Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Neyðaróp að innan: Neyðaróp vinar

Neyðaróp að innan: Neyðaróp vinar

Eftir / Óla Stefán Fló­vents­son

Það getur verið erfitt að eign­ast vini, sanna vini. Ég á fullt af vinum og er hepp­inn að eiga þá að. Vina­sam­böndin eru af ýmsum toga. Allt frá því að vera \“high five\“ vinur og alveg í bestu vin­ina sem maður treystir fyrir öllu. Einn af þeim bestu hét Hafliði Ottósson.

Við Hafliði kynnt­umst í gegnum sam­eig­in­legan vin. Við náðum strax einkar vel saman, jafn­vel þó að ég væri þremur árum eldri. Ég fann það strax að hann var traustur og ein­stak­lega skemmti­legur drengur.

Við félag­arnir komum úr ólíkum áttum. Ég úr heimi íþrótta en hann var gal­vaskur sjó­ari. Það var samt alltaf þannig að hann sýndi bolt­anum mik­inn áhuga. Á sama hátt hafði ég gaman af hans sögum af sjó­manns­líf­inu og öllu sem því tengd­ist. Hafliði var nefni­lega dug­legur sjó­maður enda af miklum sjó­mann­sættum kom­inn.

Þeir sem þekktu Hafliða geta vottað fyrir það að dreng­ur­inn var oft­ast hrókur alls fagn­aðar og mikil gleði í kringum hann. Það var hans kraftur og styrkur. Hann gaf þá gjöf að brosa sem er mjög van­metið í hinu dag­lega lífi.

28. des­em­ber 1996 kom Hafliði í heim­sókn til mín um kvöld­mat­ar­leytið. Við áttum spjall sem ég gleymi aldrei. Á þessum tíma sem hann sat hjá mér og spjall­aði man ég að ég hugs­aði hvað ég væri hepp­inn að eiga hann sem vin. Þegar að nóg var komið að kjafta­gangi, var komið að kveðju­stund. Í and­dyr­inu tókum gott faðm­lag og ég horfði á eftir honum ganga eftir stétt­inni og setj­ast upp í Galant­inn sinn. Í dag sé ég þetta móment í \“slow motion\“. Ég sé fyrir mér þegar að hann opn­aði bíl­hurð­ina, leit á mig og brosti til mín sýnu fal­lega brosi, sett­ist inn í bíl­inn og ók á brott. Þetta var í síð­asta skipti sem ég sá Hafliða Ottósson.

Á meðan hans hlut­verk var að gefa af sér gleði og ánægju náði hann að fela eigin innri bar­áttu. Ég sá ekki það mikla stríð sem hann var í . Ég leita enn þá að merkjum sem hann gæti hafa verið að gefa frá sér í kall á hjálp. Sá innri djöf­ull sem hann barð­ist við hafði betur og Hafliði tók eigið líf árla morg­uns 29. des­em­ber 1996.

Það eru liðin rúm 20 ár síðan vinur minn kvaddi. Ég hugsa oft til hans, þá með bros á vör.  Ég hef eign­ast á þessum tíma marga trausta og góða vini en engan alveg eins og Hafliða. Á meðan laufin sofa liggja spað­arnir and­vaka, var atriði úr gömlu ára­mótaskaupi sem við hlógum mikið að og varð að einka­húmor í vina­hópnum. Á meðan laufin sofa liggja spað­arnir and­vaka á einkar vel um Hafliða og þá fjöl­mörgu vini og fjöl­skyldu hans sem enn í dag sakna hans mikið. Á meðan laufin sofa liggja spað­arnir and­vaka er ritað á leg­stein Hafliða Ott­ós­sonar.

Í dag tek ég vin­áttu ekki sem sjálf­sögðum hlut. Ég virði vini mína og reyni að vera til staðar fyrir þá. Ég er alls ekki feim­inn við að opna mig og ræði til­finn­ingar mjög opin­skátt, því ég vil að þeir geri það sama við mig. Ég reyni að kom­ast í gegnum bros þeirra ef það skyldi leyn­ist neyð­aróp þar fyrir innan, því það er oftar en ekki vel falið.

Hugsum vel um hvort annað því við vitum ekki nema okkar nán­ustu séu í myrkr­inu og þurfi hjálp­ar­hönd til að rata inn í ljósið að nýju.

Höfundur er knatt­spyrnu­þjálf­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ