir að fjallað hefur verið um málið í fjöl­miðlum hefur athuga­semdum rignt yfir starfs­fólk skól­ans og Stjörn­unnar án þess að það geti tjáð sig um mál­efni drengs­ins og borið hendur fyrir höfuð sér. Björgvin Páll Gúst­afs­son, fyrrum lands­liðs­maður í hand­knatt­leik, er einn þeirra sem hefur gagn­rýnt fjöl­miðlaum­fjöllun máls­ins og við­brögð almenn­ings við frétt­unum þar sem skít og skömm hefur rignt yfir skól­ann og þá sem mál­inu tengj­ast.

„Fólk er hrein­lega til­búið að taka 10 ára börn af lífi og láta þung orð falla um mál sem það veit ekk­ert um. Við leysum ekki vanda­málin með því að „glæpa­væða“ ger­endur ein­eltis, ein­beita okkur að refsi­að­gerðum og klína ábyrgð­inni á kerfið, skól­ann eða fólk sem er að gera sitt besta. Skól­arnir eru stút­fullir af hæfi­leik­a­ríku fólki sem vill gera vel. Það að rífa kenn­ara eða skóla­stjórn­endur niður í svaðið er alveg sér­stak­lega ömur­legt því að þau geta ekki svarað fyrir sig með neinum hætti. Ábyrgðin liggur alveg eins hjá okkur sem sam­fé­lagi í hlutum eins og ein­elti. Það sem að ég hef orðið vitni af á sam­fé­lags­miðlum og eins í komment­ankerfum sýnir að mínu mati rót vand­ans,“ segir Björgvin Páll.

Stjórn­end­ur Sjá­lands­skóla hafa full­yrt opin­ber­lega að tekið sé alvar­lega á öllum ein­elt­is­málum sem upp koma í skól­anum og unnið sé á þeim fag­lega og af festu. Það gerðu þeir í til­kynn­ingu sem send var út þar sem einnig var biðlar til þess að aðgát sé höfð í allri orð­ræðu um mál Ólívers.

Arna Frið­riks­dóttir, for­maður for­eldra­fé­lags Sjá­lands­skóla, segir málið afar við­kvæmt og að það verði rætt á vegum félags­ins í vik­unni, án þess þó að félagið hafi aðkomu að við­bragðs­á­ætlun skól­ans gagn­vart ein­elti. Aðspurð seg­ist hún hafa orðið vör við óánægju­raddir for­eldra í báðar áttir.

Frásögn Sigríðar hefur fengið gífu­leg við­brögð í sam­fé­lag­inu. Frægt varð þegar lands­liðs­menn í bæði hand­bolta og fót­bolta, þeir Aron Einar Gunn­ars­son, Jón Daði Böðv­ars­son og Aron Pálm­ars­son, sendu Ólíver hvatn­ing­ar­orð. Hið sama gerði Ingó Veðurguð, Ævar Þór Bene­dikts­son, oft­ast kall­aður Ævar vís­inda­maður, og Lilja Alfreðs­dóttir mennta­mála­ráð­herra. Sú síð­ast­nefnda lofar bótum á verk­ferlum ein­elt­is­mála í skólum. Sigríður er hrærð yfir við­brögð­unum.

„Við Ólíver erum klökk og eig­in­lega orð­laus yfir við­brögð­unum, öllum ein­lægu og fal­legu skila­boð­unum frá ykkur, sím­töl­unum, hlýj­unni og stuðn­ingnum. Okkur sýn­ist þjóðin vera sam­mála okkur um að ein­elti má aldrei líð­ast og við eigum að hjálp­ast að, öll sem eitt, við að upp­ræta það. Við EIGUM að skipta okkur af þegar við verðum vitni að ein­elti, sýna stuðn­ing, ást og umhyggju því ein­elti er dauð­ans alvara. Og gleymum ekki að allir þeir sem standa með Ólíver í bar­átt­unni standa með öllum öðrum börnum þarna úti sem eru að upp­lifa það sama,“ segir Sigríður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi