Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ekki meiða pabba minn!

Ekki meiða pabba minn!
Jón Óðinn Waage

Það var gamlárs­kvöld. Við vorum þrír lög­reglu­menn saman á eft­ir­lits­ferð. Ég var yngstur, hinir tveir voru eldri og reynd­ari, þekktir fyrir mann­gæsku og umburð­ar­lyndi. Það var gott að vera með þannig mönnum í þessu starfi.

Í gegnum tal­stöð­ina fengum við boð um að óskað væri eftir aðstoð lög­reglu í heima­húsi, slags­mál höfðu brot­ist út í ára­mótagleð­skap. Slík útköll voru ekk­ert óal­geng og yfir­leitt auð­velt að róa við­stadda og flytja þá í burtu sem að ekki voru húsum hæfir.

En þetta átti eftir að verða öðru­vísi útkall.

Þegar við komum að hús­inu stóðu úti­dyrnar opnar. Út úr hús­inu barst mikið háreysti. Við fórum inn. Á stofu­gólf­inu velt­ust tveir menn um í átökum, báðir blóð­ugir. Eig­in­konur þeirra stóðu hjá og æptu á þá um að hætta. Öldruð móðir ann­ars manns­ins sat nið­ur­brot­inn í stofu­sóf­anum og hélt á korna­barni sem hágrét í fang­inu á henni. For­eldrar hins manns­ins, sem líka voru öldruð reyndu ítrekað að taka þátt í átök­unum, að því er virt­ist til að koma syni sínum til aðstoðar frekar en til að stilla til friðar.

En það sem var verst var að þarna voru mörg ung börn, flest langt innan við ferm­ingu og nokkur á leik­skóla­aldri. Sum voru sem lömuð af skelf­ingu, önnur reyndu að grát­biðja feður sína um að hætta.

Við skildum menn­ina í sundur með valdi, það var ekki nokkur leið að biðja þá um að hætta, þeir voru báðir mjög drukknir og því miður báðir þekktir af því að vera ofbeld­is­fullir með víni. Ég hélt öðrum mann­inum niðri en félagar mínir reyndu að ná valdi á hinum en það var erfitt því að for­eldrar hans réð­ust með heift á félaga mína. Það er ekki auð­velt að beita aldrað fólk valdi, þetta var erfitt ástand.

Framkoma gamla fólks­ins gerði illt verra, sonur þeirra æst­ist allur upp og það gerði konan hans líka þegar reynt var að hafa hemil á gömlu hjón­unum. Við þetta bætt­ist barns­grát­ur­inn, öll börnin voru nú farin að gráta hástöfum, hljóðin úr þeim voru átak­an­leg og nístu hjarta okkar. Þetta var ekki sú fjöl­skyldu­skemmtun sem þau höfðu von­ast eftir.

Við náðum að kalla eftir aðstoð, það veitti ekki af henni. Við svona aðstæður þarf að róa og hugga fjöl­skyldu­með­limi, það er ekki nóg að hand­járna bara ofbeld­is­menn­ina og fara svo.

Meðan við biðum eftir aðstoð reyndum við að gera okkar besta við þessar aðstæður. Ég náði að koma hand­járnum á þann sem að ég hafði yfir­bugað, til þess þurfti að beita nokkru harð­ræði. Hann jós yfir mig sví­virð­ingum, hót­aði bæði mér og öllum sem mér tengd­ust, í litlu bæj­ar­fé­lagi þá þekk­ist fólk.

Ég reisti ofbeld­is­mann­inn upp og lagði af stað með hann út í lög­reglu­bíl­inn. En ég komst ekki með hann út. Í for­stof­unni stóð lítil stúlka. Hún var í nátt­kjöl og hélt krampa­kenndu taki um bangs­ann sinn með annarri hendi. Litla stúlkan horfði á mig grát­bólgnum augum, hún teygði fram lausu hönd­ina til mín og sagði skjálf­andi röddu:

„Ekki meiða pabba minn“.

Þetta var mitt fyrsta útkall þar sem börn voru fórn­ar­lömb áfeng­is­neyslu full­orð­inna.

Því miður ekki það síð­asta.

Jón Óðinn Waage

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ