Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lítið mál að koma fram nakinn: „Nauðsynlegt að alls konar fólk sjáist“

Lítið mál að koma fram nakinn: „Nauðsynlegt að alls konar fólk sjáist“
Sindri Freyr. Skjáskot / Úr NOVA aug­lýs­ingu sem Brand­en­burg gerði

„Mér finnst þægi­legt og gaman að vera nak­inn og ef ég réði því væri ég það oft­ast,“ segir fjöl­lista­mað­ur­inn Sindri Freyr Bjarka­son sem fer með hlut­verk í nýrri aug­lýs­ingu fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins NOVA. Aug­lýs­ingin hefur vakið mikla athygli en þar sjást Íslend­ingar af öllum stærðum og gerðum kviknaktir við leik og störf.

Sindri Freyr Bjarka­son leikur í nýju NOVA-aug­lýs­ing­unni sem aug­lýs­inga­stofan Brand­en­burg gerði, en hann er mynd­list­ar­maður, dragdrottn­ing, uppi­stand­ari og hefur feng­ist við hand­rita­skrif og kvik­mynda­gerð. Þess utan hefur hann látið til sín taka í rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks með áherslu á mál­efni BDSM fólks.

„Ég ætla nú ekki að segja að þetta sé ekk­ert mál,“ segir Sindri, spurður hvernig sé að koma svona fyrir sjónir almenn­ings, en í aug­lýs­ing­unni sést hann rölta eftir sund­laug­ar­bakk­anum í Sund­höll­inni á adams­klæð­unum einum. „Ég er auð­vitað með mín lík­ams­í­mynd­ar­vanda­mál og minn pakka bara eins og aðrir,“ tekur hann fram, „en á móti finnst mér nekt vera mjög nátt­úru­leg þannig að ég átti í sjálfu sér ekk­ert erfitt með að koma fram nak­inn.“

Hann seg­ist hafa haft meiri áhyggjur af því hvernig við­tök­urnar yrðu en nú þegar hann skoði athuga­semda­kerfin sjái hann að það var ástæðu­laust. Fyrir utan eitt og eitt leið­inda­komment, sem byggi flest á mis­skiln­ingi eins og að aug­lýs­ingin ýti undir offitu þar sem hún sýni líka feitt fólk, þá séu við­brögðin bara mjög góð.

„Ég vissi nú að mak­anum yrði alveg sama, en ég hafði smá­vegis áhyggjur af sumum í fjöl­skyld­unni.“

„Hér er meira að segja athuga­semd á Reddit frá aðila sem seg­ist vera í áfalli yfir því að hafa séð mig í aug­lýs­ing­unni og hugsað: Hei, við erum nokkuð líkir – án þess að hann hafi skamm­ast sín fyrir það. Við­kom­andi segir það vera nýja og ótrú­lega góða til­finn­ingu. Maður fær nú bara tár í augun við að lesa þetta.“

Afslappað andrúmsloft á tökustað

En hvernig kom til að Sindra var boðið hlut­verk í aug­lýs­ing­unni?
„Ég sá nú bara aug­lýst eftir fyr­ir­sætum á Hinsegin spjall­inu. Þar var talað um nekt og það vakti for­vitni mína að óskað var eftir alls konar fólki, það er að segja fólki af öllum gerðum og stærðum. Ég hef reynslu af því að leika en hafði aldrei komið fram nak­inn. Hins vegar finnst mér þægi­legt og gaman að vera nak­inn og ef ég réði væri ég það oft­ast, þannig að ég ákvað bara að svara mann­eskj­unni sem setti inn aug­lýs­ing­una og þetta gekk allt saman upp.“

Þú hefur ekki hugsað þig tvisvar um, ekki einu sinni þegar þú mættir á töku­stað og sást allt fólkið?
„Nei, í raun­inni ekki,“ svarar Sindri hrein­skil­inn. „Ég mætti bara í tökur í Sund­höll­ina klukkan sjö um morg­un­inn, á afmæl­is­degi kærastans, nýbú­inn að borða köku og pepp­aður af sykri. Reyndar kom móment þar sem ég hugs­aði: Bíddu ef ég fer úr núna og fer fram er ég að brjóta ein­hverjar sam­fé­lags­reglur? Af því maður er ekki vanur þessu. En svo lét ég bara vaða og þetta var ekk­ert mál. Satt best að segja var frelsandi að sitja innan um hitt fólkið á töku­stað. Það var gagn­kvæm virð­ing í gangi og allir voða næs. Eina stressið var að ná að skjóta aug­lýs­ing­una á réttum tíma, en ann­ars var and­rúms­loftið bara mjög afslappað og þægi­legt.“

Opinskár með kynhneigðina

Varstu ekk­ert hræddur um hvað þínum nán­ustu fynd­ist?
„Ég vissi nú að mak­anum yrði alveg sama, en ég hafði smá­vegis áhyggjur af sumum í fjöl­skyld­unni,“ játar Sindri. „Og þá helst fólk­inu sem er ekki opið gagn­vart svona hlutum. Sjálfur er ég hins vegar mjög opinn með allt um sjálfan mig gagn­vart minni nán­ustu fjöl­skyldu, um allt frá kyn­hneigð minni yfir í list­sköpun mína. Ég hef ekk­ert að fela fyrir fólki, ég kem hreint fram enda veit hvernig ég vil lifa og reyni að gera það eftir fremsta megni, svo fólk sjái mig eins og ég er.“

Þegar blaða­maður spyr Sindra hvað hann eigi við með því seg­ist hann vera BDSM-hneigður og kynsegin og hann sé opinn með það. Hann hafi meira að segja gert kvik­mynd, Opening up, sem hafi verið loka­verk­efni hans frá Mynd­list­ar­skól­anum í Reykja­vík, og þar hafi hann gert þessu ákveðin skil. Gaman sé að segja frá því að myndin hafi unnið til Punch in the Face-verð­launa á Reykja­vík Fringe Festival í ár og frum­sýn­ing hennar á hátíð­inni hafi opnað á umræður þar sem BDSM-hneigt fólk lýsti skömminni sem fylgdi því að horfast í augu við eigin kyn­hneigð, vegna þeirra for­dóma sem væru enn í sam­fé­lag­inu gagn­vart BDSM. Fólki hafi fund­ist mjög frelsandi að sjá mynd­ina tækla það. Það gefi til kynna að enn sé heil­mikið verk að vinna í að upp­ræta slíka for­dóma, þótt hlut­irnir séu vissu­lega farnir að þok­ast í rétta átt með auk­inni umræðu um mál­efni BDSM-fólks á Íslandi og auknum sýni­leika.

Vill vera fyrirmynd fyrir aðra

Þannig að þessi verk­efni, myndin þín og NOVA-aug­lýs­ingin, þú tekur þau að þér af hug­sjón? spyr ég.
„Ég tek fyrst og fremst þátt í hlutum sem mér finn­ast skemmti­legir,“ svarar hann. „BDSM-senan hefur gefið mér mikið þannig að ég vil gefa til baka, bæði með gerð mynd­ar­innar og með því að sitja í stjórn BDSM-félags­ins á Íslandi og svo hefur listin gefið mér mikið. Þess vegna reyni ég að vera góð fyr­ir­mynd fyrir aðra. Það getur vissu­lega verið þreyt­andi og auð­vitað eru ekki allir sáttir við það sem maður er að gera. Þegar ég var yngri átt­aði ég mig á því að ef ég stend ekki með sjálfum mér og virði mig eins og ég, gerir það eng­inn anna.“

„Reyndar kom móment þar sem ég hugs­aði: Bíddu ef ég fer úr núna og fer fram er ég að brjóta ein­hverjar sam­fé­lags­reglur?“

Hvað aug­lýs­ing­una varðar segir Sindri tíma­bært og nauð­syn­legt að fólk af öllum stærðum og gerðum fái að sjást í allri sinni dýrð. „Ég er ánægður með að í þess­ari aug­lýs­ingu skuli vera alls konar fólk því það eru svo miklar rang­hug­myndir í gangi um lík­ama okkar. Þess vegna finnst mér frá­bært og bara alveg nauð­syn­legt að alls konar fólk sjá­ist þarna, eins og það er skapað frá nátt­úr­unnar hendi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu