Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bubbi og Eiríkur lasta og krítísera Jón, ritstjóra Fréttablaðsins: „Djöfulsins kjaftæði“

Bubbi og Eiríkur lasta og krítísera Jón, ritstjóra Fréttablaðsins: „Djöfulsins kjaftæði“
Jón Þórisson til vinstri, Bubbi og Eiríkur Rögn­valds­son

Eiríkur Rögn­valds­son fyrrum pró­fessor í íslenskri mál­fræði við Háskóli Íslands og Bubbi Morthens gagn­rýna Jón Þórisson, rit­stjóra Frétta­blaðs­ins harð­lega. Bubbi segir blaðið nán­ast orðið öfga hægri sinnað. Ástæðuna má rekja til þess að Jón Þórisson, rit­stjóri blaðs­ins , líkti í leið­ara vopn­aðri árás á þing­húsið í Banda­ríkj­unum við Bús­á­hald­ar­bylt­ing­una og ger­ist þar skoð­ana­bróðir Hannesar Hólm­stein og Gústafs Níels­sonar.

„Aft­ur­haldið er alltaf að end­ur­skrifa sög­una. Látum það ekki kom­ast upp með svona djöf­uls kjaftæði,“ segir Eiríkur í gagn­rýni sinni á Facebook og fjöl­margir taka í svip­aðan streng í kommentum. Er það helst gagn­rýnt að Jón sjái hlið­stæðu í Bús­á­hald­ar­bylt­ing­unni og í upp­þoti og valda­ránstil­raun for­seta Banda­ríkj­anna, sem jafn­framt er yfir­maður þjóð­varn­ar­liðs­ins er tekst á við óeirðir, í veikri von að halda völdum þvert á nið­ur­stöður lög­mætra kosn­inga.

Þá hefur séra Sigríður Guð­mars­dóttir bent á að Trump hafi sigað múg á lög­gjaf­ar­valdið á einu við­kvæm­asta augna­bliki lýð­ræð­is­ins, þegar vald for­seta er fært yfir til ann­ars for­seta að kjör­tíma­bili loknu. Þá sér Jón Þórisson hlið­stæði í fram­göngu Álf­heiðar Inga­dóttur, þá þing­manns í stjórn­ar­and­stöðu, sem gerð­ist sek um það á einum tíma­punkti að veifa til mót­mæl­enda. Var það túlkað af sumum að með þessu væri hún að hvetja mót­mæl­endur til dáða eða vísa þeim að þing­hús­inu. Álf­heiður, sem Jón segir vera land­ráða­mann, var ekki for­sprakki mót­mæl­anna. Forsenda þess­ara tveggja mót­mæla eru einnig gjör ólík. Bús­á­hald­ar­bylt­ingin átti sér stað í kjöl­far Hrunsins og var byggð á reiði almenn­ings . Mótmælin í Banda­ríkj­unum eru á for­sendum sam­sær­is­kenn­inga um kosn­inga­svik.

Rit­stjóri Frétta­blaðs­ins rifjar síðan upp þegar hópur fólks vildi kom­ast á þing­palla en lentu í átökum við lög­reglu. Níu voru ákærð en sýknuð og þau komust hvorki inn í þing­sal eða sett­ust í stól for­seta þings­ins eða unnu skemmd­ar­verk inni í sjálfu þing­hús­inu. Þykir mörgum það langt seilst hjá Jóni, Hannesi og Gústaf að lýkja þessu saman. Ef tengja eigi atburð­ina við Íslands, sé það aðeins mögu­legt með Jörundi Hunda­daga­kon­ungi.

Þá er bent á að á Íslandi voru vopnin pottar, pönnur, egg og mjólk. Þá er gagn­rýnt harð­lega að Jón, rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, sjái hlið­stæðu í Bús­á­hald­ar­bylt­ing­unni og mót­mælum ytra þar sem dóu fimm manns.

Eiríkur Rögn­valds­son segir:

„Látum það ekki kom­ast upp með svona djöf­uls kjaftæði.“

Bubbi Morthens tón­list­ar­maður tekur til máls og segir: „Sá sem heldur á penna þarna er löngu búin að stað­setja sig sem öfga hægri og skrifar sam­kvæmt því og stendur keikur með sjálfum sér. Maður verður að virða það en vá hvað ég er sammó.“

Helga Kress pró­fessor í almennri bók­mennta­fræði við Háskóla Íslands, tekur í svip­aðan streng og segir: „Það er allt svona eftir þennan rit­stjóra og ekki einu sinni vel skrifað.“

Þá segir Ólína Þor­varð­ar­dóttir, rit­höf­undur og fyrr­ver­andi þing­maður: „Frétta­blaðið er ekki á góðum stað eftir eig­enda­skiptin.“ Bubbi tjáir sig svo aftur og lokar þræð­inum:

„Við getum sagt það sé alla vega orðið æði hægri sinnað, jafn­vel öfga hægri.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi