Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helgi var aðeins 14 ára: „Ég vissi ekki að foreldrar gætu elskað börnin sín jafnheitt“

Helgi var aðeins 14 ára: „Ég vissi ekki að foreldrar gætu elskað börnin sín jafnheitt“
kerti

Helgi Jóhann­es­son var nýlega orð­inn 14 ára þegar hann lést af völdum vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóms­ins Duchenne. Margir minn­ast hans í Morg­un­blað­inu í dag, þar á meðal móðir hans, fjöl­miðla­konan Marta María Jón­as­dóttir, og stjúp­faðir hans, Páll Winkel fang­els­is­mála­stjóri. Faðir Helga er Jóhannes Ingi­mund­ar­son. Sorg fjöl­skyld­unnar er mikil. Helgi var list­fengur og hafði næmt auga fyrir umhverfi sínu. Hann náinn fjöl­skyldu sinni og hans bestu stundir voru í faðmi hennar.

Marta María segir að eftir erf­iða fæð­ingu hafi verið ólýs­an­legt að fá hann í fangið. „Það að fá þig í fangið var engu líkt. Ég upp­lifði mik­inn van­mátt því ég vissi ekki að for­eldrar gætu elskað börnin sín jafn­heitt og ég elskaði þig. Frá fyrstu mín­útu ákvað ég að gefa þér allt sem ég átti til þess að þú myndir feta lífs­ins veg glaður,“ skrifar hún.

Áfallið kom þegar hann var fimm ára. „Þegar þú varst fimm ára greind­ist þú með vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn Duchenne. Það var mikið áfall fyrir okkur for­eld­rana þína og alla sem þótti vænt um þig. Við ákváðum að setja fók­us­inn á að þú myndir lifa venju­legu lífi. Duchenne var þarna með okkur og við vissum alltaf af honum, en ákváðum að láta lífið ekki snú­ast um hann. Lífið sner­ist um þig, elsku Helgi okkar,“ lýsir Marta.

Hún seg­ist þakk­lát fyrir hvern dag sem hún átti með honum. „Á stund sem þess­ari þar sem það er óhugs­andi að við eigum ein­hvern tím­ann eftir að líta glaðan dag þá græt ég af þakk­læti. Þakklæti fyrir að hafa fengið þessi 14 góðu ár þar sem þú varst kenn­ar­inn. Þú kenndir mömmu hvað skiptir mestu máli í líf­inu. Þú kenndir mömmu að það skiptir máli að eiga alltaf góðar hvers­dags­legar stundir og voru okkar bestu stundir þegar við spjöll­uðum saman fyrir svefn­inn. Þegar ég lagð­ist upp í rúm hjá þér og við ræddum um vonir og vænt­ingar,“ skrifar Marta.

Þrátt fyrir veik­indin þá fóru þau í mörg ferða­lög. „Í Par­ís­ar­ferð­inni 2019 neit­aðir þú til dæmis að taka litla hjóla­stól­inn með og þegar ég var búin að bera þig um stræti borg­ar­innar í heilan dag keyptum við barna­kerru svo við gætum haldið fjör­inu áfram. Í þínum huga var nefni­lega ekk­ert að. Þú kvart­aðir aldrei og varst harður af þér fram á síð­asta dag. Þú bann­aðir mömmu að leggja í P-stæði og minntir á að þú gætir alveg labbað. Í gegnum lífið sýndir þú hvað þú ert mikið hörku­tól.“

Marta segir að lokum að hún muni fylgja hans góðu gildum til enda­loka. „Við sem eftir sitjum með sorg í hjarta huggum okkur við góðar minn­ingar og vitum að við verðum að halda áfram. Mamma mun reyna að lifa eftir öllum góðu gild­unum sem þú kenndir henni enda varstu reglu­vörð­ur­inn í fjöl­skyld­unni. Minn­ingin um dásam­legan dreng mun lifa. Elska þig enda­laust.“

Stjúp­faðir hans, Páll Winkel, lýsir fyrstu kynnum þeirra tveggja í minn­ing­ar­orðum sínum. „Helgi tók mér með fyr­ir­vara enda setti hann hags­muni sinna nán­ustu í fyrsta for­gang og ætl­aði að tryggja að eng­inn kæmi illa fram í garð ást­vina hans. Fljót­lega tókst þó með okkur góður kunn­ings­skapur sem síðar þró­að­ist í náinn vin­skap og kær­leika. Helgi var dulur en hafði leiftr­andi skop­skyn og ein­staka hjarta­hlýju auk þess sem ekki var hægt annað en fyll­ast aðdáun á af hve mik­illi þraut­seigju hann tókst á við alvar­legan sjúk­dóm sem hann glímdi við. Öll vissum við að bar­áttan yrði erfið en skyndi­legt and­lát hans er okkur öllum óbæri­legt áfall og til­vera fjöl­skyld­unnar verður aldrei söm.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi