Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hús Elísabetar læknis eggjað og börnin send burt: „Kæmi varla á óvart ef ég hyrfi eða fyndist dáin“

Hús Elísabetar læknis eggjað og börnin send burt: „Kæmi varla á óvart ef ég hyrfi eða fyndist dáin“

Elísabet Guð­munds­dóttir lýta­læknir hefur fengið lífsláts­hót­anir eftir að hún gerð­ist and­lit bar­átt­unnar gegn Covid-19 sótt­varn­ar­að­gerðum hér á landi. Ekki aðeins lífsláts­hót­anir heldur einnig hót­anir um bar­smíðar og nauðg­anir. Í gær var heim­ili hennar grýtt og hún hefur komið börnum sínum í öruggt skjól.

Elísabet greinir frá þessu í færslu á Facebook þar sem hún birtir jafn­framt mynd af grýttu heim­ili sínu. „Ofbeldið gegn mér tekur engan enda og net­níð­ingar farnir að ráð­ast á mig a heim­ili mínu og eg hef sent börnin mín i öryggi. Ég er særð, leið, hrædd og van­máttug, er beitt ofbeldi og ein­elti ekki aðeins yfir­valda og lög­reglu heldur einnig sam­landa minna. Mér hafa borist alvar­legar hót­anir um bar­smíðar, nauðg­anir og líf­lát og hef greint lög­reglu frá því í tvígang og beðið um aðstoð/vernd,“ segir Elísabet og heldur áfram:

„Þeir settu mig samt út a götu eina um miðja nótt eftir 3ja tíma yfir­heyrslu um miðja nótt eftir að hafa verið hand­tekin, dregin út út bil mínum, hand­járnuð, og beitt hræði­legu ofbeldi lög­regl­unnar. Ég var látin sitja hand­járnuð fyrir aftan bak með poka yfir höfði mér umkringd 5 lög­reglu­mönnum og án lög­fræð­ings eða ann­arar mann­eskju.“

Mannlíf sagði frá hand­tök­unni sem Elísabet vísar til. Hún var hand­tekin á fimmtu­dag og birti af því mynd­band en þá var hún á ferð með Trausta Eysteins­syni, múr­ara og önd­un­ar­sér­fræð­ingi. Hann brjál­að­ist við lög­reglu­menn yfir hand­töku Elísa­betar sem honum þótti harka­leg. Hún grét og grét.

Elísabet var stöðvuð af lög­reglu þar sem hún var eft­ir­lýst eftir að hafa ekki mætt í skýrslu­töku. Hún hefur þetta að segja um hand­tök­una og síð­ustu vikur:

„Það er óraun­veru­legt það sem komið hefur fyrir mig und­an­farnar vikur. Glæpur minn sem þið dæmið og kastið steinum í, er að hafa rætt opin­ber­lega hvað þið þjóð mín getið gert til þess að styrkja ónæm­is­kerfi ykkar og bent á lang­tíma áhrif félags­legrar ein­angr­unar og grimunotk­unar á börnin okkar. Það kæmi varla nokkrum manni á óvart ef ég hyrfi eða hrein­lega fynd­ist dáin vegna “sjálfs­vígs” eða lét­ist “af slys­förum”, en slíkt hefur svo sann­ar­lega gerst á Íslandi margoft áður þegar ekki tekst að þagga fólk,“ segir Elísabet og bætir við:

„Það var byrjað með því að reka mig af Háskóla­sjúkra­hús­inu okkar allra, 1,5 mán­uði síðar voru starfs­rétt­indi mín tekin af mér, síðan tók lög­reglan við, en ég hef verið stöðvuð 6 sinnum á 3 vikum af lög­regl­unni m.á vegna gruns um að td taka of hægt af stað á grænu ljósi og vegna gruns um að hafa hugs­an­leg ætlað grímu­laus inn í verslun. Loks var ég hand­tekin sl fimmtu­dags­kvöld eins og ég væri stór­hættu­legur vopn­aður glæpa­maður þegar ég var að keyra vin minn heim. Í dag hefur svo fólk ráð­ist að mér á heim­ili mínu sem tölu­vert þarf að leggja á sig til að kom­ast að. Ég get ekk­ert leitað þegar öryggi barna minna og mín er ógnað og vil biðja þjóð mína um stuðn­ing gegn þessu áður en það verður of seint.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi