Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pabbi ég sakna þín: Pabbi ég elska þig – Hvíldu í friði

Pabbi ég sakna þín: Pabbi ég elska þig – Hvíldu í friði

Eftir / Snærúnu Ösp Guð­munds­dóttur

Þann 15 mars 1981, dó pabbi minn. Að­eins 31 árs gam­all. Hann dó frá eigin­konu og 3 litlum börnum, 8 ára, 7 ára og 1 árs.

Þennan dag tók hann sitt eigið líf. Ég var bara rúm­lega eins árs þegar hann dó og þekkti hann því ekki en hef heyrt af honum sögur.

Hann var senni­lega ein­fari að mörgu leyti, leið ekki vel í kringum mikið af fólki nema þá kannski ef hann var undir á­hrifum á­fengis.

Honum gekk vel í skóla og fékk glimr­andi ein­kunnir. Lærði bú­fræði við Há­skól­ann á Hólum og var bóndi allt sitt líf. Hann átti stórt bú með kúm, kindum, hænum og hestum. Honum var margt til lista lagt, var t.d góður smiður. Pabbi var mik­ill hesta­maður, rækt­aði hesta og átti sjálfur um 40 hesta og seldi þá einnig til Þýska­lands. Hann kenndi okkur syst­kin­unum að sitja hest áður en við vorum farin að ganga.

Senni­lega var það skemmti­leg­asta sem hann gerði var að fara í nokkra daga hesta­ferðir með góðum fé­lögum. En á­fengið var hans böl og átti eftir að taka yfir hans líf. Einnig átti hann senni­lega við þung­lyndi að stríða. Hann var góður og blíður maður, með hjarta úr gulli. Hann var góður við fjöl­skyld­una og svo stoltur af börn­unum sínum en þegar hann var undir á­hrifum þá breytt­ist hann. Hann var aldrei vondur við börnin sín en þegar hann reidd­ist lét hann það senni­lega bitna mest á mömmu.

Einn dag­inn datt pabbi í það og drakk fram á næsta morgun. Um morg­un­inn rifust for­eldrar mínir og end­aði það rifr­ildi með því að pabbi fór fram í for­stofu og skaut sig í haus­inn. Við skot­hljóðið vökn­uðu bræður mínir. Á bænum bjó gam­all maður sem vann hjá okkur, hann fór að at­huga með pabba á meðan mamma fór til bræðra minna til að huga að þeim.

Mikil skömm og engin hjálp

Á þessum tíma, árið 1981 var það mjög mikil skömm ef ein­hver tók líf sitt. Það mátti aldrei tala um þetta. Það var engin á­falla­hjálp. Mamma fékk eina svefn­töflu svo hún gæti nú sofið nótt­ina á eftir en fékk enga frek­ari hjálp og enga eftir­fylgni. Svona hlutir voru bara þagg­aðir niður.

Bræður mínir hafa þurft að glíma við marg­vís­leg vanda­mál eftir þetta gríðar­lega á­fall. Þetta var svo mikil skömm, það mátti aldrei tala um þetta. Mér var sagt að pabbi hafi dáið í slysi og var ég orðin sirka sjö ára þegar ég kemst að því hvernig hann dó. Ég hef alltaf átt erfitt með að tjá mig um það, örugg­lega ein­hver skömm þarna.

Margir sem þekkja mig vita örugg­lega ekki hvernig pabbi dó. En ég hef síð­ast­liðið ár rætt þetta opin­skátt við fólk ef það spyr mig, en mér finnst alltaf erf­ið­ast að fá við­brögð þeirra sem spyrja mig hvernig pabbi dó. Fólki finnst ó­þægi­legt að heyra þetta og ég skil það bara mjög vel. Ræturnar í tengsl við for­eldra liggja djúpt og þrátt fyrir að ég hafi aldrei þekkt hann þá sakna ég hans á hverjum degi. Ég hefði viljað kynn­ast honum og að börnin mín hefðu fengið að kynn­ast honum.

En sem betur fer eru breyttir tímar, það má tala um svona og það á að tala um svona. Það má ekki þagga svona niður. Þessi pist­ill á alls ekki bara að fjalla um pabba og allan harm­leik­inn í kringum dauða hans, það væri efni í heila bók. Heldur langar mig að fara yfir fræði­legar og tölu­legar stað­reyndir um sjálfs­víg. Hvíldu í friði. Ég elska þig.

Um sjálfs­víg:

Sjálfs­víg á sér oft undan­fara í löngu og flóknu ferli, sem endar með því að ein­stak­lingur tekur þá af­drifa­ríku á­kvörðun að enda líf sitt. Inn í allt þetta ferli spila fé­lags­legar að­stæður sem geta verið skyndi­leg á­föll, missir eða lang­var­andi streita. Per­sónu­legir þættir skipta þarna líka miklu máli sem kunna að ein­kenn­ast af reiði og hvat­vísi, ó­hóf­leg á­fengis-og vímu­efna­neysla og síð­ast en ekki síst geð­sjúk­dómar, t.d. þung­lyndi og kvíði. Það hefur viljað brenna við að sjálfs­víg sé sveipað dul­úð en ekki verður þó horft fram hjá því sjálfs­víg er alltaf harm­leikur sem hefur gríðar­leg á­hrif á um­hverfi þess sem sviptir sig lífi, fjöl­skyldu, vini og aðra.

Það mætti á­ætla að tugir ein­stak­linga sem tengdir eru ein­stak­ling sem sviptir sig lífi muni finna fyrir veru­legri röskun á geð­heilsu. Í flestum til­fellum mun um tíma­bundna röskun að ræða, en nokkur hluti þessa hóps mun þurfa fag­lega ráð­gjöf eða sér­fræði­með­ferð til að ná sér aftur á strik. Þeir sem eftir lifa sitja eftir upp­fullir af sárum til­finn­ingum, undrun, dofa, af­neitun, ákafri sorg, reiði, sjálfs­á­sök­unum eða á­sök­unum á aðra. Sjálfs­mynd að­stand­enda brotnar og þeir sitja eftir með á­leitnar spurn­ingar, t.d. kenna sér um hvernig fór og hafa oft til­hneig­ingu til að ein­angra sig. Erfitt getur verið að vinna úr sárs­auk­anum og sumir losna aldrei undan honum.

Mynd / Skjáskot RÚV

Tölu­legar upp­lýsingar

Þrír til fjórir ein­stak­lingar munu svipta sig lífi í hverjum mán­uði á Ís­landi. Karlar eru mun lík­legri en konur sem gera fleiri sjálfs­vígs­til­raunir sem enda ekki með dauða. Það veldur á­hyggjum hve sjálfs­vígs­tíðni karla undir 25 ára hefur auk­ist undan­farna ára­tugi, ekki bara á Ís­landi heldur víða um heim. Or­sakir eru ó­kunnar og ef­laust marg­þættar en ekki er ó­lík­legt að örar fé­lags­legar breyt­ingar, jafn­vel breyt­ingar á sam­fé­lags­legri stöðu karl­manna kunni að hafa þarna ein­hver á­hrif. Þeir sem taldir eru í sér­stakri hættu á að taka líf sitt eru fólk með al­var­legar geð­rask­anir, sér­stak­lega þung­lyndi og geð­rofs­sjúk­dóma. Þeir sem einu sinni hafa gert til­raun til sjálfs­vígs eru mun lík­legri en aðrir til að reyna að fyrir­fara sér. Ungir karl­menn, sér­stak­lega hafi þeir ekki náð að marka sér stefnu í sam­fé­lag­inu, verða utan­veltu. Hvat­vísir karl­menn. Ungir karl­menn og konur með al­var­lega fíkni­sjúk­dóma. Karl­menn utan sam­búðar. Fangar, einkum í upp­hafi fanga­vistar. Konur sem eru komnar yfir miðjan aldur eru í meiri hættu en yngri konur. Há­aldr­aðir ein­stak­lingar, þ.e. 85 ára og eldri. Ein­stak­lingar sem verða fyrir á­föllum

Þegar metin er sjálfs­víg­hætta:

– Fyrri til­raunir

– Von­leysi

– Stera­notkun, auka x7 á­hættu á sjálfs­vígi

– Kyn (karlar gera hættu­legri til­raunir)

– Lang­var­andi svefn­leysi

– Geð­rofs­ein­kenni

– Neysla

– Lang­var­andi veik­indi

– Býr einn

– Krísa

– Reiði/að­sóknar­kennd

– Hvat­vísi

– Vopn á þér eða á heim­il­inu

– Nú­ver­andi plön (undir­bún­ingur)

– Nú­ver­andi sjálfs­skaði

– Kveðju­bréf

Snærún Ösp Guðmundsdóttir

Síður sem hægt er að leita sér upp­lýsinga vegna sjálfs­víga og sjálfs­vígs­hættu – Smelltu á hlekkinn til að fræðast meira.

Píeta

Hugarafl

Þú skiptir máli!

Sjálfs­víg.is

Snærún Ösp Guð­munds­dóttir. Höfundur er hjúkr­un­ar­fræð­ingur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum