Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Barnastjarna og verðlaunablaðamaður hendir sér í pólitík: „Ég hef gaman af hasar“

Barnastjarna og verðlaunablaðamaður hendir sér í pólitík: „Ég hef gaman af hasar“
Þing­mað­ur­inn Jóhann Páll.

Jóhann Páll Jóhanns­son, fyrr­ver­andi blaða­maður, skráði sig í Sam­fylk­ing­una fyrr á þessu ári og sæk­ist eftir Reykja­vík­ur­þing­sæti í Alþing­is­kosn­ing­unum á næsta ári. Hann talar hér meðal ann­ars um æsk­una, leka­málið, hæl­is­leit­endur, stefnu sína, Bjarna Bene­dikts­son og hryll­ings­myndir

Jóhann Páll Jóhanns­son fædd­ist í Reykja­vík fyrir 28 árum og er sonur hjón­anna Bryn­dísar Páls­dóttur, fiðlu­leik­ara í Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands, og Jóhanns G. Jóhanns­sonar tón­skálds sem vann sem tón­list­ar­stjóri í Þjóð­leik­hús­inu um ára­bil og er þekkt­astur fyrir leik­hús­tón­list.

„Ég ólst upp í Laug­ar­ás­hverf­inu. Mamma og pabbi voru hvetj­andi og ólu mig upp við að ég gæti gert allt sem ég vildi svo lengi sem ég legði hart að mér. Pabbi þjálf­aði upp í mér að vera mjög krítískur á sjálfan mig þegar ég skrifa, að meitla hverja setn­ingu, og það var gott vega­nesti inn í blaða­mennsk­una seinna.“

Jóhann lærði á píanó í tíu ár og lang­aði að verða tón­list­ar­maður en átti alltaf erfitt með að lesa nótur. „Það hélt aftur af mér og gerði það að verkum að mér fannst þetta vera hálf­leið­in­legt. En mér fannst gaman að spila eftir eyr­anu og semja. Ég ætl­aði reyndar alltaf að verða tón­list­ar­maður, sá fyrir mér til dæmis að semja óperur; ég var svo hrif­inn af Wagner.“ Jóhann tal­setti líka teikni­myndir sem barn; Depill í London, Brói í Kalla á þak­inu, Pinni í Otra­börn­unum sem dans­aði Núðlu­dans­inn og svona mætti lengi telja.

Þegar hann var 12 ára samdi Jóhann lagið „Hvar er Guð­mundur?“ sem sló í gegn á ver­ald­ar­vefnum og í útvarpi. Í kjöl­farið kom hann fram á tón­leikum og söng eigin lög og texta og spil­aði undir á gítar. „Svo hefur reyndar ekk­ert ræst úr popp­stjörnu­ferl­inum eftir það en þetta var skemmti­leg reynsla.“

Jóhann seg­ist ekki hafa fengið sér­stak­lega póli­tískt upp­eldi en fengið áhug­ann á stjórn­málum við að lesa bækur. Hann las mikið sem barn og ung­lingur; fyrst skáld­sögur en svo um heim­speki, stjórn­mál og sam­fé­lags­mál. Hann nefnir sem dæmi að hann hafi verið trú­aður sem barn, beðið bænir á kvöldin og ætlað að ferm­ast. „Svo las ég eig­in­lega alla Biblíuna – aðal­lega Nýja testa­mentið og hluta af því gamla – og þá hætti ég að vera trú­aður og fermd­ist ekki. Ég hef mót­ast mikið af því sem ég hef lesið og mótað mér skoð­anir út frá því.“

„Maður þjálfar sig í að líta svo­lítið kalt á hlut­ina en það er ekki þar með sagt að maður sé ónæmur fyrir þessu.“

Hann seg­ist hafa verið dálítið ein­rænn og lok­aður inni í sjálfum sér á ung­lings­ár­unum en það hafi breyst eftir að hann byrj­aði í Mennta­skól­anum í Reykja­vík. Hann tók þátt í Morfís-ræðu­keppni fram­halds­skóla öll árin sem hann var í skól­anum og sigr­aði lið MR tvisvar sinnum á því tíma­bili. Svo tók hann líka þátt í upp­setn­ingum leik­fé­lags­ins Herranætur og lék meðal ann­ars í Meist­ar­anum og Margar­ítu.

Lekamálið

Jóhann fékk sum­ar­vinnu á DV þegar hann var um tví­tugt og nýorð­inn stúd­ent. „Þetta var tæki­færi sem Reynir Trausta­son og Jón Trausti Reyn­is­son, þáver­andi rit­stjórar, veittu mér og ég hef alltaf verið þakk­látur fyrir það. Það var mjög gaman á DV. Manni var strax kastað út í djúpu laug­ina. Þetta var stór vinnu­staður, mikið af öfl­ugu fólki, mikið skúbbað og mikið að ske. Ég var korn­ungur, stundum fæ ég kjána­hroll þegar ég sé það sem ég skrif­aði á þessum tíma, en þetta var rosa­legt tæki­færi sem átti svo kannski eftir að móta mikið það sem kom á eftir. Ástæðan fyrir því að ég hafði áhuga á að verða blaða­maður til að byrja með er nátt­úr­lega bara brenn­andi áhugi á sam­fé­lags­málum og póli­tík og með tím­anum fékk ég svo meiri áhuga á efna­hags­málum.

Jóhann vann hjá DV með fram háskóla­námi í heim­speki við Háskóla Íslands. „Ég sinnti heim­speki­nám­inu ekki eins vel og ég hefði viljað eftir á að hyggja af því að ég var alltaf að vinna með námi og svo kom leka­málið ofan í þetta.

Við Jón Bjarki, vinur minn og blaða­maður, höfðum svo­lítið verið að skrifa um hæl­is­leit­enda­mál og bága stöðu fólks sem sæk­ist eftir alþjóð­legri vernd á Íslandi. Svo þegar meið­andi upp­lýs­ingum um hæl­is­leit­anda, sem síðar kom í ljós að voru að veru­legu leyti rangar, var lekið úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu til fjöl­miðla þá spurðum við spurn­inga, öfl­uðum upp­lýs­inga innan úr stjórn­kerf­inu og fylgdum mál­inu eftir sem síðar fór í ákæru­ferli og leiddi til refsi­dóms.“

Þegar Jóhann er spurður hver er eft­ir­minni­leg­asta frétt sem hann hafi skrifað segir hann það hafa verið frétt­ina um afskipti Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, af lög­reglu­rann­sókn leka­máls­ins og þrýst­ing sem Stefán Eiríks­son, þáver­andi lög­reglu­stjóri, varð fyrir. „Það var ekk­ert sofið áður en sú frétt birt­ist, ég var svo spenntur fyrir birt­ing­unni. Við vorum saman með þetta, við Jón Bjarki og Reynir Trausta­son. Þarna var það Reynir sem land­aði skúbb­inu og þetta nátt­úr­lega var frétt sem hafði miklar afleið­ingar. Umboðs­maður Alþingis tók málið til rann­sóknar og komst að þeirri nið­ur­stöðu að ráð­herra hefði brotið af sér í starfi með þessum afskiptum af lög­reglu­rann­sókn­inni á hennar eigin ráðu­neyti.“

Hann neitar því ekki að málið hafi haft tals­verð áhrif á sig. „Þetta var heilt ár sem var algjör rús­sí­bani. En við vorum auð­vitað bara að vinna vinn­una okkar og það er þannig þegar blaða­menn kom­ast á sporið í svona málum þá fylgja þeir þeim eftir. Þetta afhjúpaði auð­vitað alls konar brotala­mir í kerf­inu. Þarna sá maður póli­tíska með­virkni á háu stigi sem eitr­aði út frá sér og gróf undan trausti til stjórn­kerf­is­ins.“

Jóhann segir Leka­málið hafa tekið veru­lega á.

Jóhann nefnir mis­tök – frétt DV þar sem aðstoð­ar­mönnum, sem báðir voru þá með rétt­ar­stöðu grun­aðs manns í lög­reglu­rann­sókn­inni, var víxlað. „Við vönd­uðum okkur og ég er heilt yfir stoltur af skrifum okkar en við gerðum vissu­lega þessi vondu mis­tök og báðumst sam­stundis afsök­unar á þeim.“

Hann segir það vissu­lega svo­lítið yfir­þyrm­andi að fylgj­ast með skrifum sínum hafa áhrif, sér­stak­lega þegar hans eigin per­sóna dregst inn í umræð­una. „Það var ágætt að fá þykkan skráp svona snemma en auð­vitað var þetta líka gaman; ég meina, maður hefur gaman af hasar. Það tók auð­vitað á að vera svona í eld­lín­unni. Þetta er samt hluti af því að vera að skrifa um svona stór og eld­fim mál; það getur verið óþægi­legt fyrir mann sjálfan en er yfir­leitt miklu óþægi­legra fyrir þá sem skrifað er um. Ég reyni bara að velta mér ekki of mikið upp úr því. Það er þessi jafn­væg­is­list sem blaða­mennskan er; það er að vega og meta ann­ars vegar hags­muni almenn­ings og gildi þess fyrir almenn­ing að vita eitt­hvað og fá fram upp­lýs­ingar og hins vegar til dæmis að ganga ekki of nærri frið­helgi einka­lífs ein­hvers.“ Hann segir það auð­vitað geta tekið á að birta fréttir sem hann viti að fólki líði illa yfir. „En um leið brynjar maður sig svo­lítið; maður þjálfar sig í að líta svo­lítið kalt á hlut­ina en það er ekki þar með sagt að maður sé ónæmur fyrir þessu.“

Í framboði

Jóhan sagði upp störfum á DV eftir eig­enda­skiptin árið 2014 og starf­aði á Stund­inni frá stofnun fjöl­mið­ils­ins. Hann kláraði heim­speki­nám með lög­fræði á alþjóða­sviði sem auka­grein árið 2015. Hann flutti svo til Bret­lands, hóf meist­ara­nám í sagn­fræði við Edin­borg­ar­há­skóla sem hann lauk árið 2017 og í haust lauk hann svo meist­ara­námi í evr­ópskri stjórn­mála­hag­fræði frá London School of Economics. Á þessum árum vann hann fyrir Stundina sem hann lýsir sem góðum vinnu­stað með öfl­ugum blaða­mönnum og vinum.

Jóhann hefur þrisvar sinnum unnið til blaða­manna­verð­launa fyrir störf sín, meðal ann­ars fyrir umfjöllun um leka­málið árið 2014, upp­reist æru kyn­ferð­is­brota­manna árið 2017 auk þess sem hann hlaut til­nefn­ingar meðal ann­ars árið 2018 fyrir umfjöllun um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar og fjöl­skyldu hans við Glitni í aðdrag­anda banka­hruns­ins. Hann flutti til Íslands í haust og ákvað að segja skilið við blaða­mennsk­una og snúa sér að stjórn­málum.

„Mig fór að langa til að taka þátt og ein­hvern veg­inn beita mér. Í stað­inn fyrir að vera alltaf að greina og skrifa um hlut­ina þá lang­aði mig bara allt í einu að vera þátt­tak­andi í að efla vinstrið, koma að stefnu­mótun og svo fram­vegis. Ég gekk í Sam­fylk­ing­una í sumar og hef unnið fyrir þing­flokk­inn í haust og áttað mig sífellt betur á að mig langar að gera þetta sjalfur; verða þing­maður.“ Það varð úr að Jóhann gefur kost á sér í fram­boðs­könnun Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík vegna Alþing­is­kosn­ing­anna á næsta ári.

Hvers vegna er það mik­il­vægt að „efla vinstrið“? „Ég myndi segja að stóru áskor­an­irnar sem heims­byggðin glímir við séu ann­ars vegar mis­skipt­ing auðs og yfir­gangur hinna stóru, fjár­sterku og valda­miklu og svo hins vegar ham­fara­hlýnun, lofts­lags­breyt­ingar af manna völdum. Og þetta eru vanda­mál sem eru sam­ofin og verða ekki leyst nema með mjög kraft­mik­illi beit­ingu rík­is­valds á kostnað sér­hags­muna, skatt­heimtu til að jafna kjörin og draga úr ofur­valdi þeirra ríku, og svo opin­berri fjár­fest­ingu í grænum innviðum, orku­skiptum og svo fram­vegis. Þetta krefst þess að við hrifsum völdin af auð­stétt­inni, umbyltum kerf­unum okkar í þágu fjöld­ans og þess vegna er ég vinstri­maður; ég trúi því að jöfn­uður sé ekki ein­hver hindrun í vegi þess að sam­fé­lög vaxi og dafni heldur þvert á móti und­ir­staða hag­sældar. Svo er það líka þannig að mark­aðir virka lang­best þegar kjörum er ekki of mis­jafnt skipt. Jafn­að­ar­stefnan er stefnan sem hefur búið til bestu sam­fé­lög í heimi og kannski mættum við minna oftar á það.“

Jóhann seg­ist ætla meðal ann­ars að beita sér fyrir því að dregið verði úr tekju­skerð­ingum í barna­bóta­kerf­inu svo það verði almennt stuðn­ings­net líkt og á hinum Norð­ur­lönd­unum. Hann vill að for­eldrar í lág­launa­störfum fái fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslur sem sam­svara lág­marks­launum en ekki aðeins 80% af fyrri tekjum, hús­næð­is­stuðn­ingur verði auk­inn og ráð­ist í mark­vissar aðgerðir til að tryggja hús­næð­is­ör­yggi. Til að standa undir slíkri efl­ingu vel­ferð­ar­kerf­is­ins segir hann mik­il­vægt að hæstu tekjur verði skatt­lagðar með sam­bæri­legum hætti og í Danmörku og Svíþjóð. Auk þess sé æski­legt að inn­leiða stór­eigna­skatt með sann­gjörnu frí­eign­ar­marki og að auð­lind­arent­unni í sjáv­ar­út­vegi verði skilað til þjóð­ar­innar með bland­aðri leið veiði­gjalda og upp­boðs. Hann segir að sporna þurfi gegn sam­þjöppun og yfir­gangi stór­út­gerða með skýr­ari reglum um yfir­ráð tengdra aðila yfir afla­hlut­deildum og skil­virkri fram­kvæmd þeirra. Loks brenni hann fyrir því að mynduð verði rík­is­stjórn sem treysti sér til að setja sér metn­að­ar­fyllri lofts­lags­mark­mið, helst um að minnsta kosti 60% sam­drátt í losun gróð­ur­hús­loft­teg­unda fyrir árið 2030 og leggi fram metn­að­ar­fyllri aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum. Hvað varðar utan­rík­is­mál vill hann að Ísland taki slag­inn á alþjóða­vett­vangi gegn efna­hags­mis­rétti, skað­legri skatta­sam­keppni og yfir­gangi hinna stóru og sterku og standi með jað­ar­settum hópum og rétti kvenna yfir eigin lík­ama og mót­mæli mann­rétt­inda­brotum hvar sem þau eru framin.

Jóhann Páll Jóhanns­son, fyrr­ver­andi blaða­maður, neitar því ekki að leka­málið hafi haft tals­verð áhrif á sig. „Þetta var heilt ár sem var algjör rús­sí­bani.“

Útlendingastofnun verði lögð niður

Jóhann fjall­aði um mál­efni hæl­is­leit­enda hér á landi áður en leka­málið kom upp og hann seg­ist vilja að Íslend­ingar axli ábyrgð í flótta­manna­málum með mann­úð­legri mót­töku hæl­is­leit­enda.

„Við verðum sem sam­fé­lag ein­hvern veg­inn að smíða ein­hverjar reglur sem valda því ekki að nán­ast mán­að­ar­lega komi upp mál sem bara öllu heið­virðu fólki mis­býður þar sem verið er að senda fólk úr landi sem á ein­fald­lega heima hérna, börn sem hafa alist upp á Íslandi og fest rætur hér. Ég held að það þurfi að leggja niður Útlend­inga­stofnun í núver­andi mynd og taka kerfið til mjög gagn­gerrar end­ur­skoð­unar með mannúð að leið­ar­ljósi.“

Aðspurður hvort það þurfi ekki að skoða vel bak­grunn þeirra sem sækja um hæli á Íslandi segir Jóhann: „Jú, það er einmitt allt of oft þannig að málum fólks er vísað frá án þess að taka þau til efn­is­legrar með­ferðar og í því felst að bak­grunnur fólks fær enga heild­stæða skoðun. Það grefur undan öllum okkar sam­fé­lags­sátt­mála ef það er trekk í trekk, og jafn­vel sam­kvæmt gild­andi lögum, verið að mis­bjóða rétt­læt­is­kennd þorra þjóð­ar­innar. Við þurfum að koma okkur niður á ein­hverja sann­gjarn­ari eða rétt­lát­ari reglur sem er hægt að fara raun­veru­lega eftir. Það verður flókið en ég held að það séu ýmsar spurn­ingar sem póli­tíkin hefur ekki almenni­lega treyst sér til að svara varð­andi útlend­inga­lög­gjöf­ina.“

Um fjórir millj­arðar króna eru settir þessi árin árlega í mála­flokk­inn og segir Jóhann að það sé mik­il­vægt að hjálpa fólki utan EES-svæð­is­ins að koma til Íslands og setj­ast hér að án þess að það þurfi endi­lega að fara í gegnum hæl­is­leit­enda­kerfið. „Þetta er eitt­hvað sem stjórn­mála­menn tala alltaf um en svo er lítið gert. Kostn­að­ur­inn af hæl­is­leit­enda­kerf­inu myndi lækka við það. Svo þarf að efla virkni­úr­ræði fyrir útlend­inga; hjálpa þessu fólki af miklu meiri krafti að koma sér upp nýju lífi á Íslandi. Ég held að það myndi marg­borga sig til lengri tíma litið.“

Jóhann segir að um sé að ræða erf­iðan mála­flokk. „En við verðum að taka vel á móti fólki. Auðvitað er þetta flókið en við verðum bara að taka á því. Ísland er fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag. Það er bara veru­leik­inn. Og Ísland þarf að axla ábyrgð þegar kemur að mál­efnum flótta­fólks, þetta er alþjóð­leg áskorun. Auðvitað kostar pen­inga að gera þetta almennil­gea en það gefur okkur líka mjög mikið. Sam­fé­lagið verður fjöl­breytt­ara og skemmti­legra við að fá hingað fólk með ólíkan bak­grunn.“

Snýst ekki um góða stemmningu

Eins og þegar hefur komið fram hlaut Jóhann til­nefn­ingu árið 2018 fyrir umfjöllun um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar og fjöl­skyldu hans við Glitni í aðdrag­anda banka­hruns­ins en í kjöl­far umfjöll­un­ar­innar var sett lög­bann á Stundina sem var svo aflétt með dómi ári síðar. Nú von­ast Jóhann til að kom­ast á þing. En hvað finnst honum um að þurfa að mæta fólki á Alþingi sem hann hefur skrifað harka­lega um?

„Það er ekki eitt­hvað sem truflar mig. Mín póli­tík snýst ekki og mun aldrei snú­ast um stemmn­ing­una í mötu­neyti Alþingis. Það er alveg á hreinu. Ég sinnti störfum mínum sem blaða­maður af alúð og stundum skrif­aði ég harka­lega um fólk sem ég ber mikla virð­ingu fyrir. Þetta truflar mig ekki neitt.“

Aðspurður hvort hann gæti hugsað sér að sitja í rík­is­stjórn með Bjarna Bene­dikts­syni segir hann: „Nei, Sam­fylk­ingin hefur úti­lokað sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokki og afþakkað þátt­töku í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum við flokk­inn. En þess utan tel ég Bjarna ekki vera treystandi til að fara með opin­bert vald. Mér finnst Bjarni Bene­dikts­son vera veikur leið­togi og ekki hafa hemil á flokknum sínum. Ég gæti auð­vitað aldrei setið í rík­is­stjórn sem byggir á sam­komu­lagi sem burð­ar­flokkur virðir ekki. Mér finnst Sjálf­stæð­is­flokknum hafa mis­tek­ist að standa undir því trausti sem aðrir flokkar hafa sýnt honum. Sam­fylk­ingin gerði þau mis­tök á árunum fyrir hrun að vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum. Það dró ekki fram það besta í Sam­fylk­ing­unni á sínum tíma en flokk­ur­inn hefur lært af þeim mis­tökum og gert þau upp að veru­legu leyti. Nú göngum við til kosn­inga að ári og heitum því að vinna ekki með Sjálf­stæð­is­flokknum. Atkvæði greitt Sam­fylk­ing­unni verður atkvæði gegn því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sitji áfram í rík­is­stjórn.“

Jóhann er spurður hvað ein­kenni góðan stjórn­mála­mann. „Góðum stjórn­mála­manni þarf kannski fyrst og fremst að þykja vænt um fólk. Við skulum orða það þannig. Hann þarf að hafa þá auð­mýkt að geta hlustað á sjón­ar­mið frá mörgum hliðum og hann þarf að hafa metnað til að setja sig vel inn í hlut­ina og beita dóm­greind­inni sinni.“

Jóhann er næst spurður hvaða íslenska stjórn­mála­manns hann líti upp til. „Ég hef lengi verið hrif­inn af Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur. Hún vann mik­il­væga sigra sem félags­mála­ráð­herra og sýndi svo ótrú­lega þraut­seigju sem for­sæt­is­ráð­herra á erf­iðum tímum. Vinstri­st­jórnin gerði margt vel en hefði mátt gera annað betur en ég held að sagan muni fara mjúkum höndum um Jóhönnu.“

Jóhann seg­ist afhjúpa hvað hann sé óspenn­andi þegar hann er spurður um áhuga­málin sem séu stjórn­mál og efna­hags­mál. „Ég hlusta stundum á tón­list. Svo finnst mér gaman að horfa á nor­ræna sjón­var­sps­þætti. Og ég er mjög hrif­inn af hryll­ings­myndum.“

Hann er í lokin beð­inn um að lýsa sér með þremur orðum. „Vinnu­samur.“ Þögn. „Má ég fá hjálp frá Önnu, kærust­unni minni; kalla á hana?“ spyr hann. En nei – það er verið að biðja hann sjálfan um að lýsa sjálfum sér. Hann hugsar sig lengi um. „Það er alltaf svo erfitt að hugsa um sjálfan sig. Ég er svo­lít­ill full­komn­un­ar­sinni kannski en það er kannski hluti af vinnu­sem­inni. Nú ertu alveg búin að koma mér úr jafn­vægi. Jú, ætli ég sé ekki með gott jafn­að­ar­geð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina