Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Landasalinn sem varð uppljóstrari – Fyrirmynd skúrks í bíómynd – Nekt fyrir dómi

Landasalinn sem varð uppljóstrari – Fyrirmynd skúrks í bíómynd – Nekt fyrir dómi

Maðurinn á flestra vörum þessa dag­ana er Anton Kristinn Þór­ar­ins­son. Skjöl sem láku á netið um helg­ina sýndu að hann hefur verið upp­ljóstr­ari lög­regl­unnar í meira en ára­tug. Anton hefur raunar lengi verið umtal­aður og mikið slúðrað um hann und­an­farin ár. Því hefur verið  haldið fram  að hann væri fíkni­efna­kóngur Íslands sem verður að telja vafa­samt. Þá er gott að hafa í huga að gögnin sem láku um helg­ina byggðu fjöll­uðu um rann­sókn sem varð til vegna sögu­sagna. Nið­ur­staða Hér­aðs­sak­sókn­ara var sú að ásak­anir um að Anton hefði lög­regl­una í vas­anum væri ein­fald­lega rangar.

Anton hefur þó í áranna rás komið víða við og nokkuð ágrein­ings­laust að hann hafi ekki verið neinn eng­ill. Þó er rétt að nefna að í yfir­heyrslu Hér­aðs­sak­sókn­ara seg­ist hann hafa verið í rugli og neyslu en sé það ekki lengur. Sumir myndu segja að heim­sókn hans á Jóla­gesti Björg­vins renni stoðum undir það.

Góðir nágrannar

Anton er úr Árbænum og verður 42 ára síðar á þessu ári. Í dag er hann vænt­an­legur nágranni Björns Leifs­sonar í World Class en þeir eiga hús­eignir hlið við hlið á Hauka­nesi á Arn­ar­nes­inu. Anton keypti það hús á um 120 millj­ónir krónur. Húsið var áður í eigu Rasmus Rojkjaer, fyrr­ver­andi for­stjóra Alvotech á Íslandi. Anton hefur jafnað húsið við jörðu og er að láta byggja nýtt á lóð­inni. Sam­býl­is­kona hans er skráð með lög­heim­ili þar.

Hann byrj­aði þó smátt ef marka má frá­sagnir Árbæinga. Einn þeirra, Maggi Pera, lýsir því á Twitter hvernig Anton var besti landa­sölu­maður lands­ins á árum áður. „Í dag eyddi ég tveimur klukku­stundum að lesa yfir­heyrslur yfir lög­reglu­mönnum og athafna­manni úr Árbæ. Það lét hug­ann leita aftur til ung­lings­ár­anna. Athafna­mað­ur­inn var með einn besta landa bæj­ar­ins á eftir knatt­spyrnu­manni úr Breið­holti. Aðrir áttu ekki breik!,“ skrifar Maggi.

Sleppur vel

Anton var ein­ungis 21 árs þegar hann fékk þriggja ára dóm fyrir e-töflu­smygl um alda­mótin. Þess má geta að þar var hann dæmdur ásamt Guðmundi Inga Þór­odds­syni, sem hefur getið sér orð sem lif­andi sönnun þess að betrun skilar árangri. Hann er nú í fram­boði fyrir Sam­fylk­ing­una.

Anton lenti aftur á sak­manna­bekk árið 2008. Þá var hann dæmdur í tveggja ára fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Hæsti­réttur sýkn­aði hann þó í því máli. Því verður ekki betur séð en Anton hafi lítið sem ekk­ert dvalið í fang­elsi.

Árið 2008 sner­ist málið um smygl á um 700 grömmum af sterku kóka­íni. Árið 2015 var hann svo sak­aður öllu væg­ara brot, kanna­bis­ræktun. Þá var hann sýkn­aður en í frá­sögn Vísis frá þeim tíma var sagt: „fram kom við aðal­með­ferð máls­ins að Anton Kristinn var beittur ýmsum þving­un­ar­að­gerðum við rann­sókn lög­reglu. Þar á meðal var gerð hús­leit á heim­ili hans, sím­inn hler­aður ásamt því að lög­reglan skoð­aði tölvu­póst hans og banka­reikn­ing.“

Margt við það mál var furðu­legt þá og nú enn grun­sam­legra í ljósi þess að hann hafði verið upp­ljóstr­ari lög­regl­unnar um ára­bil þegar þetta gerð­ist. Afbrotið var fyrst rann­sakað árið 2010 en ákæra kom ekki fyrr en fjórum árum síðar. Lögregla gat ómögu­lega útskýrt margra ára töf á mál­inu. Anton fór í skaða­bóta­mál og fékk 400 þús­und krónur frá rík­inu.

Nektarmyndir á Google

Skaða­bóta­mál eru raunar meira áber­andi en afbrot sé nafni Antons flett upp á vef dóm­stóla. Yfir­leitt voru þau mál gegn rík­inu en eitt sner­ist gegn atvinnu­ljós­mynd­ara. Sú mynd sem dregin er af honum í þeim dómi lík­ist ekki harðsvíruðum glæpa­kóngi heldur elsku­legum eig­in­manni sem vill halda einka­lífi sínu fjarri sviðs­ljós­inu.

Þannig var mál með vexti að Anton fór í fjöl­skyldu­mynda­töku á ljós­mynda­stof­unni Nærmynd ásamt unn­ustu sinni, Ellen Erlu Egils­dóttur. Teknar voru þrjá­tíu myndir og allir virt­ust sáttir. Ári síðar runnu þó tvær grímur á Anton þegar hann var að gúggla sitt eigið nafn og sá mynd­irnar. Þær höfðu verið vistaðar utan einka­svæðis. Anton hafði sam­band við ljós­myndar­ann sem brást við og fjar­lægði þær. Ástæða þess að það dugði ekki er lík­lega sú að hann og Ellen voru nakin á sumum mynd­anna.

Í dómi segir: „Fram­burði stefn­anda, Antons Kristins, fyrir dómi kom fram að honum hafi liðið illa með að hafa mynd­irnar á Netinu. Þær hefðu ekki átt að fara á Netið en verst hafi verið að sjá hvað Ellen hafi liðið illa út af þessu“.

Mætti á frumsýninguna

Fram­leið­and­inn Baltasar Kormákur hefur gert kvik­mynd sem er að hluta byggð á atburðum úr for­tíð Antons. Sú mynd heitir Eiðurinn og er lýst svo í kynn­ingu á RÚV: „Íslensk kvik­mynd um Finn, virtan hjarta­skurð­lækni sem kemst að því að dóttir hans er komin í neyslu. Þegar hún kynnir alræmdan dóp­sala fyrir fjöl­skyld­unni sem nýja kærast­ann ákveður Finnur að taka til sinna ráða.“ Án þess að spilla fyrir mynd­inni þá ber Baltasar Kormákur mann­inn sem er byggður á Antoni.

Ólafur Egill Egilsson, leik­ari og leik­stjóri, skrif­aði hand­ritið ásamt Baltasar og hefur sagt í við­tali að saga mynd­ar­innar sé per­sónu­leg. Kveikjan var hagir yngri systur Ólafs. Systir hans er áður­nefnd Ellen Erla sem þá var þá unnusta Antons og er það enn. Sagan segir að hann hafi mætt á for­sýn­ing­una og sagt glett­inn eftir ónefnt atriði: „Þetta gerð­ist ekki svona!“

Ólafur Egill var þó alvar­legur í fyrr­nefndu við­tali og sagði rót mynd­ar­innar löngun hans til að bjarga systur sinni. Hann er elstur barna Egils Ólafss­sonar tón­list­ar­manns og Tinnu Gunn­laugs­dóttur, fyrr­ver­andi þjóð­leik­hús­stjóra, en Ellen er ell­efu árum yngri. „Við komum eig­in­lega alveg af fjöllum þegar það skyndi­lega rann upp fyrir okkur að hún var komin í mikil vand­ræði með fíkni­efni og sitt líf. Við bræð­urnir höfðum báðir tekið okkar rispur á yngri árum, hlaupið af okkur hornin, og fengum til þess eðli­legt svig­rúm. Ég held að for­eldrar mínir hafi gert ráð fyrir hinu sama, eins og allir for­eldrar […] „Systir mín hefur alltaf verið sjálf­stæð og fylgin sér og var á þessu tíma­bili flutt að heiman og komin með kærasta sem var tölu­vert eldri, hún var svona að finna út úr því hvaða stefnu hún vildi taka í til­ver­unni en það bar ekki á öðru en að hún hefði góða stjórn á sínu lífi,“ sagði Ólafur.

Síðan fékk Ólafur skyndi­lega sím­tal. „„Það kom sím­tal um miðja nótt frá lög­reglu og sjúkra­liði. Þá var hún búin að missa algjör­lega fót­anna, búin að vera vak­andi um langa hríð eftir mikið djamm og vissi eig­in­lega hvorki í þennan heim né annan en hafði þó rænu á því að kalla á hjálp,“ lýsir Ólafur.

Íhugaði að drepa hann

Stuttu síðar lá Ólafur and­vaka og fékk þá hug­ljómun um að hann þyrfti að koma ást­manni systur sinnar fyrir katt­ar­nef. „Svo fæ ég það í haus­inn, að þetta sé allt þessum kærasta hennar að kenna. Ef ég gæti með ein­hverjum ráðum komið í veg fyrir að þau væru saman myndi hún örugg­lega ná áttum. Sú hugsun leit­aði á mig að ég þyrfti að stía þeim í sundur. En það var ekki á mínu valdi, hann hafði tekið alla stjórn á lífi hennar og var ekk­ert að fara að sleppa tak­inu. Á þessum tíma­punkti var ég far­inn að sjá það sem einu lausn­ina að kærast­inn hyrfi úr lífi hennar og hrein­lega far­inn að fabúlera um það í hug­anum hvernig það gæti gerst. Hvernig ég gæti losnað við hann. Svo var eins og rynni af mér. Ég var orð­inn sjúkur. Sjúkur af með­virkni, ýktri ábyrgð­ar­til­finn­ingu og stjórn­semi,“ lýsti Ólafur í við­tal­inu.

Ólafur sá að sér og úr varð kvik­myndin Eiðurinn. Ólafur ítrek­aði að myndin væri þó ekki ævi­saga systur hans. Viðtalið á Vísi var birt fyrir um fjórum árum og hafði hann orð á því að Ellen hefði náð sér án hans aðkomu. „Á sínum hraða og sínum for­sendum náði hún að vinna sig upp úr þessu. Hún lifir sínu lífi í dag, á litla stelpu, er í góðri sam­búð og alls ekki á neinni helj­ar­þröm,“ sagði hann en nefndi ekki að hún væri enn með sama manni. Orð hans end­ur­spegla þó mögu­lega breyttar og betri aðstæður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag