Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Nú er búið að hafa af manni jólin“

„Nú er búið að hafa af manni jólin“

Eiríkur Sig­urðs­son er þaul­reyndur skip­stjóri til tæp­lega fjöru­tíu ára. Hann er afla­kló, þykir slyngur við veiðar og leið­beinir sínum sjó­görpum frá brúnni í frysti­tog­ar­anum Reval Viking. Þegar lagt er úr höfn á vet­urna er stefnan sett djúpt inn í svartasta myrkrið sem er að finna á jarð­ar­kringl­unni. Og á meðan vetur kon­ungur ræður ríkjum er myrkrið alltaf á sínum stað. Fiskimið þess­ara sæfara er nefni­lega nærri Norð­ur­pólnum, í ríki ís og kulda. Hér, á þessum slóðum eru öld­urnar engin smá­smíði. Margra metra háar æða þær hvít­flissandi í átt að skip­inu, en Eiríkur er öllu vanur og stýrir fley­inu upp úr djúpum öldu­dölum sem í ofsa­veðrum virð­ist aldrei ætla að enda.

En svo kannski aðra daga, þegar dag­ur­inn losar sig við síð­ustu stál­gráa tón­ana og fær aftur sinn lit og kannski skín sólin, þá er lík­lega hvergi fal­legra, en akkúrat hér, á dekk­inu á Reval Viking, inn­anum ísbreiður og jaka og síðan klýfur selur sjó­inn og horfir for­vit­inn á skips­verja. Ekki langt undan er örugg­lega ísbjörn sem nuddar saman hrömm­unum og hugsar sér gott til glóð­ar­innar.

Þannig sér blaða­maður þennan heims­hluta alla vega fyrir sér þar sem nátt­úru­öflin sýna enga vægð. Í huga Eiríks eru miðin á þessum slóðum auð­vitað ekki sveipuð neinum róm­an­tískum blæ. Með nokkrum vel völdum orðum kippir hann blaða­manni inn í ískaldan, kol­bika­svartan raun­veru­leik­ann á norð­ur­slóðum. Eiríkur og áhöfnin eru við veiðar yfir jól og ára­mót á tog­ara sem smíð­aður var árið 2000 og telur 2.350 brúttó­tonn.  Reval Viking er 61 metri að lengd og er skráð í Eist­landi. Eigendur eru Íslend­ingar og Danir. Eiríkur ætl­aði að eyða jól­unum með fjöl­skyld­unni sinni en hann getur bölvað kór­óna­veirunni fyrir að enn ein jólin er hann fjarri ást­vinum sínum. Hann er eini Íslend­ing­ur­inn um borð.

Fjöl­skyldu­stund á Hlíð­ar­enda. Guðrún ásamt dætr­unum.

Eiríkur er kvæntur Guðrúnu Sæmunds­dóttur sem um ára­bil lék knatt­spyrnu með Val og var ein sú fremsta á sínu sviði. Eiríkur og Guðrún eiga fjórar stúlkur sem nú feta hver á fætur annarri í fót­spor móður sinnar og hafa vakið mikla athygli fyrir hæfi­leika sína. Fyrr á árinu voru þrjár af systr­unum, þær Mál­fríður Anna, Hlín og Arna í byrj­un­ar­liði Vals í meist­ara­deild­inni. Þá stytt­ist í að sú fjórða, Bryndís, bæt­ist í hóp­inn.

Víða komið við

Eiríkur hefur ýmsa fjör­una sopið á sínum ferli í skip­stjóra­stól. Hann var í einu aðal­hlut­verk­anna í Sval­barð­ar­deil­unni árið 1994 og sneri þá oft á norsk yfir­völd sem reyndu að íslenskum sið að klippa á tog­vír­anna en höfðu ekki erindi sem erf­iði. Deilan harðn­aði, Eiríki var, við annan mann, stungið í stein­inn í Noregi eftir að norski her­inn hafði í þrí­gang skotið á skip hans. En frá­sögn Eiríks af þeim ótrú­legu atburðum má nálg­ast hér. Þá hefur Eiríkur ratað í fjöl­miðla fyrir eitt og annað, meðal ann­ars að bjarga áhöfn úr brenn­andi skipi og leggja sitt af mörkum fyrir bætt kjör sjó­manna.

Í þetta sinn er Eiríkur dreg­inn fram á sviðið af blaða­manni sem fal­að­ist eftir við­tali er hann las stutta hug­vekju á Facebook-síðu skip­stjór­ans. Þar gagn­rýndi Eiríkur óþol­in­mæði margra Íslend­inga. Þá er Eiríkur afar ósáttur við fram­göngu Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála­ráð­herra, eftir að hafa grímu­laus tekið þátt í veislu­höldum í Ásmund­ar­sal. Um leið þykir Eiríki sorg­legt að sjá ein­staka þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar nýta sér atburð­inn til að slá póli­tískar keilur.

Í pistl­inum á Facebook birti Eiríkur mynd af tog­ar­anum Reval Viking með yfir­skrift­inni:

„Þetta er „jólakúlan mín“
Jólakúla Eiríks

Greindi Eiríkur frá því að hann myndi eyða jól­unum á 80 gráðum norð­lægrar breiddar, í rúm­lega 20 stiga frosti, myrkri og ís, óra­fjarri sínum nán­ustu, skammt frá norð­ur­pólnum. Eiríkur og áhöfn hans eru þeir einu sem eru á veiðum svo norð­ar­lega, það er engu lík­ara en að þeir séu einir í ein­mana ver­öld og mörg hund­ruð mílur í næstu skip. Eiríkur sagði:

„Ég „glotti við fót“ af með­aumkun þegar ég heyri fólk bera sig aum­lega yfir að þurfa að halda jólin með sinni nán­ustu fjöl­skyldu ein­göngu og neyð­ast jafn­vel til að sleppa fjöl­mennum jóla­boðum þetta árið. Mikið er heims­ins böl og órétt­læti. Ekki lítið sem lagt er á fólk!“

Í sam­tali við Mannlíf kveðst Eiríkur hafa legið undir feldi í nokkurn tíma áður en hann nýtti slitr­ótt net­sam­bandið til að koma hug­vekju sinni á fram­færi.

„Kveikjan að því að ég skrif­aði þessi orð var að máls­met­andi maður í þjóð­fé­lag­inu gagn­rýndi sótt­varna­yf­ir­völd harð­lega og sagði:

„Nú er búið að hafa af manni jólin“.

Eiríkur segir með ólík­indum að verða vitni að hegðun sumra Íslend­inga. Á hann bágt með að skilja af hverju sumir landar hans eigi erfitt með að fara, án þess að reka upp harma­kvein, eftir til­mælum sótt­varn­ar­yf­ir­valda. Eiríkur metur það svo að ekki sé um miklar fórnir að ræða.

„Er það eitt­hvað skelfi­legt að þurfa að vera fimm daga í sótt­kví ein­hvers staðar í vellyst­ingum í sum­ar­bú­stað með allt til alls? Hita og raf­magn, net­sam­band, síma, nóg að borða og mega fara út í göngutúr? Og er það mikli „fórn“ að sleppa fjöl­mennu jóla­boði í eitt skipti?  Á fólk ekki bara að þakka fyrir að geta verið allt upp í tíu saman á jól­unum með sinni nán­ustu fjöl­skyldu? Ég skil ekki að full­orðið fólk skuli væla yfir því,“ segir Eiríkur sem marg­sinnis hefur verið við veiðar þessa hátíð­ar­daga, bæði yfir jól og ára­mót.

Hin óend­an­lega feg­urð nátt­úr­unnar á norð­ur­slóðum

Eiríkur er mik­ill fjöl­skyldu­maður og náinn sínu fólki, börnum og konu. Það eru þung skref að fara upp land­gang­inn, vit­andi að eftir nokkrar vikur eru jól, þar sem hann verður fjarri fjöl­skyld­unni, innan um hafís og kulda. Hann stýrir skip­inu út úr höfn­inni og hverfur svo inn í myrkrið og stefnan er sett á einn ein­mana­leg­asta stað á jarð­ríki, þar sem kári ræður ríkjum þessi miss­erin.

Eiríkur hefur ekki bara misst af útskrift dætra sinna. Hann hefur líka orðið að sleppa jarð­ar­förum ætt­ingja. Eiríkur er eini Íslend­ing­ur­inn um borð að þessu sinni og það er eng­inn til að tala við eða fagna jólum.  Aðrir í áhöfn­inni eru frá Eist­landi og Úkraínu halda rúss­nesk jól.

„Það var erf­ið­ara þegar þær voru litlar,“ segir Eiríkur og kveðst auð­vitað sakna barn­anna. „Ég held að þetta taki meira á þær.“

„Menn­ingin er þannig að skip­stjór­inn er hálf­gerður guð um borð og menn ræða ekk­ert sín per­sónu­legu mál við hann og því hef ég  engan til að tala við eða fagna með. Þar að auki tala flestir ein­göngu rúss­nesku,“ segir Eiríkur.

Ofan á ein­angr­un­ina bæt­ist tak­markað net – og síma­sam­band. Þá líða oft fleiri dagar án þess að skip­verjar hafi nokkra hug­mynd um hvað sé að ger­ast í heim­inum. Áhöfnin er á fullu í vinnu yfir jólin, eins og alltaf, og aldrei stoppað.“

Velur ekki túranna

Eiríkur er spurður hvort hann sé ekki að kveinka sér heldur mikið yfir hlut­skipti sínu. Hann hafi valið það sjálfur að vera úti yfir hátíð­ar­daga í gegnum árin. Eiríkur svarar að þetta sé umræða sem oft komi upp á yfir­borðið en eigi ekki rétt á sér. Hann segir:

„Auðvitað velur maður starfs­vett­vang­inn en það gengur ekk­ert að ætla að velja sér þá túra sem henta best og ætl­ast til að aðrir taki hina. Þetta virkar ekki þannig. Skip sem eru skráð á Íslandi eru skyldug til að vera í landi um jól og ára­mót en það er nán­ast eins­dæmi og þekk­ist hvergi ann­ars staðar sem ég veit um.  Af því að mitt skip er skráð í Eist­landi eru engin tak­mörk og við megum var úti hvenær sem er og ekk­ert hámark á túralengd heldur. Ég hef verið úti á sjó flest jól og ára­mót á síð­ustu árum en átti að vera heima núna.“

En vegna heims­far­ald­urs fóru þau plön í súg­inn og lengd túr­anna breytt­ist.

„Menn geta sagt að þetta sé val en það er ekki auð­velt að fórna starf­inu og þar með lífs­af­komu fjöl­skyld­unnar til að geta verið heima á jól­unum.  Vegna Covid þurftum við að reyna að lengja túrana til að geta fækkað áhafna­skiptum og þetta hefur verið mjög erfitt alveg síðan í febr­úar. Við reynum allt til að fá ekki smit um borð því við vitum að ef einn er smit­aður eru mestar líkur á að allir smit­ist og skipið þar með úr leik í ein­hvern tíma.“

Skips­verjar um borð

Strax í byrjun árs hafði kór­óna­veiran  áhrif á lengd túra. Eiríkur sigldi sínu skipi úr höfn í lok febr­úar og átti að vera í höfn mán­uði síðar. Þegar Eiríkur taldi að nú kæm­ist hann brátt heim til fjöl­skyld­unnar kom í ljós að Norðmenn höfðu sett bann á áhafna­skipti en þar landar skipið.

„Ég komst ekki heim fyrr en eftir 120 daga á sjó. Það var svo sann­ar­lega ekki mitt val. Þetta hljómar örugg­lega eins og versta væl en það er ekki mein­ingin, ég er bara að lýsa aðstæðum.“

Eiríkur bætir við:

„Ég veit alveg að fullt af fólki í landi þarf að vinna á stór­há­tíðum en mun­ur­inn er kannski sá að það fólk hefur oft­ast aðra í kringum sig og þarf oft­ast ekki að vera nema ein­hverja klukku­tíma eða í mesta lagi daga í burtu en ekki margar vikur eða mán­uði.  Hefur aðgang að síma, Inter­netið, sjón­varpi og útvarpi og ekki síst mik­il­vægt; getur kom­ist heim ef eitt­hvað alvar­legt kemur uppá í fjöl­skyld­unni. Hérna er eng­inn mögu­leiki til þess.“

Sjómennska í Kófinu

Íslenskir sjó­menn sigla um öll heims­ins höf á margs­konar skipum, en lík­lega eru flestir á flutn­inga- og fiski­skipum. Það er allur gangur á því hvar skipin eru skráð en það segir samt ekk­ert um eign­ar­haldið. Þau geta verið allt frá því að vera í 100 pró­sent eigu Íslend­inga og svo alveg án þess að Ísland komi nokk­urs staðar nærri. Allir sjó­menn á erlendis-skráðum skipum sem Eiríkur þekkir, borga skatta og skyldur á Íslandi og ættu því að njóta sömu rétt­inda og aðrir íslenskir rík­is­borg­arar.

Fljót­lega eftir að Corona-fárið byrj­aði í mars voru öll áhafna­skipti í erlendum höfnum bönnuð. Fjöldi sjó­manna urðu að sætta sig við að vera fastir um borð í skipum sínum í allt að 100 til 150 daga.

„Þannig var það m.a. á mínu skipi en við lönd­uðum tvisvar í Noregi á þeim tíma og þá máttum við ekki einu sinni fara upp á bryggju á meðan við vorum í landi og engan mann hitta,“ segir Eiríkur og bætir við:

„Þetta úthald lagð­ist mjög mis­jafn­lega í menn og alls ekki allir sem þoldu það vel enda aðstæður manna mis­jafnar.  Ég veit um dæmi þar sem menn voru komnir í veru­lega sjálfs­vígs­hættu. Verst var samt óvissan og að vita ekki hvort það yrðu nokkrir mán­uðir eða jafn­vel heilt ár þangað til menn kæmust heim. Um það vissi eng­inn.“

Jóla­mat­ur­inn á sjónum var hreint afbragđ þetta árið.

Fjöldi þjóða bönn­uðu áhafn­ar­skipti og þekkir Eiríku til sjó­manns sem komst ekki til síns heima fyrr en eftir sex og hálfan mánuð úti á sjó. Þó að tak­mörk­unum hafi verið aflétt í maí var í fæstum til­vikum ger­legt að skipta út heilli áhöfn í einu.

„Á mínu skipi voru menn búnir að vera um borð frá 100 og upp í 220 daga þegar þetta var og auð­vitað í sótt­kví megnið af tím­anum því við erum ekk­ert að hitta annað fólk úti á sjó og eng­inn hefur mér vit­an­lega haldið því fram að óværan ber­ist með fiskum eða fuglum. Þrátt fyrir það máttum við engan mann hitta og hvergi koma við í sjoppu eða verslun á leið­inni út á flug­völl loks­ins þegar hægt var að skipta um hluta af áhöfn­inni,“ segir Eiríkur.

Á mynd­inni eru nokkrir „feitir for­stjórar“ að bíða eftir rík­is­að­stoð.

„Við vorum búnir að vera mán­uðum saman í sótt­kví en á sama tíma var fólk í landi þar sem við komum búið að hafa nán­ast frjálsar hendur allan tím­ann með búð­ar­ferðir, sam­komu­sókn og hitt­ing af öllu tagi en okkur „sótt­kví­ar­rott­unum“ var ekki treyst til að hitta nokkurn mann.“

Auðvelt er að mati Eiríks að rök­styðja að um gróft brot á mann­rétt­indum sé að ræða. Hann veit ekki til þess að nokkur starfs­stétt hafi mátt þola við­líka með­ferð. Land­göngu­bann hafi sem dæmi gert það að verkum að áhöfn sem hafði verið í fleiri vikur við ein­hverjar erf­ið­ustu aðstæður voru í stofu­fang­elsi um borð eftir langa túra og þar urðu þeir að dúsa þar til var aftur haldið á miðin. Ein und­an­tekn­ing var á þessu, væru Norðmenn um borð, máttu þeir leika allar sínar listir og spranga óáreittir um allar koppa­grundir.

„Ég veit ekki til þess að veiran sé svo klár að hún geti lagst mis­jafnt á fólk eftir því hvað stendur í vega­bréfum þess,“ segir Eiríkur og bætir við að galið sé að setja svo sjó­menn á fiski­skipum, sem eru mjög lengi í hverjum túr, undir sama hatt og sjó­menn á ferjum.

Nóg af sel að éta og ísbreið­urnar enda­lausar. Norska Haf­rann­sókna­stofn­unin segir að ekki hafi verið meiri ís við Sval­barða síðan árið 1988 Félag­arnir á veiði­slóð­inni fóru í kröfu­göngu í dag. Aðal­krafan var að ísbirn­irnir mundu hætta að éta þá. Full­kom­lega rétt­mæt krafa, mundi ég halda, segir Eiríkur um þessa mynd.

„Það er svo vit­laust að engu tali tekur. Ég hef ekki orðið var við að hags­muna­sam­tök sjó­manna hafi mót­mælt þessu mikið og lík­lega reikn­aði svo sem eng­inn með því. Það væri kannski ráð fyrir þá sem málum stjórna að pæla aðeins í þessu. Sjómenn átta sig auð­vitað á alvar­leika máls­ins og þessi veira er ekk­ert grín en það verður að vera ein­hver skyn­semi og með­al­hóf í þessu öllu.“

Syrgir úti á sjó

Á síð­ustu árum hefur Eiríkur syrgt föður sinn, báða tengda­for­eldra og fleiri nána vini og fjöl­skyldu­með­limi. Það hefur Eiríkur neyðst til að gera að mestu í ein­rúmi.

„Ég hef aldrei getað verið við­staddur útför eða kvatt þau. Það er tveggja til þriggja sól­ar­hringa sigl­ing í land og það er bara ekki hægt að stoppa svona skip sem kostar marga millj­arða og er með 25 manna áhöfn í nærri viku, sigl­ing fram og til baka, fyrir einn mann.“

Þá hefur Eiríkur misst af sumum útskrift­ar­veislum dætra sinna úr mennta- og háskólum, fyrir utan alla aðra merk­is­at­burði í fjöl­skyld­unni.

„En núna ætla ég að hætta að væla,“  segir Eiríkur kank­vís og bætir við: „Þessi við­bót kom bara vegna þess að ég hef fengið að heyra það síð­ustu daga að ég hafi engan rétt á að kvarta, sem ég er samt ekki að gera, vegna þess að ég „velji“ að vera úti á sjó um jól og ára­mót. Til að allrar sann­girni sé gætt þá skal tekið fram að við erum ekki alltaf svona norð­ar­lega og oft höfum við þokka­legt síma- og net­sam­band, þó það sé ekki hér.“

Óttast annan skell

Eiríkur er í þeim hópi sem ótt­ast eina COVID-bylgju til við­bótar. Hann merkir það á því að fyrir jól mat hann það svo að fjöl­margir virt­ust ætla að hunsa til­mæli sótt­varn­ar­læknis og ekki átta sig á hversu alvar­leg eft­ir­köst veirunnar séu. Þá hrósar hann Þórólfi og sam­starfs­mönnum hans og telur þau hafa staðið sig með miklum sóma.

„Fólk á bara að fara eftir því sem þau segja í einu og öllu, punktur!“

Eiríkur tekur sterkt til orða og það er því ekki hægt að sleppa honum án þess að inna hann eftir hvaða skoðun hann hafi á upp­á­tæki Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra. Bjarni var stað­inn að því að brjóta reglur um sótt­varnar. Eiríkur segir flesta Íslend­inga hafa lagt sig fram um að fylgja ábend­ingum sót­varn­ar­læknis. Íslend­ingar hafi lagt miklar fórnir. Þeir hafi ekki hitt for­eldra sína, systk­ini eða vini í fleiri mán­uði.  Þá hafi margir misst vinnu og atvinnu­lífið orðið af gíf­ur­legum fjár­hæðum. Fyr­ir­tæki hafi skellt í lás og farið í þrot.

„Svo ég nefni dæmi í mínu umhverfi þá stopp­uðum við skipið í heila viku í landi fyrir þennan túr til að tryggja það að eng­inn af þeim sem voru að koma úr fríi væru smit­aðir. Þeir voru látnir vera í ein­angrun á sótt­varna­hót­eli og þurftu að taka fjórar skimanir áður en þeir fengu að koma um borð. Þetta heitir að sýna ábyrgð en kost­aði tugi millj­óna í aflatjóni,“ segir Eiríkur.

Félaginn á mynd­inni varð á okkar vegi í morgun. Hann virt­ist sem betur fer í góðum holdum og kippti sér lítið upp við ónæðið.

„Rík­is­stjórn­inni hefur orðið tíð­rætt um að allir þurfi að standa saman í bar­átt­unni gegn Covid en þá kemur fjár­mála­ráð­herra og sínir svo mikið dóm­greind­ar­leysi að maður trúir varla því sem maður sér. Eftir höfð­inu dansa lim­irnir og ef þetta á að vera fyr­ir­myndin er eins gott að biðja guð að blessa Ísland aftur. Þetta er ófyr­ir­gef­an­leg hegðun.“

Ef bráð­nauð­syn­legt hefði verið fyrir fjár­mála­ráð­herra að sækja sam­kund­una heim, ef þjóð­ar­hagur væri í húfi, hefði Bjarni, að mati Eiríks, engu að síður átt að huga vand­lega að smit­vörnum.

„En þetta var full­kom­lega ónauð­syn­legt partí­hald, sem er fárán­legt,“ segir Eiríkur og bætir svo við: „Að því sögðu þoli ég ekki stjórn­mála­fólk úr öðrum flokkum sem er að reyna að nýta sér þessi afglöp í eigin þágu og til að slá póli­tískar keilur.“

Ævintýri á jóladag

Stundum ger­ast óvænt og skemmti­leg ævin­týri á sjónum. Eitt slíkt átti sér stað á jóla­dag. Eiríkur lýsir þeirri atburða­rás á þessa leið á Facebook-síðu sinni:

„Eftir að hafa verið að veiðum norður í rass­gati að und­an­förnu neydd­umst við til að hörfa undan stormi og hafís vestur fyrir Sval­barða og inn á Isfjord á aðfanga­dag. Við Isfjord stendur höf­uð­stað­ur­inn Longye­ar­byen þar sem Kristján vinur minn Breið­fjörð, Svavars heit­ins Cesars– og Guð­nýj­ar­son býr ásamt fjöl­skyldu sinni.

Í gær, jóla­dag, vorum við að veiðum skammt frá landi við Longye­ar­byen þegar Kristján mætti í fjör­una og óskaði okkur gleði­legra jóla með ljós­merkjum á morsi. En fyrir þá sem ekki vita hvað „morse“ er, þá er það staf­róf sem notað er til fjar­skipta með ljós- eða hljóð­merkjum á sjó.

Kristján var að sjálf­sögðu alvopn­aður enda staddur á kunnum bjarn­dýra­slóðum og skammt frá þeim stað þar sem ísbjörn varð manni að bana í haust.

Þetta er frum­leg­asta og skemmti­leg­asta jóla­kveðja sem ég hef fengið og mun­aði minnstu að við félag­arnir, ég og Skröggur dyttum í jólagír­inn.

Það má eig­in­lega segja að þetta hafi verið Covid–jóla­hitt­ingur hjá okkur Krist­jáni.

Ef vel er gáð sést skært ljós neð­ar­lega til hægri á annarri mynd­inni en þar er Kristján í fjör­unni að morsa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina