Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífsviðtalið: Út fyrir þægindarammann

Mannlífsviðtalið: Út fyrir þægindarammann

Björg Thoraren­sen situr á skrif­stofu sinni í Lögbergi á lóð Háskóla Íslands sem hefur verið vinnu­staður hennar í tæp 19 ár. Bækur tengdar lög­fræði fylla hill­urnar.

„Það gengur mikið á þessa dag­ana og margt sem þarf að ljúka því ég er að skipta um starf með mjög stuttum fyr­ir­vara.“

Björg og sam­starfs­maður hennar við Háskóla Íslands, Ása Ólafs­dóttir, munu yfir­gefa háskól­ann á sama tíma og verða dóm­arar við Hæsta­rétt Íslands.

Björg talar um nýja emb­ættið sem hún sótti um og fékk. „Ég er búin að starfa lengi við laga­deild­ina og hef þar fengið tæki­færi til að rann­saka og kenna mín áhuga­svið í lög­fræð­inni og bæta stöðugt við mig þekk­ingu. Það er í sjálfu sér mjög þægi­legt líf að vera í sínu drauma­starfi þar sem mörkin á milli áhuga­máls og vinnu eru stundum óljós. Líklega þurfti ég að fá aftur þennan fiðr­ing í mag­ann sem fylgir því að takast á við eitt­hvað óþekkt og krefj­andi. Ég hef unnið í gríð­ar­lega skemmti­legum verk­efnum þar sem maður er þó oft­ast á heima­velli. Þegar tæki­færið kom spratt upp löngun til að gera eitt­hvað ögrandi og nýtt sem ég þarf að til­einka mér og hafa mikið fyrir. Þegar ljóst var að tvær stöður við Hæsta­rétt voru að losna fannst mér til­valið að láta á það reyna og kannski um leið að fara út fyrir þæg­ind­ara­mmann þótt mér finn­ist á sama tíma vera dálítið trega­blandið að yfir­gefa minn góða vinnu­stað í Háskóla Íslands og frá­bært sam­starfs­fólk mitt þar.“

Björg kynnt­ist dóm­ara­starf­inu þegar hún var settur dóm­ari við Lands­rétt fyrri hluta þessa árs. „Mér fannst starfið eiga vel við mig. Í fræði­störfum velur maður sér rann­sókn­ar­spurn­ingu og leitar oft­ast að svörum á breiðum grund­velli og frá mörgum hliðum meðal ann­ars með rann­sókn á dómum. Í dóm­ara­starf­inu fór ég úr fræð­unum inn í fram­kvæmd lag­anna og þar nýtti ég þekk­ingu mína og kunn­áttu í lög­fræði alveg á nýjan hátt. Verk­efnið er að leysa úr því sem að höndum ber, finna kjarna hvers máls og þær rétt­ar­reglur sem þarf að beita til að kom­ast að lög­fræði­lega réttu nið­ur­stöð­unni þótt maður sé ekki sér­fróður um þau efni sem eru til umfjöll­unar í hverju máli. Alltaf tekur nýtt mál við af öðru, ger­ó­líkt því fyrra með nýjum spurn­ingum og nýjum heila­brotum, og stundum eru álitefnin alveg heill­andi snúin.

„En von­andi kemur að gagni þekk­ing mín á stjórn­skip­un­ar­rétti því stundum þarf rétt­ur­inn að takast á við grund­vall­ar­spurn­ingar um túlkun stjórn­ar­skrár­innar, ekki síst mann­rétt­inda­á­kvæði hennar og skapa for­dæmi um beit­ingu þeirra.“

Hæsti­réttur hefur breyst. „Nú er þar ekki lengur gríð­ar­legt vinnu­á­lag þar sem þurfti að klára hund­ruð mála og dóma á hverju ári. Búið er að breyta skipu­lag­inu þar sem Lands­réttur tók við hlut­verki Hæsta­réttar sem áfrýj­un­ar­dóm­stóll og þar er mesti erill­inn og mála­fjöld­inn. Hæsti­réttur tekur nú fyrst og fremst við völdum, for­dæm­is­gef­andi málum sem þarf að leysa úr og þurfa að fá sér­stak­lega vand­aða skoðun. Dómarar við Hæsta­rétt hafa nú meiri tíma en áður fyrr að fara vel ofan í hvert mál og liggja yfir ítar­legum, lög­fræði­legum rök­semda­færslum. Ég vona að þekk­ing mín og reynsla geti nýst þar en ég þarf auð­vitað að læra fjöl­margt nýtt því við­fan­gefni rétt­ar­ins eru mjög fjöl­breytt. En von­andi kemur að gagni þekk­ing mín á stjórn­skip­un­ar­rétti því stundum þarf rétt­ur­inn að takast á við grund­vall­ar­spurn­ingar um túlkun stjórn­ar­skrár­innar, ekki síst mann­rétt­inda­á­kvæði hennar og skapa for­dæmi um beit­ingu þeirra. Ég hlakka líka til að taka þátt í að móta þetta nýja og breytta hlut­verk Hæsta­réttar til fram­tíðar með þeim afburða lög­fræð­ingum sem þar eru fyrir. Á aðeins rúmu ári hefur orðið mikil end­ur­nýjun þar sem fjórir af sjö dóm­urum hafa verið skip­aðir á þeim tíma. Og nú er hlut­fall karla og kvenna í dóm­ara­hópnum orðið nær jafnt – þrjár konur og fjórir karlar – sem eru afskap­lega gleði­leg tíma­mót og reyndar löngu tíma­bært í 100 ára sögu Hæsta­réttar. Það styrkir veru­lega ásýnd rétt­ar­ins og hefur líka hlotið mjög jákvæð við­brögð í sam­fé­lags­um­ræðu síð­ustu daga.“

Kolbeinn kafteinn

Björg fædd­ist árið 1966 og er dóttir hjón­anna Sig­ur­laugar Bjarna­dóttur, fyrr­ver­andi alþing­is­manns, og Þor­steins Thoraren­sen bóka­út­gef­anda sem er lát­inn. Hún er yngst þriggja systk­ina og ólst upp í Lang­holts­hverfi og var á æsku­ár­unum í sveit á sumrin hjá ætt­ingjum í Vigur í Ísa­fjarð­ar­djúpi.

„Mamma, sem ólst upp í Vigur, lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum á Akureyri á fimmta ára­tugnum sem var ekk­ert svo algengt á meðal kvenna á þeim tíma. Hún var mik­ill náms­maður, dúxaði og fékk skóla­styrk til að fara til útlanda til náms. Hún fór til Leeds í Englandi og lauk þar háskóla­prófi í ensku og frönsku og lærði síðan meiri frönsku við Sorbonne í París. Hún flutti aftur til Íslands upp úr 1950 og fór að vinna sem blaða­maður á Morg­un­blað­inu og þar kynnt­ist hún pabba sem var þar líka blaða­maður.“ Sig­ur­laug starf­aði síðar sem fram­halds­skóla­kenn­ari og var borg­ar­full­trúi og hún var svo kosin á þing árið 1974 þar sem hún sat í nokkur ár. Hún er nú rúm­lega níræð.

Faðir Bjargar, Þor­steinn, var lög­fræð­ingur að mennt en starf­aði aldrei við fagið. Hann valdi blaða­mennsk­una sem lífs­starf sem og bóka­út­gáfu en hann rak bóka­út­gáf­una Fjölva í áraraðir. Hann vann hjá Morg­un­blað­inu frá 1947-1961, hann varð síðar frétta­stjóri við dag­blaðið Vísi í fimm ár og hann var frétta­rit­ari Reuters frétta­stof­unnar frá 1951-1986. Hann stofn­aði síðan bóka­út­gáf­una Fjölva árið 1966.

Tinna-bæk­urnar voru á meðal þess sem Fjölvi gaf út sem og bæk­urnar um Ástrík og Lukku-Láka auk þess sem Þor­steinn samdi sagn­fræði­bækur, þar á meðal um sjálf­stæð­is­bar­átt­una og stjórn­mála­á­tök á Íslandi í kringum alda­mótin 1900. Hann þýddi og gaf út fjöl­margar bækur um lista­sögu, mann­kyns­sögu og nátt­úru­fræði auk Hringa­drótt­ins­sögu og Hobbit­ann og fleiri verk Tolkiens á íslensku.

Björg segir að það hafi verið spenn­andi að alast upp í heimi teikni­sögu­bókanna frá sex til sjö ára aldri sem var alger nýj­ung á þeim tíma hér á landi og hún hafi verið alveg heilluð af þeim. Hún segir að Kolbeinn kaftein sé upp­á­halds­per­sóna sín í Tinna-bók­unum. „Maður skildi þó ekki almenni­lega þessi drykkju­vanda­mál hans; þau voru svo­lítið áber­andi í bók­unum. Ég hafði sem betur fer ekki alveg inn­sýn í um hvað það sner­ist að vera sífullur og breyt­ast svona ógur­lega. Það var svo­lítið sér­stakt hvað þessi löngun Kolbeins kafteins í viskí var afger­andi í gegnum allar bæk­urnar svo ekki sé nú minnst á öll blóts­yrðin.“

Björg las bækur á æsku- og ung­lings­ár­unum og svo seg­ist hún hafa verið mik­ill skíða­fík­ill. „Ég fór oft og tíðum gjarnan ein á skíði í Blá­fjöllum á ung­lings­ár­unum og tók þá rút­una. Svo æfði ég bad­minton í smá­tíma. Annars var ég engin sér­sök íþrótta­mann­eskja. Aðal­at­riðið var að eiga fullt af góðum vinum og var alltaf að gera eitt­hvað með þeim.“

Ást í dómsmálaráðuneytinu

Björg lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum í Reykja­vík árið 1985. Hún var óráðin hvað tæki næst við svo hún flutti til Kaup­manna­hafnar þar sem hún bjó í einn vetur og vann ýmiss konar störf. Sumrin 1985 og 1986 vann hún sem blaða­maður í inn­lendum fréttum á dag­blað­inu NT og DV. „Þá átt­aði ég mig á því að lög­fræðin gæti verið eitt­hvað fyrir mig. Mér fannst ég stöðugt þurfa að leita svara við lög­fræði­legum spurn­ingum hvort heldur í fréttaum­fjöllun um dóms­mál eða glæpi en ekki síður til að skilja stjórn­kerfið og póli­tík­ina, störf Alþingis og rík­is­stjórn­ar­innar sem er við­fangs­efni frétt­anna á hverjum degi.“

Úr varð að hún hóf nám í lög­fræði við Háskóla Íslands haustið 1986 en sam­hliða námi og á sumrin var hún frétta­maður á frétta­stofu RÚV. „Mér fannst frétta­mann­starfið vera stór­skemmti­legt og var farin að horfa til þess að laga­prófið yrði góður grunnur fyrir fram­tíð­ar­starf á því sviði.“ Þær áætl­anir Bjargar breytt­ust því henni bauðst starf í dóms­mála­ráðu­neyt­inu eftir útskrift úr laga­deild vorið 1991 þar sem hún vann í eitt ár en haustið 1992 hóf hún meist­ara­nám við Edin­borg­ar­há­skóla. Þar lauk hún prófi 1993 í stjórn­skip­un­ar­rétti, alþjóð­legum mann­rétt­indum og stjórn­skipu­lagi Evr­ópu­sam­bands­ins.

Í störfum sínum í dóms­mála­ráðu­neyt­inu vann Björg meðal ann­ars með Markúsi Sig­ur­björns­son, lög­fræð­ingi og pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands. „Ég kann­að­ist við Markús þar sem hann var pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands og kenn­ari minn í ýmsum spenn­andi fögum eins og erfða­rétti og dán­ar­bús­skiptum. En sér­svið hans var rétt­ar­far þar sem eng­inn stóð honum á sporði og var hann feng­inn til þess að semja fjöl­mörg laga­frum­vörp á því sviði fyrir dóms­mála­ráðu­neytið í tengslum við und­ir­bún­ing að nýrri dóm­stóla­skipan á Íslandi sem tók gildi 1. júlí 1992. Eftir að við höfðum unnið saman í ár og verk­efn­inu var að ljúka varð okkur ljóst að við myndum verða eitt­hvað lengur saman. Við giftum okkur árið 1994 og eigum saman þrjú upp­komin börn. Dóttir okkar, Ingunn Elísabet, er 26 ára. Hún er nýorðin móðir og útskrif­að­ist með meist­ara­próf í lög­fræði frá Háskóla Íslands síð­asta vor. Svo eigum við tví­bura­syn­ina Sig­ur­björn og Þorstein sem eru 23 ára. Sig­ur­björn lærir líf­efna­fræði í Noregi og Þor­steinn er í lækn­is­fræði við Háskóla Íslands.“

Stjúplangmamma

Markús átti fyrir dóttur, Stein­unni, frá fyrra hjóna­bandi sem er orðin amma og Björg því stjúp­langamma. Markús er 12 árum eldri en hún. „Hann var orð­inn nokkuð þrosk­aður og slíp­aður þegar ég tók við honum og sam­búðin með honum hefur verið auð­veld. Ég veit ekki hvað hann myndi segja um mig. Við höfum átt mjög gott og við­burða­ríkt líf saman. Hann er reyndar betri en ég í heim­il­is­hald­inu. Hann er algjör lista­kokkur og góður garð­yrkju­maður. Það er líf­legt í fjöl­skyld­unni okkar og við hitt­umst mikið með öllum afkom­endum sem fer bara fjölg­andi. Það er dásam­legt að fá ný börn inn í fjöl­skyld­una, næstum eins og maður hafi aldrei séð lítil börn fyrr. Við eign­uð­umst börnin okkar þrjú á innan við þremur árum og á tíma­bili þar sem var gríð­ar­mikið að gera enda vorum við bæði í mjög krefj­andi störfum á sama tíma og ég mikið á ferða­lögum og fundum erlendis. Nú er hægt að velja tím­ann til að horfa sem dáleidd á barna­barnið og njóta þess til inni­lega. Það er ein­hvern veg­inn þannig.“

Markús var um ára­bil dóm­ari við Hæsta­rétt Íslands og segir Björg að hún hafi þá aldrei leitt hug­ann að því að feta í fót­spor hans hvað það varðar.

„Hann er núna kom­inn á eft­ir­laun og er á fullu í að gera upp húsið okkar. Það er verið að breyta því, steina upp á nýtt og laga klæðn­ing­una og hann hefur ekki gert neitt annað í nokkrar vikur. Hann hefur gaman af því að vera í lík­am­legri vinnu eftir allar set­urnar í gegnum árin.“

Fálkaorðan

Áhugi Bjargar innan lög­fræð­innar beind­ist snemma að stjórn­skipun og stjórn­ar­skránni. Það sama má segja um mann­rétt­indi og eins og þegar hefur komið fram lauk hún meist­ara­prófi í lögum frá Edin­borg­ar­há­skóla árið 1993 meðal annar í stjórn­skip­un­ar­rétti og alþjóð­legum mann­rétt­indum.

„Þær laga­breyt­ingar sem ég vann við í dóms­mála­ráðu­neyt­inu áður en ég hélt til Edin­borgar tengd­ust ákvörðun Mann­rétt­inda­nefndar og Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Strass­borg frá 1990. Þar var íslenska ríkið talið hafa brotið gegn ákvæðum Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu um rétt manns til máls­með­ferðar fyrir sjálf­stæðum og óhlut­drægum dóm­stól vegna þess að þá fóru sömu emb­ætt­is­menn­irnir með dóms­vald og lög­reglu­vald eða nánar til­tekið sýslu­menn og bæj­ar­fó­getar utan Reykja­víkur. Þetta voru leifar frá gam­alli tíð í skipu­lag­inu sem hafði varað um aldir þangað til ein­stak­lingur kærði íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­nefndar Evrópu sem taldi að þetta stæð­ist ekki þær kröfur sem þyrfti að gera til sjálf­stæðra dóm­stóla. Það þurfti því að end­ur­skipu­leggja dóm­stóla­kerfið frá grunni og flytja dóms­valdið frá sýslu­mönnum og bæj­ar­fó­getum úti á landi til nýrra hér­aðs­dóm­stóla. Einnig þurfti að breyta fjöl­mörgum lögum þar á meðal með­ferð mála fyrir dóm­stólum og setja nýja laga­bálka á öllum sviðum rétt­ar­fars. Ég vann við þetta verk­efni með nefnd sem dóms­mála­ráð­herra hafði skipað til að und­ir­búa gild­is­töku nýrrar lög­gjafar um aðskilnað dóms­valds og umboðs­valds í hér­aði sem tók gildi 1. júlí 1992. Samhliða þessu verk­efni vakn­aði áhugi minn á Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu sem á þessum tíma var ekki sér­lega þekktur hér á landi þótt Ísland hefði verið aðili að honum í næstum 40 ár. En þetta var í fyrsta skipti sem Ísland var talið vera brot­legt gegn ákvæðum hans og vakti reyndar menn til umhugs­unar um margt annað sem mætti fara betur í vernd mann­rétt­inda hér á landi.“

Kennslan gefandi

Haustið 1993 var Björg í starfs­námi hjá Mann­rétt­inda­nefnd Evrópu en hóf svo aftur störf í dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Hún varð fljót­lega skrif­stofu­stjóri yfir stærstu skrif­stofu ráðu­neyt­is­ins, lög­gæslu- og dóms­mála­skrif­stofu, með afar umfangs­mikil verk­efni þar á meðal mál­efni lög­reglu- og sýslu­manns­emb­ætta, dóm­stóla og ákæru­valds og útlend­inga­mála. „Þetta var krefj­andi starf en sam­hliða því fór ég að kenna mann­rétt­indi sem stunda­kenn­ari við Háskóla Íslands og síðan færð­ist það yfir í stjórn­skip­un­ar­rétt og stjórn­ar­skrána. Ég ákvað að söðla um þegar ég var búin að starfa í ráðu­neyt­inu alveg fram til árs­ins 2002 og sækja um fullt starf í háskól­anum við kennslu og rann­sóknir. Ég kom til starfa í laga­deild Háskóla Íslands í mars 2002 og þar hef ég átt ein­stak­lega ánægju­legan tíma þar sem ég hef notið fram­úr­skar­andi starfs­að­stæðna og mögu­leika á að þróa áfram áhuga á rann­sókn­ar­sviðum mínum. Ég hef notið sjálf­stæðis til að velja mín verk­efni og fulls trausts til þess. Ekki síður hef ég haft óskorað sjálf­stæði til að tjá mig um þau mál­efni sem tengj­ast rann­sókn­ar­sviðum mínum. Þetta skiptir máli þegar leitað er til okkar háskóla­fólks um álit eða skýr­ingu á mál­efnum sem hafa þýð­ingu fyrir sam­fé­lagið. Það finnst mér vera gíf­ur­lega dýr­mætt og ég hef talið skipta máli að leggja þannig eitt­hvað af mörkum til sam­fé­lag­ins. Það vant­aði til að mynda mikið rann­sóknir á íslensku stjórn­ar­skránni þegar ég hóf störf við háskól­ann og hefur mér tek­ist að gefa út helstu grund­vall­ar­rit um hana. Svo hef ég verið að kenna fög eins og stjórn­skip­un­ar­rétt, evr­ópsk mann­rétt­indi, þjóða­rétt og per­sónu­vernd­ar­rétt upp á síðkastið. Ég hef notið kennsl­unnar mjög og sam­skipta við nem­endur.“

Björg var í árs­byrjun 2019 sæmd heið­urs­merki hinnar íslensku fálka­orðu fyrir kennslu og rann­sóknir á sviði lög­fræði. „Mér fannst það auð­vitað vera sannur heiður og við­ur­kenn­ing á því að maður hafi látið eitt­hvað gott af sér leiða. Ég varð frekar undr­andi þegar mér var til­kynnt að þetta stæði til, kannski af því að mér finnst ég vera svo ung sem er auð­vitað mis­skiln­ingur ef maður skoðar fæð­ing­ar­árið. En þá rennur upp fyrir manni hvað ég er búin að vinna lengi í þessum bransa.“

Breytingar á stjórnarskránni

„Stjórn­ar­skráin okkar frá 1944 hvílir í grunn­inn á mjög gömlum merg sem má rekja aftur til dönsku stjórn­ar­skrár­innar frá 19. öld frá því Ísland var undir danskri stjórn. Henni hefur þó verið breytt á síð­ustu ára­tugum í mörgum mik­il­vægum atriðum. En það er enn margt sem ég tel að mætti laga og færa til betri vegar. Eftir banka­hrunið árið 2008 kom upp nokkuð útbreiddur þjóð­ar­vilji að því er virt­ist til þess að Íslend­ingar settu sér nýja stjórn­ar­skrá frá grunni, enda víst að gild­andi stjórn­ar­skrá er frekar torskilin þeim sem vilja kynna sér hvernig meg­in­stofn­anir stjórn­skip­un­ar­innar starfa, en stjórn­mála­mönnum hefur ekki tek­ist að ljúka heild­ar­end­ur­skoðun hennar. Sérstakt Stjórn­laga­þing, sem var kosið 2010, sem síðar varð Stjórn­laga­ráð, fékk það verk­efni að semja til­lögu að nýrri stjórn­ar­skrá á nokkrum mán­uðum fyrri hluta árs­ins 2011. Í ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu haustið 2012 voru kjós­endur spurðir hvort þeir vildu að þessar til­lögur yrðu not­aðar sem grunnur að frum­varpi til stjórn­ar­skrár. Á grund­velli þeirra var lagt fram frum­varp á Alþingi 2012, enda verður Alþingi að sam­þykkja breyt­ingar á stjórn­ar­skrá eftir gild­andi reglum. Eins og við var að búast voru mjög skiptar skoð­anir um það hversu góðar þessar til­lögur voru eða hvort breyt­ing­arnar væru til bóta. Tíminn var afar stuttur til að fara yfir þetta umfangs­mikla frum­varp og það varð ekki afgreitt.

Á þessu kjör­tíma­bili hafa for­menn stjórn­mála­flokk­anna unnið að breyt­ingum á afmörk­uðum þáttum stjórn­ar­skrár­innar og mun for­sæt­is­ráð­herra leggja á næst­unni fram fimm frum­vörp sem taka á nokkrum mik­il­vægum atriðum sem mik­ill vilji hefur verið fyrir að koma inn í stjórn­ar­skrána. Þetta eru meðal ann­ars ákvæði um nýt­ingu nátt­úru­auð­lind­anna, umhverf­is­mál, svo er gerð til­laga um nýjan kafla um rík­is­stjórn og ráð­herra og for­seta Íslands og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur.

Þetta er staðan núna. Þessi frum­vörp byggja ekki nákvæm­lega á til­lögum stjórn­laga­ráðs en segja má að þær til­lögur hafi verið rót­tæk­ari í mörgu til­liti. En ég tel að það sé í grunn­inn margt sam­eig­in­legt með þessum til­lögum. Það væri mik­il­vægur áfangi að ná fram þó þessum breyt­ingum sem stefnt er að og þær myndu gera stjórn­ar­skrána betri en hún er í dag.“

Heilsan er ekki sjálfgefin

Björg hefur unnið krefjandi störf í áratugi og verið hraust. Hún greindist svo með ristilkrabbamein fyrir fimm árum. „Það var auðvitað áfall sem aldrei hvarflaði að mér að lenda í. Ég fékk bestu mögulegu þjónustu í heilbrigðiskerfinu til þess að lækna þetta og fór í gegnum nokkrar meðferðir og aðgerðir. Þetta var strembið meðan á því stóð og ekki einfalt að leysa en útlit fyrir bata var þó alltaf frekar gott sem gekk svo eftir.“

Björg segir að eftir á að hyggja hafi þessi lífs­reynsla mótað hana nokkuð auk þess að dýpka skiln­ing á aðstæðum svo fjöl­margra sem eru í þess­ari aðstöðu. „Ég hef hugsað um hvað ég hef lært eða grætt á því að hafa lent í þessum óheyri­legu leið­indum en þetta var vissu­lega for­vitni­leg reynsla. Og svo hef ég lært heil­mikið um krabba­mein sem ég ekki vissi. Þetta voru aldrei það alvar­leg veik­indi að ég yrði lengi óvinnu­fær og reyndar hjálp­aði vinnan mér sann­ar­lega til að dreifa hug­anum því manni hættir til að verða alveg hel­tekin af hugs­unum um þá lífsógn sem krabba­mein er.“

Fimm ár eru liðin og Björg segir að ekk­ert bendi til ann­ars en að hún sé læknuð að fullu. „Ég lít á þetta sem áfall sem hafði þó góðan endi og það hefur orðið frekar til þess að styrkja mig bæði lík­am­lega og and­lega. Ég lærði líka að taka því ekki sem gefnu að vera við góða heilsu og rækta heils­una betur en áður.“

Fjallgöngur

Áhugamál Bjargar áður fyrr voru skíði en nú eru það fjall­göngur, hjól­reiðar og hvers kyns úti­vist. „Ég er alger­lega háð því að kom­ast á fjall að lág­marki einu sinni og helst tvisvar í viku. Ég hef farið marg­sinnis á flest fjöll og fell í kringum Reykja­vík á síð­ustu árum. Svo hef ég verið víða um landið í göngum. Það er ekk­ert meira end­ur­nær­andi en að kom­ast í ferskt og hressandi loftið og maður verður svo þægi­lega þreyttur eftir góða og helst krefj­andi fjall­göngu. Ég er í frá­bærum félags­skap með fólki sem hugsar eins og ég og er alltaf á fjalli. Við hitt­umst einu sinni í viku síð­degis í miðri viku allt árið og göngum á fjöll með hálku­brodda, ef þarf, og höf­uð­ljós í kol­svarta myrkri á vet­urna. Svo er best að taka eina helg­ar­göngu líka.“

Hún upp­lifir Ísland á annan hátt en ella. Hún er spurð hvað Ísland sé í huga hennar. „Náttúra lands­ins er ómet­an­leg og órjúf­an­legur partur af mér. Ég hef lært æ betur á síð­ustu árum að meta hvað hún stendur okkur líka nærri og hvað það er ein­falt að kom­ast í sam­band við hana. Þannig er hægt að kom­ast í næstum ósnortna nátt­úru svo stutt frá Reykja­vík eftir minna en hálf­tíma akstur úr bænum. Ég vil á næstu árum skoða landið mitt enn betur, þar er af nógu að taka í ókönn­uðum nátt­úruperlum.“

Svava Jóns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina