Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sigríður Andersen hleypur ekki frá málunum í helgarviðtali Mannlífs: „Þarf ekki ráðherrastól“

Sigríður Andersen hleypur ekki frá málunum í helgarviðtali Mannlífs: „Þarf ekki ráðherrastól“

Sigríður Á. Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur gagn­rýnt sótt­varna­að­gerðir, hún vill að útlend­inga­lögum sé breytt og stemma stigu við til­hæfu­lausum umsóknum um alþjóð­lega vernd. Hún sté til hliðar sem dóms­mála­ráð­herra í kjöl­far þess að dómur féll í Strass­borg í Lands­rétt­ar­mál­inu og seg­ist í grund­vall­ar­at­riðum vera ósam­mála stefnu Vinstri­hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs. „Ég er ekki hneyksl­un­ar­gjörn og ég hleyp ekki frá málum í geðs­hrær­ingu. Það herðir mann auð­vitað að vera í póli­tík.“

Andlit Sigríðar Á. Andersen, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, birt­ist á tölvu­skjánum en vegna Covid-19 eru sam­skipti á net­inu orðin algengur sam­skipta­máti. Örlítill hluti af Aust­ur­velli sést út um glugg­ann.

„Við reynum á þing­inu að halda uppi þing­störfum en það fer mikið í gegnum fjar­fund­ar­búnað og svo hafa verið teknar upp nýjar reglur í þingsalnum. Ég hef bent á að mér finn­ist þetta ekki vera heppi­legt enda hefur þingið verið und­an­þegið öllum reglum. Menn hafa þrátt fyrir það gripið til ýtr­ustu aðgerða á þing­inu að mínu mati. Ástæðan fyrir því að ég segi það og ég hef goldið var­hug við þessu er að þótt þetta hefti ekki mál­frelsi þing­manna þá er annar bragur yfir þingsalnum; til dæmis fyrir stjórn­ar­and­stöð­una að ræða við ráð­herra þegar ráð­herrar og aðrir þing­menn sitja ekki í þingsalnum heldur í hlið­ar­sölum. Þetta hefur áhrif á hina lýð­ræð­is­legu umræðu sem þarf að vera á Alþingi. Nefnd­ar­fund­irnir ganga nú sjálf­sagt ágæt­lega fyrir sig en þó er það þannig að menn takast kannski minna á í gegnum fjar­fund­ar­búnað heldur en ef þeir væru staddir saman. Þannig að þetta hefur auð­vitað lang­tíma­á­hrif á störf þings­ins þó menn reyni að láta þetta ganga og afgreiða mál sem þarf að afgreiða.“

Hefur gagnrýnt sóttvarnaaðgerðir

Sigríður seg­ist hafa frá því snemma í vor haldið því sjón­ar­miði á lofti að fólk þurfi að átta sig á að allar þessar sótt­varna­að­gerðir séu mikið inn­grip inn í grund­vall­ar­rétt­indi manna; frelsi borg­ar­anna á Íslandi. „Við höfum nú stjórn­ar­skrá einmitt í þeim til­gangi að standa vörð um það og stjórn­ar­skráin tekur ekki fyrir það að það sé gripið inn í frelsi ein­stak­ling­anna. Það er hins vegar kveðið á um það í stjórn­ar­skránni eins og í öllum öðrum lýð­ræð­is­ríkjum að komi til þess að það þurfi að skerða rétt­indi borg­ar­anna þá sé það gert með hnit­mið­uðum lögum. Og ég hef bara verið að benda á það að þótt við höfum gefið stjórn­völdum, rík­is­stjórn og þeim sótt­varna­að­gerðum sem gripið var til ákveðið svig­rúm þegar um var að ræða óvænt ástand eins og við stóðum frammi fyrir á þessu ári þá gildir það sjón­ar­mið ekki þegar á líður. Undir þetta sjón­ar­mið hefur verið tekið í álits­gerð Páls Hreins­sonar, dóm­ara hjá EFTA-dóm­stólnum, sem gaf út álit á þessum vald­mörkum stjórn­valda og þings­ins þar sem hann komst að þeirri nið­ur­stöðu að það sé brýnt að end­ur­skoða sótt­varna­lögin í þessu sam­bandi og sú end­ur­skoðun stendur yfir. En hann bendir líka á að það sé ekki hægt að bíða þess­arar end­ur­skoð­unar heldur sé mjög aðkallandi að lög­gjaf­inn láti til­tekna þætti til sín taka nú þegar. Þannig að ég hef verið að hvetja þingið til þess að fjalla efn­is­lega um þessi mál. Og þegar ég segi efn­is­lega þá á ég við það að menn fái fram umræð­una og upp­lýs­ingar um for­sendur sótt­varna­að­gerða, hverju þær eiga að ná fram en líka upp­lýs­ingar um afleið­ingar og áhrif aðgerða sem gripið hefur verið til. Þetta þarf allt að liggja fyrir skýrt og skor­in­ort þannig að þingið, lög­gjaf­inn, geti vegið það og metið hvort að það sé þannig ástand uppi að það rétt­læti að sett séu lög sem skerða rétt­indi borg­ar­anna með jafn­miklum hætti og núgild­andi reglu­gerð gerir. Núgild­andi reglu­gerð kveður á um þær hörð­ustu aðgerðir sem hafa verið frá því að veiran kom upp. Og það kallar á vanga­veltur lög­gjafans í ljósi þess að núna vitum við miklu meira um veiruna. Við vitum að almenn­ingur tekur mjög vel í til­mæli frá sótt­varna­yf­ir­völdum, hefur gætt að per­sónu­legum sótt­vörnum og lagt lóð sín á vog­ar­skál­arnar. Aðgerðir almenn­ings virð­ast hafa virkað vel án þess að til hafi þurft að koma jafn íþyngj­andi reglur og nú eru í gildi.

Þetta kallar á lög­fræði­legar spurn­ingar um með­al­hóf, að það sé ekki gripið til harka­legra aðgerða en nauð­syn­legt er. Ég hef bara verið að benda á að það sé til­efni til þess að þingið láti sig þetta varða með hlið­sjón af þeirri grund­vall­ar­reglu sem með­al­hófs­reglan er.“

Í stjórn Heimdallar

Sigríður er dóttir Bryn­hildar Krist­ins­dóttur Andersen og Geirs R. Andersen, fyrr­ver­andi blaða­manns á DV. Hún er gift Glúmi Jóni Björns­syni efna­fræð­ingi og eiga þau tvær dætur.

„Það herðir mann auð­vitað að vera í póli­tík. Ætli ég myndi ekki segja að það hafi komið mér á óvart hvað maður róast við hvert ruglið sem maður verður vitni að í stjórn­mál­unum; með hverju nýju rugl­inu herð­ist maður og slakar því meira á.“

Hún ólst upp í Vest­ur­bænum og gekk 15 ára gömul í Heimdall, félag ungra Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík. „Ég kem kannski ekki af rosa­lega póli­tísku heim­ili en þó þannig að móðir mín tók þátt í félags­starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Ég sat í stjórn Heimdallar í eitt ár og kynnt­ist síðan kærast­anum mínum þar, Glúmi, sem var sam­tíða mér í MR. Við giftum okkur árið sem við eign­uð­umst eldri dóttur okkar. Áhugi minn ekki bara á póli­tík heldur líka þjóð­málum almennt og stefnu­mótun í tengslum við póli­tík­ina jókst svo með árunum. Það var þó ekki þannig að ég hafi gengið með ein­hvern þing­manns­draum í mag­anum frá unga aldri. Alls ekki, enda hef ég alltaf lagt áherslu á það og geri enn við ungt fólk sem hefur áhuga á stjórn­málum að benda því á að leiðin til þess að hafa áhrif á stjórn­mál eða þjóð­mála­um­ræðu er ekki endi­lega að ger­ast þing­maður. Menn geta haft mikil áhrif á umræð­una og stefnu sem er mörkuð á ýmsum sviðum með þátt­töku í atvinnu­lífi og með þátt­töku í alls konar öðru­vísi starfi heldur en beint í póli­tík.“

Sigríður vann í nokkur ár með skóla á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Grund og seg­ist enn búa að þeirri reynslu að hafa starfað við umönnun. Hún vann síðan á sumrin á mennta­skóla- og síðar háskóla­ár­unum á DV meðal ann­ars sem blaða­maður. Hún skráði sig síðan í nám í lög­fræði við Háskóla Íslands og var Erasmus-skiptinemi á 4. ári við Complutense-háskól­ann í Madrid.

„Ég fór að vinna eftir útskrift hjá Versl­un­ar­ráði Ísland sem heitir núna Við­skipta­ráð Íslands. Ég vann þar náið með Vil­hjálmi Egils­syni sem þá var þing­maður og for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis og fékk þar mikla reynslu og góða sýn inn í þing­störfin af því að þar var meg­in­hlut­verk mitt að veita umsagnir um þing­mál sem vörð­uðu atvinnu­lífið. Ég skrif­aði umsagnir og mætti síðan fyrir þing­nefndir til að fylgja þeim úr hlaði. Það var mjög lær­dóms­ríkur tími. Þar vann ég þangað til ég eign­að­ist yngri dóttur mína og fór í fæð­ing­ar­or­lof.“

Sigríður hóf störf á lög­manns­stof­unni LEX eftir fæð­ing­ar­or­lofið en þar vann hún á árunum 2007-2015 þegar hún sett­ist á Alþingi.

Sigríður var í rist­jórn Vef­þjóð­vilj­ans á árunum 1995-2006 og í stjórn útgáfu­fé­lags­ins Andríkis á árunum 1995-2006. „Vefritið Andríki, sem er vefrit um þjóð­mál, var gefið út dag­lega í yfir 20 ár. Við sem stóðum að því og stöndum reyndar enn að því finnum að pistlar þar vekja upp alls konar umræðu í sam­fé­lag­inu sem hefur leitt inn á þingið. Andríki er ekki í eins fullu fjöri og áður en það birt­ast pistlar af og til sem ég held að eigi mikið erindi í umræð­una.“

Algerlega óásættanlegt

Sigríður segir að hug­myndir sínar um stefnu­mótun eða hug­sjónir lúti að tak­mörkun rík­is­af­skipta en þó þannig að hér strengjum við örygg­is­net fyrir þá sem á því þurfa að halda. „Ég hef bent á að aðstoð við þá sem minna mega sín og til dæmis heil­brigð­is­þjón­ustan getur verið innt af hendi jafn­vel af einka­að­ilum í stað rík­is­ins. Og ég held reyndar í mörgum til­vikum miklu betur af hálfu einka­að­ila heldur en af hálfu rík­is­ins. Ég nefni sem dæmi hjúkr­un­ar­heim­ilin sem ég þekki af eigin störfum. Rekstur þeirra er eitt dæmi um einka­rekstur sem er okkur ómissandi. Ég hef líka barist fyrir lágum sköttum og auð­vitað að ekki sé verið að hækka þá og skatt­pína fyr­ir­tæki og heim­ilin og þar fram eftir göt­unum. Ég myndi segja að þetta séu hefð­bundnar skoð­anir fólks hægra megin við miðju í stjórn­málum.“

Pils­falda­kap­ít­al­ismi er sá kap­ít­al­ismi kall­aður sem starfar alfarið undir merkjum mark­að­ar­ins þegar vel árar, og er að mestu á móti öllum rík­is­út­gjöldum, en vill svo að ríkið hjálpi þegar illa árar. Sigríður seg­ist vara við þessu sjón­ar­miði. „Menn vilja kannski meina að það sé eitt­hvað meira til hægri en almennt þykir en mér þykir mik­il­vægt að menn axli líka ábyrgð með því frelsi sem þeim er veitt, bæði atvinnu­líf og ein­stak­lingar.“

Sigríður nefndi elli­heim­ili. Athygli hefur vakið að und­an­förnu mál Mar­grétar Sigríðar Guð­munds­dóttur, tæp­lega sex­tugrar konu með MS-sjúk­dóm­inn sem hefur verið á stofn­unum í tæpt ár vegna úrræða­leysis í hús­næð­is­málum. Hún hefur frá því í ágúst verið í hvíld­ar­inn­lögn í bráða­birgða­vistun á Drop­laug­ar­stöðum. Frétta­stofa Stöðvar 2 hefur fjallað um mál hennar og óskað eftir svörum frá ráðu­neytum og stofn­unum en þar virð­ist hver vísa á annan og engin end­an­leg lausn vera í sjón­a­máli.

„Þetta er óásætt­an­legt,“ segir Sigríður. „Menn hafa líka verið að nefna að það vanti úrræði fyrir yngra fólk sem örkuml­ast og það er allt of mikið um að fólk verði að fara á hjúkr­un­ar­heim­ili sem ætluð eru eldri borg­urum. Ungt fólk á þar ekk­ert erindi. Þetta er nokkuð sem við verðum að gera brag­ar­bót á. Þetta er angi af miklu stærra máli sem því miður frest­ast alltaf. Þetta er hluti af nauð­syn­legri end­ur­skoðun á öllu heil­brigð­is­kerf­inu sem þarf að fara fram.“

Þótti vera hörð

Sigríður segir að hún og fleiri í Sjálf­stæð­is­flokknum hafi talað fyrir því að Íslend­ingar þurfi að gæta þess að loka ekki land­inu fyrir fólki utan EES sem vill koma og vinna hér á landi. „Það er nokkuð sem ég tók upp í fyrri rík­is­stjórn­inni sem ég sat í við sam­ráð­herra mína um að hefja end­ur­skoðun á vinnu­lög­gjöf­inni hér á landi með það í huga að hingað geti komið fólk utan EES í atvinnu­leit, á eigin ábyrgð en ekki fyrst í gegnum vernd­ar­kerfið.“ Atvinnu­á­standið getur breyst eins og til dæmis núna vegna Covid-19 þar sem atvinnu­leysi hefur auk­ist hratt. „Þetta yrði gert í sam­hengi við vinnu­mark­að­inn á hverjum tíma og end­ur­skoðun vinnu­lög­gjaf­ar­innar í þessum til­gangi þarf auð­vitað að miða að því að það sé svig­rúm fyrir þetta eftir því hvernig vinnu­mark­að­ur­inn er hér á hverjum tíma.“

Sigríður hyggst gefa kost á sér fyrir næstu kosn­ingar að ári. Hún seg­ist ekki vita hvort það verði próf­kjör innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins en seg­ist munu sækj­ast eftir því að vera í fram­varð­ar­sveit Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík eins og hún hefur verið.

Sigríður mælti í maí 2018 þegar hún var dóms­mála­ráð­herra fyrir frum­varpi til laga um breyt­ingu á lögum um útlend­inga og lögum um Schengen-upp­lýs­inga­kerfið á Íslandi. Hún sagði þá að við fram­kvæmd á nýjum lögum um útlend­inga, nr. 80/2016, sem tóku gildi 1. jan­úar 2017, hafi komið í ljós að lag­færa, end­ur­skoða og breyta þyrfti all­mörgum ákvæðum lag­anna svo að fram­kvæmd þeirra og máls­með­ferð þeirra mála sem undir þau falla væri skýr og gagnsæ. Í frum­varp­inu, sem sam­þykkt var sem lög, var boðun umsækj­anda um vernd í við­tal hjá Útlend­inga­stofnun gerð skil­virk­ari. Þá voru tíma­frestir á heim­ild umsækj­anda um dval­ar­leyfi til að dvelja á land­inu á meðan umsókn hans er í vinnslu skýrðir auk þess sem til­tekið var að dval­ar­leyf­is­um­sóknir sem væru í vinnslu hjá Útlend­inga­stofnun þegar umsækj­anda hefur verið brott­vísað, eða til­kynnt um hugs­an­lega brott­vísun, yrðu felldar úr gildi.

Sumum þótti Sigríður í emb­ætti dóms­mála­ráð­herra vera hörð þegar kemur að umsækj­endum um alþjóð­lega vernd. Þess má geta að ekki er búið að afgreiða frum­varp núver­andi dóms­mála­ráð­herra til breyt­inga á útlend­inga­lögum og þykir sumum það frum­varp vera í takt við annað frum­varp sem Sigríður kynnti stuttu áður en hún hvarf úr emb­ætti.

„Það eru ýmsar laga­breyt­ingar enn nauð­syn­legar í þessum mála­flokki en það hefur bara ekki náðst sam­staða um það á Alþingi eða hjá rík­is­stjórn­ar­flokk­unum að koma þeim í gegn. Vilji menn auka enn á skil­virkni í þágu þeirra sem þurfa á vernd að halda þá er alveg ljóst að það þarf frek­ari breyt­ingar á lögum. Sú þróun sem á sér stað núna varð­andi hæl­is­leit­endur gengur ekki upp til lengri tíma. Mér tókst í minni tíð sem dóms­mála­ráð­herra að minnsta kosti að stemma stigu við til­hæfu­lausum umsóknum um alþjóð­lega vernd frá öruggum löndum sem létti mjög á kerf­inu og ég skoð­aði líka ýmsa mögu­leika varð­andi landamæra­eft­ir­lit í þessum efnum. Núna þegar í raun­inni er búið að koma á landamæra­eftlir­liti á Íslandi vegna Covid-19 og segja má að landa­mærin séu lokuð, en hingað koma kannski ein til tvær vélar á dag, þá hefði mér fund­ist vera upp­lagt að nota tæki­færið til þess að leita allra leiða til að stöðva komu fólks sem hyggst sækja hér um alþjóð­lega vernd að til­hæfu­lausu, jafn­vel áður en það stígur upp í vél­arnar erlendis. Þannig gætum við tekið upp skil­virkara eft­ir­lit á landa­mær­unum. Ég vona að það sé ekki útséð með að menn geri það og nota tæki­færið á hálf­tómum flug­völlum þessa dag­ana til að koma í veg fyrir til­efn­is­lausar og til­hæfu­lausar umsóknir um alþjóð­lega vernd hér á landi. Síðan er ESB að íhuga mikla end­ur­skoðun á sínum reglum og í Schengen-sam­starf­inu og eru uppi áform um að efla enn frekar ytri landa­mæri Schengen-svæð­is­ins og það er jákvætt.

Ég hef tekið eftir að það gengur svo­lítið hægt að flokka lönd sem örugg lönd. Við fengum til dæmis á tíma­bili furðu­lega bylgju af umsóknum um alþjóð­lega vernd frá Venezuela. Auðvitað er ástandið þar hörmu­legt vegna komm­ún­ism­ans sem þar ríkir en í hefð­bundum flótta­manna­skiln­ingi þá held ég að það séu ekki for­sendur til að veita fólki frá Venezuela hæli á Íslandi.“

Sigríður segir að hún vilji að Íslend­ingar ein­beiti sér að mót­töku flótta­manna sem koma hingað eftir und­ir­bún­ing og í sam­starfi við Alþjóða flótta­manna­stofn­un­ina og sam­bæri­legar stofn­anir sem Ísland vinnur með í þessum mála­flokki. „Við getum staðið okkur vel í því og eigum að taka á móti flótta­mönnum. En fólk sem er að leita sér að betra lífs­við­ur­væri á ekki erindi inn í vernd­ar­kerfið í kringum flótta­menn og þá sem óska eftir dval­ar­leyfi vegna mann­úð­ar­sjón­ar­miða. Það er ósann­gjart gagn­vart þeim sem raun­veru­lega þurfa á vernd­ar­kerf­inu að halda og einnig ósann­gjarnt gagn­vart þeim sem hér búa og hafa fallið milli skips og bryggju í vel­ferð­ar­kerf­inu okkar og þurfa oft að bíða lengi lausn sinna mála. Móttaka flótta­fólks og jákvæð afgreiðsla umsókna um alþjóð­lega vernd, sem nú er orðin miklu umfangs­meiri en mót­taka flótta­fólks, er mikil áskorun fyrir vel­ferð­ar­þjón­ust­una. Það verður ekki fram hjá því horft. Við viljum standa okkur vel gagn­vart þeim sem eiga rétt á þjón­ustu á hverjum tíma. Áhlaup á þessa þjón­ustu gagn­ast engum. “

Umsókn um alþjóð­lega vernd kallar á mikla rann­sókn stjórn­valda. Það þarf að sann­reyna að fólkið sé það sem það seg­ist vera en þess má geta að sumir eru ekki með skil­ríki eða koma jafn­vel með fölsuð eða stolin skil­ríki. Sigríður segir að þeir sem fram­vísa fölsuðum eða stolnum skil­ríkjum séu ákærðir en það hefur ekki komið í veg fyrir að umsókn­ar­ferli um alþjóð­lega vernd sé hætt. „Hinn langi dráttur á afgreiðslu þess­ara mála má oft rekja til þess að menn eru ekki sam­vinnu­þýðir með að veita upp­lýs­ingar um hverjir þeir eru. Oft líður líka langur tími þar til nið­ur­staða fæst vegna þess að fólk kærir nið­ur­stöð­una og málin ganga fram og til baka í kerf­inu. Þetta þarf auð­vitað að laga.

Ef fólk seg­ist til dæmis vera frá Sýrlandi þá er gengið mjög langt í því að sann­reyna það og njótum við aðstoðar erlendra rann­sókna­stofa í þeim efnum. Ég tala nú ekki um ef börn eru í spil­inu en þá er mjög brýnt að sann­reyna að börnin séu þau sem for­eldr­arnir segja að þau séu og að það sé hafið yfir allan vafa að barnið sé raun­veru­lega barn fólks­ins sem kom með það. Það er ekki hægt að slá neitt af kröfum í þeim efnum. Þetta getur tekið tíma og útskýrir stundum þennan óhóf­lega langa drátt. Stundum er það þannig þegar fréttir eru fluttar af óhóf­lega löngum drætti á afgreiðslu ein­hverrar umsóknar að þá er það ekki svo; fólk hefur kannski komið til lands­ins á öðrum for­sendum og dvalið hér á landi kannski í nokkur ár þegar það svo loks sækir um hæli.“

Börn hæl­is­leit­enda sem fæð­ast hér á landi verða ekki sjálf­krafa íslenskir rík­is­borg­arar eins og er sums staðar ann­ars staðar. Þess má geta að í frétt á ruv.is 5. nóv­em­ber í fyrra segir: „Kjartan Hreinn Njálsson, upp­lýs­inga­full­trúi emb­ættis Land­læknis, segir að lækn­is­skoð­anir á þung­uðum hæl­is­leit­endum sé orð­inn stór hluti af þeirri vinnu sem fari fram á Mæðra­vernd.“

„Það að umsækj­andi um alþjóð­lega vernd eign­ist barn á Íslandi á meðan málið er til umfjöll­unar veitir engan sér­stakan rétt sjálf­krafa, jafn­vel þótt börn hafi dvalið hér í nokkur ár þótt vissu­lega sé litið til hags­muna barna í hverju til­viki fyrir sig. Það þarf að vera eitt­hvað mjög sér­stakt til að börn fái sér­af­greiðslu. Það er stundum talað um að börn hafi sér­stök tengsl við landið. Íslend­ingar eign­ast börn út um allan heim, dvelja erlendis við nám eða vinnu í mörg ár en það skapar ekki börnum sér­stakan rétt eða því­lík tengsl við landið að það sé hægt að rétta­læta það að umsækj­endur um alþjóð­lega vernd séu í ein­hverri stöðu þess vegna til að fá frekar vernd, eða rík­is­borg­ara­rétt, vegna tengsla við landið.“

Hátt í fjórir milljarðar í hælisleitendur

Árin 2016 og 2017 streymdu hæl­is­leit­endur frá Makedóníu og Albaníu til Íslands með til­hæfu­lausar hæl­is­um­sóknir og var áætl­aður kostn­aður vegna hæl­is­um­sókna árið 2016 2,2 millj­arðar króna og jókst kostn­að­ur­inn tölu­vert vegna þessa hóps frá þessum tveimur löndum. Til­hæfu­lausar umsóknir árið 2016 voru um 60% og voru flestir í þeim hópi frá Makedóníu og Albaníu. Þessi tvö ríki telj­ast til öruggra ríkja og var öllum synjað um hæli að lok­inni skoðun. Yfirvöld þar sögðu að þessi fjöldi fólks frá þessum löndum tengd­ist því að það hafi virkað hvetj­andi þegar hæl­is­leit­endur fengu hér fæð­is­pen­ing á meðan unnið var úr umsóknum þeirra. Þeirri fram­kvæmd var svo breytt. Útlend­inga­stofnun fékk svo þær upp­lýs­ingar um mitt ár 2016 að í Albaníu væri full­yrt að fólk þaðan gæti sest að á Íslandi án mik­illar fyr­ir­hafnar en fjallað var í fjöl­miðlum í þessum tveimur löndum um mál­efni tveggja albanskra fjöl­skyldna með lang­veik börn sem Alþingi veitti íslenskan rík­is­borg­ara­rétt árið 2015 í kjöl­far þess að Útlend­inga­stofnun hafði synjað þeim um hæli.

Saso D. Andonov, ræð­is­maður Makedóníu hér á landi, sagði í 2. tbl. Frjálsrar versl­unar árið 2017 að mikið hafi verið fjallað um þessi mál í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum bæði í Makedóníu og í Albaníu og stundum rangt sagt frá því hvernig kerfið virki hér á landi. „Það að fjöl­skyld­urnar skyldu fá íslenskan rík­is­borga­rétt var túlkað sem merki um að íslensk stjórn­völd myndu bjóða vel­komið fólk í svip­uðum aðstæðum. Ég var í Makedóníu á þessum tíma og heyrði margar sögu­sagnir um kerfið á Íslandi en sam­kvæmt þeim var Ísland rétta landið til að fara til.“ Þá sagði Andonov að íslenska vel­ferð­ar­kerfið virk­aði hvetj­andi og að þessi hópur hafi einnig viljað nýta sér það að hæl­is­leit­endur hér á landi gætu safnað þeim pen­ingum sem þeir fengju frá íslenskum stjórn­völdum meðan hæl­is­um­sókn þeirra væri tekin fyrir auk þess sem þeir fengju ókeypis hús­næði og lækn­is­þjón­ustu. Í sama blaði er við­tal við Kai Blöndal, yfir­lækni göngu­deilar sótt­varna- og hæl­is­leit­enda. Hún sagði meðal ann­ars að heil­brigð­is­þjón­ustan sé í raun­inni fín í Makedóníu og Albaníu og að íbúar þar borgi ekki fyrir lækn­is­þjón­ustu nema ef um sér­fræði­þjón­ustu sé að ræða.

Sigríður segir að árlegur kostn­aður nú í tengslum við hæl­is­leit­endur sé hátt í fjórir millj­arðar króna. „Eitt er kostn­aður við hæl­is­leit­end­urna sjálfa. Svo þegar þeir eru búnir að fá alþjóð­lega vernd þá kemur annar kostn­aður sem er ekki í þess­ari tölu.“ Sigríður segir að þegar fólk hefur fengið umsókn sína um vernd sam­þykkta fái það til dæmis hús­næð­is­bætur ef það fer á leigu­mark­að­inn. „Það er óhægt um vik fyrir íslensk stjórn­völd að kanna hvort þetta fólk eigi ein­hverjar eignir ann­ars staðar í heim­inum.“ Hún seg­ist halda að það sé erfitt fyrir suma sem hafa fengið hér alþjóð­lega vernd að finna vinnu og fara þeir þá á ein­hvers konar fram­færslu­bætur.

Mál sex manna egypskrar fjöl­skyldu sem sótti um hæli hér á landi vakti í haust mikla athygli. Vísa átti fjöl­skyld­unni úr landi eftir að end­an­leg nið­ur­staða fékkst í mál­inu en komið var að tómum kof­anum þar sem fjöl­skyldan hafði falið sig. Hún fékk svo vernd eftir að ósk kom upp að taka málið upp enn einu sinni. „Þau voru búin að fá mál sitt skoðað á öllum stigum stjórn­sýsl­unnar, oftar en einu sinni, og búin að fá neitun um alþjóð­lega vernd við hvert fót­mál. Svo í lokin þá leggja þau fram máls­á­stæðu sem þau sögðu nýja til að málið yrði skoðað enn einu sinni. Þetta er auð­vitað vand­inn í þessu kerfi, að fólk geti komið með enn aðra máls­á­stæðu við lok fer­ils­ins. Það á auð­vitað ekki að vera hægt. Þetta hlýtur að vera til skoð­unar í dóms­mála­ráðu­neyt­inu.“

Landsréttarmálið

Sigríður var dóms­mála­ráð­herra frá 11. jan­úar 2017 til 14. mars 2019 en hún sté til hliðar í kjöl­far dóms í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða frá Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu. Hún hafði áður ákveðið að nýta heim­ild í lögum til að sneiða hjá fjórum til­lögum hæf­is­nefndar við skipan dóm­ara í nýtt milli­dóms­stig, Lands­rétt. Meg­in­reglan í lögum er sú að dóms­mála­ráð­herra skipi dóm­ara þann umsækj­anda sem hæfn­is­nefnd hefur metið hæf­astan. Lögin gera þó ráð fyrir því að ráð­herra geti vikið frá álit hæfn­is­nefndar en þarf þá að bera til­lög­una undi Alþingi. Það gerði Sigríður. Alþingi sam­þykkti til­lögur hennar um til­tekna 15 ein­stak­linga. Síðar komst Hæsti­réttur að því að þessir 15 ein­stak­lingar væru lög­lega skip­aðir dóm­arar og ekki til­efni til þess að telja þá van­hæfa á neinn hátt er laut að skipun þeirra. Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu féllst hins vegar á kröfu sak­born­ings sem hélt því fram að einn dóm­ar­inn sem dæmdi mann­inum refs­ingu, fyrir brot sem hann hafði játað, hefði verið van­hæfur í ljósi aðdrag­and­ans að skipun hans. Það mál velk­ist enn um í Strass­borg og er ekki lokið.

„Stjórn­málin eru bara þess eðlis að sumir í stjórn­málum nota hvert tæki­færi til þess að höggva í póli­tíska keppi­nauta þannig að það kom ekk­ert á óvart. Ég steig frá til að gefa stjórn­völdum kost á að taka ákvörðun um hvort þau ætl­uðu að óska eftir frek­ari umfjöllun um þetta mál í Strass­borg eða ekki.“

„Ég hef nefnt það að með þessu póli­tíska ati í Strass­borg var nokk­urs konar frati lýst á íslenska stjórn­skipan. Þetta var eins og hefð­bundin póli­tísk ágjöf. Ég ætla ekk­ert að draga úr því. Menn nota allt sem hægt er til að að koma höggi á póli­tíska and­stæð­inga og það þarf ekk­ert að koma neinum á óvart sem er í póli­tík. Og ef menn geta ekki staðið í því þá eiga menn ekki að vera í póli­tík. Ég játa það alveg að þetta var ekki skemmti­leg reynsla þar sem menn not­uðu svona til­efni til að höggva í trú­verð­ug­leika minn sem stjórn­mála­manns. Maður getur þó huggað sig við að tím­inn mun draga hið rétta fram í dags­ljósið. Menn stigu fram sem ekki höfðu gert það áður og lýstu yfir stuðn­ingi við mig og margir hafa lýst yfir von­brigðum sínum með hvernig þetta mál þró­að­ist.“

Hún er spurð hvort henni finn­ist hún vera svikin vegna máls­ins. „Það þýðir ekk­ert að dvelja við slíkt í stjórn­málum. Stjórn­málin eru bara þess eðlis að sumir í stjórn­málum nota hvert tæki­færi til þess að höggva í póli­tíska keppi­nauta þannig að það kom ekk­ert á óvart. Ég steig frá til að gefa stjórn­völdum kost á að taka ákvörðun um hvort þau ætl­uðu að óska eftir frek­ari umfjöllun um þetta mál í Strass­borg eða ekki.

Í þessu til­felli ákváðu menn að nota nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu sem gengur í ber­högg við Hæsta­rétt Íslands. Menn hafa ekki ennþá svarað því hvað þeir eru þar með að segja um íslenska dóm­stóla, Hæsta­rétt Íslands og íslenska stjórn­skipan þegar menn missa fót­ana við þetta álit Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Þær eru orðnar margar nið­ur­stöð­urnar frá Strass­borg sem finna sitt­hvað að í íslenskri lög­gjöf. Þetta verður allt skoðað og rætt í betra tómi. Nú er beðið nið­ur­stöðu frá svoköll­uðum yfir­rétti.“

Sigríður seg­ist ekki hafa gert kröfu um að koma aftur inn í rík­is­stjórn. „Ef ég á að segja alveg eins og er þá held ég að það skipti ekki neinu máli fyrir stöðu mína innan flokks­ins. Ég finn fyrir miklum stuðn­ingi frá flokks­systk­inum mínum um land allt.”

Sigríður bendir á að dóm­stólar og skipun dóm­ara sé ekki eitt­hvað sem almenn­ingur hafi mik­inn áhuga á. „Ég held þess vegna að mörgum hafi fund­ist þetta mál vera eins og ein­hver kall­aði það „elítu­vanda­mál“. Fólk vill bara að dóm­arar séu hæfir til þess að leysa úr ágrein­ings­efnum og treystir lög­gjaf­anum og fram­kvæmda­vald­inu til þess að búa svo um hnút­ana. Þetta er ekki það sem almenn­ingur horfir til sem stóra málið í stjórn­málum enda ber þetta mál aldrei á góma þar sem ég er, hvorki á póli­tískum fundum, í sam­tölum fólks né í fjöl­miðlum. Þetta er ekki mál sem skiptir almenn­ing í land­inu máli. Þó held ég því til haga að það þarf að gera breyt­ingar almennt á fyr­ir­komu­lagi við skipun dóm­ara. Ferlið þarf að verða gagn­særra og þrá­kelkni og geð­þótti hæfn­is­nefnda þarf að heyra sög­unni til.“

Ríkisstjórnin

Sigríður er spurð hver henni finnst vera afrakstur núver­andi rík­is­stjórnar.

„Þessi rík­is­stjórn var sett á lagg­irnar einkum og sér í lagi með það að mark­miði að koma á ákveðnum stöð­ug­leika í stjórn­málin og þing­störfin. Það var með því leið­ar­ljósi sem við Sjálf­stæð­is­menn tókum saman við flokk lengst til vinstri en okkur fannst nokkuð til þess vinn­andi að fá þennan stöð­ug­leika fram. Rík­is­stjórnir höfðu staðið stutt við eftir hrunið og það tók okkur all­langan tíma að komst upp úr fjár­mála­hrun­inu. Þannig að það var heil­mikið til þess vinn­andi að reyna aðeins að kæla hinn póli­tíska hita sem kraum­aði við­stöðu­laust. Við Sjálf­stæð­is­menn átt­uðum okkur alveg á því að þetta yrði ekki tími stór­kost­legra breyt­inga í þágu aðal­mark­miða okkar og sjón­ar­miða í stjórn­málum og ég var alveg búin að sætta mig við að hér yrði ekki mikið af skatta­lækk­unum eða einka­væð­ing­ar­á­formum í þess­ari rík­is­stjórn. En um leið gerðum við auð­vitað kröfu um að það yrði þá ekki farið í hina átt­ina og skattar yrðu hækk­aðir eða það yrðu búnar til nýjar rík­is­stofn­anir og þar fram eftir göt­unum. Við höfum reynt að halda í horf­inu með þetta.

Ég hef nefnt það að rík­is­stjórnin byrj­aði ekki vel hvað stöð­ug­leik­ann varðar þegar tveir þing­menn VG lýstu ekki yfir stuðn­ingi við þessa rík­is­stjórn þannig að óstöð­ug­leik­inn var skrif­aður í skýin frá upp­hafi. Mér hefur samt fund­ist ágæt­lega hafa tek­ist þrátt fyrir þetta að halda frið­inn. Ég reyndi nú að leggja mitt lóð á vog­ar­skál­arnar þegar ég sté til hliðar vegna þessa póli­tíska upp­hlaups sem Lands­rétt­ar­málið var allt saman og var mál frá fyrra kjör­tíma­bili. En ég skynj­aði það að menn ætl­uðu sér að láta það mál snú­ast um mína per­sónu en ekki málið sjálft og ekki taka mál­efna­lega afstöðu. Þannig að mér fannst það nú í þágu til dæmis þessa mark­miðs þess­arar rík­is­stjórnar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ber auð­vitað ábyrgð á. Nú er svo komið í ljós að málið er eins og önnur mál sem valda oft miklu fjaðrafoki tíma­bundið en er í raun­inni hvorki fugl né fiskur og var alls ekki til­efni þeirrar geðs­hrær­ingar sem sumir leyfðu að ná tökum á sér.“

Sigríður segir að sér finn­ist þess vegna ágæt­lega hafa tek­ist til í þess­ari rík­is­sjórn við að reyna að láta hlut­ina ganga. „Ég held að flokk­arnir hafi verið heilir í því svo sem að reyna að láta þetta ganga. Auðvitað eru mönnum mis­lagðar hendur í því eins og gengur og ger­ist en það er alveg ljóst og örugg­lega finnst þing­mönnum allra flokk­anna þeirra flokkur ekki hafa fengið mikið fyrir sinn snúð. Það er alltaf þannig í stjórn­ar­sam­starfi en þetta hefur gengið svona þokka­lega.

Við stöndum núna hins vegar frammi fyrir þessum aðstæðum út af Covid-19 þar sem hlut­irnir breyt­ast mjög hratt og þarf í fram­hald­inu kannski svo­lítið aðrar áherslur heldur en bara það að hér starfi rík­is­stjórn ein­hvers konar stöð­ug­leika. Núna þurfa stjórn­mála­menn aðeins að taka á sig rögg, stinga út hausnum í umræð­unni og lýsa skoðun sinni á því hvernig menn ætla að koma sér út úr þessu ástandi sem er að skaða okkur öll dag frá degi.“

Sigríður segir að það þurfi ekki að koma neinum á óvart að hún sé auð­vitað í grund­vall­ar­at­riðum ósam­mála stefnu VG. „Innan VG eins og í öllum öðrum flokkum finnst ágætis fólk sem ágætt er að starfa með.“

Hún er spurð hverjir ættu að vinna saman ef hún réði stjórn­ar­mynstri. Hún segir að það yrðu flokkar sem næðu að koma sér saman um fram­fara- og umbóta­skref á Íslandi. „Það þarf að byggja upp atvinnu­lífið á ný og gefa fyr­ir­tækjum í öllum greinum svig­rúm til að koma sér upp á fæt­urna aftur og í fullan rekstur. Það blasir við að við þurfum að koma ferða­þjón­ust­unni upp sem fyrst ef það á að vera hér ein­hver efna­hags­bati í aug­sýn. Ég myndi segja að þeir flokkar sem ættu að stýra land­inu næstu fjögur til átta árin séu þeir sem gætu sam­mælst um að gera þetta fljótt og örugg­lega og átta sig á að hvorki skatta­hækk­anir né flóknar reglur eru inn­legg í umræð­una næstu árin.“

„Menn nota allt sem hægt er til að að koma höggi á póli­tíska and­stæð­inga og það þarf ekk­ert að koma neinum á óvart sem er í póli­tík. Og ef menn geta ekki staðið í því þá eiga menn ekki að vera í póli­tík.“

Sigríður seg­ist eiga gott sam­starf við alla þing­menn. „Ég er for­maður í utan­rík­is­mála­nefnd og þar sitja þing­menn úr öllum flokkum og ég á gott sam­starf við þá. Þingmenn eru jafn­ó­líkir og þeir eru margir. Mér finnst kannski vanta meira fyr­ir­vara­lausa umræðu á þingi um þau mál sem eru til umræðu eða þjóð­mál og póli­tík­ina almennt. Menn koma í þing­sal með ræður á blaði sem þeir lesa upp en það vantar að menn kasti bolt­anum á milli sín; kannski finnst sumum þing­mönnum ekki vera nógu gaman á þingi. Kannski finna þeir sig ekki í því að vera að lýsa yfir mál­efna­legum ágrein­ingi við næsta þing­mann. En það er einmitt hlut­verk þing­manna að gera það – að opin­bera að minnsta kosti skoð­anir sínar og ræða við þing­menn af kurt­eisi og yfir­vegun og auð­vitað með mál­efna­legum hætti við þá þing­menn sem eru ekki sömu skoð­unar og velta upp mál­unum. Mér finnst skorta þetta í þing­inu.“

Sigríður hyggst gefa kost á sér fyrir næstu kosn­ingar að ári. Hún seg­ist ekki vita hvort það verði próf­kjör innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins en seg­ist munu sækj­ast eftir því að vera í fram­varð­ar­sveit Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík eins og hún hefur verið.

„Ég hef ennþá áhuga á að starfa á þessum vett­vangi enn sem komið er þótt tæki­færin séu auð­vitað mýmörg utan þings­ins. Ég tala nú ekki um í þessu árferði sem nú blasir við þar sem það verður auð­vitað mjög spenn­andi fyrir marga að taka þátt í upp­bygg­ing­unni sem fram undan er. Ég hef hins vegar tekið ákvörðun um að reyna að standa að baki öllu því athafna­fólki sem ætlar að henda sér í það verk­efni og standa vörð um frelsi þess og efna­hags­líf sem getur borið það vel­ferð­ar­kerfi sem við viljum hafa hér á Íslandi. Þeirri öfl­ugu heil­brigð­is­þjón­ustu sem við höfum haft verður til dæmis ekki haldið öðru­vísi við en að það verði öfl­ugt atvinnu­líf hér og efna­hags­bati. Hann verður að vera hraður og öruggur á næstu mán­uðum. Það er alveg ljóst.“

Með ólíkindum

Banda­ríkja­menn kusu sér nýlega nýjan for­seta og er Sigríður spurð út í til­von­andi for­seta.

„Þetta var mjög áhuga­vert. Manni finnst vera með ólík­indum að þessir tveir kandídatar hafi verið þeir sem á end­anum slóg­ust um emb­ættið. Maður fylgd­ist auð­vitað gátt­aður með kosn­inga­bar­átt­unni, umræð­unni og ekki síður umræðu fjöl­miðla um kosn­inga­bar­átt­una. Ég held að það hafi nú lítil áhrif á okkur Íslend­inga hvor þeirra hefði endað í þessu húsi.

Biden er aug­ljós­lega eitt­hvað heilsu­veill en er auð­vitað hok­inn af reynslu. Það deilir eng­inn um það. Hann verður ekk­ert til skammar sem for­seti þótt ég sé ósam­mála honum í meg­in­dráttum í stjórn­málum. Hann boðar alveg gríð­ar­lega aukn­ingu rík­is­út­gjalda, eitt­hvað sem eng­inn hefur séð áður og menn draga í efa að sé mögu­leg nema nátt­úr­lega að keyra allt ein­hvern veg­inn í kaf. Þannig að ég held að banda­rískir skatt­greið­endur þurfi að hafa áhyggjur og sér­stak­lega þeir sem verr eru staddir ef þetta leiðir til ein­hvers konar áfram­hald­andi frosts í atvinnu­lífi. Þrátt fyrir þetta held ég að Biden sé með þannig ráð­gjafa að ég held að hann geti stýrt þessu ágæta landi.“

Kamala Harris verður vara­for­seti, fyrst kvenna í Banda­ríkj­unum. „Hún á áhuga­verðan feril að baki sem dóms­mála­ráð­herra og sak­sókn­ari í Kali­forníu; menn hafa nefnt að hún hafi rekið þar harða refs­is­efnu. Það er kannski í stíl við stefnu sem John Biden hafði á árum áður þegar hann meðal ann­ars studdi og kom í gegn á sínum tíma mjög hertri refsi­lög­gjöf í Banda­ríkj­unum. Þeir sem minna mega sín mega sín oft lít­ils í rétt­ar­salnum þegar kemur að saka­málum. Mér finnst það vera ljóður á rétt­ar­fari Banda­ríkj­anna.“

Biden þykir vera tals­maður alþjóða­sam­starfs innan alþjóða­stofn­ana. „Eitt get ég full­yrt en það er að John Biden og Kamala Harris munu ef í harð­bakk­ann slær taka sömu afstöðu og Donald Trump tók sem er sú að koma Banda­ríkj­unum alltaf í 1. sæti. Þannig að ef það verður eitt­hvað reipi­tog í alþjóð­legum sam­skiptum, innan alþjóða­stofn­ana eða utan, þá munu þau að sjálf­sögðu ekki láta Banda­ríkin lúta í lægra haldi þar.“

Á fjöllum

Sigríður seg­ist ekki eiga mörg áhuga­mál en að þau séu aðal­lega póli­tíkin og þjóða­málin, hlusta á tón­list og vera með fjöl­skyld­unni.

Hún gengur í og úr vinnu, hleypur stundum, lyftir lóðum og fer af og til á fjöll. Hún segir að sér finn­ist til dæmis vera gaman að fara í eina langa göngu­ferð á hverju sumri en slíkt var þó ekki þetta sum­arið. Hún byrj­aði á fjall­göngum þegar hún vann á lög­manns­stofu á sínum tíma en þá fóru vinnu­fé­lag­arnir saman í göngu almennt í hverri viku. „Við fórum til dæmis á Eyja­fjalla­jökul og Fimm­vörðu­háls. Það var ómet­an­legt að hafa farið og ég mæli með að fólk fari í eina svona góða göngu ef það getur einu sinni á ævinni. Ég held að það sé nauð­syn­legt fyrir alla sem geta að fara að minnsta kosti í göngu­ferðir innan borg­ar­markanna og ganga á hverjum degi.“

Ganga – hvort sem það er inn­an­bæjar eða á fjöllum – er góð fyrir lík­ama og sál og er án efa góð fyrir þing­mann­inn sem vinnur krefj­andi starf og þarf oft að hlusta á óvægar raddir í þing­sal og á kommenta­kerfum.

„Ég held ég hafi róast með árunum; ég veit ekki hvort fjöl­skyldu­með­limir og vinir eru sam­mála því. Svo ég nefni nú ekki þing­flokk­inn. Ég á þó við að það er fátt sem kemur mér á óvart í dag. Ég er ekki hneyksl­un­ar­gjörn og fátt sem kemur mér úr jafn­vægi þótt ég hafi sterkar skoð­anir á sumum hlutum. Það herðir mann auð­vitað að vera í póli­tík. Ætli ég myndi ekki segja að það hafi komið mér á óvart hvað maður róast við hvert ruglið sem maður verður vitni að í stjórn­mál­unum; með hverju nýju rugl­inu herð­ist maður og slakar því meira á.“

Texti: Svava Jóns­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð