Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sigurður í lífshættu með blóðeitrun í fangelsinu: „Þeir hefðu getað drepið hann“

Sigurður í lífshættu með blóðeitrun í fangelsinu: „Þeir hefðu getað drepið hann“
Mynd / Skjáskot RÚV.

Systir Sigurðar Krist­ins­sonar segir að fanga­verðir í fang­els­inu á Hólms­heiði hafi verið hárs­breidd frá því að bana bróður sínum, sem liggur þungt hald­inn á sjúkra­húsi. Hún er ofboðs­lega reið út í stjórn fang­els­is­mála sem hún segir að sýni hvorki auð­mýkt né vott af því að þau beri ábyrgð á mönnum sem hafa verið frels­is­sviptir.

Sigurður var dæmdur til þriggja ára fang­els­is­vistar í Skák­sam­bands­mál­inu svo­kall­aða, þegar gerð var til­raun til inn­flutn­ings á fimm kílóum af amfetamíni frá Spáni árið 2017, og afplán­aði hann nú dóm­inn í fang­els­inu á Hólms­heiði. Þar veikt­ist hann illa fyrir viku síðan af blóð­eitrun og full­yrðir systir hans að honum hafi verið marg­neitað um lækn­is­að­stoð. Aðspurð segir hún að Sigurður sé nýkom­inn úr önd­ur­vél­inni og vonir standa til að hann nái sér með tím­anum. Litli bróðir hennar kemur lík­lega til með að vera margar vikur inniliggj­andi í bata­ferli enda náði sýk­ingin bæði í lungu Sigurðar og hjarta.

Sigurður fékk blóð­eitrun í fang­els­ins og telja læknar hann hafa verið hárs­breidd frá dauð­anum.

„Við erum alveg ofboðs­lega reið. Batinn verður rosa­lega hægur því hann var orð­inn svo ofboðs­lega veikur og ekki var haft sam­band við lækni þrátt fyrir að hann marg­bað um það því hann vissi að vel að hann væri alvar­lega veikur. En þeir neit­uðu ítrekað að hringja á lækni eða sjúkra­bíl. Hann var bara á loka­metr­unum þegar sjúkra­bíll­inn kom. Þeir hefðu getað drepið hann,“ segir systirin.

Að sögn syst­ur­innar þrá­bað Sigurður fanga­verði um aðstoð en hjálp­ar­beiðnum hans var ítrekað hafnað. Hann lá fár­veikur í klefa sínum í tvo daga og var fluttur nærri dauða en lífi á sjúkra­hús. Systirin bætir því við að Sigurður bróðir sinn hafi legið inni á spít­ala í rúman sól­ar­hring áður en fjöl­skylda hans var látin vita. „Við skyldum ekk­ert í þessu hvers vegna við heyrðum ekk­ert í honum. Við höfðum ekki hug­mynd um að hann lægi í líf­hættu á gjör­gæslu. Þegar við kvört­uðum yfir því fengum við þau svör að þeim bæri ekki að til­kynna okkur þetta, það væri ekki í þeirra verka­hring. Fyrir okkur fjöl­skyld­una er það hræði­legt að hann hefði getað dáið á spít­al­anum án þess að við vissum nokkuð af því,“ segir systirin í sam­tali við Mannlíf.

Eðlilega var systirin log­andi hrædd um líf bróður síns. Hún er reið Páli Winkel fang­els­is­mála­stjóra og biður hann um að hætta öllu yfir­klóri. „Þetta er búið að vera algjör hryll­ingur og hann búinn að vera berj­ast fyrir lífi sínu. Af hverju voru þeir svona vondir við hann? Lækn­arnir hafa ekki viljað segja of mikið en segja hann vera alveg ofboðs­lega sterkan. Núna tekur bara við langt bata­ferli. Svör Páls í þá veru að allir fangar fái hjálp, er nið­ur­lægj­andi fyrir bæði bróður minn og alla fjöl­skyld­una. Að svara svona finnst mér ansi kalt, þessi fangi fékk ekki hjálp og ég er mjög reið yfir því að menn ætli að reyna firra sig ábyrgð í stað þess að sýna auð­mýkt og vinna með fjöl­skyld­unni. Við erum ekk­ert að biðja um meira,“ segir systir Sigurðar.

Systirin sendi bróður sínum bar­áttu­kveðju á Facebook. „Þessi elska kall­ast nú litli bróðir minn en frá því hann var pínu­lít­ill gutti hefur hann meira litið á sig sem stóra bróður. Hann hefur alltaf passað vel upp á systur sína og tekið því hlut­verki alvar­lega og með ein­stakri umhyggju. Í þetta skiptið er komið að stóru systir að sína þér styrk og halda í hend­ina þína og það ætla ég sko að gera alla leið. Ég elska þig enda­laust og veit að þú kemst í gegnum þessi veik­indi því þú ert sterkasta mann­eskja sem ég veit um og eins og lækn­arnir segja lýsir þér best „þessi strákur er gerður úr ein­hverju allt öðru en við hin.“ Það voru nú ekki neinar fréttir fyrir okkur elsku hjartað mitt og þess vegna veit ég að þú sigrar,“ segir systirin og bætir við:

„Á meðan ætla ég að vera sterk stóra systir og halda í hönd­ina þína og við leið­umst saman í gegnum þetta. Eins og þú segir sjálfur þá er fullt af brekkum í líf­inu og þá þurfum við að vera sterk og réttum bara úr okkur og göngum þær og þá komumst við á topp­inn. Elska þig elsku hjartað mitt þín stóra systir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ