Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mun hætta í Sjálfstæðisflokknum 31. desember: „Þetta er prinsipp“

Mun hætta í Sjálfstæðisflokknum 31. desember: „Þetta er prinsipp“

Sam­fé­lags­miðlar hafa logað eftir að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra var gómaður af yfir­völdum í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu­kvöld. Er Bjarni og aðrir gestir sak­aðir um að hafa brotið sótt­varn­ar­lög á fjöl­mennu fyll­erí. Bjarni heldur fram að hann hafi aðeins verið á svæð­inu í korter en heim­ild­ar­maður Vísis segir að Bjarni hafi tekið þátt í grímu­lausu svall­inu í um 45 mín­útur.

Kallað hefur verið eftir afsögn Bjarna en fjár­mála­ráð­herra telur enga ástæðu til að víkja af ráð­herra­stóli. Þá hefur Katrín Jak­obs­dóttir lýst yfir að hegðun fjár­mála­ráð­herra sé „afsak­an­legt.“ En stór hluti þjóð­ar­innar er á öðru máli.

HIlmar Jökull

Í þeim hópi er Hilmar Jökull Stef­áns­son sem fram að aðfanga­dag, var gall­harður Sjálf­stæð­is­maður og studdi for­mann flokks­ins af ein­urð. Hann hefur þrátt fyrir ungan aldur látið mikið að sér kveða í stjórn­málum en hefur hin síð­ari ár verið áber­andi sem Bassatromma Tólf­unnar, stuðn­ings­manna­liði íslensku lands­lið­anna í knatt­spyrnu.

Hilmar Jökull hefur í tvígang verið í fram­boði fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í þing­kosn­ingum. Bauð Hilmar Jökull sig fram í Suð­ur­vest­ur­kjör­dæmi sem er kjör­dæmi Bjarna Bene­dikts­sonar árið 2017. Þá var Hilmar Jökull um skeið for­maður Týs, sam­bands ungra Sjálf­stæð­is­manna í Kópavogi.

Hilmari er lýst sem rétt­sýnum mann­rétt­inda­sinna með hjarta úr gulli. Og nú er mælir Hilmars Jökuls fullur. Hann lýsti yfir á Twitter á aðfanga­dag að hann elskað Bjarna sem per­sónu og fjár­mála­ráð­herra. Það breyti þó engu þegar kemur að hegðun Bjarna á Þor­láks­messu. Hann segir hegðun Bjarna vera óboð­lega og hann hefði átt að segja af sér sam­dæg­urs.

„Þetta er prinsipp, hann er að kúka á okkur öll með þess­ari fram­komu.“

Þá lýsti Hilmar Jökull yfir, eftir að í ljós kom að Bjarni var ráð­herr­ann sem tók þátt í ólög­legu veisl­unni í Ámund­ar­sal:

„Vika. Slétt vika. Ef Bjarni segir ekki af sér fyrir 31. des­em­ber, þá segi ég mig úr flokknum og skrái mig ekki aftur í hann fyrr en Bjarni stígur til hliðar sem for­maður. Prinsipp.“

Hilmar Jökull bætir við:

„Ég hef ekki fengið að knúsa ömmu mína, sem ég elska meira en allt í líf­inu, síðan í mars. Fokking mars.“

Yfir­lýs­ing Hilmars Jökuls hefur vakið mikla athygli og er honum hrósað fyrir að vera einn af fáum Sjálf­stæð­is­mönnum sem þori að stíga fram með „alvöru yfir­lýs­ingu“ og flokk­ur­inn eigi örlitla von­ar­glætu ef aðrir hugsi eins og Hilmar Jökull. Hilmari var einnig bent á að Bjarni myndi aldrei segja af sér emb­ætti. Fjár­mála­ráð­herra myndi sjálf­sagt baka köku, biðj­ast klökkur afsök­unar og fá topp­kosn­ingu hjá Sjálf­stæð­is­fólki í fram­hald­inu. Þessu svar­aði Hilmar og sagði:

„Þá er ég hættur að kenna mig við blátt þar til for­manns­stóll­inn fer til ein­hvers ann­ars.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi